Morgunblaðið - 18.04.2013, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 18.04.2013, Qupperneq 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2013 ✝ Sigrún Tóm-asdóttir fædd- ist að Bolafæti (nú Bjargi) í Hruna- mannahreppi 4. febrúar 1924. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Fossheimum á Sel- fossi 8. apríl 2013. Foreldrar Sig- rúnar voru þau Tómas Júlíus Þórð- arson, bóndi og söðlasmiður, f. 21. júlí 1876 í Gröf í Hruna- mannahreppi, d. 23. mars 1960 og kona hans Þóra Loftsdóttir húsfreyja, f. 10. júlí 1885 í Steinsholti í Gnúpverjahreppi, d. 6. júlí 1970. Sigrún var yngst fjögurra systkina en þau voru Sveinn, f. 8. október 1913, d. 2011, Sigurður Loftur, f. 16. september 1915, d. 2002 og Þóra, f. 10. september 1917, d. 2005. Eiginmaður Sigrúnar var Magnús Sigurðsson, f. í Mikla- holtshelli í Hraungerðishreppi 5. ágúst 1914, d. 18. maí 1985. Sigrún og Magnús gengu í hjónaband 1960. Sonur þeirra er Sigurður Tómas Magnússon, hæstaréttarlögmaður og pró- mikill jarðhiti og auk hefðbund- ins búskapar með kýr og kindur var stunduð þar kartöflu- og gulrótarækt. Margt var oft í heimili á Grafarbakka en auk fjölskyldunnar og vinnufólks dvaldi þar um árabil ung ekkja, Halla Guðmundsdóttir, með þrjú ung börn sín. Magnús fluttist að Grafarbakka 1963 og sneru þau Sigrún sér þá eingöngu að yl- rækt og ræktuðu einkum hvít- kál, gulrófur, gulrætur, blómkál og spergilkál. Þau Magnús ferð- uðust mikið um landið og sér- staklega í óbyggðum. Eftir and- lát Magnúsar 1985 stundaði Sigrún garðyrkjuna um skeið með syni sínum en síðan í félagi við Ragnhildi Þórarinsdóttur undir nafninu SR-grænmeti og gekk Ragnhildur henni nánast í dóttur stað. Garðyrkjustörfin voru líf og yndi Sigrúnar alla tíð og vann hún við garðyrkjuna eins og kraftar leyfðu fram yfir áttrætt. Sigrún tók virkan þátt í starfsemi Kvenfélags Hruna- mannahrepps og síðar félagslífi eldri borgara í hreppnum. Þá ferðaðist hún mikið með eldri borgurum í Árnessýslu og hafði mikla ánægju af þeim fé- lagsskap. Á 87. aldursári flutti Sigrún á hjúkrunarheimilið Fossheima á Selfossi þar sem hún dvaldi síðan við frábært at- læti og umönnun. Útför Sigrúnar fer fram frá Hrunakirkju í dag, 18. apríl 2013, kl. 14. fessor við lagadeild Háskólans í Reykja- vík, f. 15. júní 1960. Eiginkona hans er Huld Konráðs- dóttir, BA í frönsku, lýðheilsu- fræðingur og flug- freyja, f. 5. ágúst 1963. Börn þeirra eru: a) Sigrún Hlín, f. 20. mars 1988, BA í íslensku og nemandi við Listaháskóla Ís- lands, sambýlismaður hennar er Friðgeir Einarsson sviðs- listamaður, þau eiga saman son f. 27. mars 2013, b) Margrét Sif, f. 3. febrúar 1994, versl- unarskólanemi, unnusti hennar er Þórir Guðjónsson há- skólanemi, c) Magnús Konráð, f. 22. júní 1998̧ grunnskólanemi. Sigrún ólst upp með for- eldrum sínum í Bolafæti í Hrunamannahreppi en flutti með fjölskyldunni að Graf- arbakka 2 í sömu sveit þegar hún var 11 ára gömul. Sigrún gekk í barnaskólann á Flúðum en að loknu fjögurra ára skyldu- námi vann hún við bú foreldra sinna og stundaði síðar búrekst- ur með þeim. Á Grafarbakka er Besta amma