Morgunblaðið - 25.06.2013, Síða 12

Morgunblaðið - 25.06.2013, Síða 12
Hofsjökull Tungnafellsjökull Kal dak víslKerlingarfjöll Friðland í Þjórsárverum Þj ór sá Friðland Þjórsárvera Tillaga að stækkun friðlands Veitugöng Veitulón miðað við 581 m yfir sjó Veitulón miðað við 567,5 m yfir sjó Loftmyndir ehf. Heimild: Umhverfisstofnun BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Miklar breytingar hafa orðið á áformum um virkjun efsta hluta Þjórsár við Norðlingaöldu. Í þeim áætlunum sem unnið var eftir frá 1981 til 2002 var gert ráð fyrir að hæð lónsins yrði í allt að 581 metra yfir sjávarmáli en síðustu árin hefur verið miðað við lón í 566 til 567,5 metra hæð. Með síðarnefndu út- færslunni skreppur lónið mjög sam- an og fer vel út fyrir mörk friðlands Þjórsárvera. Þessi virkjanakostur verður hins vegar endanlega settur út af borðinu með stækkun friðlands- ins til suðurs. Þegar Þjórsárver voru friðuð 1981 var kveðið á um heimild til virkjunar Þjórsár með stíflu við Norðlingaöldu. Hæð miðlunarlónsins gat mest farið í 581 metra yfir sjávarmál. Lón sam- kvæmt þessari tilhögun hefði orðið nokkuð umfangsmikið og náð inn í friðland Þjórsárvera. Náttúruvernd- arráð taldi það ekki rýra náttúru- verndargildi Þjórsárvera óhæfilega. Til samanburðar má geta þess að fyrstu áform um Norðlingaölduveitu voru mun umfangsmeiri. 1950 var gert ráð fyrir stíflu og lóni í allt að 608 metra hæð. Málamiðlun í úrskurði Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá 1981 og viðhorf til náttúru- verndar breyst. Norðlingaölduveita fór í umhverf- ismat og lækkaði lónið verulega í því ferli sem þá tók við. Skipulags- stofnun féllst á stíflu í allt að 575 metra hæð en hún lækkaði enn frek- ar þegar Jón Kristjánsson, settur umhverfisráðherra, úrskurðaði í kærumálum vegna matsins í byrjun árs 2003. Niðurstaða hans var að lón- ið færi ekki yfir 566 m yfir sjávarmáli í sumarrekstri virkjunarinnar en 567,5 metra að vetri. Með því átti að tryggja að virkjunin hefði ekki lang- tímaáhrif inn í friðlandið enda er lón- ið orðið að veitulóni og að mestu í far- vegi fljótsins. Fyrirhuguð stífla er sjö kílómetrum sunnan við núgild- andi friðlandsmörk og efsta tota sumarlónsins tveimur kílómetrum frá friðlandinu. Virkjunin fór inn á svæðisskipulag miðhálendisins og forsætis- og iðn- aðarráðherra veittu Landsvirkjun leyfi til að reisa og reka Norðlinga- ölduveitu. Virkjunin fór þó aldrei inn á aðal- skipulag Skeiða- og Gnúpverja- hrepps og Landsvirkjun setti hana í bið, meðal annars vegna andstöðu innan borgarstjórnar Reykjavíkur sem átti 45% Landsvirkjunar. Svo tók við biðtími á meðan unnið var að rammaáætlun. Þar var virkjanakost- inum ýtt til hliðar, hann var settur í verndarflokk í ályktun meirihluta Al- þingis þótt þetta sé talin ein hag- kvæmasta virkjun Landsvirkjunar. Norðlingaölduveita fær þó ekki náðarhöggið fyrr en með stækkun friðlands Þjórsárvera til suðurs, ef hún verður staðfest eins og undir- búið hefur verið. Ekki verður leyfi- legt að virkja í friðlandi. Minni Dynkur Þótt mjög hafi verið dregið úr um- hverfisáhrifum Norðlingaölduveitu með minnkun lónsins standa þó eftir ákveðnir þættir. Nefna má að fram- kvæmdasvæðið er á lítt snortnu víð- erni. Þá mun minna rennsli Þjórsár neðan stíflu breyta Kjálkaversfossi, Dynk og Gljúfurleitafossi. Þetta eru fallegir fossar sem mörgum er annt um. Landsvirkjun vill fá tækifæri til að laga hönnun veitunnar að þeim at- hugasemdum sem gerðar hafa verið. Meðal annars eru til athugunar að- gerðir til að tryggja að vatn berist ekki inn í Eyvafen og að stýra rennsli í Þjórsá þannig að rennsli haldist sem mest í fossunum á daginn yfir hásumarið. Þá kemur til greina að minnka veitulónið enn frekar en þá þarf að dæla því heldur hærra upp í Kvíslaveitur. Lónið fært út fyrir friðlandið  Miklar breytingar hafa orðið á áformum um Norðlingaölduveitu sunnan við Þjórsárver  Lónið hef- ur skroppið saman  Landsvirkjun hugar að frekari aðlögun að umhverfinu ef hugmyndin fær að lifa Morgunblaðið/RAX Þjórsárver Verin taka nafn sitt af Þjórsá sem kemur undan Hofsjökli. Fjöldi virkjana á Þjórsár- og Tungnársvæðinu getur nýtt vatn úr Norðlingaölduveitu. Norðlingaölduveita » Vatninu úr efsta hluta Þjórsár er dælt upp í göng sem leiða það í Kvíslaveitur og Þórisvatn. Vatnið nýtist til að auka orkugetu virkj- ana á Þjórsár-Tungnár- svæðinu um 635 gígavatt- stundir á ári, eftir að Búðarhálsvirkjun hefur bæst við virkjanaröðina. 12 FRÉTTIRinnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2013 Fataskápatilboð 35% afsláttur Þín veröld X E IN N IX 13 06 00 5 Skoðaðu fjölbreytt úrval eldhúsinnréttinga, fataskápa og baðinnréttinga! *ATH! Tilboð um fría uppsetningu gildir eingöngu á höfuðborgarsvæðinu. Eldhúsinnréttingatilboð 18. júní til 18. júlí !! 10% afsláttur af hágæða eldhúsinnréttingum og FRÍ uppsetning á innréttingu fylgir með!!!* ATH! Tilboðið gildir á öllum pöntuðum innréttingum á tímabilinu frá 18. júní til 18. júlí 2013

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.