Morgunblaðið - 25.06.2013, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 5. J Ú N Í 2 0 1 3
Stofnað 1913 146. tölublað 101. árgangur
FH-INGAR GEFA
EKKERT EFTIR Í
TITILVÖRNINNI
LITLI BRÓÐIR
ORÐINN
STÓR
GOÐSÖGNIN
JEFF BECK
MEÐ TÓNLEIKA
BÍLAR BORINN 38KNATTSPYRNA ÍÞRÓTTIR
Í rannsóknar-
leiðangri Evr-
ópusambands-
þjóða í vor sáust
vísbendingar um
aukna dreifingu
hrygningar mak-
ríls til norðvest-
urs frá Bret-
landi, það er í átt
til Íslands, að
sögn Þorsteins
Sigurðssonar, yfirmanns nytja-
stofnasviðs Hafrannsóknastofn-
unarinnar. Hafrannsóknaskipið
Bjarni Sæmundsson er nú að skoða
útbreiðslu makríls þar sem ESB-
leiðangrinum lauk sunnan við Ís-
land, innan og utan fiskveiðilögsög-
unnar. Makrílleiðangrinum lýkur í
lok vikunnar.
Makrílveiðiskipum fjölgar nú á
miðunum sunnan við landið dag frá
degi. Aðalsteinn Jónsson SU-11 var
í gær að veiðum suðaustur af land-
inu. Ómar Sigurðsson, skipstjóri,
sagði að þeir hefðu tekið tvö hol í
fyrradag. Í öðru voru 170-180 tonn
og um 50 tonn í hinu. Aflinn var
hausaður og frystur um borð og lát-
ið reka í fyrrinótt á meðan gengið
var frá aflanum.
„Makríllinn er að mæta og hefur
víða orðið vart við hann með suður-
kantinum og vestur úr,“ sagði Óm-
ar. Hann sagði að það tæki 7-8 daga
að fylla skipið. gudni@mbl.is
Hrygningarsvæði
makríls teygir sig í
átt til Íslands
Makríll Veiðarnar
eru hafnar.
Gætt sé jafnræðis
» SA, LÍÚ og Samtök fisk-
vinnslufyrirtækja segja að
gæta verði jafnræðis við skatt-
lagningu aðila sem nýti nátt-
úruauðlindir með sambæri-
legum hætti.
» Lög kveða á um að birta
skuli fjárhæð veiðigjalds fyrir
15. júlí.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Samtök atvinnulífsins, Landssam-
band íslenskra útvegsmanna og Sam-
tök fiskvinnslustöðva sendu í gær frá
sér sameiginlega umsögn vegna veiði-
gjaldafrumvarps Sigurðar Inga Jó-
hannssonar sjávarútvegsráðherra.
Þar segir m.a. að fyrirhuguð gjöld séu
allt of há og mótmælt er hækkun sér-
staks veiðigjalds á uppsjávarfisk.
Einnig segir að í stað þess að lög-
festa bráðabirgðaákvæði til eins árs
væri rétt að ákveða nú þegar framtíð-
arfyrirkomulag álagningar veiði-
gjalda. Ávallt beri að innheimta veiði-
gjöld eftir að tekna hafi verið aflað og
er því lagt til að 1. grein frumvarpsins
verði breytt þannig að gjöldin verði
innheimt af lönduðum afla.
„Samtökin mótmæla því harðlega
að útgerðir sem ekki reka fiskvinnslu
séu skattlagðar vegna metins hagn-
aðar fiskvinnslu óskyldra aðila,“ segir
m.a. í umsögninni. „Samtökin benda á
að við ákvörðun sérstaka veiðigjalds-
ins samkvæmt frumvarpinu er byggt
á mati Hagstofu Íslands á afkomu
sjávarútvegsins árið 2011. Fyrir ligg-
ur að Hagstofan hefur ofmetið afkom-
una um allt að 5 milljarða króna
vegna ársins 2011.“ Nauðsynlegt sé
að leiðrétta fyrir þessu ofmati.
