Morgunblaðið - 25.06.2013, Side 13

Morgunblaðið - 25.06.2013, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2013 Við færum þér nýtt heyrnartæki ALTAerþróaðastaheyrnartækið fráOticonframtil þessa. Öflugörflaga íALTAsérumaðþúheyrir ávallt semskýrast, í hvaðaaðstæðumsemer. ALTAerhannaðtil aðuppfylla þínarþarfir ogeralgjörlegasjálfvirkt. MeðALTAheyrirþúbetur.Alltaf.Alls staðar. Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu og fáðu Alta til prufu í vikutíma Sími 568 6880 Upplifðu það besta - prófaðuALTA Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Þjónusta á landsbyggðinni | Sími 568 6880 | www.heyrnartækni.is | Skúli Hansen skulih@mbl.is „Við erum sátt við okkar hlut,“ seg- ir Friðrik Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Skjásins, en sam- kvæmt nýrri rannsókn sem Pipar Media birtingahús hefur unnið úr neyslu- og lífsstílskönnun Capacent Gallup hefur SkjárEinn styrkt stöðu sína meðal heimila í landinu. Þannig hefur áskrifendum Skjás- Eins fjölgað um 1,8% frá því að sjónvarpsstöðin gerðist áskriftar- stöð árið 2010. Á sama tíma hefur áskrifendum Stöðvar tvö fækkað um 8,2%. Samkvæmt upplýsingum frá Pip- ar Media er neyslu- og lífsstílskönn- un Capacent Gallup gerð einu sinni á ári og send á fjögur þúsund manna úrtak en þar eru netnotend- ur á aldrinum 16-75 ára spurðir um tvö þúsund atriði í tengslum við daglega neyslu, tómstundir, áhuga- mál, viðhorf og eigur. „Við höfum haldið okkar striki og hvort það er vegna þess að okkar undirliggjandi módel hentar eða passar betur fyrir þá sem vilja kaupa áskrift, bæði að efni til og svo náttúrlega erum við talsvert ódýr- ari, hvort það er það sem ræður úr- slitum um þessa þróun, það get ég ekki alveg sagt til um,“ segir Frið- rik og bætir við að fyrirtækið virð- ist vera að gera alla réttu hlutina. Aðspurður hvort þessar tölur hafi komið honum á óvart segir Friðrik svo ekki vera. „Við höfum auðvitað fylgst með þessum tölum þannig að þetta kemur okkur þannig lagað séð ekki á óvart,“ segir Friðrik og bendir á að stóri punkturinn sé sá hvað stutt sé orðið á milli áskrif- endafjölda sjónvarpsstöðvanna tveggja. Mikil hvatning Að sögn Friðriks er niðurstaða könnunarinnar mikil hvatning til starfsmanna fyrirtækisins að halda sínu striki. „Við erum að gera ágæta hluti og reksturinn hefur batnað mjög mikið, þannig að við erum mjög bjartsýn á framhaldið og erum með fullt af áformum,“ segir Friðrik. Fjölgun áskrifenda hjá Skjá- Einum en færri hjá Stöð tvö  Bilið á milli ljósvakamiðlanna minnkar  Framkvæmdastjóri segist bjartsýnn Áskrifendafjöldi sjónvarpsstöðva 50% 45% 40% 35% 30% 25% 20% 15% 10% 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 45,2% 47% 49,9% 47,7% 45,1% 45,2% 42,5% 37,5% 38% 32,3% 29,3% 20,3% 23% 20,2% 22,1% Skjár einn Stöð 2 Heimild: Pipar Media „Við lítum meðal annars til annarra landa og berum saman aðferðir þeirra við íslenskar aðstæður,“ segir Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri hjá Ferðamálastofu, en stofnunin vinnur nú að greinargerð þar sem mótaðar eru til- lögur að aðferð- um við gjaldtöku á ferðamanna- stöðum landsins, en vinnan er skammt á veg komin og mun líklega ljúka um miðjan júlí. Þá verður greinar- gerðinni skilað til Ragnheiðar Elínar Árnadóttur iðn- aðar- og viðskiptaráðherra til nýt- ingar í áframhaldandi vinnu. Gömul umræða Umræðan um gjaldtöku á ferða- mannastöðum er síður en svo ný af nálinni og aðspurð hvers vegna ferl- ið sé fyrst að hefjast núna svarar Ólöf: „Aðgengi og nálægð við nátt- úruna hafa verið einn af styrk- leikum íslenskrar ferðaþjónustu, það hversu auðvelt er fyrir fólk að komast í náin tengsl við náttúrulegt umhverfi. Fyrir okkur Íslendinga er hin mikla nálægð við náttúruna hluti sjálfsmyndar okkar, og þau sam- félagslegu sjónarmið að það sé rétt- ur okkar að fá að umgangast náttúr- una án hafta hafa verið ríkjandi lengi. Með þessari miklu fjölgun ferðamanna undanfarin misseri vex þeim sjónarmiðum ásmegin að bregðast við ágangi með einhverjum hætti. Við gerum okkur grein fyrir að náttúran er auðlind sem ferða- þjónustan nýtir og því þörf á að tryggja sjálfbærni þeirrar nýtingar eins og annarrar.“ Þrjár leiðir tækar Ólöf segir að flokka megi fjár- mögnunarleiðir í þrjá meginflokka: Í fyrsta lagi gjaldtöku á einstökum svæðum þar sem greiddur er að- gangseyrir; í öðru lagi almenna gjaldstofna, t.d. í formi brottfarar- gjalda eða annars sambærilegs og í þriðja lagi fjármögnun í formi að- gangskorta, t.d. svonefnds nátt- úrupassa. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fjör Landmannalaugar eru vinsæll viðkomustaður hjá ferðamönnum. Athuga aðferðir við gjaldtöku  Ferðamálastofa vinnur að tillögum Ólöf Ýrr Atladóttir Ferðamenn hlynntir gjaldtöku » Mikill meirihluti ferðamanna á Íslandi, eða 92%, er tilbúinn að greiða aðgangseyri að nátt- úruperlum landsins að því gefnu að peningarnir renni til viðhalds staðanna. Þetta voru niðurstöður könnunar sem María Reynisdóttir ferðamála- fræðingur lagði fyrir ferða- menn við Gullfoss og Skaftafell árið 2004 í tengslum við mast- ersritgerð sína. Sérsveit ríkislögreglustjóra var sett í viðbragðsstöðu í gærmorgun þegar tilkynnt var um karlmann á hesti við Stjórnarráðshúsið í Lækj- argötu. Grunur lék á að maðurinn væri vopnaður skotvopni en svo reyndist ekki vera. Maðurinn átti erindi við Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráð- herra og hugðist afhenda honum bréf þar sem hann segist hafa verið beittur miklu óréttlæti og hafa séð eignir sínar brenna upp á verð- bólgubáli. „Þið sem kosin voruð til að laga ástandið, ég hvet ykkur eindregið til að standa við gefin loforð og það sem fyrst, þar sem þjóðin stendur ekki lengur undir þessu mikla álagi. Jón og Gunna úti í bæ eru að gefast upp,“ segir þar m.a. Uppákoma Maðurinn á hestinum reyndist aðeins hafa pennann að vopni. Hugðist fá forsætis- ráðherra bréf Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.