Morgunblaðið - 25.06.2013, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 25.06.2013, Blaðsíða 44
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 176. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Syrgja móður en gleðjast yfir … 2. Börn veittust að lögreglu 3. „Ódýr og vandræðaleg“ … 4. Maður á hesti við Stjórnarráðið »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Mikið lof er borið á plötuverslunina 12 tóna í tímaritinu Gramophone í grein sem ber yfirskriftina The best record store in the world? eða Besta plötubúð í heimi? Í greininni segir m.a. að verslunin sé ekki aðeins undraland tónlistar heldur einnig gott dæmi um það hvernig selja eigi geisladiska á 21. öldinni. Í versluninni megi finna undarlega og dásamlega veröld tónlistar, lifandi tónlistarflutn- ing, ástríðufullt starfslið og heillandi og heimilislegt umhverfi og frítt kaffi. Þá sé úrval platna tilkomu- mikið. Eru lesendur hvattir til að bóka sér flug til Íslands og drífa sig á Skólavörðustíg, þar sem verslunina er að finna en auk þess má finna smærri 12 tóna verslun í tónlistar- húsinu Hörpu. Rætt er við eiganda verslunarinnar, Lárus Jóhannesson, sem segir m.a. að fólk á öllum aldri eigi í viðskiptum við hann. Greinina má finna á undirvef gramophone.co- .uk sem helgaður er bloggfærslum. Greinina ritar Andrew Mellor. Morgunblaðið/Heiddi 12 tónar besta plötubúð í heimi?  2 Guns, kvikmynd leikstjórans Baltasars Kormáks, verður upphafs- mynd kvikmyndahátíðarinnar í Loc- arno í Sviss sem hefst 8. ágúst nk. Myndin verður sýnd utandyra, á Pi- azza Grande-torginu og verða þar átta þúsund sæti, skv. vefnum Variety. Í kvikmyndinni fara Hollywood-stjörn- urnar Mark Wahl- berg og Denzel Washington með aðal- hlutverkin. 2 Guns upphafsmynd hátíðar í Locarno Á miðvikudag Gengur í suðaustan 13-20 m/s með rigningu. Hæg- ari og úrkomulítið norðaustanlands. Snýst í hægari suðvestanátt með skúrum um kvöldið. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast NA-lands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Skýjað og úrkomulítið um landið vestanvert. Bjart austanlands, en sums staðar skúrir síðdegis. Dálítil rigning eða súld með köflum sunnan- og vestanlands. Hiti 8 til 19 stig. VEÐUR Keflvíkingar fögnuðu sigri á Skagamönnum, 3:2, á Akra- nesi í gærkvöld þegar tvö lið með nýja þjálfara mættust þar í Pepsi-deild karla í fót- boltanum. Kristján Guð- mundsson stýrði þar Kefl- víkingum í fyrsta sinn eftir fjögurra ára fjarveru. Þorvaldur Örlygsson stjórnaði Skagamönn- um í fyrsta sinn en þeir töpuðu í sjöunda sinn í átta leikjum í sumar. »3 Kristján vann slag nýju þjálfaranna Edda Garðarsdóttir er óhress með þá ákvörðun Sigurðar Ragnars Eyjólfs- sonar, landsliðsþjálfara í knatt- spyrnu, að velja hana ekki í 23ja manna hópinn fyrir úrslitakeppni Evrópumótsins í Sví- þjóð. „Mér finnst rök- in sem hann færir fyrir henni vera úr lausu lofti gripin,“ segir Edda sem er næst- leikja- hæsta lands- liðskona Íslands og fyrirliði enska liðsins Chelsea. »1 Finnst rökin vera úr lausu lofti gripin Blikar eru komnir í toppbar- áttuna í Pepsi-deild karla í fótboltanum eftir sigur á Valsmönnum í gærkvöld, 1:0, þar sem Ellert Hreinsson skoraði sigurmarkið á Kópa- vogsvellinum. Valur tapaði þar í fyrsta skipti í deildinni á tímabilinu og seig niður í fimmta sætið. »2-3 Blikar komnir í toppbaráttuna ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Skynsemin sagði okkur að best væri að hjóla hringveginn rangsælis. Strax þegar komið er austur fyrir Hellis- heiði er komið á sléttlendi og beinan og breiðan veg sem er nokkur hund- ruð