Morgunblaðið - 25.06.2013, Blaðsíða 23
23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2013
Hærra, lengra Því fylgir ákveðin spenna að sveiflast fram og til baka og upp og niður í þar til gerðum leiktækjum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal en öryggið er fyrir mestu.
Árni Sæberg
Það er ekki langt síð-
an fyrsta hreina
vinstristjórnin fór frá
völdum eftir sögulegt
tap í kosningum. Á
meðan sú ríkisstjórn
var að gera sínar
bommertur leið varla
sá dagur að við, sem þá
vorum í stjórnarand-
stöðu, spyrðum ekki
hvert annað: „Hvernig
væri umfjöllun fjölmiðla ef ríkis-
stjórn Framsóknar og Sjálfstæðis-
flokks hefði gert annað eins?“ Svo
var brosað að tilhugsuninni um hvers
konar „loftárásir“ slík ríkisstjórn
hefði fengið yfir sig vegna sambæri-
legra mála.
Nú hafa fyrrverandi stjórnarand-
stöðuflokkar myndað ríkisstjórn.
Það hefur verið óskrifuð regla hér og
annars staðar að ný ríkisstjórn fengi
sæmilegan frið í upphafi kjörtímabils
til að setja sig inn í mál og innleiða
svo nýja stefnu. Það var aldrei við
því að búast að núverandi ríkisstjórn
fengi þess háttar grið. Þó var helst til
langt seilst þegar farið var að saka
ríkisstjórnina um að hafa svikið
kosningaloforð áður en hún var tekin
til starfa. Rétt eftir að nýir ráðherrar
tóku við lyklum að ráðuneytunum
varð svo ljóst hvert stefndi með um-
fjöllun.
Þrátt fyrir yfirlýsingar fyrrver-
andi stjórnarflokka um mikilvægi
þess að breyta stjórnmálunum og
umræðuhefð fóru þeir af stað í
stjórnarandstöðu af ótrúlegu offorsi
sem virðist drifið áfram af hams-
lausri gremju yfir úrslitum kosning-
anna. Málþóf hófst í fyrsta máli á
fyrsta degi sumarþings. Snúið er út
úr nánast öllu sem stjórnarliðar
segja og gera og einskis svifist í
ómerkilegum pólitískum brellum.
Framganga hinna nýju stjórnarand-
stæðinga, innan þings og utan, pirr-
ingurinn og ofleikurinn er augljós.
Það hefur því verið furðulegt að
fylgjast með því að engin brella virð-
ist svo aum og enginn útúrsnúningur
svo augljós að hann verði ekki að
stórfrétt. Látið er eins og það séu
undur og stórmerki þegar núverandi
ríkisstjórn hverfur frá stefnu fyrri
ríkisstjórnar og framfylgir eigin
stefnu. Ekkert af þessu á þó að koma
á óvart.
Fyrir og eftir kosningar
Þegar fyrri ríkisstjórn greip inn í
rammaáætlun margítrekuðu núver-
andi stjórnarflokkar að þeir vildu
leiðrétta þau inngrip og láta faglegt
mat ráða. Frá upphafi var bent á að
veiðigjaldaaðferð fyrri ríkisstjórnar
væri meingölluð og
gengi ekki upp, aðferð-
in myndi gera út af við
lítil fyrirtæki í grein-
inni og jafnvel lítil
byggðarlög líka, hún
myndi ýta undir sam-
þjöppun og valda sam-
félaginu efnahagslegu
tjóni. Núverandi
stjórnarflokkar fóru
ekki í grafgötur með
það í kosningabarátt-
unni að þessu yrði
breytt, það var ítrekað
á ótal kosningafundum
og í umræðum milli flokka. Ekkert
skorti heldur á gagnrýni á áform um
að hækka virðisaukaskatt á ferða-
þjónustuna. Meira að segja fyrrver-
andi fjármálaráðherra var orðinn
sammála því fyrir kosningar að
hækkunin væri óráðleg.
Þegar ný ríkisstjórn hefst svo
handa við boðaðar úrbætur láta
menn eins og hún sé að gera breyt-
ingar sem komi öllum á óvart. Aug-
ljósastur er þó fáránleikinn í um-
ræðu um skuldamál heimilanna. Í
kosningabaráttunni kvörtuðu flokk-
ar, sem höfðu ekki leyst málin á fjór-
um árum, undan því að stjórnarand-
staðan teldi sig þurfa tíma eftir
kosningar til að afla gagna (sem var
ekki einu sinni komin lagaheimild
fyrir) og útfæra lausnirnar. Eftir
kosningar gerðu þeir sér svo upp
mikla undrun yfir því að málið yrði
ekki klárað áður en sumarþing kæmi
saman.
Einstefna
Umfjöllun um þessi mál hefur
sums staðar verið svo einhliða, að í
öllum vangaveltum síðasta kjör-
tímabils um muninn á umfjöllun um
S-V-stjórn eða B-D-stjórn hvarflaði
varla að nokkrum manni hversu mik-
ill og augljós sá munur yrði eða
hversu fljótt hann myndi birtast.
