Morgunblaðið - 25.06.2013, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2013
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími: 534 9600 · heyrn.is
Erum með allar gerðir
af heyrnartækjum
Fáðu heyrnartæki til reynslu
og stjórnaðu þeim með
ReSound Appinu
Komdu í
greiningu hjá
faglærðum
heyrnarfræðingi
Heyrðu umskiptin og
stilltu heyrnartækin
í Appinu
Frí heyrnargreining
og ráðgjöf í júní.
Morgunblaðið/Eggert
Flottur hópur Jón, sem er yngsta barn Herdísar af fjórum, er á drekaæv-
intýranámskeiði, sem er uppeldisstöð fyrir framtíðarbörn í taekwondo.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
M
ig hefði ekki órað
fyrir því fyrir
nokkrum árum að
ég ætti eftir að
stunda taekwondo
af kappi og taka þátt í keppnum,“
segir Herdís Þórðardóttir, Íslands-
meistari í Superior-flokki, þrjátíu
ára og eldri. Hún og tvær dætur
hennar, Erla og Hulda Björnsdætur,
æfa þessa sjálfsvarnaríþrótt af
miklu kappi hjá Aftureldingu í Mos-
fellsbæ. Jón Björnsson, sem er
yngsta barn Herdísar, er 6 ára og er
á drekaævintýranámskeiði, sem er
einhverskonar uppeldisstöð Aftur-
eldingar fyrir framtíðariðkendur í
taekwondo. Erla hefur mikið keppn-
isskap og er búin að landa mörgum
sigrum á þeim tæpum fjórum árum
sem hún hefur æft. Hún er Íslands-
meistari, Reykjavíkurmeistari og
margfaldur bikarmeistari í bardaga.
Í vor varð hún í öðru sæti á Norð-
urlandamótinu í Finnlandi. „Þetta
byrjaði allt á því að mér og vinkonu
minni datt í hug að prófa að fara á
æfingu í taekwondo þegar við vorum
tíu ára. Vinkona mín hætti fljótlega
en ég hélt áfram. Mamma byrjaði
svo að æfa þegar ég var búin að vera
í eitt ár,“ segir Erla og bætir við að
frá því hún komst í landsliðið æfi
hún fimm sinnum í viku. Hulda hefur
aðeins æft í eitt ár, enda er hún ekki
nema níu ára, en hún finnur sig vel í
þessu og er með góðar fyrirmyndir,
bæði stóru systur og mömmu.
Æfingabúðir í útlöndum
„Taekwondo er mjög fjöl-
skylduvæn íþrótt sem allir geta
stundað, hvernig sem þeir eru í lag-
inu. Þetta er vaxandi íþrótt hér á
landi og mótin eru alltaf að verða
fjölmennari. Hjá Aftureldingu eru
fjórar fjölskyldur þar sem allir fjöl-
skyldumeðlimir eru í taekwondo, og
líka mæðgur og mæðgin. Og það eru
margar fjölskyldur að æfa hjá öðr-
um fjélögum,“ segir Herdís sem sér
ekki eftir að hafa slegið til fyrir
þremur árum og prófað að byrja að
æfa. „Þetta er frábær og skemmtileg
íþrótt. Ég æfi þrisvar í viku og svo
förum við líka í æfingabúðir bæði
hér heima og erlendis.“
Krefst úthalds og snerpu
Taekwondo er sjálfsvarnar-
íþrótt eða bardagalist. Hún kemur
frá Kóreu og er ekki ólík karate,
kungfú og öðrum slíkum. Þetta tek-
ur á mörgum þáttum, við æfum allt
frá mjúkum jógateygjum upp í harð-
an bardaga. Þetta snýst um sjálfs-
vörn þar sem við þurfum að æfa
„formin“ okkar eða stöðurnar, sem
eru bæði högg og varnir og þar er
Skemmtileg og fjöl-
skylduvæn íþrótt
Herdís Þórðardóttir og tvær dætur hennar æfa taekwondo af miklum móð og taka
líka þátt í keppnum, bæði hér heima og erlendis. Þær eru með keppnisskap og
hafa landað nokkrum titlum, nú síðast varð Erla, elsta dóttirin, í öðru sæti á
Norðurlandamótinu. Þeim finnst íþróttin skemmtileg og stefna á svarta beltið.
