Morgunblaðið - 25.06.2013, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 25.06.2013, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2013 Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Alúð - virðing - traust Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn lausþeyttum rjóma. Dísa hafði alltaf tíma til að ræða lífið og til- veruna, bækur og pólitík. Alltaf svo hlý og hvetjandi. Það eru svo endalausar myndir sem streyma fram í hugann af Öldugötunni. Eldhúsið svo bjart og notalegt, að- allega af því að Dísa var þar. Gestagangurinn og vinafjöld- inn í kringum Dísu og Rabba ber hjartahlýju þeirra og mannkær- leik gott vitni. Eyrún, einkadótt- irin, hefur alltaf verið mikil mömmustelpa og samband þeirra mæðgna einstaklega náið. Ég veit því að söknuðurinn er sár og tómarúmið sem eftir stendur virð- ist óendanlega stórt. Sársaukinn mun dofna, en eftir standa minn- ingarnar um þessa yndislegu konu sem aldrei gleymast. Dótt- ursynirnir, sem voru allir svo miklir ömmudrengir hver á sinn máta, eiga nú um sárt að binda. Það er erfitt að verða að horfast í augu við fallvaltleika lífsins þegar maður er barn, en minningar þeirra um ömmu Dísu munu lifa með þeim um alla ævi. Hugur minn er hjá ykkur, kæru vinir, minningin um góða konu lifir. Hafrún Ösp Þórdísardóttir Stefánsdóttir. Í desember 1980 fluttum við í húsið okkar við Öldugötuna á Dal- vík. Þá bjuggu Rabbi og Dísa ásamt dóttur sinni Eyrúnu hinum megin götunnar, á ská á móti okk- ur. Jóna okkar og Eyrún eru jafn gamlar og fljótlega fór að mynd- ast vinskapur á milli þeirra. Þær voru samferða í skólann og léku sér saman eftir skóla. Við foreldr- arnir fórum að hittast. Gunni fór að fara með Rabba í hesthúsið og við Dísa fórum að hlaupa yfir göt- una til skiptis, hittast og spjalla eins og gengur. Nú eru 33 ár síðan við hittumst fyrst en það er eins og gerst hafi í gær. Tíminn hefur þotið hjá og allt í einu er Dísa ekki lengur hinum megin götunnar. Við minnumst Dísu með mikilli hlýju og væntumþykju í huga. Hún var alltaf til staðar, róleg og yfirveguð þegar mest á reyndi. Hún var til staðar þegar Arnar fæddist og passaði hann í langan tíma. Hún var til staðar þegar ég veiktist og þurfti að vera í nokkrar vikur í Reykjavík, þá var hún hjá mér þar í eina viku. Hún var bara til staðar og hjálpaði þegar við þurftum á hjálp hennar að halda, það var ómetanlegt. Hún hafði líknandi hendur, það hafði marg- oft komið í ljós. Dísa var mjög pólitísk. Hún var Vinstri grænni en nokkur annar sem ég þekki. Hjá henni fékk náttúran alltaf að njóta vafans og öll náttúruspjöll henni á móti skapi. Hún þekkti berjalöndin í kringum Dalvíkina eins og eldhúsgólfið heima hjá sér og þar, í berjamónum var Dísa á haustin. Hún þekkti allar jurtirn- ar, blómin og fuglana. Hún vissi hvaða jurtir voru lækningajurtir og hverjar ekki. Hún var mikið náttúrubarn. Ég hirði ei um heimsins skraut né hverfult glys er augað þreytir en mér er ljós á lífsins braut hvert lítið blóm er veg minn skreytir. (B. Sig.) Við kveðjum Dísu með söknuði og miklu þakklæti fyrir allt og allt. Megi allar góðar vættir og vernd- arenglar umvefja og styrkja fjöl- skyldu hennar. Björg Ragúels og Gunnar Sigursteinsson. Elsku Dísa. Í huganum fallegt ég sendi þér hrós og helling af virðingu minni faðmlög, kossa og fegurstu rós þú færð, fyrir yndisleg kynni. (Bj.R.) Takk fyrir að leyfa mér alltaf að gera allt það erfiðasta þegar við bökuðum pönnukökurnar þegar þú passaðir mig, en það var að brjóta eggin. Þinn Arnar Ragúels Sverrisson. ✝ Ingimar ÁgústGrétar Þiðr- andason fæddist í Sæbóli í Ólafsfirði 24. júní 1937. Hann lést á heimili