Alþýðusamband Íslands rifjar upp
að sambandið hafi stutt veiðigjalda-
frumvarp fyrri ríkisstjórnar 2012 og
leggst gegn því að samanlögð fjárhæð
gjaldanna verði lækkuð. Þótt tekju-
skattur lögaðila muni að vísu geta
hækkað muni sú hækkun ekki vega
upp þá tekjulækkun ríkisins sem boð-
uð sé í frumvarpinu.
MHörð gagnrýni »16
Veiðigjöld sögð allt of há
Hagsmunaaðilar segja Hagstofuna ofmeta afkomu sjávarútvegsfyrirtækja 2011
Alþýðusambandið leggst gegn því að samanlögð veiðigjöld verði lækkuð
Spennandi „Það mætti vera eldgos
á hverju ári,“ segir þyrlurekandi.
Mikil aukning hefur orðið á þyrlu-
flugferðum á þessu ári, bæði hvað
varðar útsýnisferðir á vegum
einkaaðila og þyrluútköll á vegum
Landhelgisgæslunnar, en þar nam
aukningin 179% á fyrstu sex mán-
uðum ársins. Aukinn ferðamanna-
straumur til landsins er talinn lík-
leg skýring hvors tveggja, sam-
kvæmt upplýsingum talsmanns
Isavia.
Flest þyrluútköll Gæslunnar eru
vegna vanbúinna ferðamanna á
hálendinu. Þá hefur einnig verið
stigvaxandi aðsókn í útsýnisflug
og var árið 2012 metár. Hefur
slíkum ferðum fjölgað um 60% á
fyrstu fimm mánuðum þessa árs
og er því ekki útlit fyrir dalandi
vinsældir. Boðið er upp á margs
konar pakkaferðir, en vinsælastar
allra eru ferðir á eldgosaslóðir.
„Það mætti vera eldgos á hverju
ári,“ segir framkvæmdastjóri
Norðurflugs og segir fjölbreyttan
hóp sækja í ferðirnar, jafnt ein-
staklinga sem fjölskyldur. »4
Mikil aukning á þyrluflugi
Ferðamenn vilja sjá náttúruna með öðrum augum
Þórsmörk er vinsæll ferðamannastaður og fjöl-
menni var þar í góðu veðri um Jónsmessuna.
Margir notuðu tækifærið og gengu Fimmvörðu-
háls eða Laugaveginn en svo voru aðrir sem
skoppuðu yfir jökulsprænur við Gígjujökul á leið
inn í Þórsmörk.
Skoppað yfir jökulsprænur við Gígjujökul
Morgunblaðið/Golli
Landsvirkjun hefur varið fé sem
svarar til 1,2 til 1,3 milljarða króna á
núgildandi verðlagi til undirbúnings
Norðlingaölduveitu frá því fyrirtækið
tók við verkefninu 1969. Allur kostn-
aðurinn hefur verið gjaldfærður.
Fyrstu hugmyndir um að virkja
efsta hluta Þjórsár með stíflu við
Norðlingaöldu voru settar fram 1950.
Áformin hafa breyst mikið á þeim
tíma sem liðinn er og miðlunarlón
sem náði vel inn í friðland Þjórsár-
vera er í þeim áætlunum sem unnið
hefur verið eftir síðustu ár orðið lítið
veitulón að mestu í farvegi Þjórsár, að
öllu leyti utan núverandi friðlands
Þjórsárvera. Það lendir hins vegar
innan marka stækkaðs friðlands. »12
Búið að verja 1,3 milljörð-
um í Norðlingaölduveitu
Úr Þjórsárverum Áform um Norð-
lingaölduveitu hafa breyst mikið.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Íbúðalánasjóð-
ur varar við því,
í umsögn sinni
um aðgerða-
áætlun
ríkisstjórnar-
innar vegna
skuldavanda
heimilanna, að
verðtrygging á
húsnæðislánum
verði afnumin. Verði eingöngu
boðið upp á óverðtryggð húsnæð-
islán muni þeim sem hafa ekki
efni á að kaupa sér þak yfir höf-
uðið fjölga umtalsvert vegna
hærri greiðslubyrði óverð-
tryggðra lána. »6
Varar við afnámi
verðtryggingarinnar