Morgunblaðið - 25.06.2013, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2013
Vörukarfa sem ASÍ miðar við í verð-
könnunum hefur hækkað um allt að
4,9% frá því í janúar og þar til nú í
júní. ASÍ segir að á tímabilinu janúar
til maí hafi verðbólgan hins vegar
aðeins verið tæp 2%.
Það sem af er árinu hefur vöru-
karfan hækkað meira hjá lágverðs-
verslunum en öðrum, mest hjá Nettó,
Bónus og Iceland. Vörukarfan hefur
lækkað lítillega hjá fmm verslunum
af fimmtán. Mesta lækkunin var hjá
Hagkaupum sem lækkuðu verðið í
nánast öllum vöruflokkum.
Fram kemur á heimasíðu ASÍ
(www.asi.is) að verð á vörukörfunni
hafi hækkað mest hjá Nettó, 4,9%,
og hjá Bónus og Iceland, 4,2%. Þá
hefur verðið á körfunni hækkað um
1,9% hjá Víði, 1,6% hjá Krónunni og
Kjarvali, 1,5% hjá Samkaupum-
Úrvali, 1,2% hjá Tíu-ellefu, 0,4% hjá
Nóatúni og 0,3% hjá Kaupfélagi
Vestur-Húnvetninga.
Vörukarfan hefur lækkað mest
hjá Hagkaupum, 2,3%, hjá Kaup-
félagi Steingrímsfjarðar 1,1%,
Kaskó 0,6% og hjá Samkaupum-
Strax og Kaupfélagi Skagfirðinga
um 0,1%.
Vörukarfa ASÍ inniheldur allar al-
mennar mat- og drykkjarvörur, t.d.
brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt,
fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur,
kaffi, gos og safa, auk hreinlætis- og
snyrtivara. Fram kemur á vef ASÍ
að drykkjarvörur hafi lækkað hjá
þrettán verslunum af fimmtán, mest
hjá Víði, 9,1%, og Hagkaupum, 8,7%.
Brauð og kornvörur hafa hins vegar
hækkað hjá ellefu verslunum af
fimmtán, mest hjá Víði, 7,8%, og
Samkaupum–Strax, 3,7%.
Kjötvörur hafa hækkað hjá þrett-
án verslunum af fimmtán. Mesta
hækkunin er hjá Nettó, 26,1%,
Kaskó, 10,5%, og Bónus, 8,8%. Kjöt-
vörur hafa hins vegar lækkað hjá
Kaupfélagi Skagfirðinga um 5,4%,
Samkaupum-Strax um 2,8% og
Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga um
1,1%.
Verð hækkar í lágvöruverðsverslunum
Verð hefur lækkað mest hjá Hag-
kaupum samkvæmt könnun ASÍ
Vilhjálmur Egilsson tók í gær form-
lega við stöðu rektors Háskólans á
Bifröst þegar Bryndís Hlöðvers-
dóttir lét af embætti.
Í tilkynningu frá skólanum kem-
ur fram að við tilefnið sagði Vil-
hjálmur að það hefði verið skjót
ákvörðun að sækja um rektorsstöð-
una og jafnframt að hann væri
þakklátur fyrir að vera kominn á
Bifröst. Hann þakkaði þeim Bryn-
dísi Hlöðversdóttur, fráfarandi
rektor, og Jóni Ólafssyni aðstoð-
arrektor fyrir að hafa stýrt skól-
anum styrkri hendi í gegnum erfiða
tíma í íslensku samfélagi.
Hann tæki við góðu búi. Bryndís
mun áfram kenna á lögfræðisviði
skólans.
Vilhjálmur tekur
formlega við stjórn-
inni á Bifröst
Guðni Páll Viktorsson kajakræðari
dvaldi í fyrrinótt í Norðurfirði á
Ströndum og reri í gær áleiðis í
Steingrímsfjörð. Hann hefur nú
lagt að baki um 1.225 km leið á
hringróðri sínum um Ísland.
Hann hafði vonast til að geta
þverað flóann frá Gjögri yfir í Kálf-
hamarsvík, um 40 km leið, en af því
verður ekki vegna veðurs. Því verð-
ur hann að róa inn með ströndinni
og líklega þvera frá Drangsnesi yf-
ir að Hindisvík á Vatnsnesi, eftir
því sem kemur fram á vef Kayak-
klúbbsins.
Guðni hóf róðurinn frá Höfn í
Hornafirði hinn 30. apríl. Með ferð-
inni vill hann safna fé til styrktar
Samhjálp.
Guðni Páll kominn
í Húnaflóann
Já hefur lagt það til við Póst- og
fjarskiptastofnun (PFS) að síma-
númerið 118 verði lagt niður. Til-
lagan er gerð í ljósi þess að stofn-
unin mun ekki úthluta fleiri þriggja
stafa símanúmerum, eftir því sem
fram kemur í tilkynningu.Tillaga
Já felur það í sér að sú þjónusta
sem veitt hefur verið í 118 verði
veitt í símanúmerinu 1818 frá og
með næsta ári.
Haft er eftir Sigríði Margréti
Oddsdóttur, forstjóra Já, að vissu-
lega sé eftirsjá að númerinu 118 en
ekki megi gleyma því að sú þjón-
usta sem þar er veitt, var eitt sinn í
símanúmerinu 03.
Úr 03 í 118 og nú
stefnir í 1818