í heimi. Þessi orð fékk Sigrún Tómasdóttir amma mín oft að heyra enda voru þetta orð að sönnu. Amma var ein- staklega hjartahlý og blíð og það smitaði út frá sér. Ég get ekki varist tregafullu brosi þegar ég rifja upp allar þær yndislegu stundir sem ég átti með henni ömmu minni. Ekkert var skemmtilegra en að koma í sveitasæluna til ömmu um helgar. Undantekningarlaust tók hún á móti okkur systkinun- um með opnum faðmi og nokkr- um volgum flatkökum. Ég man ekki eftir að hafa komið svöng heim úr sveitinni enda passaði amma vel upp á það. Amma var hógværðin upp- máluð, sérstaklega þegar hún bar kræsingar á borð en þá gerði hún yfirleitt þann fyrir- vara að allt væri seigt og þurrt, sem það var að sjálfsögðu ekki. Hún setti sjálfa sig sjaldan í fyrsta sæti og leyfði barnabörn- unum þremur alltaf að láta ljós sitt skína. Amma var þolinmóð og skipti aldrei skapi þótt ég hafi líklega oft átt skammir skildar. Vinkonur mínar fengu oft að fljóta með í sveitaferðir á sumr- in. Við spiluðum oftar en ekki fótbolta í garðinum fyrir framan ömmuhús en að leik loknum bar amma fram lambalæri með ný- uppteknu grænmeti og búðing á eftir. Góðar minningar um ömmu mun ég varðveita í brjósti mér svo lengi sem ég lifi. Margrét Sif Sigurðardóttir. Amma mín og nafna, Sigrún Tómasdóttir, hafði til að bera alla þá kosti sem geta prýtt eina ömmu, og fleiri til. Hún hafði hlýja og þægilega nærveru, og hafði einstakt lag á því að hrósa fólki og láta því líða vel, hún var sérlega – og mér liggur við að segja úr hófi fram – veitul á mat og drykk, og hún gat spunnið upp langar sögur fyrir okkur barnabörnin, gjarnan um krakka sem lentu í svaðilförum í sveit- inni og jafnvel af yfirnáttúruleg- um fyrirbærum ef sá gállinn var á henni – og var þá stundum á henni að skilja að sagan öll yrði ekki sögð í svo óhörðnuð eyru sem okkar systkinanna. Amma sagði okkur líka frá því þegar hún var stelpa og vildi helst alltaf vera í buxum, úti á hestbaki eða í einhverju ati. Hún hafði líka mest gaman af úti- verkum, og ég var svo heppin að fá að vinna með henni niðri í görðum þegar ég vann um stutta hríð undir stjórn Ragn- hildar Þórarinsdóttur, stórvin- konu ömmu og velgjörðarkonu. Það var ómetanlegt fyrir okk- ur systkinin, borgarbörnin, að eiga athvarf hjá ömmu í sveit- inni, að kynnast öðrum stað, tíma og hugsunarhætti. Slíkt lærist manni með aldrinum að meta og minningarnar um ömmu og úr sveitinni eru með dýrmætustu æskuminningunum, sem verður miðlað áfram til komandi kynslóða. Í síðustu heimsókn minni til ömmu Sigrúnar, tveimur dögum áður en hún dó, var ég svo lán- söm að fá að kynna hana fyrir nýfæddum syni okkar Friðgeirs. Amma ljómaði af gleði og þakk- læti og kallaði drenginn öllum þeim fegurstu nöfnum sem henni duttu í hug. „Hann er glæsimenni, hreint guðdómleg- ur“, varð henni að orði. Það er ljúfsárt að verða vitni að kyn- slóðaskiptum með svo afgerandi hætti. Amma var kát og æðru- laus og innilega þakklát fyrir allt sem fyrir hana var gert allt þar til yfir lauk. Á kveðjustundu er mér sömuleiðis efst í huga þakklæti fyrir að fá að njóta nærveru og gjafmildi