Morgunblaðið - 25.06.2013, Síða 8

Morgunblaðið - 25.06.2013, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2013 Svarið við spurningu dagsins Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is tilbúnar í pottinn heima Fiskisúpur í Fylgifiskum Verð 1.790 kr/ltr Súpan kemur í fötu en fiskinum er pakkað sér. Eldunaraðferð þegar heim er komið: Súpan er hituð upp að suðu, fiskinum er jafnað út milli súpudiska eða settur í pottinn um leið og súpan er borin fram. Hvað þarftu mikið? Súpa sem aðalréttur – 0,5 ltr/mann Súpa sem forréttur – 0,25 ltr/mann Vef-Þjóðviljanum þykir ekkiónýtt að fylgjast með því „hvernig fréttamenn Ríkisútvarps- ins, sem varla vissu af því að verið væri að safna undirskriftum gegn lögum um hinn óafturkræfa skuldaklafa á kyn- slóðir Íslendinga, „Icesave“, hafi nú frá upphafi notað öll hugsanleg tæki- færi til að minna á að verið sé að safna undirskriftum gegn lögum, sem eiga að lækka nýjan viðbótarskatt á sjávarútveg- inn í landinu í eitt ár.    Frá myndun ríkisstjórnarinnarhafa fréttamenn og stjórn- arandstæðingar talað um að stjórnin sé að svíkja loforð sem hún hafi gefið skuldurum í land- inu. Þó er það svo, að jafnvel framsóknarmenn tóku fram í lof- orðum sínum að loforðin yrðu efnd með því „svigrúmi“ sem kæmi út úr samningum við er- lenda kröfuhafa bankanna.    Þannig að ekki getur verið umnein „svik“ að ræða, fyrr en í fyrsta lagi ef „svigrúmið“ myndast en verður ekkert notað til lækk- unar skuldanna. Fram að því hef- ur ekkert verið svikið. En sömu fréttamenn og stjórn- arandstæðingar minnast ekki orði á að báðir stjórnarflokkarnir lof- uðu landsmönnum því fyrir kosn- ingar að veiðigjaldið, sem er sér- stakur viðbótarskattur á sjávarútvegsfyrirtæki, yrði lækk- að. Enginn fréttamaður nefnir þetta. Enginn fréttamaður spyr hvort ríkisstjórnin hyggist svíkja þetta loforð. Enginn álitsgjafi seg- ir með alvöruþunga að það sé spurning um heilindi að þetta kosningaloforð verði efnt.    Ætli persónulegar skoðanirfréttamanna og álitsgjafa skipti hér máli?“ Leikarar áhugasviðsins STAKSTEINAR Veður víða um heim 24.6., kl. 18.00 Reykjavík 11 skýjað Bolungarvík 11 skýjað Akureyri 12 léttskýjað Nuuk 1 þoka Þórshöfn 10 alskýjað Ósló 17 heiðskírt Kaupmannahöfn 17 léttskýjað Stokkhólmur 21 heiðskírt Helsinki 21 léttskýjað Lúxemborg 23 léttskýjað Brussel 17 heiðskírt Dublin 17 léttskýjað Glasgow 18 heiðskírt London 13 skýjað París 22 heiðskírt Amsterdam 16 léttskýjað Hamborg 17 léttskýjað Berlín 22 skýjað Vín 21 léttskýjað Moskva 22 skýjað Algarve 17 léttskýjað Madríd 17 léttskýjað Barcelona 17 léttskýjað Mallorca 22 léttskýjað Róm 26 léttskýjað Aþena 26 léttskýjað Winnipeg 11 léttskýjað Montreal 12 súld New York 14 skýjað Chicago 10 léttskýjað Orlando 23 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 25. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2:58 24:04 ÍSAFJÖRÐUR 1:36 25:36 SIGLUFJÖRÐUR 1:19 25:19 DJÚPIVOGUR 2:13 23:48 Ný stofnun tekur til starfa 1. júlí nk. Stofnunin ber nafnið Samgöngu- stofa og mun hún annast stjórnsýslu og eftirlit með samgöngum. Áður stóð til að stofnunin bæri nafnið Far- sýslan en Þórhildur Elín Elínardótt- ir, upplýsingafulltrúi Siglingastofn- unar, segir að mörgum hafi þótt upprunalega nafnið óþjált. „Starfs- menn áttu í raun frumkvæðið að þessari nafnabreytingu og í kjölfarið var kosið á milli ákveðinna nafna og þetta varð niðurstaðan.“ Öllum boðið starf hjá stofnuninni Hermann Guðjónsson verður for- stjóri Samgöngustofu og um 160 manns munu starfa hjá stofnuninni en fyrsti starfsmannafundurinn var haldinn í gær. Verkefni Flugmála- stjórnar og Umferðarstofu auk stjórnsýslu- og eftirlitsverkefna Siglingastofnunar Íslands og Vega- gerðarinnar munu tilheyra Sam- göngustofu. „Með því að sameina alla stjórnsýslu samgöngumála í eina stofnun er vonast til þess að efla megi þjónustu og eftirlit á því sviði,“ segir Þórhildur. Aðspurð segir Þór- hildur að ekki hafi komið til upp- sagna við sameiningu stofnananna. „Öllum var boðið starf við nýja stofnun. Ekki er búið að ákveða staðsetningu stofnunarinnar á höf- uðborgarsvæðinu en unnið er að því.“ mariamargret@mbl.is Samgöngustofa tekur til starfa í júlí  Átti áður að heita Farsýslan  Nafn- ið þótti óþjált  Engum sagt upp Hönnuður Ámundi Sigurðsson Jóhannes M. Gijsen, biskup kaþ- ólsku kirkjunnar á Íslandi á árunum 1995-2007, lést í klaustri Karmel- systra í Sittard í Hollandi í gær, átt- ræður að aldri. Johannes Baptist Matthijs Gijsen fæddist í Suður-Hollandi 7. október 1932. Hann ákvað ungur að árum að hann vildi verða prestur. Fyrirmynd hans var Martin Meulenberg, fyrsti kaþólski biskupinn á Íslandi eftir siðaskipti og afabróðir Gijsens. Hann var doktor í kirkjusögu og var vígður biskup í Limburg í Hol- landi 1972, aðeins 39 ára. Gijsen var útnefndur Reykjavík- urbiskup 1995. Hann lét af störfum í október 2007 fyrir aldurs sakir. Andlát Jóhannes M. Gijsen

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.