Morgunblaðið - 25.06.2013, Side 11
krafist mikillar nákvæmni. Það er
bæði keppt í formum og í bardaga. Í
bardaga er það maður á mann, þar
sem allt gengur út á spörk. En við
erum í hlífðarbrynjum í bardaga,
með hjálm og hlífðargóm. Við fáum
eitt stig fyrir hvert spark sem hittir
brynjuna, tvö stig ef við gerum
snúning og þrjú stig fyrir spark í
höfuð,“ segir Herdís og bætir við að
höfuðspörk séu að sjálfsögðu ekki
ætluð til að meiða og að slysatíðni sé
mjög lág í taekwondo. „Þetta krefst
mikils úthalds og snerpu og tekur
rosalega á. Maður er verulega
þreyttur eftir tveggja mínútna bar-
daga. Þetta snýst líka mikið um aga
og einbeitingu. Andlegi þátturinn
skiptir ekki síður máli en líkamlegi
þátturinn.“
Sjötíu armbeygjur á prófi
Þær segjast vera mjög heppnar
að hafa góðan og metnaðarfullan
þjálfara sem er landsliðsþjálfarinn í
bardaga. „Hann heitir Meisam Raf-
iei og kemur frá Íran. Hann er þre-
faldur heimsmeistari í bardaga og
stefnir á Ólympíuleikana.“
Þær þurfa að ná tökum á
ákveðnum formum, eða hreyfingum,
fyrir hvert belti. „Við þurfum að
standast beltapróf til að fá nýtt
belti, en það er mjög hvetjandi, mað-
ur er alltaf að bæta sig og takast á
við nýtt. Formin verða æ erfiðari
eftir því sem nær dregur svarta
beltinu. Ég þurfti til dæmis að gera
fimmtíu armbeygjur innan tíma-
marka á síðasta beltaprófi. Það tók
verulega á,“ segir Herdís sem er ný-
komin með rauða beltið. Erla er líka
með rauða beltið en hún hefur áunn-
ið sér tvær svartar rendur á sitt
belti, sem þýðir að hún er komin
lengra. „Ég þurfti að gera sjötíu
armbeygjur fyrir síðasta beltapróf,“
segir Erla. Hulda er með græna
beltið, enda ekki nema níu ára og
aðeins búin að æfa í eitt ár. En þær
stefna allar þrjár að sjálfsögðu á
svarta beltið.
Morgunblaðið/Eggert
Einbeittar mæðgur Hulda, Þórdís og Erla fara létt með að sparka hátt eins og nauðsynlegt er í taekwondo.
Sterk Erla í fullum herklæðum að keppa í bardaga á Norðurlandamótinu.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2013
SIMPLY CLEVER
ŠKODA Fabia kostar aðeins frá:*
3.790.000,-
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
Nýr ŠKODA Octavia.
Hrífandi. Á hverjum degi.
ŠKODA Octavia er nýr og glæsilega endurhannaður fjölskyldubíll frá ŠKODA sem
nú er enn betur búinn staðalbúnaði. Má þar helst nefna nálgunarvara að aftan, 16”
álfelgur, fjarstýringar í stýri fyrir útvarp og síma og Bluetooth búnað fyrir síma og
tónlist. Komdu í reynsluakstur og upplifðu nýjan ŠKODA Octavia.
Breiðari, lengri, léttari og hlaðinn búnaði
* Octavia Ambition 1.2 TSI,
105 hestöfl, beinskiptur
Nýlega kom út bók hér á
landi sem er sú fyrsta
sinnar tegundar. Bókin
ber nafnið Færni til
framtíðar: Handbók um
örvun hreyfifærni barna
úti í nánasta umhverfi og
fjallar um hreyfingu
barna með sérþarfir.
Bókin, sem er eftir
íþróttafræðinginn Sab-
ínu Steinunni Halldórs-
dóttur, fæst við þá hug-
myndafræði sem hún hefur þróað
með sér í sínu námi í Noregi.
Sabína hefur unnið í fimm ár sem
íþrótta- og sérkennari í hreyfingu en
hugmyndafræði hennar gengur út á
ímyndunar- og hlutverkjaleiki barna
og er jafnframt nátt-
úruvæn auk þess sem
engin tæki eru nýtt og þar
af leiðandi eru hugmyndir
hennar sparsamar. Sabína
hefur þar að auki haldið
fjölda fyrirlestra um efni
sitt en þar kemur meðal
annars fram sá árangur
sem hugmyndafræði
hennar hefur nú þegar
skilað.
Bókin, sem er um níutíu
blaðsíður að lengd, er myndskreytt af
Þórhildi Jónsdóttur frá Lambey í
Fljótshlíð. Sabína heldur einnig úti
fésbókarsíðu sem allir geta heimsótt
en þar gefur hún ráð og upplýsingar
varðandi hreyfingu barna almennt.
Mikilvægi náttúrulegs umhverfis í leik barna
Hreyfing Sabína Steinunn gefur út bók eftir sinni hugmyndafræði um hreyfingu barna.
Hreyfingu barna gerð skil
Efnt verður til hjólreiðakeppni í Heið-
mörk 27. júní. Hjólreiðafélag Reykja-
víkur stendur fyrir keppninni í sam-
starfi við Örninn en það fyrirtæki
mun bjóða keppendum upp á ham-
borgara í lok keppninnar, Ölgerðin
býður upp á meðlæti auk þess sem
allir krakkar fá veiðileyfi í Elliðavatni.
Keppt verður í nokkrum vegalengdar-
og aldursflokkum auk þess sem boð-
ið verður upp á liðakeppni. Einnig
verður boðið upp á sér keppni fyrir
krakka en í lokin munu allir fá verð-
launapening fyrir sína þátttöku. Nán-
ari upplýsingar auk skráningargagna
má nálgast í Erninum 25. til 26. júlí.
Allir krakkar fá veiðileyfi í Elliðavatni
Keppni Ýmislegt er í boði fyrir börn.
Keppt í Heið-
merkuráskorun