Morgunblaðið - 18.04.2013, Qupperneq 48
48 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2013
Jón Ingvar Jónsson hefur loksinsstigið fram og fullvissar les-
endur Vísnahornsins um að hann
sé ekki hættur að yrkja:
Um það hef ég illan grun
að ég leirskáld teljist,
samt ég yrkja meira mun
svo Morgunblaðið seljist.
Öllu verri tíðindi berast frá
Pétri Stefánssyni, sem segist ætla
að leggja sitt lóð á vogarskál-
arnar:
Öll mín leirstef enginn metur,
– enda fá sem þykja góð.
Svo að Mogginn seljist betur
sem ég ekki fleiri ljóð.
Jón Arnljótsson leggur orð í
belg og er auðmjúkur:
Hvar sem ljóð mín líta má,
ljós er þeirra staða;
þar mun enginn samband sjá
við sölu Morgunblaða.
Umsjónarmaður hefur áhyggjur
af þróuninni og vill halda í alla
hagyrðingana!
Hagyrðinga vil ég virkja
sem vísurnar í Hornið skissa;
en vilji fleiri ekki yrkja
atvinnuna ég mun missa!
Hólmfríði Bjartmarsdóttur, Fíu
á Sandi, varð að orði er hún heyrði
vísurnar: „Þetta gengur ekki. Við
missum tvo Pétra úr Leirflokknum
plús eitt starf tapast.
Ef hann Pétur flýr oss frá
er fylgið hrapandi.
Pétur ætti að yrkja smá
atvinnuskapandi.“
En þegar vísan var komin á blað
hringdi bjargvætturinn Ingólfur
Ómar Ármannsson og kastaði
fram sléttubandavísu:
Veitir hylli, arðbær er,
andans fagur gróður.
Beitir snilli hóflaust hér
höldur braga fróður.
Ármann Þorgrímsson kastar
fram á Boðnarmiði:
Mörgum þykir mikið böl
makt á höndum fárra,
engra kosta eigum völ,
ekkert býðst hér skárra.
Ingólfur Ómar prjónar við það:
Staðan hérna hefur veikst,
hrakar kjörum manna,
skattar hækka, skerðing eykst
og skuldir heimilanna.
Þá Kristján Björn Snorrason:
Nýir tímar, nýir menn
nýtum það, minn kæri.
Næstu stjórn við notum senn
nú er tækifæri.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af andans gróðri, Morgun-
blaðinu og hagyrðingum
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þótt þú sjáir í gegnum tiltæki fólks,
skaltu fara þér hægt í að afhjúpa það, ef eng-
in hætta er á ferðum. Láttu mistök þér að
kenningu verða og hugsaðu næsta leik vel.
20. apríl - 20. maí
Naut Notaðu daginn endilega til þess að
sinna rannsóknum, hugur þinn er djúpur og
rannsakandi þessa dagana. Gefðu betri gaum
að heilsufari þínu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það liggur vel fyrir þér að fást við
yfirvöld og stofnanir í dag. Vinátta vina skipt-
ir þig máli þannig að þú ættir að hafa í huga
að vinir þurfa ekki alltaf að vera sammála.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þín kann að bíða einstakt tækifæri í
dag og ríður á miklu að þú þekkir þinn vitj-
unartíma. Segðu það sem þér býr í brjósti.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert góður í að hlusta á aðra og vera
öxlin sem þeir geta grátið við. Samræður við
maka og vini reyna á þolrifin. Hikaðu ekki við
að koma hugmyndum þínum á framfæri.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þótt þér finnist hlutirnir aldrei ganga
nógu hratt fyrir sig verður þú að venja þig af
eilífum aðfinnslum við samstarfsmenn þína.
Samstarf byggist á tillitssemi.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er hætt við því að hugmynd þín um
breytingar á heimilinu reynist kostnaðarsöm.
Láttu það þó ekki ná tökum á þér því þú ert
maður til að leysa vandann.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það kallar á heilmikið skipulag
þegar margt liggur fyrir bæði í starfi og utan
þess. Sá sem biður þig ráða sækist eftir við-
urkenningu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert afslappaður og í góðu jafn-
vægi og ættir því að vera í stakk búinn til að
sýna hvað í þér býr. Sýndu varkárni í peninga-
málum og ekki eyða um efni fram.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Steingeitin er með langan lista af
atburðum sem þurfa að eiga sér stað áður en
henni tekst að koma risastórri áætlun í fram-
kvæmd. Gefðu þér tíma til þess að fara í
gegnum hlutina í ró og næði.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert glaður að tilkynna vissan
atburð, jafnvel þótt aðrir séu ekki jafn glaðir
að hlusta á. Hugsaðu þinn gang og leyfðu
tímanum að vinna með þér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft að ganga frá nokkrum laus-
um endum varðandi heimili þitt og dval-
arstað. Þú býrð yfir ýmsum hæfileikum sem
nýtast þér þegar á reynir.