sínu, Hlíðarvegi 27, Ólafsfirði, 8. júní 2013. Foreldrar hans voru Þiðrandi Ingi- marsson, fæddur í Ólafsfirði 30. ágúst 1903, d. 14. apríl 1967 og Guðrún Jónína Antonsdóttir, f. 29. júlí 1906, d. 10. október 1942. Alsyst- ir Ingimars er Guðrún Steinunn Sigurbjörnsdóttir, f. 13. apríl 1942. Hálfsystkini hans eru S. Hulda Þiðrandadóttir, f. 18. febr- úar 1945, Halldór Ævar Þiðr- andason, f. 31. maí 1946 og Sveinbjörn Þóroddur Þiðr- andason, f. 8. mars 1948, d. 5.júlí 1965. Uppeldisbróðir Ingimars er Gestur Heiðar Pálmason, f. 20. mars 1942. Fyrstu fimm árin ólst Ingimar upp í Sæbóli Ólafs- hans. Fjórtán ára gamall byrjaði hann að róa á trillunni Gylfa ásamt föðurbróður sínum Ragn- ari Ingimarssyni. Reri hann síð- an með Svavari Antonssyni og Magnúsi Jónssyni á trillum sem þeir áttu. Þegar Ingimar var 17 ára fór hann á vertíð til Reykja- víkur á Kára Sölmundarson ÓF og var á honum tvær vertíðir. Eftir þetta var hann um tíma á Stjörnunni með Kristjáni Ás- geirssyni og Stíganda ÓF 25 með Sigurfinni Ólafssyni. Eftir að bátarnir fóru að róa frá Ólafs- firði að vetri til fór hann á Þor- leif Rögnvaldsson ÓF með Jóni Sigurpálssyni. Síðan fór hann á Sæþór með Óla Sæm. Einn vetur beitti hann á Arnari ÓF 3 og vor- ið 1973 fór hann yfir á Ólaf Bekk ÓF 2. Árið 1974 fór Ingimar til Frakklands til að sækja nýjan skuttogara, Sólberg ÓF 12. Ingi- mar var á Sólberginu, lengst af með Birni Kjartanssyni, til ársins 1997 er hann kom að mestu leyti í land. Í kringum 1984 keypti Ingimar sér trilluna Guðrúnu Óf 53 og reri á henni yfir sumartím- ann. Trillan, einbýlishúsið og fjölskyldan var honum allt. Útför Ingimars fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju í dag, 25. júní 2013, kl. 14. firði ásamt Guð- rúnu móður sinni og Þiðranda föður sínum. Í október 1942 lést móðir hans og skildi þá leiðir þeirra systk- ina, Guðrúnar Steinunnar og Ingi- mars. Móðuramma Ingimars tók Guð- rúnu í fóstur en Ingimar bjó áfram hjá föður sínum. Góð tengsl héld- ust þó á milli þeirra systkina. Ár- ið 1946 giftist Þiðrandi Snjó- laugu Jónsdóttur, f. 13. september 1913 í Brekkukoti í Óslandshlíð, d. 18. apríl 1996, og gekk hún Ingimari í móðurstað. Ingimar bjó í Sæbóli til ársins 1974 en þá flutti hann, ásamt Snjólaugu og Gesti, að Hlíð- arvegi 27 í einbýlishús sem hann hafði byggt sjálfur. Ingimar byrjaði snemma að stunda sjóinn og varð sjó- mennskan starfsvettvangur Einstakur heiðursmaður kveður okkur að sinni. Ingi frændi var gæddur mörgum góð- um eiginleikum. Hann var ein- staklega hjartahlýr og rólyndur, duglegur, gjafmildur, barngóður og vinur vina sinna. Hann var ekki sá maður sem hallmælti öðru fólki heldur reyndi að sjá það góða í fari annarra. Orðið nei var ekki ofarlega á lista hans, hann vildi allt fyrir alla gera. Það voru ófáar ferðirnar sem farið var í heimsókn til Inga frænda. Þar fann ég hve vænt honum þótti um systurbörn sín. Ég fór aldrei tómhent út, hann laumaði alltaf einhverju í rass- vasann eða þá að ég fór út með fullan haldapoka af einhverju góðgæti. Góðgætið keypti hann þegar hann fór í siglingar með Sólberginu. Alltaf var spennandi að fá gjafir frá útlöndum eins og t.d. Wrigley’s tyggjó eða rottu- skott eins og hann var vanur að kalla tyggjó, Ákakaramellur, gos, vasadiskó og fleira og fleira. Á sumrin var ákaflega gaman að róa með honum á trillunni hans, Guðrúnu ÓF 53. Við tókum nesti og veiðistangir með í ferð- irnar og vorum jafnan nokkra klukkutíma á sjó. Inga þótti ein- staklega vænt um trilluna sína og eyddi hann miklum tíma í við- hald hennar. Heima hjá Inga var alltaf mjög snyrtilegt og hafði hann allt í röð og reglu svo hægt