ömmu á Grafarbakka. Sigrún Hlín Sigurðardóttir. Nú þegar sólin hækkar á lofti og vorið er á næsta leiti, hefur ástkær föðursystir okkar, Sig- rún Tómasdóttir, kvatt þetta jarðlíf. Sigrún var yngst í hópi fjögurra systkina sem nú eru öll látin. Þau voru börn Tómasar Þórðarsonar, söðlasmiðs og bónda á Grafarbakka í Hruna- mannahreppi og konu hans Þóru Loftsdóttur. Þakklæti og söknuður er okk- ur systrum efst í huga þegar við minnumst Siggu frænku okkar eins og hún var oftast kölluð. Sigga stundaði garðyrkju á jörð- inni Grafarbakka 2 ásamt manni sínum, Magnúsi Sigurðssyni. Útiverkin áttu vel við hana og vorin voru hennar tími, þegar allt fór í gang í garðyrkjunni. Á þeim vettvangi nutu hjónin sín vel, natni þeirra og árvekni skil- aði þeim ávallt hámarks upp- skeru. Bilið milli plantnanna var nákvæmlega eins og það átti að vera, sama hvar horft var á garðinn, alltaf mynduðust línur og munstur svo unun var á að horfa. Mikið var að vonum spáð í veðrið og tíðrafarið þar sem af- koman var undir dyntum náttúr- unnar komin, en alltaf skilaði uppskeran sér í hús og þá voru miklar annir. Eftir lát Magnúsar hélt Sigga áfram að rækta jörð- ina af mikilli elju og dugnaði á meðan heilsa og kraftar leyfðu. Á Grafarbakka var ætíð gest- kvæmt. Sigga kunni þá list að láta öllum líða vel enda var gest- risni henni í blóð borin. Þá voru dýrindis kræsingar fram bornar að ógleymdum heimabökuðu flatkökunum. Sigga var víðlesin og hafði ákveðnar skoðanir á málefnum. Hún hafði mikinn áhuga á skólamálum og minntist oft með hlýju skólaáranna sinna í barnaskólanum á Flúðum. Sigga varðveitti fagurlega skrif- aðar og myndskreyttar stíla- bækur sínar frá þessum tíma. Eftir lát afa kom í hennar hlut að taka að sér starf söðlasmiðs- ins. Hún saumaði hnakktöskur, beisli og gerði við reiðtygi. Allt lék í höndum hennar. Það voru forréttindi fyrir okkur systur að búa í nálægð við Siggu frænku. Við minnumst þess þegar hún kenndi okkur vísur, gátur og sögur. Oft var glatt á hjalla og gripið í spil. Hún hafði alltaf svör á reiðum höndum, stundum var litið í kaffibolla og rýnt í framtíðina. Mjög kært var með henni og foreldrum okkar. Sigga og móðir okkar áttu góðar sam- verustundir, fóru saman í ferða- lög og studdu hvor aðra. Einka- sonur Siggu og Magnúsar er Sigurður Tómas. Við systur höf- um notið þess að eiga hann að sem góðan frænda og vin. Mæðginin Sigga og Sigurður Tómas voru alltaf einstaklega samrýmd og náin. Hún naut samverustunda með fjölskyldu sinni og var stolt af myndarlegu barnabörnunum sínum. Það var gleðilegt að rétt áður en hún kvaddi eignaðist sonardóttir hennar Sigrún Hlín son, sem hún náði að sjá. Við kveðjum einstaka frænku og vinkonu og biðjum Guð að blessa minningu hennar og gefa Sigurði Tómasi, Huld og börn- um þeirra styrk. Anna, Þóra og Sjöfn. Stutt kveðjuorð vigta lítið gagnvart þeirri hlýju og um- hyggju sem ég hef notið síðustu tæplega 40 ár af hálfu Sigrúnar Tómasdóttur sem verður jarð- sungin í Hrunakirkju í dag. Þeg- ar vinskapur tókst með einka- syni hennar, Sigurði Tómasi Magnússyni, í gegnum skólavist á Laugarvatni, urðu heimsóknir