Morgunblaðið - 28.08.2013, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.08.2013, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013 Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þér • Mylur alla ávexti, grænmeti klaka og nánast hvað sem er • Hnoðar deig • Býr til heita súpu og ís • Uppskriftarbók og DVD diskur fylgja með Lífstíðareign! Tilboðsverð kr. 106.900 Með fylgir Vitamix sleif drykkjarmál og svunta Fullt verð kr. 125.765 Meira en bara blandari! Nýr fjórhjóladrifinn Mitsubishi Outlander er ríkulega búinn staðal- og þægindabúnaði sem ásamt nýrri tækni eykur öryggi og veitir þér nýja aksturs- upplifun. Má þar nefna hraðastilli með fjarlægðarskynjara, akreinavara og árekstrarvörn sem allt er staðalbúnaður í grunngerðinni Intense. Outlander kostar frá 5.590.000 kr. Intense 4x4, bensín, sjálfskiptur HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði mitsubishi.is Eyðsla aðeins frá 5,5 l/100 km. MITSUBISHI OUTLANDER Rúmbetri, sparneytnari og betur búinn Nú á enn betra verðifrá 5.590.000kr.Fjórhjóladrifinn og sjálfskiptur Nærri 25 þúsund nemar féllu á inn- tökuprófum í Háskóla Líberíu, ann- an af tveimur ríkisreknum háskól- um landsins. Ekki einn einasti umsækjandi stóðst prófin en að sögn starfsmanns háskólans skorti þá bæði eldmóð og grunnþekkingu á enskri tungu. Forseti landsins, Ellen Johnson Sirleaf, handhafi friðarverðlauna Nóbels, viðurkenndi fyrir skömmu að menntakerfi landsins væri í óreiðu og að mikið þyrfti til að bæta það. Marga skóla skortir kennslu- efni og kennarar eru lítt hæfir en þetta mun vera í fyrsta sinn sem enginn námsmaður nær inntöku- prófunum. Menntamálaráðherrann Etmonia David-Tarpeh sagðist í samtali við BBC vantrúuð á niðurstöðurnar en talsmaður skólans sagði stjórnvöld verða að grípa til aðgerða. LÍBERÍA Ekki einn stóðst inntökuprófin Nám Það verða engir nýnemar í ríkisháskólanum næsta árið. Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Viðbrögð sýrlenskra stjórnvalda og bandamanna þeirra við afmörkuðum loftárásum Vesturlanda yrðu líklega takmörkuð en grípi erlend ríki til víðtækra aðgerða til að koma Bashar al-Assad frá völdum eru líkur á að allt fari í bál og brand á svæðinu. Þetta hefur AFP eftir sérfræðingum í málefnum Sýrlands en líkur á al- þjóðlegri íhlutun í átökin í Sýrlandi aukast nú dag frá degi. Sérfræðingarnir segja umfang og afl viðbragða bandamanna Assads munu velta á hvers konar aðgerðir Vesturveldin ráðast í. „Allt veltur á eðli, umfangi og markmiðum vest- rænnar árásar og enn sem komið er á ég ekki von á meiru en viðvörun- arárás,“ segir Joseph Bahout, pró- fessor við Sciences Po í París og sér- fræðingur í málefnum Sýrlands. „Í þeim aðstæðum munu hvorki Hezbollah né Íran ganga of langt. Við getum gert ráð fyrir hliðar- og óbeinum aðgerðum, á borð við ófrið gagnvart UNIFIL [friðargæslu Sameinuðu þjóðanna í Líbanon] eða nafnlausar eldflaugar gegn Ísrael, en þegar allt kemur til alls verður það ekkert nýtt.“ „Óvæntar“ varnir Íranar og Rússar eru helstu al- þjóðlegu bandamenn sýrlenskra stjórnvalda en liðsmenn Hezbollah í Líbanon hafa barist með hersveitum stjórnarhersins gegn uppreisnar- mönnum. Bahout segir að geri Vest- urveldin tilraun til að koma Assad frá völdum gætu viðbrögð banda- manna forsetans hins vegar orðið allt önnur og meiri. „Í því tilfelli get- um við ekki útilokað róttæk við- brögð, sérstaklega af hálfu Írans. Og það er að minnsta kosti ein óþekkt breyta – viðbrögð Rússa,“ segir hann. Stjórnvöld í Mosvku vöruðu í gær við því að hernaðaríhlutun í Sýrlandi gæti haft hörmulegar afleiðingar fyrir svæðið en Sergei Lavrov, utan- ríkisráðherra Rússa, sagði að Rúss- land myndi ekki blanda sér í hern- aðarátök. Utanríkisráðherra Sýr- lands, Walid Moallem, sagði landið búa yfir vörnum sem myndu koma alþjóðasamfélaginu á óvart. „Sýr- land er ekki auðvelt tilfelli. Við búum yfir vörnum sem munu koma öðrum á óvart,“ sagði hann við blaðamenn í Damaskus. Bandaríski herinn viðbúinn Háttsettur íranskur herforingi varaði við því á sunnudag að það hefði alvarlegar afleiðingar í för með sér ef Bandaríkjamenn hefðu af- skipti af málefnum Sýrlands vegna ásakana um notkun efnavopna. Fátt bendir þó til annars en að ein- hvers konar inngrip sé yfirvofandi en Chuck Hagel, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði í gær að herafli landsins væri í viðbragðs- stöðu og háttsettur embættismaður innan varnarmálaráðuneytisins sagði að hvers kyns árás væri mögu- leg innan nokkurra daga. Samkvæmt heimildamönnum CNN innan Hvíta hússins hefur for- setinn enn ekki tekið ákvörðun um til hvers konar aðgerða verður gripið en talsmaður forsetans, Jay Carney, sagði á mánudag að fyrsta skrefið í átt að hernaðaraðgerðum væri opin- ber birting leyniskýrslu um árásina 21. ágúst síðastliðinn. Hart verður látið mæta hörðu  Viðbrögð bandamanna Assads ráðast af umfangi íhlutunar AFP Eftirlit Rannsóknarleiðangri vopnaeftirlitssveitar Sameinuðu þjóðanna var frestað í gær þar sem öryggi eftirlitsmanna þótti ekki tryggt. Átök og árásir » Hugsanlegt er að jafnvel hófsöm viðbrögð af hálfu Vesturveldanna gætu haft víð- tæk áhrif á svæðinu. » Ítalir munu ekki taka þátt í hernaðaraðgerðum án sam- þykkis öryggisráðs SÞ. » Stjórnvöld í Jórdaníu segja landið ekki munu verða „skot- pall“ í hernaðaraðgerðum gegn Sýrlandsstjórn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.