Morgunblaðið - 25.06.2013, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2013
Byggingav
örur - byg
gingatækn
i
I I
Gylfaflöt 3 | 112 Reykjavík | Sími 533 1600 | aseta@aseta.is
BAKSVIÐ
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Margir aðilar tjáðu sig um frumvarp Sigurðar
Inga Jóhannssonar sjávarútvegsráðherra um
breytingar til bráðabirgða á lögum um veiði-
gjald en frestur til að senda inn umsagnir rann
út í gær. Ráðherra ber samkvæmt lögum að
birta fjárhæð veiðigjalda fyrir næsta fiskveiðiár
fyrir 15. júlí nk. og því ljóst að tíminn er orðinn
naumur. Samkvæmt tillögum hans munu gjöld-
in lækka um alls 9,6 milljarða króna 2013-2014
og er markmið ráðherra að ýta þannig undir
fjárfestingar í greininni.
Ekki er hægt að segja að frumvarpið fái blíð-
legar móttökur: flestar umsagnir hagsmuna-
aðila eru mjög neikvæðar en af ákaflega ólíkum
ástæðum. Ýmist er ráðherra sakaður um að
ganga of langt eða skammt í að innheimta gjöld-
in.
Samtök atvinnulífsins, Landssamband ís-
lenskra útvegsmanna og Samtök fiskvinnslu-
stöðva sendu frá sér sameiginlega umsögn í
gær. Þar segir m.a. að fyrirhuguð gjöld sam-
kvæmt frumvarpinu séu alltof há og mótmælt
er sérstaklega hækkun sérstaks veiðigjalds á
uppsjávarfisk.
„Samtökin mótmæla því harðlega að útgerðir
sem ekki reka fiskvinnslu séu skattlagðar vegna
metins hagnaðar fiskvinnslu óskyldra aðila.
Samtökin benda á að við ákvörðun sérstaka
veiðigjaldsins samkvæmt frumvarpinu er byggt
á mati Hagstofu Íslands á afkomu sjávarútvegs-
ins árið 2011. Fyrir liggur að Hagstofan hefur
ofmetið afkomuna um allt að 5 milljarða króna
vegna ársins 2011.“
Alþýðusamband Íslands rifjar m.a. upp þá
stefnu sambandsins að stjórnvöld geti veitt
heimild til nýtingar náttúruauðlinda í eigu þjóð-
arinnar gegn gjaldi að því tilskildu að nýting-
arrétturinn sé tímabundinn eða að honum megi
breyta. ASÍ studdi álagningu veiðigjalda í fyrra.
„ASÍ telur að ekki hafi verið færð sannfær-
andi rök fyrir þeirri miklu lækkun veiðigjalds
sem frumvarpið felur í sér,“ segir í umsögninni.
„Ef ekki er hægt að leggja veiðigjöldin á
óbreytt vegna þess að lögfesta þarf afdrátt-
arlausar heimildir til öflunar upplýsinga og
miðlunar þeirra milli embætta ríkisskattstjóra,
Hagstofu Íslands og veiðigjaldanefndar þá þarf
Alþingi að taka á því og lögfesta slíkar heim-
ildir.“
Starfsgreinasamband Íslands, SGS, er öfl-
ugasta félagið í ASÍ, með um 50 þúsund fé-
lagsmenn víða um landið, þar af um 5.500 í fisk-
vinnslu. Sambandið segist í umsögn sinni hafa
stutt ákvörðun fyrri ríkisstjórnar 2012 um
hækkað veiðigjald þótt það hafi lagt til varfærn-
ari skattheimtu í fyrstu „til að gefa greininni
svigrúm til aðlögunar“. Líta megi á gjaldið sem
auknar álögur á sjávarbyggðir. „Í ljósi þess þarf
að tryggja að landsbyggðin fái ráðstafað hluta
af tekjunum til að styrkja byggðirnar og þannig
vinna gegn þeirri byggðaröskun sem frum-
varpið getur haft í för með sér.“
„Gríðarlegir fjármagnsflutningar“
frá Vestmannaeyjum
Útvegsbændafélag Vestmannaeyja, ÚV,
fagnar að vísu lækkun veiðigjalds á bolfisk en
harmar „40% hækkun gjaldsins á uppsjávarteg-
undir“. Frumvarpið sé „afskaplega illa ígrund-
að“, gjaldtakan á greinina sé enn, þrátt fyrir
nokkra heildarlækkun milli ára, langt umfram
þolmörk og stefni samkeppnishæfni íslensks
sjávarútvegs í hættu. Svo virðist sem veiðigjöld-
in muni samkvæmt frumvarpinu leggjast afar
þungt á örfá sveitarfélög.
„ÚV áætlar að sjávarútvegsfyrirtæki í Vest-
mannaeyjum greiði 2,3 milljarða kr. í veiðigjald
á næsta fiskveiðiári verði frumvarpið að lögum,“
segir í umsögn ÚV. „Það er um 25% af
veiðigjaldinu eða rúm hálf milljón á
hvern íbúa. Hér er ágætt fyrir stjórn-
völd að hafa í huga að um 1,4% íbúa
landsins býr í Vestmannaeyjum. Þó
svo að gjaldið sé greitt af fyrir-
tækjum í bænum er ljóst að um
gríðarlega fjármagnsflutninga
er að ræða frá Vestmanna-
eyjum til höfuðborgarsvæð-
isins. Þetta mun draga úr
fjárfestingum og styrk fyr-
irtækjanna og stuðla að enn
frekari samþjöppun afla-
hlutdeilda og draga úr lífs-
gæðum Vestmannaeyinga.“
Hörð gagnrýni á breytt veiðigjald
Ráðherra sjávarútvegsmála ýmist sakaður um að lækka gjöldin of mikið eða of lítið
Útvegsmenn í Vestmannaeyjum segja að þeim sé gert að borga 25% alls veiðigjaldsins
Morgunblaðið/Albert Kemp
Mikilvægur uppsjávarfiskur Loðnuveiðiskip á Fáskrúðsfirði í fyrra, Júpíter leggur frá
bryggju eftir löndun. Finnur fríði leggur að en Hoffellið bíður við bryggju með fullfermi.
