Morgunblaðið - 25.06.2013, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 25.06.2013, Qupperneq 23
23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2013 Hærra, lengra Því fylgir ákveðin spenna að sveiflast fram og til baka og upp og niður í þar til gerðum leiktækjum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal en öryggið er fyrir mestu. Árni Sæberg Það er ekki langt síð- an fyrsta hreina vinstristjórnin fór frá völdum eftir sögulegt tap í kosningum. Á meðan sú ríkisstjórn var að gera sínar bommertur leið varla sá dagur að við, sem þá vorum í stjórnarand- stöðu, spyrðum ekki hvert annað: „Hvernig væri umfjöllun fjölmiðla ef ríkis- stjórn Framsóknar og Sjálfstæðis- flokks hefði gert annað eins?“ Svo var brosað að tilhugsuninni um hvers konar „loftárásir“ slík ríkisstjórn hefði fengið yfir sig vegna sambæri- legra mála. Nú hafa fyrrverandi stjórnarand- stöðuflokkar myndað ríkisstjórn. Það hefur verið óskrifuð regla hér og annars staðar að ný ríkisstjórn fengi sæmilegan frið í upphafi kjörtímabils til að setja sig inn í mál og innleiða svo nýja stefnu. Það var aldrei við því að búast að núverandi ríkisstjórn fengi þess háttar grið. Þó var helst til langt seilst þegar farið var að saka ríkisstjórnina um að hafa svikið kosningaloforð áður en hún var tekin til starfa. Rétt eftir að nýir ráðherrar tóku við lyklum að ráðuneytunum varð svo ljóst hvert stefndi með um- fjöllun. Þrátt fyrir yfirlýsingar fyrrver- andi stjórnarflokka um mikilvægi þess að breyta stjórnmálunum og umræðuhefð fóru þeir af stað í stjórnarandstöðu af ótrúlegu offorsi sem virðist drifið áfram af hams- lausri gremju yfir úrslitum kosning- anna. Málþóf hófst í fyrsta máli á fyrsta degi sumarþings. Snúið er út úr nánast öllu sem stjórnarliðar segja og gera og einskis svifist í ómerkilegum pólitískum brellum. Framganga hinna nýju stjórnarand- stæðinga, innan þings og utan, pirr- ingurinn og ofleikurinn er augljós. Það hefur því verið furðulegt að fylgjast með því að engin brella virð- ist svo aum og enginn útúrsnúningur svo augljós að hann verði ekki að stórfrétt. Látið er eins og það séu undur og stórmerki þegar núverandi ríkisstjórn hverfur frá stefnu fyrri ríkisstjórnar og framfylgir eigin stefnu. Ekkert af þessu á þó að koma á óvart. Fyrir og eftir kosningar Þegar fyrri ríkisstjórn greip inn í rammaáætlun margítrekuðu núver- andi stjórnarflokkar að þeir vildu leiðrétta þau inngrip og láta faglegt mat ráða. Frá upphafi var bent á að veiðigjaldaaðferð fyrri ríkisstjórnar væri meingölluð og gengi ekki upp, aðferð- in myndi gera út af við lítil fyrirtæki í grein- inni og jafnvel lítil byggðarlög líka, hún myndi ýta undir sam- þjöppun og valda sam- félaginu efnahagslegu tjóni. Núverandi stjórnarflokkar fóru ekki í grafgötur með það í kosningabarátt- unni að þessu yrði breytt, það var ítrekað á ótal kosningafundum og í umræðum milli flokka. Ekkert skorti heldur á gagnrýni á áform um að hækka virðisaukaskatt á ferða- þjónustuna. Meira að segja fyrrver- andi fjármálaráðherra var orðinn sammála því fyrir kosningar að hækkunin væri óráðleg. Þegar ný ríkisstjórn hefst svo handa við boðaðar úrbætur láta menn eins og hún sé að gera breyt- ingar sem komi öllum á óvart. Aug- ljósastur er þó fáránleikinn í um- ræðu um skuldamál heimilanna. Í kosningabaráttunni kvörtuðu flokk- ar, sem höfðu ekki leyst málin á fjór- um árum, undan því að stjórnarand- staðan teldi sig þurfa tíma eftir kosningar til að afla gagna (sem var ekki einu sinni komin lagaheimild fyrir) og útfæra lausnirnar. Eftir kosningar gerðu þeir sér svo upp mikla undrun yfir því að málið yrði ekki klárað áður en sumarþing kæmi saman. Einstefna Umfjöllun um þessi mál hefur sums staðar verið svo einhliða, að í öllum vangaveltum síðasta kjör- tímabils um muninn á umfjöllun um S-V-stjórn eða B-D-stjórn hvarflaði varla að nokkrum manni hversu mik- ill og augljós sá munur yrði eða hversu fljótt hann myndi