Morgunblaðið - 28.08.2013, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013
Reykjavíkurborg greinir nú
skýrslu sem Bandalag háskóla-
manna (BHM) kynnti í fyrradag
sem sýnir að mesti kynbundni
launamunurinn hjá félögum í aðild-
arfélögum þess er hjá borginni.
„Auðvitað eru það vonbrigði að
sjá þessar tölur og við ætlum að
skoða þetta mál ítarlega á næstu
dögum og bregðast við í samræmi
við það. Við tökum þetta mjög al-
varlega og viljum fara vel yfir mál-
ið,“ segir Helga Björg Ragnars-
dóttir, skrifstofustjóri skrifstofu
borgarstjóra og borgarritara.
Kjarakönnun BHM leiddi í ljós að
þegar búið er að leiðrétta fyrir
áhrifum starfshlutfalls og vinnu-
stunda, aldurs og menntunar og
mannaforráða og fjárhagslegrar
ábyrgðar félagsmanna sem starfa
hjá borginni þurfi konur að hækka
um 8,5% í launum til að hafa sömu
laun og karlar. Munurinn var 8,3%
hjá ríkinu, 8% hjá einkafyrir-
tækjum og 6,4% hjá öðrum sveitar-
félögum en Reykjavíkurborg.
kjartan@mbl.is
Launamunur kynja
hjá borginni í skoðun
Ráðhúsið Skv. könnun BHM er 8,5% mun-
ur á launum karla og kvenna hjá borginni.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Guðmundur Ósvaldsson, fram-
kvæmdastjóri arkitektastofunnar
Batterísins, segir það hafa styrkt
samkeppnisstöðu stofunnar á er-
lendum mörkuðum að verðlaun ESB
fyrir nútímabyggingarlist, kennd við
Mies van der Rohe, skuli í ár hafa
fallið í skaut Hörpu, tónlistar- og
ráðstefnuhúss í Reykjavík. En
Harpa er verk Batterísins og arki-
tektastofu Henning Larsen í Dan-
mörku, í samvinnu við stúdíó Ólafs
Elíassonar í Berlín. „Því er ekki að
neita að þetta hefur hjálpað. Verð-
launin gefa okkur aukið aðgengi að
alþjóðlegum samkeppnum.“
Spurður hvað sé í farvatninu er-
lendis segir Guðmundur ný verkefni
hafa bæst við og að önnur séu að
klárast. „Þetta er heldur meira en í
fyrra. Flest eru í Noregi. Við erum
til dæmis að hanna tæplega 400 her-
bergja ráðstefnuhótel í Stafangri. Þá
vorum við að gera samning um
hönnun 5.000 fermetra hjúkrunar-
heimilis í Ósló. Það er stórt verkefni.
Annað verkefni er hönnun 50 íbúða
fyrir Óslóarborg og hönnun skóla og
íþróttahúss í Stafangri. Verkefni á
okkar vegum í Kanada er að ljúka og
hafa ekki fleiri bæst við þar í landi í
ár. Staðan er svipuð í Svíþjóð. Ýmis
verkefni á okkar vegum eru á frum-
stigi í Suður-Svíþjóð og Hels-
ingjaborg.“
Rólegt hér heima
Spurður hvernig gangurinn hér
heima hafi verið í ár segir Guð-
mundur að lifnað hafi yfir mark-
aðnum á fyrri hluta ársins en að síð-
an hafi ró færst yfir. Hann áætlar að
um 80% veltunnar komi af verk-
efnum að utan, borið saman við 93%
í fyrra. Starfsmenn Batterísins eru
svipað margir og í fyrra eða um 30.
Hann áætlar að ný verkefni í vinnslu
skili Batteríinu um 300 milljónum í
tekjur. Hann segir aðspurður að
sem svarar tugum milljarða króna
kosti að reisa mannvirkin sem arki-
tektastofan er að hanna í Noregi.
Verkefnum í Bergen að ljúka
Ivon Stefán Cilia, framkvæmda-
stjóri arkitektastofunnar T.Ark,
segir aðkomu stofunnar að hönnun
hótels fyrir norðan Bergen lokið. Þá
sé hönnun um 200 íbúða í tveimur
hverfum í Bergen í bið en samið var
um verkið í fyrrasumar. Að öðru
leyti segir Ivon að stofan sé ekki að
sinna erlendum verkefnum.