á Grafarbakka tíðar, oft í hóp með öðrum. Fjöldinn eða tilefnið skipti engu, alltaf voru veislu- föng á borði og uppbúið rúm til reiðu. Þó hjartahlýja verði tæp- ast skýrð með vísun í kynslóðir þá minnti þel Sigrúnar mig strax á heimilishald ömmu minn- ar í nálægri sveit. Enn þann dag í dag undrar mig umhyggjusem- in sem sýnd var, mitt í amstri dagsins. Alltaf biðu verk, úti sem inni, vegna þess að konur í sveit, þá sem nú, vinna langan vinnudag. Öllu sinnti Sigrún og lagði þó stundum ýmislegt til málanna á sinn kankvísa hátt. Það duldist engum að hún fylgd- ist vel með þó málefni sveit- arinnar væru hjarta hennar næst. Sigrún rak garðyrkjubúskap að Grafarbakka í Hrunamanna- hreppi, fyrst með manni sínum Magnúsi Sigurðssyni, og síðar ein eftir lát hans en þó í nánu samstarfi við son sinn og hjálp- sama nágrana. Ekki varð annað séð en að hún væri sátt við þetta hlutskipti og tengslin við sveit- ina og fólkið þar voru sterk. Hún var órjúfanlegur hluti af því samfélagi sem þar var og er. Það var henni og syni hennar þungbært að ekki skyldu standa til boða þau úrræði að hún gæti dvalið þar allt til loka. Alltaf var hún þó hjá góðu fólki en mestu skipti fjölskyldan og barnabörn- in fengu að kynnast ömmu sem nestar þau út í lífið. Samhengi hlutanna varð síðan léttbærara þegar fyrsta langömmubarnið leit dagsins ljós fyrir skömmu og Sigrún amma náði að vefja það örmum í fyrsta og eina sinn. Við sem eftir stöndum þökkum það sem aldrei verður fullþakk- að. Sigurður Már Jónsson. Nú hefur elsku Sigga mín fengið að kveðja. Ég veit að hún hefur tekið því fagnandi og orðið hvíldinni fegin. Sömuleiðis ætt- um við, sem eftir stöndum, að vera þakklát fyrir að erfiðu sjúkdómsstríði sé lokið. Fyrst og fremst er í huga okkar mikill söknuður og tregi, þegar hugsað er til þess að við eigum ekki eft- ir að sjá Siggu framar. Hún hef- ur svo lengi verið hluti af fjöl- skyldu okkar, vinátta hennar og stuðningur við okkur öll, hefur verið ómetanlegur. Sigga hafði sérlega ljúfa lund, hógvært við- mót og góða nærveru, og þenn- an óborganlega húmor, sem gladdi okkur svo oft. Alls þessa söknum við og minningarnar eru einmitt um þetta og ótal margt fleira, sem er dýrmætur sjóður sem við öll getum ornað okkur við. Kynni okkar hófust í Kven- félagi Hrunamannahrepps, Sigga spáði í bolla og við kell- urnar hlógum mikið. Nánari kynni okkar hófust eftir að Pálmar fór að þjónusta garð- yrkjubændur og fann hann fljótt hvaða mann hún hafði að geyma, og kunni vel að meta hvað hún var þakklát, skemmtileg og elskuleg kona. Eftir að Sigga varð ekkja fórum við, ég og krakkarnir, að hjálpa henni í garðyrkjunni og svo varð það úr að samvinna okkar varð að sam- eiginlegum rekstri. Alla tíð síðan hefur samstarf okkar verið líf- legt og skemmtilegt. Sigga sagði sögur frá gömlum dögum, böll- um og ferðalögum, þannig að við sem hlustuðum lifðum okkur inn í sögurnar eins og við hefðum verið með henni. Dagarnir liðu fljótt í garðinum hjá okkur með kátum krökkum. Margt lærði ég af Siggu um meðferð og ræktun plantna af hennar löngu og nota- drjúgu reynslu. Margt var