Stefán B. Gunnlaugsson, dósent við við-
skiptadeild Háskólans á Akureyri, tók að
beiðni Kristjáns Skarphéðinssonar, ráðu-
neytisstjóra í atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytinu, saman greinargerð um
áhrif frumvarpsins á alls 35 sjávar-
útvegsfyrirtæki af ýmsum stærðum. Nið-
urstaðan var að frumvarpið yrði lítt
íþyngjandi fyrir flest íslensk sjávar-
útvegsfyrirtæki.
Hjá 25 stærstu fyrirtækjunum myndi
hagnaður fyrir skatta, vexti og afskriftir
(EBITDA) minnka að meðaltali um 6,6%
frá 2011. En flest meðalstór fyrirtæki í
veiðum og vinnslu á bolfiski myndu
„greiða lítið eða ekkert sérstakt veiði-
gjald samkvæmt frumvarpinu“ vegna
bráðabirgðaákvæða frá 2012 um afslátt
vegna kvótakaupa. Áhrif á fyrirtæki í
krókaaflamarkskerfinu yrðu einnig mjög
lítil. Áhrifin yrðu hins vegar mun meiri á
þau sem byggja á veiðum og vinnslu á
uppsjávarfiski, þau eru níu af 25 stærstu
fyrirtækjunum.
„Að meðaltali lækkar EBITDA hjá þeim
um 12,7% vegna frumvarpsins frá árinu
2011,“ segir Stefán. „Hjá öðrum fyrir-
tækjum, sem ekki eru í uppsjávarfiski,
lækkar EBITDA hins vegar ekki nema um
3,1% að meðaltali. Áhrif frumvarpsins
eru því í raun nær eingöngu íþyngjandi
fyrir fyrirtæki í veiðum og vinnslu á
uppsjávarfiski. Þau standa þó
nær öll mjög vel fjárhagslega
og efnahagur flestra þeirra
nú orðinn afskaplega traust-
ur. Því þola þau flest vel
þessa hækkun veiðigjalds og
það hefur yfirleitt lítil áhrif á
efnahagslega stöðu þeirra.“
„Lítt íþyngjandi“
fyrir flest sjávar-
útvegsfyrirtæki
NIÐURSTAÐA DÓSENTS VIÐ HA
Golþorski landað í
Reykjavíkurhöfn.
Leikjanámskeiðin í Hafnarfirði
standa í dag fyrir hinni árlegu dorg-
veiðikeppni við Flensborg-
arbryggju. Keppnin er opin öllum
börnum á aldrinum sex til tólf ára.
Keppnin hefst um kl. 13:30 og lýk-
ur um kl. 15. Þeir sem eiga ekki
veiðarfæri geta fengið þau lánuð á
keppnisstað. Einnig verður hægt að
fá beitu og leiðbeiningar frá starfs-
mönnum.
Verðlaun verða veitt fyrir stærsta
fiskinn, þeim sem veiða flestu
fiskana og þeim sem veiðir svokall-
aðan furðufisk. Veiðihornið gefur
verðlaun.
Hafnarfjarðarbær hefur í 20 ár
staðið fyrir þessari dorgveiðikeppni
og í fyrra tóku rúmlega 300 börn
þátt í henni. Sigurvegarinn veiddi
rúmlega tíu fiska og vó þyngsti fisk-
ur keppninnar um 500 grömm.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Veiði Börn dorga við Flensborgarbryggju.
Dorgveiðikeppni í
Hafnarfirði í dag
Íslenski fjalla-
hjólaklúbburinn
fer í árlega
hjólaferð til
Viðeyjar í dag.
Fram kemur í
tilkynningu, að
hjólað verði um
eyjuna og sagan
skoðuð, hús og
minjar. Hjólaleiðin sé hvorki löng
né strembin og því geti allir notið
ferðarinnar. Þátttakendur þurfa
að koma með eigin reiðhjól.
Miðað er við að þátttakendur
safnist saman klukkan 19 við Við-
eyjarferjuna á Skarfagörðum og
hjólaferðin hefjist þegar komið
verður til Viðeyjar klukkan
19:15.
Árleg fjallahjólaferð
til Viðeyjar
Gunnar Bragi Sveinsson utanrík-
isráðherra skrifaði í gær fyrir hönd
Íslands undir fríverslunarsamninga
EFTA við Kostaríka, Panama og
Bosníu-Hersegóvínu.
Að sögn utanríkisráðuneytisins
hafa EFTA-ríkin nú undirritað 26
fríverslunarsamninga við 36 ríki.
Gunnar Bragi tók í gær þátt í
ráðherrafundi EFTA-ríkjanna í
Þrándheimi í Noregi. Á fundinum
ítrekaði Gunnar mikilvægi EES-
samningsins fyrir Ísland.
Þrír nýir fríverslun-
arsamningar
STUTT