Morgunblaðið - 18.04.2013, Side 47

Morgunblaðið - 18.04.2013, Side 47
ÍSLENDINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2013 Magnús fæddist á Akureyri18.4. 1862, sonur KristjánsMagnússonar húsmanns þar og k.h., Kristínar Bjarnadóttur húsfreyju. Eiginkona Magnúsar var Dóm- hildur Jóhannesdóttir húsfreyja, dóttir Jóhannesar Jónssonar og k.h., Jóhönnu Jóhannesdóttur og eignuðust þau Magnús og Dómhild- ur sex börn. Magnús nam beykisiðn á Ak- ureyri og síðar í Kaupmannahöfn á árunum 1878-82 og lauk prófi í þeirri grein í Kaupmannahöfn. Hann sinnti verslunarstörfum á Ak- ureyri 1882-93, setti þá sjálfur á fót verslun og sjávarútgerð þar og starfrækti hvort tveggja til 1917, jafnframt því sem hann var af- greiðslumaður Eimskipafélagsins á árunum 1914-20. Magnús var skipaður yfirfisk- matsmaður á Akureyri 1913, var forstjóri Landsverslunarinnar 1918- 27 og starfrækti jafnframt útgerð í Reykjavík frá 1924. Magnús var skipaður fjár- málaráðherra í ríkisstjórn Tryggva Þórhallssonar 28.8. 1927, en það var fyrsta ríkisstjórn Framsókn- arflokksins og í raun fyrsta „vinstri stjórnin“ hér á landi. Magnús sat í stjórninni, ásamt Tryggva og Jón- asi frá Hriflu. Hann gegndi emb- ætti fjármálaráðherra til æviloka, þann 8.12. 1928. Magnús var alþm. Akureyringa 1905-1908 og 1913-23 og landskjör- inn alþm. 1926-28. Hann var forseti sameinaðs þings 1922 og 1923. Framan af sat hann á þingi fyrir Heimastjórnarflokkinn en gekk í Framsóknarflokkinn við stofnun hans, varð einn af forystumönnum flokksins og var formaður mið- stjórnar frá 1926. Hann sat í bæj- arstjórn Akureyrar 1902-1905, 1908-11 og 1913-18 og átti sæti í bankaráði Íslandsbanka frá 1927. Um Magnús segir Magnús stormur í riti sínu, Ráðherrum Ís- lands: „Magnús var greindur maður og merkur um margt, fylginn sér og sjálfstæður í skoðunum. Hann var málstirður og fremur lítill fyrir mann að sjá en reyndist meiri fyrir sér en ætla mætti við fyrstu sýn.“ Merkir Íslendingar Magnús Kristjánsson 85 ára Anna Emilía Elíasdóttir Salbjörg H.G. Norðdahl 80 ára Sigurður Jóhannesson 75 ára Eyjólfur G. Jónsson Kjell Folke Ingemar Friberg Ólafur Ármannsson Sigurður Þór Ólafsson Þuríður Antonsdóttir 70 ára Anna Margrét Pétursdóttir Ólafur Kristófersson 60 ára Auróra Guðrún Friðriksdóttir Einar Andrésson Elísabet Hannam Gabriel Ryszard Przygoda Gylfi Sigurðsson Kristrún Hjaltadóttir 50 ára Anna Eiríksdóttir Bjarnveig Guðbjörnsdóttir Garðar Haukur Gunnarsson Garðar Heimir Guðjónsson Gísli Helgason Guðrún Guðmundsdóttir Haukur Hauksson Jónas Þorsteinsson Ólafur Kristinn Ólafsson Ragnar Torfason Sveinbjörg Guðjónsdóttir Þórhildur B. Svavarsdóttir Þröstur Ingimarsson 40 ára Almar Miðvík Halldórsson Áslaug Lárusdóttir Ásþór Sigurðsson Beata Senska Eggert Rúnar Ingibjargarson Friðbjörg Blöndal Guðríður Margrét Vilhjálmsdóttir Guðrún