kílómetrar. Þannig byggir maður upp ágætt þrek og kemst í fína þjálf- un áður en hæstu brekkurnar og fjöll- in á Austur- og Norðurlandi taka við,“ segir Sigurjón Pétursson í Hafn- arfirði. Þau Þóra Hrönn Njálsdóttir eiginkona hans fóru á reiðhjólum um- hverfis landið fyrr í þessum mánuði. Ferðin, sem tók fimmtán daga, gekk að óskum enda eru þau Sigurjón og Þóra bæði þrælvön og fóru hringinn síðast árið 2010. Árið 2011 hjóluðu þau svo þvert yfir Bandaríkin, frá Flórída til Kaliforníu, alls 4.500 km leið Rigning og stífur mótvindur Ofurlítill útúrdúr fylgir þessari sögu. Á ferðalagi fyrir þremur árum hitti blaðamaður Morgunblaðsins á þau Sigurjón og Þóru Hrönn í Borg- arfirðinum. Þá voru þau í sinni fyrri hringferð. Og viti menn: sagan end- urtók sig því við Almannaskarð við Hornafjörð hitti Morgunblaðsmaður aftur á sama fólkið. „Tilviljanirnar í þessari ferð voru margar, ýmsir sem við hittum í síð- ustu ferð urðu aftur á vegi okkar núna. Þú varst ekki sá eini,“ segir Sigurjón og bætir við að ferðin hafi gengið vel. Fyrstu dagarnir hafi farið í að ná upp þreki sem hafi komið sér vel þegar kom austur undir Eyja- fjöll. Þaðan og alveg austur í Suðursveit hafi verið rigning og stífur mótvindur. „Það tók verulega í á Skeið- arársandi. Þá hvíldum við í eina mínútu á móti hverjum fimm sem við hjólum. En allt hafðist þetta,“ segir Sigurjón. Hann bætir við að hjólaferðir síðustu ára hafi kennt sér margt. Mikilvægt sé að taka með sér sem allra minnstan far- angur; vera í léttum nælonfötum og sleppa helst nestinu og nærast frekar á veitingastöðum. Þá skipti miklu að vera á sem allri þægilegustum hjól- um, en þau Þóra Hrönn voru á Koga Myata, 15 kg hjólum úr áli sem þau fengu sérsmíðuð í Hollandi. Margt bar fyrir augu „Breytingin er talsverð frá fyrri ferð. Ökumenn eru tillitssamari gagnvart hjólreiðamönnum. Hægja aðeins ferðina þegar þeir mæta og fara fram úr. Útlendingarnir eiga þó vinninginn og þegar þeir koma að manni sveigja þeir alltaf vel út á vinstri akreinina en Íslendingunum er hins vegar tamara að nánast sleikja fram hjá manni,“ segir Sig- urjón – sem tók mikinn fjölda mynda í ferðinni enda bar margt áhugavert fyrir augu. Þrek og þjálfun í brekkurnar  Hjóluðu hring- veginn 2010 og aftur núna í júní Morgunblaðið/Sigurður Bogi Almannaskarð Þau Sigurjón Pétursson og Þóra Hrönn Njálsdóttir hjóluðu umhverfis landið á fjórtán dögum. Ferð- in gekk að óskum þótt stundum væri vindurinn í fangið og íslenskir ökumenn ekki of viljugir að víkja. „Hjólaferð umhverfis landið er nánast eins og jógatími. Hugurinn hreinsast og gulu vegstikurnar eru sem viðmið í eilífðinni. Í huganum heilsar maður hverri þeirra og kveður og svona endurtekur þetta sig mörg þúsund sinnum á þeim dögum sem maður er á ferðinni. Svona ferðir eru góðar bæði fyrir líkamann og ekki síður sálina. Maður styrkist og efl- ist og svo leggst maður oft virkilega þreyttur til hvílu. En svo er líka frábært að setjast í söðulinn næsta morgun og hjóla af stað,“ segir Sigurjón Pétursson. Dagleiðirnar í ferðinni segir Sig- urjón gjarnan hafa verið 90 til 110 km. Einn dag því sem næst á miðjum hringnum, það er á Djúpa- vogi, hafi þau Þóra Hrönn hvílst, slakað á og safnað kröftum fyrir síðari hluta ferðarinnar, það er brekkur og heiðar og helstu hindr- anirnar. Og allt gekk vel og heim í Hafn- arfjörðinn, eftir sérstaklega góða ferð, komu þau svo á þjóðhátíð- ardaginn 17. júní – það er fimmtán dögum eftir að ýtt var úr vör. Frábært að setjast í söðulinn VEGSTIKURNAR VORU SEM VIÐMIÐ Í EILÍFÐINNI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.