Stolt Erla er mikil keppnismanneskja og varð í öðru sæti á Norðurlanda-
mótinu í taekwondo í Finnlandi í vor og var stolt á verðlaunapallinum.
Hinir fjölmörgu hjólagarpar lands-
ins fagna götuhjólakeppni sem
haldin verður næstkomandi laug-
ardag, Tour de Hvolsvöllur. Er þá
hjólað frá Reykjavík að Hvolsvelli,
110 kílómetra langa leið. Ræst er
frá Olís, Norðlingaholti klukkan sjö
um morguninn. Einnig er boðið upp
á 48 km leið þar sem hjólað er frá
Selfossi á Hvolsvöll og 14 km leið
þar sem hjólað er frá Hellu.
Hægt er að skrá sig á hjolamot-
.is og geta skráðir fylgst með
reglulegum uppfærslum á fésbók-
arsíðu keppninnar TourDeHvols-
vollur. Síðasti dagur skráningar er
27. júní.
Að hjólakeppninni lokinni verður
blásið til fjölskylduhátíðar á Hvols-
velli. Þar verða leikir fyrir börnin,
hjólaþrautir, hópakstur gamalla
traktora og bíla, sveitamarkaður,
Sirkus Íslands og margt fleira. Um
kvöldið verður götugrill og lifandi
tónar.
Vefsíðan www.facebook.com/TourDeHvolsvollur
tt
Götuhjólakeppni Tour de Hvolsvöllur-áskorunin er orðin að árlegum viðburði.
Hjólakeppni og fjölskylduskemmtun
Fyrrverandi landsliðsmarkvörður
karla í knattspyrnu og forystumaður í
hlaupamenningu í Skagafirði, Árni
Stefánsson, verður sextugur á árinu
og í tilefni þess verður efnt til svo-
kallaðs Árnahlaups. Hlaupið fer fram
laugardaginn 29. júní á Sauðárkróki
og ýmsar leiðir í boði.
Í fyrsta lagi verður hlaupið Fjalla-
hlaupið svonefnda, en um er að ræða
tæplega átján kílómetra hring um
Kimbastaðagötur. Einnig verður boð-
ið upp á sex kílómetra skógarskokk í
Skógarhlíð sem og tveggja kílómetra
fjölskylduhlaup.
Veglegir vinningar eru í boði og í
lokin verður boðið upp á grill og
skemmtiatriði. Hægt er að skrá sig í
keppnina á síðunni hlaup.is en nánari
upplýsingar um keppnina má finna á
feykir.is eða á fésbókarsíðu keppn-
innar.
Sextugsafmæli fyrrverandi landsliðsmarkvarðar fagnað
Kappi Árni hefur meðal annars unnið sem íþróttakennari og hlaupaþjálfari.
Hlaupið til heiðurs Árna
Í Morgunblaðinu í gær var sagt frá
gjöf Margrétar Norland til Þjóðminja-
safnsins. Margrét gaf safninu skaut-
búning ömmu sinnar í minningu afa
síns og ömmu, Thors Jensen og Mar-
grétar Þorbjargar Kristjánsdóttur.
Skautbúningurinn var einnig gefinn í
minningu foreldra Margrétar, Krist-
ínar Thors og Guðmundar Vilhjálms-
sonar, en þess láðist að geta í gær.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
þessum mistökum.
Leiðrétting
Líka í minn-
ingu foreldra
Skautbúningur Gjöf í minningu
foreldra og afa og ömmu.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.