Ósk Sigurðardóttir Hrafnhildur Guðfinna Thoroddsen Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir Kristín Steingrímsdóttir Laufey Eyþórsdóttir Óskar Helgason Sigríður Elín Guðlaugsdóttir Sólveig Guðrún Hannesdóttir Sæmundur Unnar Sæmundsson 30 ára Andri Pétur Sævarsson Arkadiusz Robert Hirsz Guadalyn Medina Antonio Ingþór Guðlaugsson Nuno Miguel Moreira Da Fonseca Przemyslaw Gronostajski Rafal Tarnowski Unnur Dóra Ágústsdóttir Yari Pani Til hamingju með daginn 30 ára Guðmundur ólst upp á Akureyri og í Reykjavík en er nú nemi í rennismíði, búsettur á Akranesi. Maki: Birna Árnadóttir, f. 1983, húsfreyja. Sonur: Nökkvi Máni, f. 2002, og Alexander Björn, f. 2008. Foreldrar: Ragnar Elías Maríasson, f. 1957, starfs- maður hjá Norðuráli, og Unnur Ragnheiður Hauks- dóttir, f. 1960, húsfreyja. Guðmundur A. Ragnarsson 30 ára Birna Sif ólst upp í Reykjavík, lauk tann- tækniprófi frá FÁ og er nú tanntæknir hjá Prófíl – tannréttingastofu. Maki: Ketill Valdemar Björnsson, f. 1975, bókari. Sonur: Sigurður Rein- hold, f. 2012. Foreldrar: Sigurður Ágúst Sigurðsson, f. 1953, framkvæmdastjóri, og Guðrún Björk Björns- dóttir, f. 1954, læknaritari. Þau búa í Reykjavík. Birna Sif Sigurðardóttir 30 ára Guðjón lauk MA- prófi í lögfræði frá HR 2011 og er lögfr. og reglu- vörður hjá Vodafone. Maki: Rakel Dögg Guð- mundsdóttir, f. 1985, við- skiptafræðingur. Synir: Elmar Þór og Há- kon Darri, f. 2012. Foreldrar: Hálfdán Krist- jánsson, f .1954, við- skiptafræðingur, og Helga Guðrún Guðjónsdóttir, f. 1958, aðstoðarskólastjóri og form. UMFÍ. Guðjón Bjarni Hálfdánarson Hægt er að senda mynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón syni Einars Björgvins Kristjáns- sonar, húsasmíðameistara í Reykja- vík, og k.h., Guðrúnar Sigríðar Guð- laugsdóttur, systur Jónasar skálds. Dóttir Ásdísar og Einars Gunnars er Hjördís Kvaran Einarsdóttir, f. 21.12. 1970, BA í íslensku og kennari á Höfn í Hornafirði en eiginmaður hennar er Guðmundur Stefán Valdi- marsson, bátsmaður á varðskipinu Ægi, og eru dætur þeirra Guðrún Lilja Guðmundsdóttir, f. 25.9. 1994; Þuríður Kvaran Guðmundsdóttir, f. 4.6. 1997, og Jóna Margrét Guð- mundsdóttir, f. 30.1. 2002. Alsystir Ásdísar var Þuríður Kvar- an, f. 23.3. 1940, d. 8.3. 1984, bók- menntafræðingur og kennari í Reykjavík. Hálfsystkini Ásdísar, samfeðra: Lydia, f. 17.5. 1923, d. 14.12. 2011, húsfreyja í Bandaríkjunum; Katrín, f. 6.9. 1924, nú látin, hjúkrunarfræð- ingur, síðast búsett í Hveragerði; Ólafur, f. 14.5. 1926, nú látinn, raf- virkjameistari í Reykjavík; Vigdís, f. 17.6. 1927, nú látin, húsfreyja og hár- greiðsludama í Reykjavík; Kristín, f. 26.1. 1936, húsfreyja í Bandaríkj- unum. Foreldrar Ásdísar: Þorvaldur Ólafsson, f. að Sandfelli í Öræfum, 1.5. 1896, d. 12.10. 1974, bóndi í Arn- arbæli og að Öxnalæk í Ölfushreppi, síðar iðnverkamaður í Reykjavík, og Hjördís Sigurðardóttir Kvaran, f.