Morgunblaðið - 28.08.2013, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013
Kristín Alda Jónsdóttir laganemi er 25 ára í dag. „Þetta verð-ur reyndar örugglega mjög sérstakur afmælisdagur, ég erbara ólétt heima hjá mér að skrifa ritgerð,“ sagði Kristín
Alda sem þessa stundina er að skrifa meistararitgerð við lagadeild
Háskóla Íslands. „Ég er eins og tifandi tímasprengja í kappi við tím-
ann. Settur dagur er 6. nóvember og ég ætla að vera búin að skrifa
ritgerðina þá.“ Kristín Alda og unnusti hennar, Jóhannes Eiríksson,
fluttu nýlega heim til Íslands frá Englandi, en Jóhannes lauk nýver-
ið MCL-gráðu frá Cambridge-háskóla þar í landi.
Kristín Alda sagði eina afmælishefð hafa haldist lengi á afmælinu
hennar. „Það er alltaf grillað lambalæri í matinn á afmælinu mínu.
Pabbi hefur grillað það fyrir mig en Jóhannes ætlar „í læri“ hjá
pabba í ár,“ sagði Kristín Alda. „Þannig að það er alltaf fjöl-
skyldumatur. Í ár verður hann heima hjá okkur í Álftamýrinni.“
Kristín Alda sagðist ekki vera mikið afmælisbarn, „en Jóhannes
gerir alltaf svo mikið fyrir mig á afmælinu að ég fæ alltaf rosa góða
daga“. Kristín Alda er fæddur og uppalinn Vestmannaeyingur, en
hún segir Vestmannaeyjar frábæran stað til að ala upp börn, þó svo
hún segist kannski ekki alveg vilja búa þar akkúrat núna. „Ég kann
afskaplega vel við mig þar sem ég er núna,“ sagði Kristín Alda.
gunnardofri@mbl.is
Kristín Alda Jónsdóttir er 25 ára í dag
Á góðri stundu Kristín Alda Jónsdóttir og unnusti hennar, Jóhannes
Eiríksson, í sparifötunum. Jóhannes mun grilla læri fyrir hana í kvöld.
Í læri í læri hjá
pabba Kristínar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Grundarfjörður Ísey fæddist 1. des-
ember kl. 13.50. Hún vó 3.695 g og var
54 cm löng. Foreldrar hennar eru
Berghildur Pálmadóttir og Kári Gunn-
arsson.
Nýir borgarar
Hafnarfjörður Antonina Anna fædd-
ist 7. desember kl. 7.28. Hún vó
2.220 g og var 44 cm löng. Foreldrar
hennar eru Edyta og Tómas Sig-
mundsson.
R
agnhildur fæddist í
Reykjavík og ólst þar
upp við Bergstaða-
strætið. Hún var í Mið-
bæjarskólanum, lauk
landsprófi frá Kvennaskólanum í
Reykjavík, stúdentsprófi frá MR
1973, embættisprófi í lögfræði frá
HÍ 1979, stundaði framhaldsnám í
alþjóðarétti við Institut Universi-
taire de Hautes Études Int-
ernationales í Genf 1979-81 og öðl-
aðist hdl.-réttindi 1985.
Ragnhildur starfaði á sumrin með
laganámi við dóms- og kirkju-
málaráðuneytið, og hjá sýslumönn-
unum á Húsavík og á Ísafirði.
Að loknu embættisprófi starfaði
hún á lögmannsstofu Svölu og Gylfa
Thorlacius. Hún var fulltrúi í dóms-
og kirkjumálaráðuneytinu 1982,
fulltrúi í samgönguráðuneytinu
1982, deildarstjóri þar frá 1984,
Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstj. innanríkisr.n. – 60 ára
Stórfjölskyldan Frá vinstri: Kristján, Erlendur, Sigríður, Hjalti Geir, Ragnhildur og Jóhanna Vigdís.
Glæsilegur fulltrúi
íslenskrar stjórnsýslu
Dæturnar Sigríður Theódóra, í framhaldsnámi, og Jóhanna Vigdís í MR.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Dalvegi 4 - 201 Kópavogur
Hamraborg 14 - 200 Kópavogur
Sími: 564 4700
Opnunartími Dalvegi:
Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00
laugardaga frá 6:00 til 17:00
sunnudaga frá 7:00 til 17:00
VINSÆLASTA RJÓMATERTAN Í 45 ÁR
fæst hjá Reyni bakara