Hann segir verkefnastöðuna hér
heima hafa batnað en stofan kemur
meðal annars að hönnun gufuafls-
virkjana við Þeistareyki og Bjarnar-
flag. „Það hefur verið meira um
smærri verkefni hér heima en
undanfarin ár. Í ársbyrjun var útlit
fyrir að það versta væri afstaðið eft-
ir hrunið og að bjartari tíð væri í
vændum. Það hefur hins vegar verið
ósköp rólegt frá kosningum.“
Batteríið hannar stórt
ráðstefnuhótel í Stafangri
Stofan hefur notið góðs af alþjóðlegri viðurkenningu vegna Hörpunnar í sumar
Á teikniborðinu Hótelkeðjan Scandic mun reka hótelið og ráðstefnuhúsið í Stafangri. Húsið er klætt með einingum
úr gleri og áli. Húsið er hannað af fjölda arkitekta, arkitektum hjá Batteríinu og norsku stofunni Link arkitektur.
Tölvumynd/Batteríið
„Ég er með rekstrarleyfi fyrir
ákveðinn fjölda af börnum og það er
búið að fylla öll laus pláss langt fram
í tímann,“ segir Valgerður.
Vilja opna aftur leikskólann
Vilji er af hálfu leikskólastjórans
Huldu Lindu Stefánsdóttur að opna
leikskólann að nýju en samkvæmt
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Fá úrræði virðast vera í stöðunni
fyrir foreldra þeirra barna sem pláss
eiga á Leikskólanum 101 en hann er
nú lokaður á meðan rannsókn fer
fram. Á fundi sem Reykjavíkurborg
hélt með foreldrum í fyrradag kom
fram að börn af leikskólanum nytu
ekki forgangs umfram önnur börn
inn á leikskóla borgarinnar og að það
væri á ábyrgð foreldra að finna þeim
pláss á leikskóla eða hjá dagforeldri.
Sigrún Edda Lövdal, formaður fé-
lags dagforeldra í Reykjavík, segir
að lítið sé um laus pláss. „Staðan er
ekki góð fyrir þá sem eru að leita að
plássi nálægt miðbænum og allir
dagforeldrar á svæðinu búnir að
fylla sín pláss fyrir haustið. Það er
helst í úthverfunum sem er að finna
pláss til dæmis í póstnúmerunum
109 til 113 og þá er um að ræða eitt
og eitt pláss hér og þar og það er
óljóst hvort að þau pláss anni þess-
um börnum auk þess sem það er
langt fyrir foreldrana að fara,“ segir
Sigrún. Valgerður H. Valgeirsdóttir,
leikskólastjóri ungbarnaleikskólans
Lundar, segir biðlistana vera langa.
óformlegri könnun á áðurnefndum
fundi virtist lítill áhugi vera meðal
foreldra á slíku úrræði. Þyrí Stein-
grímsdóttir, lögmaður Huldu, gagn-
rýnir Reykjavíkurborg fyrir úrræða-
leysi gagnvart foreldrunum.
„Starfsmennirnir sem rannsóknin
beinist að eru í leyfi frá störfum og
það er ekkert því til fyrirstöðu að
opna aftur leikskólann t.d. með
stuðningi frá Reykjavíkurborg og
Barnavernd Reykjavíkur.“
Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir hjá
Barnaverndar Reykjavíkur segir
það ekki vera skyldu barnaverndar-
yfirvalda að ganga inn í einkafyrir-
tæki eða skóla. „Við könnum mál og
komum með tillögur en getum ekki
lagt til starfsfólk til þess að tryggja
að starfsemi haldist gangandi á leik-
skóla,“ segir Halldóra.
Skýrslutökur eru hafnar
Halldóra segir að lögmaður Huldu
hafi haft rangt eftir sér varðandi það
hvort glæpur hafi verið framinn.
„Við óskum ekki eftir lögreglurann-
sókn nema að við teljum að eitthvað
saknæmt hafi átt sér stað. Þetta er
viðamikið mál og lagðar voru fram
athugasemdir um mjög marga þætti
í starfsemi leikskólans. Margt var
ekki saknæmt en annað var það,“
segir Halldóra.