á Akureyri 27.10. 1904, d. 26.11. 1993, ritari í Reykjavík. Úr frændgarði Ásdísar Kvaran Ásdís Kvaran Hjörleifur Einarsson prófastur á Undirfelli Guðlaug Eyjólfsdóttir húsfreyja á Undirfelli Sigurður H. Kvaran læknir og ritstjóri í Rvík Þuríður Jakobsdóttir húsfr. í Rvík Hjördís Sigurðardóttir Kvaran húsfr. í Rvík Jakob Helgason kaupm. á Vopnafirði Katrín Elísabet Einarsdóttir húsfr. í Hafnarfirði Lydia Angelika Knudsen húsfr. í Arnarbæli Ólafur Magnússon prófastur í Arnarbæli Þorvaldur Ólafsson b. í Arnarbæli og á Öxnalæk í Ölfusi Vigdís Ólafsdóttir húsfr. í Rvík, dóttir Ólafs Þorvaldssonar, pr. í Viðvík, bróður Þuríðar, langömmuVigdísar Finnbogadóttur, bróður Sigríðar, langömmu Önnu,móður Matthíasar Johannessen skálds, og bróður Rannveigar, langömmu Þórunnar, móður Gylfa Þ. Gíslasonar, ráðherra og tónskálds. Moritz Vilhelm Biering kennari á Fáskrúðsfirði Ósvaldur Knudsen kvikmyndagerðarmaður Jóhanna Andrea Ludvigsdóttir Knudsen langamma Ragnheiðar Ástu Pétursdóttur útvarpsþular, móður Eyþórs Gunnarssonar tónlistarmanns Ludvig Arne Knudsen kaupmaður í Hafnarfirði Kristjana Knudsen sem Jónas Hallgríms- son orti Söknuð til Einar H. Kvaran rithöfundur, skáld og forseti Sálar- rannsóknarfélagsinsRagnar Kvaran landkynnir Ævar R. Kvaran leikari og rithöfundur, faðir Gunnars Kvaran sellóleikara Einar E. Kvaran aðalbókari Útvegs- bankans Böðvar Kvaran framkvæmdastjóri í Rvík, faðir Hjörleifs Kvaran, lögmanns og fyrrv. forstjóra Orkuveitunnar, og Guðrúnar Kvaran Orðabókarritstjóra Jósef Gottfred Bl. Magnússon trésmiður í Rvík Guðmundur Vignir Jósefss. gjaldheimtustjóri Systir Ólafs: Anna Magnúsdóttir barnakennari á Seyðisfirði Vigdís Jakobsdóttir píanókennari í Keflavík, móðir Gísla Alfreðssonar, leikara og fyrrv. þjóðleikhússtjóra Magnús Árnason snikkari í Rvík Sæmundur Árnason b. á Miðgrund í Skagafirði Margrét Sæmundsd. húsfreyjaSæmundur Grímss. b. á Egilsstöðum í Vopnafirði Jóhanna O.M. Sæmundsdóttir húsfr. á Ísafirði, móðir Sighvats Björgvinsson- ar, fyrrv. ráðherra Vigdís Grímsd. húsfr. á Leifsstöðum í Vopnafirði Grímur M. Helgason forstöðumaður á Landsbókasafni, faðir Vigdísar Grímsdóttur rithöfundar. Dótturdæturnar Dætur Hjördísar: Guðrún Lilja, Þuríður Kvaran og Jóna Margrét. Vissir þú að margskipt gler geta verið mismunandi að gerð og gæðum? Við bjóðum eingöngu upp á gler með "free form" tækni og er sjónsviðið því breiðara en almennt gerist. Hægt er að ráða hraða skiptingar og sérsníða glerin eftir þörfum hvers og eins. Verið velkomin í eina glæsilegustu gleraugnaverslun landsins Álfabakka 14a s. 527 1515 Frí sjónmæling og sérfræðiráðgjöf í glerjavali. Glerjadagar 30% afsláttur af öllum sjónglerjum Ný verslun í göngugötu gleraugnabudin@gleraugnabudin.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.