Víkverji hrökk við þegar hann leitút um gluggann síðdegis í gær
og sá að kyngdi niður snjó. Fyrst
voru snjókornin stór og svifu hægt til
jarðar, en svo var eins og þau
skryppu saman og þyngdust og færu
að falla hraðar og brátt var komin
snjóföl yfir gula sinuna í Hádegis-
móum. Víkverji minntist með trega
hlýrra janúardaga þegar hitinn var í
kringum átta gráður á meðan Evr-
ópa skalf í kulda og trekki og velti
fyrir sér hvort höfð hefðu verið enda-
skipti á árstíðunum.
x x x
Víkverji veit hins vegar að á Íslandier allra veðra von og að gald-
urinn við þrotlausum veðrabrigðum
er að láta sér hvergi bregða, sama
hvað á dynur.
x x x
Hluti af því er að gera sér greinfyrir því að hitasveiflan milli
vetrar og sumars getur verið óveru-
leg, í það minnsta miðað við það sem
gerist í grannríkjunum þar sem hæg-
lega getur munað 40 til 50 gráðum á
selsíuskvarða á kaldasta vetrardegi
og hlýjasta sumardegi. Hér er mun-
urinn kannski frekar fólginn í muni
myrkurs og birtu, skammdegi og
langdegi.
x x x
Víkverji veit að á Íslandi má búastvið frosti í júní og sólríkir maí-
dagar geta verið hrollkaldir. Hann
veit líka að um miðjan vetur getur
orðið svo hlýtt að laukar láta blekkj-
ast og gægjast upp úr mold.
x x x
Snjókomunni í gær má kannskilíkja við dauðahryglur þessa
snjólétta vetrar, sem hér á suðvest-
urhorninu hefur varla staðið undir
nafni, þótt annars staðar á landinu
hafi hann reyndar ekki verið neitt
grín og sums staðar séu menn lang-
þreyttir eftir linnulaust fannfergi síð-
an í september. Sumum finnst slíkur
veðramunur jafnvel réttlæta mis-
vægi atkvæða í kosningum.
x x x
Kannski kemur mest á óvart aðsnjókoman í gær skuli hafa kom-
ið Víkverja á óvart. víkverji@mbl.is
Víkverji
Ef þú játar með munni þínum: Jesús
er Drottinn, og trúir í hjarta þínu að
Guð hafi upp vakið hann frá dauðum
verður þú hólpinn. (Rómverjabréfið 10:9)
Í klípu
„EKKI FARA ÚR BÆNUM. EF MÁLNINGIN
Á VEGGNUM ÞÍNUM PASSAR VIÐ ÞÁ SEM
VIÐ FUNDUM Á LÍKINU Á GANGSTÉTT-
INNI FYRIR UTAN, GÆTUM VIÐ HUGSAN-
LEGA VILJAÐ YFIRHEYRA ÞIG.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞÚ ÆTTIR AÐ FARA
VARLEGA Í ÞRUMUVEÐRI.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sjá stjörnur í hvert
sinn sem þið kyssist.
EKKERT TIL AÐ BORÐA Í
ÞESSU HÚSI NEMA HUNDAKEX.
EN ÁSTANDIÐ GÆTI LÍKLEGA
VERIÐ VERRA, TIL DÆMIS EF ...
VIÐ
ÆTTUM
ENGA
MJÓLK!
FARIÐ
FRÁ,
MENN!
ÞETTA ER
NEYÐARTIL-
FELLI!
AF HVERJU HELDUR HANN
AÐ HANN GETI RUÐST FRAM
FYRIR OKKUR Í HVERJUM
EINASTA MATARTÍMA?!
HANN ER
SKIPSTJÓRI.
Skotbómulyftarar
mest seldi
skotbómulyftarinn
2012
Vesturvör 32, 200 Kópavogur, Sími 564 1600 islyft@islyft.is - www.islyft.is
Lyftigeta 2.5 til 12 tonn
Fáanlegir með
• Vinnukörfum
• Skekkingju á bómu
• Bómu með lengd allt að 18 metrum
• Roto útfærsla með bómu
allt að 25 metrum