væri að ganga að hlutunum. Hann hélt húsinu sínu vel við og hvert sum- ar sá hann um að laga það sem laga þurfti. Fjölskyldan var Inga mjög kær og vildi hann allt fyrir hana gera. Hann náði mjög góðum tengslum við hana, sérstaklega börnin, því barngóður var hann með eindæmum. Það er mjög sárt að hugsa til þess að Ingi sé farinn frá okkur en að sama skapi er ég mjög þakklát fyrir að hafa kynnst þessum sómamanni. Elsku Ingi frændi, takk fyrir allt. Þín frænka, Gyða. Sumir fæðast stórmenni í huga manns, Ingi frændi var einn af þeim. Hann var dagfars- prúður maður, einstakt ljúf- menni, mælti ekki styggðaryrði um nokkurn mann og var mikil barnagæla. Vinnusemi og natni var Inga í blóð borin og varð sjómennskan hans ævistarf. Lengst af var hann á Sólberginu ÓF 12 en lét af störfum árið 1997. Þær voru margar siglingarnar sem hann fór í og alltaf nutum við syst- urnar góðs af þeim. Það voru spenntar systur sem gengu um borð þegar búið var að tolla skip- ið, haldandi í styrka hönd Inga sem leiddi þær ljúflega til káetu sinnar þar sem ýmislegt fram- andi sælgæti og dýrgripi bar fyr- ir augu. Hann var ætíð einstak- lega gjafmildur og hlotnuðust okkur margir dýrgripirnir. Ung að árum misstu Ingi og systir hans móður sína. Örlögin höguðu því þannig að leiðir þeirra skildi, Ingi ólst upp hjá föður sínum en systir hans hjá móðurömmu sinni. Við þá tilhög- un var afi aldrei sáttur en henni varð ekki breytt. Afi giftist ömmu minni Snjólaugu og gekk hún Inga í móðurstað. Fyrir átti amma einn son og þeim hjónum fæddust tveir synir og dóttir og saman bjuggu þau öll í Sæbóli. Með barnsaugum mínum séð var Sæból gríðarstórt hús með ævintýralegum krókum og kim- um og þar átti ég góðar stundir. Herbergi Inga bar vitni um snyrtimennsku hans og þar voru fágætir munir og ilmurinn af Old Spice fyllti vitin. Litlar hendur máttu alltaf handleika þessa hluti og iðulega var einhverju góðgæti laumað að mér í leiðinni, hvort sem það var rottuskott, jórturgúmmí, karamella eða Prins póló. Árið 1974 flutti Ingi, ásamt ömmu minni og uppeldisbróður sínum, í nýtt einbýlishús á Hlíð- arvegi 27. Í Ingahús var alltaf gott að koma. Móttökurnar voru höfðinglegar, viðmótið blítt og einlægt ásamt svolítilli stríðni og veitingarnar sælgæti, harðfiskur og nýbakað bakkelsi. Þarna gát- um við unað okkur margar stundirnar og stundum var okk- ur boðið niður í bæ í ískalt Va- lash og Malta. Aldrei byrsti Ingi sig við okkur systurnar heldur leiðbeindi með sínu ljúfa og bros- milda viðmóti og öðlaðist þannig ómælda virðingu af okkar hálfu. Þegar börn okkar systra fóru að fara til hans fengu þau sömu móttökurnar og ýmsu góðgæti eða pening var laumað í litlar þakklátar hendur. Eftir að Ingi hætti störfum var hann iðinn við að dytta að húsinu sínu og trillunni. Hann fann sér alltaf eitthvað til dund- urs og var sífellt að þó að heilsan væri farin að bresta. Aldrei kvartaði hann, gerði lítið úr sín- um vandamálum og bar ekki til- finningar sínar á torg. Hann hafði yndi af því að hjálpa öðrum og mátti ekkert aumt sjá. Ég hefði gjarnan viljað fá að halda í hendur hans síðasta spöl- inn, segja honum í síðasta sinn hversu vænt mér þótti um hann og hversu mikilvægur hann var mér og mínum alla tíð. Ég syrgi yndislega manneskju og þakka fyrir þá góðmennsku sem sífellt streymdi frá honum. Ég mun halda minningu hans á lofti og segja sögur af manni sem vann verk sín af alúð og hæversku og gaf með óþrjótandi ljúfmennsku meira en orð fá lýst. Hvíl í friði, elsku Ingi frændi. Þyrí Stefánsdóttir. Meira: mbl.is/minningar Fallinn er frá móðurbróðir okkar hann Ingimar Þiðranda- son eða Ingi frændi eins og