Hér er auðvitað rétt að geta þess að í
þessu eins og öðru eru fjölmiðlar og
fjölmiðlamenn jafnólíkir og þeir eru
margir og alls ekki ætlunin að gagn-
rýna fjölmiðla almennt.
Stundum er byggt á upphróp-
unum og dylgjum stjórnarandstöð-
unnar, stundum á gömlu góðu álits-
gjöfunum og stundum á meintum
sérfræðingum. Í málum sem varða
fullveldi og forsetann eru kallaðir til
þeir sérfræðingar sem gagnrýnastir
voru á núverandi stjórnarflokka og
forsetann í umræðunni um Icesave
og aðrar milliríkjadeilur.
Hver skyldi svo vera valinn sem
sérfræðingur til að fjalla um veiði-
gjöldin og önnur efnahagsmál? Jú,
hagfræðingur sem hélt úti sérstöku
bloggi gegn núverandi stjórnar-
flokkum, sérstakur talsmaður síð-
ustu ríkisstjórnar í efnahags- og
sjávarútvegsmálum. Maður sem
skrifaði mikla lofgrein um ríkisstjórn
Samfylkingar og Vg undir lok síðasta
kjörtímabils þar sem var að finna
greiningu á borð við þá að rík-
isstjórnin hefði „staðið eins og klett-
ur gegn almennri skuldaleiðrétt-
ingu“. Sami maður er nú eltur til
útlanda til að gefa sérfræðiálit og tal-
inn best til þess fallinn að leggja mat
á stefnu núverandi ríkisstjórnar.
Undirskriftasöfnun
Nú stendur yfir undirskriftasöfn-
un gegn því að gerðar verði breyt-
ingar á hinum óframkvæmanlegu og
skaðlegu veiðigjaldalögum síðustu
ríkisstjórnar.
Minnugur þess hvernig gekk að fá
suma fjölmiðla til að segja frá því að
fram færi undirskriftasöfnun gegn
Icesave-samningunum er athygli
vert að fylgjast með umfjölluninni
um undirskriftasöfnun gegn því að
núverandi ríkisstjórn framfylgi
stefnu sinni. Engu er líkara en að
hafið sé söfnunarátak aldarinnar í
þágu óumdeilds málstaðar.
Á fyrstu dögum undirskriftasöfn-
unarinnar sagði Ríkisútvarpið tugi
frétta af söfnuninni. Í fréttatíma eftir
fréttatíma voru birtar nýjustu tölur
og rætt við réttu sérfræðingana og
forystumenn stjórnarandstöðunnar.
Nokkrum sinnum fjallaði fyrsta frétt
í aðalfréttatímum RÚV um að undir-
skriftum fjölgaði enn.
Þetta er nokkuð annað en þeir sem
söfnuðu undirskriftum gegn Icesave
bjuggu við. Þeir áttu lengi vel í mesta
basli með að fá fjölmiðla til að segja
frá því að undirskriftasöfnun færi
fram. Þegar sagðar voru fréttir af
því var það oft til að tortryggja safn-
anirnar og þá sem að þeim stóðu.
Sumir þeirra máttu þola persónu-
legar árásir og dylgjur. Þeir sem
vildu lýsa efasemdum um að rétt
væri staðið að málum fengu hins veg-
ar alla þá athygli sem þeir vildu.
Þegar einhverjir skemmtu sér við að
skrá „Mikka mús“ á listann stóð ekki
á hneykslunarviðbrögðum þótt slík-
um skráningum hafi jafnóðum verið
eytt og eftirfylgni með undir-
skriftum verið meiri en dæmi voru
um áður.
Engum dettur í hug að velta slíku
fyrir sér nú. Stöðluð skráningarsíða
af netinu er látin duga gagnrýnilaust
þótt þar séu 30 þúsund undirskriftir
úr 20 þúsund tölvum (og allt í lagi
með það). Engum dettur í hug að spá
í pólitíska afstöðu þeirra sem að
skráningunni standa, ólíkt því sem
áður var. Keyrt er áfram gagnrýni-
laust og meira að segja hringt í for-
mann Samfylkingarinnar í Búlgaríu
svo að hægt sé að gera hvatning-
arorð hans að fyrstu frétt.
Það er ekkert út á það að setja að
áhugafólk um þjóðfélagsmál beiti sér
fyrir undirskriftasöfnun á netinu.
Slíkt verður eflaust algengt á næstu
árum. En það hversu langt svekktir
stjórnarandstæðingar hafa gengið í
að nýta sér það er fyrir neðan allar
hellur. Nú skal hefna þess í fjöl-
miðlum sem hallaðist í kosningum.
Ofsafengin viðbrögð
við samráði
Jafnvel augljósustu áróðurs-
brellur fá stórfréttaumfjöllun. Þegar
atvinnuveganefnd Alþingis og sjáv-
arútvegsráðherra vildu sýna þeim
sem settu upp fyrrgreinda undir-
skriftasöfnun virðingu með því að
bjóða þeim að kynna sjónarmið sín
var því líka snúið á haus. Þingmenn
stjórnarandstöðu héldu því fram að
verið væri að „beita almenna borg-
ara óeðlilegum þrýstingi“ með því að
bjóða þeim að kynna málstað sinn.