eðl- islægt, eins og hve lunkin hún var að lesa í veðrið, „… hann gæti komið með skúr, eigum við ekki að bera á,“ „mikið er vætan góð, ekki síðri en sólin,“ „þetta er algert kraftaverk með plönt- urnar eins og vorið var kalt“. Sigga var ræktunarmann- eskja af Guðs náð, að fylgjast með sprettu og hlúa að plöntum var hennar yndi. Þegar aldurinn færðist yfir fór ég að taka meira yfir ræktunina, en hún aðstoðaði mig eins og heilsa og kraftar leyfðu. Margir komu til hennar, ungir sem aldnir, og sóttu í fé- lagsskap hennar og gestrisni sem var engu lík. Sigga var um- vafin vinum og kunningjum, en mest var sú gæfa hennar hvað hennar elskulegi sonur Sigurður Tómas og fjölskylda hans voru henni náin. Hef ég fyrir satt að starfsfólk Fossheima sakni þeirra allra, því framkoma þeirra öll við aldraða langömmu, ömmu, móður og tengdamóður var einstök. Minning Siggu lifir í hugum okkar, svo mikið er víst. Við þökkum Siggu fyrir allt og allt, megi hún vera góðum Guði falin. Samúðarkveðjur sendum við Sigurði Tómasi og fjölskyldu. Með þökk og virðingu Ragnhildur, Pálmar og fjölskylda. Sigrún Tómasdóttir                  !"     #$% "    &   '   & "  (   )*   %    *   +   &   %  & $%  &&   ) *  &      #$%  %    *  %      , "     -   &  %             *  +"  .  $      / %   ,  (    &      0 ! "   # $"%&'  +%  & !" (  )&*  1    *       ,   *  &  %  &    && $%    2 !" (  )(*   / %       %   %  & "  3 !(  +  ,-    45   3& & 6  7*8 "' 9",  !*  9",  $        4* *   ,   45  %  $  * 45  $% "'% * %% 9  4*  $    !  .   "    ) -  :   (      ;      %    &   0    !   2 !  "  -&/ 0" &"       3 " %  )     "     & "      && , )    .     "  0 !  )" "  /  %  &  "  )   )   ,  <= $      <, ,% '   %  $%   . & ,     / % 7   , /   ) 333; ,"  :    %8!    +"  '   ;   &&     >      00 ,'" 121  +     $* ,  & ", ) '   &&     < * * , $   ,-     *  **  (   $%   < * %      & %    45   3& & 6  7*8 "' 9",  !*  9",  $     ? , * 8   ;;  ,  & ,   % ,  & , %  ) 0;3  3. ! )  1   3( -%    @ @@ @@@  ( A   ;  .    ?   200  , BBB  % 4 5/ )'   C'   , . ' *    D     *"     & * =' *   * 6 # !(  +  ?  !*   / %     !* E *"  &   &&        %   7  /   .  *  (& ' *  , *       0          8"     )   %    F $G H  *I   & -   & .!   &    8  # !(  +  )*"   ,  %         ;& / %    %   & /, *   * *    Félagsstarf eldri borgara ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, BJÖRG KOFOED-HANSEN, Sléttuvegi 19, áður Dyngjuvegi 2, Reykjavík, sem lést laugardaginn 13. apríl, verður jarðsungin föstudaginn 19. apríl kl. 15.00. Útförin fer fram frá Áskirkju. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Astrid Kofoed-Hansen, Einar Þorbjörnsson, Hólmfríður Kofoed-Hansen, Þorsteinn Ingólfsson, Constantin Lyberopoulos, Sophie Kofoed-Hansen, Þorsteinn Tómasson, Björg Kofoed-Hansen, Þórður Jónsson, Agnar Kofoed-Hansen, Baldína Hilda Ólafsdóttir, barnabörn og aðrir afkomendur. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför GÍSLA KRISTINS SIGURKARLSSONAR. Arnheiður Ingólfsdóttir, Ingólfur Gíslason, Kristín Gísladóttir, Roland Hamilton, Flóki Ingólfsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.