við systkinin kölluðum hann. Ingi var aðeins 5 ára gamall þegar hann missti móður sína og var ungur farinn að vinna fyrir sér. Ingi fór hljóðlega í gegnum lífið og þannig kvaddi hann líka þenn- an heim. Ingi var sjómaður allt sitt líf. Lengst af var hann á tog- urum, en hann átti einnig trilluna Guðrúnu ÓF-53 sem hann gerði út á sumrin og þótti honum ekki leiðinlegt að róa út fjörðinn í góðu veðri. Ingi ferðaðist ekki mikið á þurru landi en kom þó í sveitina á hverju sumri, stundum einn á ferð en oftar en ekki var Gústi frændi hans með í för. Ör- lögin höguðu því þannig að það var ekki endilega mikið verið að hittast en það var alltaf mikil til- hlökkun hjá okkur systkinunum þegar líða fór að jólum og von var á sendingu frá Inga. Alltaf kom hún í tæka tíð þó svo að við höfum kannski efast um það stundum. Þetta var í þá daga þegar keyptir voru kassar af epl- um og appelsínum fyrir jólin en það allra flottasta var kassinn frá Inga. Stór kassi fullur af allskon- ar sælgæti sem hann hafði keypt í siglingum og við krakkarnir kunnum vel að meta allt góðgæt- ið. Það líða ekki þau jól að þessar minningar frá barnæsku komi ekki upp í hugann. Ingi reyndist sínu fólki vel og má segja að hjálpsemin og góðmennskan hafi verið hans aðalsmerki. Við minn- umst af hlýhug þessa góða manns. Ég er á langferð um lífsins haf og löngum breytinga kenni. Mér stefnu frelsarinn góður gaf. Ég glaður fer eftir henni. Mig ber að dýrðlegum, ljósum löndum. Þar lífsins tré gróa’ á fögrum ströndum. Við sumaryl og sólardýrð. Og stundum sigli ég blíðan byr og bræðra samfylgd þá hlýt ég og kjölfars hinna er fóru fyrr án fyrirhafnar þá nýt ég. Í sólarljósi er særinn fríður og sérhver dagurinn óðum líður, er siglt er fyrir fullum byr. En stundum aftur ég aleinn má, í ofsarokinu berjast. Þá skellur niðadimm nóttin á, svo naumast hægt er að verjast. Ég greini ei vita né landið lengur, en ljúfur Jesús á öldum gengur, um borð til mín í tæka tíð. Mitt skip er lítið, en lögur stór og leynir þúsundum skerja. En granda skal hvorki sker né sjór því skipi, er Jesús má verja. Hans vald er sama sem var það áður, því valdi’ er særinn og stormur háður. Hann býður: Verði blíðalogn! Þá hinsti garðurinn úti er, ég eigi lönd fyrir stöfnum. Og eftir sólfáðum sæ mig ber, að sælum blælygnum höfnum. Og ótal klukkur ég heyri hringja. Og hersing ljósengla Drottins syngja. Lát akker falla! Ég er í höfn. Ég er með frelsara mínum. Far vel þú æðandi dimma dröfn! Vor Drottinn bregst eigi sínum. Á meðan akker í æginn falla. Ég alla vinina heyri kalla, sem fyrri urðu hingað heim. (Þýð. Vald. V. Snævarr.) Þökk fyrir allt, hvíldu í friði, elsku frændi. Jóhanna, Anna, Védís, Hrönn, Sigurbjörn og Kjartan. Mig langar til að kveðja Ingi- mar Þiðrandason, vin minn og skólabróður. Það var stutt á milli æskuheimila okkar og áttum við margar ánægjustundir saman við leik bernskuáranna. Leikvöll- urinn var fjaran, bryggjurnar og gömlu beituskúrarnir sem allir eru nú horfnir, en geymast í minningunni. Því miður var alltof stór hópur bekkjarsystkina okkar sem að lokinni skólagöngu yfirgaf sína heimabyggð, því atvinnutækifæri voru takmörkuð og fyrir þá sem ekki leituðu sér frekara náms voru sjósókn og tengd störf helsti kostur. Sem betur fór var Ingimar einn af þeim sem héldu tryggð við sínar æskuslóðir. Sjó- mannsstarfið hóf Ingimar ungur að aldri, í byrjun sem trillukarl. Hafnarskilyrði í Ólafsfirði voru á þessum árum það erfið að það var útilokað að gera út stærri báta. En sem betur fór tókst með harðfylgni og dugnaði mætra manna að bæta hafnar- skilyrðin, sem gerði það mögu- legt að hér í Ólafsfirði var hægt að