Og þegar aðstoðarmaður sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra
reyndi að koma skilaboðum til að-
standenda söfnunarinnar um að ráð-
herra vildi gjarnan hlusta á sjón-
armið þeirra varð aftur uppi fótur og
fit. Tölvupóstur um áhuga ráð-
herrans á að kynna sér málið rataði á
rangt netfang. Sá sem átti að fá póst-
inn tók einlæga afsökunarbeiðni
góða og gilda. En þá steig fram einn
af afdráttarlausustu andstæðingum
núverandi stjórnarflokka, nú sem
lögmaður undirskriftasafnenda, og
hélt því fram að það hefði verið með
vilja gert að láta yfirmann undir-
skriftasafnandans vita að ráð-
herrann vildi kynna sér málið. Til-
gangurinn hefði augljóslega verið sá
að koma á framfæri beinni hótun.
Það að ráðherra vildi kynna sér mál-
ið var semsagt orðin tilraun til skoð-
anakúgunar.
Sagt var frá þessu gagnrýnilaust
án þess að menn gerðu sér strax
grein fyrir fáránleika málsins. Enda
hafði komið fram í öllum fjölmiðlum
landsins að umræddur maður væri
að safna undirskriftum og fundurinn
með ráðherra var að sjálfsögðu fjöl-
miðlaefni líka. Félagar lögmannsins
á þingi tóku sem von var þátt í leikn-
um og hrukku eina ferðina enn af
hjörunum með upphrópanir um
skoðanakúgun, heimtuðu hlé á þing-
fundi og létu öllum illum látum. Svo
var haldið áfram með því að heimta
rannsóknir á öllu þessu samsæri.
Sem betur fer kom fáránleiki upp-
hlaupsins augljóslega fram í fréttum
kvöldsins þar sem aðstandandi söfn-
unarinnar sást taka afsökunarbeiðni
ráðherra og aðstoðarkonu hans góða
og gilda. En því miður er ekki alltaf
hægt að treysta á að sjónvarps-
myndavélar séu á staðnum, eins og í
þessu tilviki, til að færa sönnur á
hversu fáránlegur útúrsnúningurinn
er.
Hin hliðin
Það segir sig sjálft að nánast ekk-
ert er fjallað um hina hlið veiði-
gjaldamálsins frekar en annarra
uppþota að undanförnu. Ekkert spáð
í hvort það sé eðlilegt að búa þannig
um undirstöðuatvinnugrein þjóð-
arinnar að sum fyrirtæki séu látin
greiða meira en nemur öllum hagn-
aði í skatta á meðan önnur sleppa
mun betur. Ekkert talað um að stór
hluti minni útgerðarfyrirtækja sé
ekki rekstrarhæfur ef útfærslan
verður ekki löguð, ekkert talað um
að óbreytt kerfi geti kippt efnahags-
legum stoðum undan bæjum á borð
við Seyðisfjörð og Snæfellsbæ, ekk-
ert talað um áhrif á atvinnu þúsunda
Íslendinga.
Það kann að vera að einhverjir
telji óviðunandi að fyrirtæki geti
hagnast á sjávarútvegi. Slíkar hug-
myndir eru ekki nýjar í stjórnmála-
sögunni. En það þarf að minnsta
kosti að leyfa öðrum sjónarmiðum að
komast að. T.d. þeim sjónarmiðum
að sjávarútvegur eigi að skila þjóð-
inni hámarksarði, vera fjölbreyti-
legur og treysta byggð í landinu og
að það sé best gert með því að gera
það eftirsóknarvert að starfa í grein-
inni. Íslenskur sjávarútvegur er um-
hverfisvænn og var orðinn þjóðhags-
lega arðbær ólíkt sjávarútvegi víðast
hvar í Evrópu. Réttlætir það ekki að
minnsta kosti sanngjarna rökræðu
fremur en linnulausan einsleitan
áróður og tilraunir til að sverta alla
sem starfa í greininni eða setja henni
reglur?
Lýðræði þarfnast rökræðu
Það er ógnun við lýðræði ef rök-
ræða fær ekki að eiga sér stað, ef
ákveðið er frá byrjun að aðeins ann-
ar málstaðurinn sé réttur og allt sem
styður við þá mynd fær greiða leið í
gegn en önnur sjónarmið hverfa. Ef
við viljum tryggja að sjávarútvegur
skili þjóðinni hámarksarði en verði
ekki baggi á samfélaginu eins og víða
annars staðar, ef við viljum hámarka
hlutfall umhverfisvænnar orkufram-
leiðslu og vernda náttúruna og ef við
viljum rétta stöðu heimilanna af
sanngirni þarf að ræða málin
fordómalaust. Rökræða er forsenda
framfara.
Eftir Sigmund
Davíð
Gunnlaugsson
» Það hefur verið
furðulegt að fylgjast
með því að engin brella
virðist svo aum og eng-
inn útúrsnúningur svo
augljós að hann verði
ekki að stórfrétt.
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Höfundur er forsætisráðherra.
Fyrsti mánuður loftárása