Morgunblaðið - 25.06.2013, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2013
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Það fengu allir fisk í morgun, og
tvær stangir fengu kvótann, tvo
laxa,“ sagði Lýður Jónsson þar sem
blaðamaður hitti hann við lok vakt-
ar í Elliðaánum í hádeginu í gær.
Lýður fékk sína tvo í Sjávarfossi og
á Breiðunni, auk þess sem hann
landaði fallegum urriða. Þá missti
hann tvo laxa til. „Flestir fengu í
fossinum, hann tekur ef hann er
þar,“ sagði veiðimaðurinn sem veit
hvað hann syngur – „ég hef veitt
hér í meira en fimmtíu ár,“ sagði
hann og bætti við að sér þætti
ástandið betra en í fyrra. „Það er
alltaf gaman að þessu,“ sagði Lýður
og kvaddi.
„Hér er bullandi stuð,“ sagði Ólaf-
ur E. Jóhannesson, umsjónarmaður
í veiðihúsinu við Elliðaárnar. Enda
var búið að skrá 53 laxa í bókina, á
fjórar stangir á fjórum og hálfum
degi. Þar af komu 23 á land á opn-
unardaginn. „Veistu um betri veiði á
fjórar stangir á þessum tíma?“
spurði hann svo.
Þegar blaðað var í veiðibókinni
mátti sjá að mest hafa vel haldnir
smálaxar verið að veiðast en einn 82
cm hefur veiðst og annar 88 cm.
Þann fékk Ásgeir Heiðar í Telj-
arastreng. „Þetta var alvöru fleki,“
sagði veiðimaðurinn. „Ég var með
stöng fyrir línu þrjú og laxinn stakk
sér í þrígang í helli sem er undir
hleðslunni við hylinn. Hann fór svo
niður og ég landaði honum í Beygj-
unni eftir um 25 mínútur.“ Ásgeir
Heiðar bætti við að nú væru jafnar
og þéttar göngur í Elliðaárnar, um
20 laxar að koma inn á hverju flóði.
Ytri-Rangá fer vel af stað
„Opnunarhollið veiddi 80 laxa á
fimm vöktum! Þetta er frábær byrj-
un,“ sagði Mjöll Daníelsdóttir í veiði-
húsinu við Langá á Mýrum í hádeg-
inu í gær. Fyrsta hollið í ánni veiðir
á maðk og flugu og veiddist vel á
hvort tveggja.
„Hér er fiskur út um allt. Bárð-
arbunga er pökkuð af fiski, vel
veiddist í Kattarfossi, Holunni og
víðar,“ las hún upp úr veiðibókinni.
Mikið af laxi er að ganga og virðist
vera á hraðri ferð upp ána.
Í Grímsá í Borgarfirði höfðu á há-
degi í gær 24 laxar verið færðir til
bókar á fyrstu tveimur veiðidög-
unum. „Sunnudagsmorgunninn var
dapur í sólskininu en um eftirmið-
daginn tók veiðin heldur betur við
sér,“ sagði Jón Þór Júlíusson, leigu-
taki árinnar. „Svo var mikið líf við
Laxfoss í morgun en þá setti Viggó
bróðir minn í sjö laxa og landaði
þremur. Þeir voru að koma í hitsið.
Nú er nýr fiskur að koma inn og lax-
ar eru byrjaðir að veiðast í Odds-
staðafljóti og Gullberastaðastreng.“
Ef litið er norður yfir heiðar þá
lauk opnunarhollið í Miðfjarðará líka
veiðum á hádegi í gær; 37 laxar
veiddust á sex stangir. „Mest veiddist
í Miðfjarðaránni sjálfri og í Austur-
árgljúfrinu,“ segir leigutaki árinnar,
Rafn Valur Alfreðsson. „Þrír eða
fjórir smálaxar eru í tölunni og ég
fékk einn þeirra í Brekkulækjar-
streng III. Hann var þvílíkt flottur og
vel haldinn,“ segir Rafn og vonar að
það boði gott framhald. „Þá veiddust
fjórir fiskar yfir 90 cm langir.“
Veiði hófst í Ytri-Rangá í gær og
voru veiðimenn lukkulegir. „Þetta er
æðisleg byrjun og sú besta hingað
til. Áin stimplar sig inn sem sann-
kölluð stórlaxaá,“ segir Jóhannes
Hinriksson, framkvæmdastjóri
Veiðifélags Ytri-Rangár, við Mbl.is.
Fimmtán stórlaxar komu þá á land
frá klukkan átta til ellefu. Allt
hrygnur, 77 til 87 cm langar, og ginu
einna helst við Sunray Shawow-
túpum. „Hrygnurnar eru óvenju
stórar, það er eins og þær fari
stækkandi. Við væntum þess að mik-
ið verði af stórlaxi í sumar en það á
enn eftir að veiða stóru hængana.“
„Opnunarhollið veiddi 80 laxa“
Laxveiðin fer víða vel af stað í ám
landsins „Frábær byrjun“ í Langá
Morgunblaðið/Golli
Bræðralag Viggó Júlíusson naut aðstoðar Jóns Þórs bróður síns, leigutaka Grímsár, þegar hann landaði einum
þriggja laxa sinna við Laxfoss í Grímsá í gærmorgun. Mikið líf var við fossinn og fleiri laxar tóku en láku af.
Það var kalt í opnuninni en eng-
inn dauði og djöfull,“ sagði
Bryndís Magnúsdóttir, umsjón-
armaður í Veiðivötnum. Veiðin
hófst þar 18. júní og kvörtuðu
sumir veiðimenn undan kulda
og kenndu honum um tökuleysi.
Síðan hefur veðrið batnað og
veiðin aukist í kjölfarið.
„Þetta hefur verið skamm-
laust,“ sagði Bryndís. „Nokkrir
yfir tíu pundin hafa veiðst og
slatti af sjö, átta punda fiskum.
Svo eru sumir sem veiða lítið en
aðrir helling, eins og alltaf er.“
Hún segist vera ánægð með
það hvernig bleikjan kemur
undan vetri, eins og í Langa-
vatni og Breiðavatni. „Þetta er
frábær matur, þessi pönnu-
stærð með eldrautt holdið.“
Nokkrir
tíupundarar
BATNAR Í VEIÐIVÖTNUM
HJÁ AÐALSKOÐUN ERT ÞÚ
Í GÓÐUM HÖNDUM
Snjallt að
kíkja á okkur
á adal.is
Við erum með fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og eina í
Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn taka á móti þér á
þeim öllum. Hlökkum til að sjá þig!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-0
4
6
7
Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 19 ár
Reykjavík
Grjóthálsi 10
Sími 590 6940
Reykjavík
Skeifunni 5
Sími 590 6930
Hafnarfjörður
Hjallahrauni 4
(við Helluhraun)
Sími 590 6900
Kópavogur
Skemmuvegi 6
(bleik gata)
Sími 590 6935
Reykjanesbær
Holtsgötu 52
(við Njarðarbraut)
Sími 590 6970
www.adalskodun.is og www.adal.is
Við getum minnt þig á þegar þú þarft að láta skoða bílinn
á næsta ári. Skráðu þig á póstlistann hjá okkur þegar þú kemur með
bílinn í skoðun og þú gætir unnið 200 lítra eldsneytisúttekt.
Opið kl. 8-17 virka daga – sími 590 6900