gera út stærri og öflugri skip. Þegar best gekk voru gerðir út 5 stórir togarar, sem verður að teljast harla gott í ekki fjölmenn- ara byggðarlagi. Ingimar var einn af þeim frá- bæru sjómönnum sem gerðu þetta mögulegt, ásamt öflugri út- gerð. Hann var lengst af sínum sjómannsferli háseti á skuttog- aranum Sólberg ÓF 12, því mikla happaskipi, sem kom nýbyggður til landsins frá Frakklandi 1974. Eftir að heilsan fór að gefa sig var Ingimar aftur orðinn trillu- karl og gaf hann sér þá tíma til að klappa trillunni sinni og dorg- aði í soðið þegar veður leyfði. Ingimar var heilsteyptur og traustur maður. Hann gat verið fastur fyrir og lét sig ógjarnan, þegar hann hafði myndað sér skoðun á mönnum og málefnum. Allt hans lífshlaup bar vott um heiðarleika og trúfesti. Nú verða ekki fleiri ferðir farnar að Hlíð- arvegi 27, þar sem harðfiskur og hákarl var fastur réttur dagsins. Ég sendi ættingjum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Jón Þorvaldsson. Við Ingimar vinur minn ól- umst upp í Ólafsfirði, hann var fjórum árum eldri sem er nokkur aldursmunur á æskuárunum þó seinna hafi dregið saman með okkur og við nánast á sama reki. Eins og títt var í sjávarpláss- um á þessum árum byrjaði Ingi- mar snemma að vinna og korn- ungur réð hann sig á vertíðarbát sem gerður var út frá Reykjavík en þessi höfuðborgarvist var engin sæluvist og aðbúnaðurinn ömurlegur. Hann var svo mest á bátum sem Sigvaldi Þorleifsson gerði út en 1973 kom fyrsti skuttogari Ólafsfirðinga, Ólafur Brekkan ÓF12, nýsmíðaður frá Japan og vorum við Ingimar í fyrstu áhöfn skipsins, þar hófst okkar vinátta. Árið 1974 kom svo annar skut- togari til Ólafsfjarðar, Sólberg ÓF12, og var Ingimar í áhöfninni sem sótti skipið til Frakklands, þar var hann um borð allt þar til hann hætti til sjós. Nú um stund- ir er mokveiði á togurunum, varla búið að dýfa trolli í sjó þeg- ar híft er aftur með góðan afla en þótt oft væri góð veiði hér áður fyrr komu oft dauðir tímar. Þá var oft slegið í spil í borðsalnum. Þar var Ingimar á heimavelli enda lunkinn bridge-spilari. Á þessum árum var stofnað Bridgefélag í Ólafsfirði. Eitt sinn þegar við vorum í fríi spurði ég hann hvort við ættum ekki að skella okkur eitt kvöldið, hann tók því ekki vel, sagði þá með ný sagnakerfi, við yrðum eins og álf- ar út á hól en aldrei þessu vant gaf hann sig og okkur gekk bara alls ekki illa með okkar togara- bridds. Þó hann væri hvers manns hugljúfi leið honum aldrei virki- lega vel í margmenni sem senni- lega hefur stafað af feimni og meðfæddri hæversku. Vandfund- inn var umtalsbetri maður, hon- um leið hreinlega illa ef einhverj- um var hallmælt, hann reyndi að bera í bætifláka og ef það dugði ekki þá labbaði minn maður bara út. En til voru hópar í samfél- gainu sem hann var mishrifinn af, t.d. stjórnmálamenn og hinir ýmsu „sérfræðingar“, þar hafði hann bara eina reglu, hann trúði ekki einu einasta orði sem þeir sögðu, það var bara svoleiðis. Eitt af því erfiðasta við að komast á efri ár er hvað maður sér eftir mörgum vinum og kunn- ingjum fara yfir móðuna miklu og þótt dauðinn sé það eina í þessu lífi sem við eigum öruggt, bregður manni alltaf jafn ónota- lega við. Ég er þakklátur fyrir að hafa átt vináttu þessa öðlings í fjöru- tíu ár og ég á eftir að sakna hans mikið. Við Birkir minn sendum systkinum hans og fjölskyldum þeirra og Gesti okkar innilegustu samúðarkveðjur. Vertu kært kvaddur, trausti vinur, þegar ég heyri góðs manns getið minnist ég þín. Blessuð sé minning Ingimars Þiðrandasonar. Gunnlaugur Gunnlaugsson. Ingimar Ágúst Grétar Þiðrandason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.