Friðrik Björgvinsson, yfirmaður
rannsóknardeildar lögreglunnar,
segir rannsókn málsins á frumstigi.
„Skýrslutökur eru hafnar en stefnt
er að því að ljúka rannsókn sem
fyrst,“ segir Friðrik.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Fundur Á fundinum kom meðal annars fram að það væri á ábyrgð foreldra
að finna út úr því hvað hentaði börnum þeirra og þeim sjálfum best.
Börn leikskólans 101 njóta ekki
forgangs inn á aðra leikskóla
Fá pláss hjá dagforeldrum Langir biðlistar eru hjá ungbarnaleikskólum
Hvalfjarðargöng voru lokuð í um
klukkustund í gær eftir að dráttar-
vél með aftanívagn og jepplingur
rákust þar saman. Farið var með
báða ökumennina á sjúkrahúsið á
Akranesi til skoðunar en að sögn
lögreglu slasaðist enginn alvarlega.
Lögreglan segir að dráttarvélin
hafi farið yfir á öfugan vegarhelm-
ing með þeim afleiðingum að hún
rakst utan í jepplinginn sem kom úr
gagnstæðri átt. Tilkynning um slys-
ið barst kl. 15.53. Ökumaður drátt-
arbifreiðarinnar sagði við lögreglu
að annað afturhjólið hefði læst sig
með fyrrgreindum afleiðingum.
Göngum lokað
vegna árekstrar
Þorvarður L. Björgvinsson, fram-
kvæmdastjóri Arkís, reiknar með
að um 40-45% veltunnar í ár
komi frá erlendum verkefnum,
eða svipað eða meira en í fyrra.
Stærstur hlutinn komi frá Noregi.
„Við erum nýbúnir að ganga
frá samningum um hönnun 4.000
fermetra hjúkrunarheimilis og
leikskóla í Noregi. Þá er hönnun
2.500 fermetra sundlaugar á
Óslóarsvæðinu að koma í hús en
kærufrestur vegna þess verkefnis
rennur út á fimmtudaginn kemur.
Þetta eru verkefni sem við
vinnum í samstarfi við Verkís,“
segir Þorvarður og bætir því við
að Arkís sé einnig að teikna tvö
einbýlishús í Stafangri. Hann seg-
ir stórt verkefni um hönnun skrif-
stofuhúsnæðis í Litháen á
byrjunarstigi. „Við höfum nýlokið
stóru verkefni við hönnun 25.000
fermetra IKEA-verslunar sem var
opnuð í Vilnius fyrr í þessum
mánuði,“ segir hann.
Hönnuðu nýja IKEA-verslun
STÓRVERSLUN OPNUÐ Í VILNIUS
Í Vilnius IKEA-verslunin nýja.
Fjöldi undirskrifta á síðunni lend-
ing.is var kominn hátt í 56 þúsund í
gærkvöldi, þar sem lýst er yfir
stuðningi við Reykjavíkurflugvöll í
Vatnsmýrinni. Þar með fór fjöldi
undirskrifta yfir það sem safnaðist
árið 1974 undir yfirskriftinni Varið
land. Sú söfnun stóð yfir frá 15. jan-
úar til 20. febrúar 1974. Markmiðið
þá var að sýna stuðning lands-
manna við veru varnarliðsins á Ís-
landi í kjölfar umræðu um endur-
skoðun varnarsamnings við
Atlantshafsbandalagið. 55.522 und-
irskriftum var safnað og þær af-
hentar Alþingi 21. mars sama ár.
Þessi áskorun Varins lands til al-
þingismanna olli miklum úlfaþyt og
deilum í þjóðfélaginu. Miðað við að
landsmenn eru mun fleiri í dag en
fyrir tæpum 40 árum, þá er söfnun
Varins lands mun stærri en t.d.
fyrri undirskriftasöfnun vegna Ice-
save, sem fór yfir 56 þúsund.
Undirskriftir Fjöldi fór yfir 55.522 í
gærkvöldi á vefsíðunni lending.is.
Meira en
Varið land