birtast. Hér er auðvitað rétt að geta þess að í þessu eins og öðru eru fjölmiðlar og fjölmiðlamenn jafnólíkir og þeir eru margir og alls ekki ætlunin að gagn- rýna fjölmiðla almennt. Stundum er byggt á upphróp- unum og dylgjum stjórnarandstöð- unnar, stundum á gömlu góðu álits- gjöfunum og stundum á meintum sérfræðingum. Í málum sem varða fullveldi og forsetann eru kallaðir til þeir sérfræðingar sem gagnrýnastir voru á núverandi stjórnarflokka og forsetann í umræðunni um Icesave og aðrar milliríkjadeilur. Hver skyldi svo vera valinn sem sérfræðingur til að fjalla um veiði- gjöldin og önnur efnahagsmál? Jú, hagfræðingur sem hélt úti sérstöku bloggi gegn núverandi stjórnar- flokkum, sérstakur talsmaður síð- ustu ríkisstjórnar í efnahags- og sjávarútvegsmálum. Maður sem skrifaði mikla lofgrein um ríkisstjórn Samfylkingar og Vg undir lok síðasta kjörtímabils þar sem var að finna greiningu á borð við þá að rík- isstjórnin hefði „staðið eins og klett- ur gegn almennri skuldaleiðrétt- ingu“. Sami maður er nú eltur til útlanda til að gefa sérfræðiálit og tal- inn best til þess fallinn að leggja mat á stefnu núverandi ríkisstjórnar. Undirskriftasöfnun Nú stendur yfir undirskriftasöfn- un gegn því að gerðar verði breyt- ingar á hinum óframkvæmanlegu og skaðlegu veiðigjaldalögum síðustu ríkisstjórnar. Minnugur þess hvernig gekk að fá suma fjölmiðla til að segja frá því að fram færi undirskriftasöfnun gegn Icesave-samningunum er athygli vert að fylgjast með umfjölluninni um undirskriftasöfnun gegn því að núverandi ríkisstjórn framfylgi stefnu sinni. Engu er líkara en að hafið sé söfnunarátak aldarinnar í þágu óumdeilds málstaðar. Á fyrstu dögum undirskriftasöfn- unarinnar sagði Ríkisútvarpið tugi frétta af söfnuninni. Í fréttatíma eftir fréttatíma voru birtar nýjustu tölur og rætt við réttu sérfræðingana og forystumenn stjórnarandstöðunnar. Nokkrum sinnum fjallaði fyrsta frétt í aðalfréttatímum RÚV um að undir- skriftum fjölgaði enn. Þetta er nokkuð annað en þeir sem söfnuðu undirskriftum gegn Icesave bjuggu við. Þeir áttu lengi vel í mesta basli með að fá fjölmiðla til að segja frá því að undirskriftasöfnun færi fram. Þegar sagðar voru fréttir af því var það oft til að tortryggja safn- anirnar og þá sem að þeim stóðu. Sumir þeirra máttu þola persónu- legar árásir og dylgjur. Þeir sem vildu lýsa efasemdum um að rétt væri staðið að málum fengu hins veg- ar alla þá athygli sem þeir vildu. Þegar einhverjir skemmtu sér við að skrá „Mikka mús“ á listann stóð ekki á hneykslunarviðbrögðum þótt slík- um skráningum hafi jafnóðum verið eytt og eftirfylgni með undir- skriftum verið meiri en dæmi voru um áður. Engum dettur í hug að velta slíku fyrir sér nú. Stöðluð skráningarsíða af netinu er látin duga gagnrýnilaust þótt þar séu 30 þúsund undirskriftir úr 20 þúsund tölvum (og allt í lagi með það). Engum dettur í hug að spá í pólitíska afstöðu þeirra sem að skráningunni standa, ólíkt því sem áður var. Keyrt er áfram gagnrýni- laust og meira að segja hringt í for- mann Samfylkingarinnar í Búlgaríu svo að hægt sé að gera hvatning- arorð hans að fyrstu frétt. Það er ekkert út á það að setja að áhugafólk um þjóðfélagsmál beiti sér fyrir undirskriftasöfnun á netinu. Slíkt verður eflaust algengt á næstu árum. En það hversu langt svekktir stjórnarandstæðingar hafa gengið í að nýta sér það er fyrir neðan allar hellur. Nú skal hefna þess í fjöl- miðlum sem hallaðist í kosningum. Ofsafengin viðbrögð við samráði Jafnvel augljósustu áróðurs- brellur fá stórfréttaumfjöllun. Þegar atvinnuveganefnd Alþingis og sjáv- arútvegsráðherra vildu sýna þeim sem settu upp fyrrgreinda undir- skriftasöfnun virðingu með því að bjóða þeim að kynna sjónarmið sín var því líka snúið á haus. Þingmenn stjórnarandstöðu héldu því fram að verið væri að „beita almenna borg- ara óeðlilegum þrýstingi“ með því að bjóða þeim að kynna málstað sinn. Og þegar aðstoðarmaður sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra reyndi að koma skilaboðum til að- standenda söfnunarinnar um að ráð- herra vildi gjarnan hlusta á sjón- armið þeirra varð aftur uppi fótur og fit. Tölvupóstur um áhuga ráð- herrans á að kynna sér málið rataði á rangt netfang. Sá sem átti að fá póst- inn tók einlæga afsökunarbeiðni góða og gilda. En þá steig fram einn af afdráttarlausustu andstæðingum núverandi stjórnarflokka, nú sem lögmaður undirskriftasafnenda, og hélt því fram að það hefði verið með vilja gert að láta yfirmann undir- skriftasafnandans vita að ráð- herrann vildi kynna sér málið. Til- gangurinn hefði augljóslega verið sá að koma á framfæri beinni hótun. Það að ráðherra vildi kynna sér mál- ið var semsagt orðin tilraun til skoð- anakúgunar. Sagt var frá þessu gagnrýnilaust án þess að menn gerðu sér strax grein fyrir fáránleika málsins. Enda hafði komið fram í öllum fjölmiðlum landsins að umræddur maður væri að safna undirskriftum og fundurinn með ráðherra var að sjálfsögðu fjöl- miðlaefni líka. Félagar lögmannsins á þingi tóku sem von var þátt í leikn- um og hrukku eina ferðina enn af hjörunum með upphrópanir um skoðanakúgun, heimtuðu hlé á þing- fundi og létu öllum illum látum. Svo var haldið áfram með því að heimta rannsóknir á öllu þessu samsæri. Sem betur fer kom fáránleiki upp- hlaupsins augljóslega fram í fréttum kvöldsins þar sem aðstandandi söfn- unarinnar sást taka afsökunarbeiðni ráðherra og aðstoðarkonu hans góða og gilda. En því miður er ekki alltaf hægt að treysta á að sjónvarps- myndavélar séu á staðnum, eins og í þessu tilviki, til að færa sönnur á hversu fáránlegur útúrsnúningurinn er. Hin hliðin Það segir sig sjálft að nánast ekk- ert er fjallað um hina hlið veiði- gjaldamálsins frekar en annarra uppþota að undanförnu. Ekkert spáð í hvort það sé eðlilegt að búa þannig um undirstöðuatvinnugrein þjóð- arinnar að sum fyrirtæki séu látin greiða meira en nemur öllum hagn- aði í skatta á meðan önnur sleppa mun betur. Ekkert talað um að stór hluti minni útgerðarfyrirtækja sé ekki rekstrarhæfur ef útfærslan verður ekki löguð, ekkert talað um að óbreytt kerfi geti kippt efnahags- legum stoðum undan bæjum á borð við Seyðisfjörð og Snæfellsbæ, ekk- ert talað um áhrif á atvinnu þúsunda Íslendinga. Það kann að vera að einhverjir telji óviðunandi að fyrirtæki geti hagnast á sjávarútvegi. Slíkar hug- myndir eru ekki nýjar í stjórnmála- sögunni. En það þarf að minnsta kosti að leyfa öðrum sjónarmiðum að komast að. T.d. þeim sjónarmiðum að sjávarútvegur eigi að skila þjóð- inni hámarksarði, vera fjölbreyti- legur og treysta byggð í landinu og að það sé best gert með því að gera það eftirsóknarvert að starfa í grein- inni. Íslenskur sjávarútvegur er um- hverfisvænn og var orðinn þjóðhags- lega arðbær ólíkt sjávarútvegi víðast hvar í Evrópu. Réttlætir það ekki að minnsta kosti sanngjarna rökræðu fremur en linnulausan einsleitan áróður og tilraunir til að sverta alla sem starfa í greininni eða setja henni reglur? Lýðræði þarfnast rökræðu Það er ógnun við lýðræði ef rök- ræða fær ekki að eiga sér stað, ef ákveðið er frá byrjun að aðeins ann- ar málstaðurinn sé réttur og allt sem styður við þá mynd fær greiða leið í gegn en önnur sjónarmið hverfa. Ef við viljum tryggja að sjávarútvegur skili þjóðinni hámarksarði en verði ekki baggi á samfélaginu eins og víða annars staðar, ef við viljum hámarka hlutfall umhverfisvænnar orkufram- leiðslu og vernda náttúruna og ef við viljum rétta stöðu heimilanna af sanngirni þarf að ræða málin fordómalaust. Rökræða er forsenda framfara. Eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson » Það hefur verið furðulegt að fylgjast með því að engin brella virðist svo aum og eng- inn útúrsnúningur svo augljós að hann verði ekki að stórfrétt. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Höfundur er forsætisráðherra. Fyrsti mánuður loftárása

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.