Morgunblaðið - 28.08.2013, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 28.08.2013, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013 ✝ Dagbjört Guð-ríður Þórðar- dóttir fæddist á Granda í Ketil- dalahreppi í Arnarfirði 10. október 1921. Hún lést á Hrafnistu í Boðaþingi í Kópa- vogi 17. ágúst 2013. Foreldrar henn- ar voru hjónin Þorbjörg Sigurðardóttir, f. á Brjánslæk í V-Barðastrand- arsýslu 26. október 1899, d. 27. mars 1987, og Þórður Valgeir Benjamínsson, f. í Flatey á Breiðafirði 2. ágúst 1896, d. 10. nóvember 1985. Þau bjuggu lengst af í Hergilsey, Flatey og Stykkishólmi. Dagbjört var þriðja elst af sextán systkinum, en hin voru: Valborg Elísabet, f. 1918, d. 2008, Sigurður, f. 1920, d. 1975, Björg Jóhanna, f. Dagbjört útskrifaðist frá Hjúkrunarkvennaskóla Íslands í maí 1951. Hún starfaði sem hjúkrunarkona á handlækn- ingadeild Landspítalans 1951- 1953; Sentralsykehuset Akers- hus í Osló 1953-1954; Barna- deild á Rikshospitalet Osló 1954. Hún fór í náms- og kynn- isferð til Johannesberg, Marie- stad í Svíþjóð, janúar til apríl 1955. Þá starfaði hún við Cent- ralsygehuset í Hilleröd í Dan- mörku 1955; Kleppsspítala 1955-1956; Heilsuvernd Vest- mannaeyja 1956-1959; St. Jós- epsspítala í Reykjavík 1959- 1960. Dagbjört hóf störf á Reykjalundi í janúar 1960 og var þar yfirhjúkrunarkona/ forstöðukona/hjúkrunarfor- stjóri frá ágúst 1961 til október 1982. Síðustu starfsárin, frá 1983 vann hún á Hrafnistu í Reykjavík. Dagbjört var for- maður Hlífar, deildar ellilífeyr- isþega Hjúkrunarfélags Íslands 1984-1986. Dagbjört var sæmd gullmerki SÍBS 1982. Útför Dagbjartar verður gerð frá Digraneskirkju í Kópavogi í dag, 28. ágúst 2013, og hefst athöfnin kl. 13. 1923, Auður, f. 1925, Benjamín, f. 1927, d. 2013, Guð- mundur Sigurður, f. 1928, d. 2004, Ari Guðmundur, f. 1929, Sigríður Hrefna, f. 1931, d. 1945, Jóhannes, f. 1932, d. 2010, Guð- brandur, f. 1933, Ásta Sigrún, f. 1937, Ingunn, f. 1939, Gunnar, f. 1940, d. 1940, Gunnar Þórbergur, f. 1942, d. 1969, og Sigurbjörg, f. 1945. Fjölskyldan flutti úr Arnarfirði til Hergilseyjar 1924 og ólst Dagbjört þar upp. Sambýlismaður hennar var Vigfús Egilson, f. 13. febrúar 1917, d. 19. mars 1986, skrif- stofumaður hjá Eimskipafélagi Íslands. Foreldrar hans voru Sveinbjörn Ásgeir Egilson rit- stjóri og Elín Svanhvít Egilson. Elsku Dæja frænka mín. Mig langar að kveðja þig með þessum fallega kveðnu orðum: Fagna þú, sál mín. Allt er eitt í Drottni, eilíft og fagurt – dauðinn sætur blundur. Þótt jarðnesk dýrð og vegsemd visni og þrotni, veit ég, að geymast handar stærri undur, þótt stórtré vor í byljum jarðar brotni, bíður vor allra um síðir Edenslundur. Fagna þú, sál mín. Lít þú víðlend veldi vona og drauma, er þrýtur rökkurstíginn. Sjá hina helgu glóð af arineldi eilífa kærleikans á bak við skýin. Fagna þú, sál mín, dauðans kyrra kveldi, kemur upp fegri sól, er þessi er hnígin. (Jakob Jóhannesson Smári) Ég man eftir þér heima hjá okkur þegar systkini mín Hildur, Bjarni og Guðjón voru lítil börn. Þú komst reglulega í heimsókn, færandi hendi, með vínber og fleira gotterí handa okkur krökk- unum. Ég man að þú hjálpaðir mömmu að passa upp á englana þína eins og þú kallaðir þau. Mér hefur alltaf fundist þú mögnuð kona, sterk og góð og afburðafal- leg. Sagan þín ber þér þess vitni. Ég er þakklát fyrir mín kynni af þér elsku Dæja en nú færðu að hvílast í friði. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Vigdís Lúðvíksdóttir. Við kveðjum með söknuði ást- kæra frænku okkar. Elsku Dæja. Nú þegar þú ert fallin frá eru okk- ur afar minnisstæðar þær stundir sem við áttum saman og einkum þegar við fengum að heimsækja þig. Því getum við svo sannarlega trúað að þú hafir létt henni mömmu mikið lífið þegar þú pass- aðir okkur eða þegar við fengum að fara í heimsókn til þín en mamma hafði í nógu að snúast með fimm börn. Þær voru ófáar heimsóknirnar okkar til þín og átt- um við okkar náttföt og tann- bursta heima hjá þér og fengum alfarið að stjórna búðarferðunum sem farnar voru til að kaupa í mat- inn. Okkur fannst alltaf svo gaman að koma til þín. Á kvöldin fórum við ávallt með faðirvorið saman og fleiri góðar bænir sem þú kenndir okkur. Árbæjarsafnsferðirnar eru okkur einnig ofarlega í huga en í þeim ferðum keyptirðu gjarnan kandís eða brjóstsykur fyrir okk- ur og sagðir svo skemmtilega frá lífinu í gamla daga. Þú kenndir okkur svo margt gott. Okkur eru einkanlega minnisstæð orð þín um börnin á rólónum sem höfðu verið vond við okkur en þú útskýrðir fyrir okkur að það væri vegna þess að þeim væri illt í hjartanu. Þau orð fá vel lýst hjartahlýju þinni og samkennd með öðrum. Mikið sem þú varst alltaf góð við allt og alla. Þú tókst okkur algjör- lega að þér og við vorum ávallt vel- komin í heimsókn til þín. Alveg fram á síðustu stund í seinustu heimókn okkar til þín léstu okkur alltaf vita hvað þér þótti vænt um okkur og kallaðir okkur alltaf englana þína. Við kveðjum þig með miklum söknuði og þakklæti fyrir þann tíma sem við áttum saman og það góða sem þú gafst okkur. Guð blessi þig. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Hildur og Bjarni. Trú von og kærleikur kemur upp í hugann þegar ég hugsa til hennar Dæju, móðursystur minn- ar. Hún framkvæmdi það sem hún ætlaði sér, var allt tíð sjálfstæð, ákveðin, glöð, gefandi og jákvæð. Hún bar virðingu fyrir öllum og tókst ávallt að draga fram það já- kvæða í fari hvers og eins. Það var í þá tíð er sunnudagsbíltúrinn var aðalsam- verustund fjölskyldunnar, þeim var ósjaldan varið í akstur upp að Reykjalundi til Dæju frænku og Vigfúsar. Pabbi sat og spjallaði við Vigfús, mamma við Dæju og ég skottaðist um. Þegar ég fékk stundum að gista hjá frænku sá ég hvernig hún var alltaf til taks. Þó að hún væri í fríi var hringt og hún stokkin að sinna því sem óskað var eftir hverju sinni. Ef hún þurfti næði fór hún að Lágafelli á staðinn sinn, þar fékk hún næði. Hún bar svo mikla umhyggju fyrir allri sinni fjölskyldu, hún lét sig varða og veitti aðstoð þar sem þurfti. Hún var svo stolt af frænd- systkinum sínum ef þau stóðu sig vel. Ekki nema von ég hafi ung hænst að henni. Hún þurfti oft að skeppa til Reykjavíkur þegar hún vann á Reykjalundi og kom þá oft við í kaffi hjá mömmu. Full til- hlökkunar gat ég setið í vagninum á svölunum á Otrateignum og beð- ið þess að Dæja kæmi akandi á græna Saabnum. Hún gaf sig á tal við litla fólkið og gaf því uppbyggilegar staðhæf- ingar, ást og hlýju. Það er ekki að undra að börnin mín hafi alla tíð elskað og virt Dæju frænku. Gam- an hafði hún af því að segja frá því hvað nafna hennar var ákveðin og skelegg þó ekki væri nema fimm ára. Hún fékk stöku sinnum að gista hjá frænku og fór sú stutta með frænku í búðina til að kaupa í matinn, sú stutta vissi alveg hvað átti að kaupa og svo eldaði sú stutta, litlar kjötbollur, spaghettí og sósu. Hún passaði oft drenginn minn hann Sverri Hákon þegar hann var lítill. Eitt sinn þegar hún gætti hans og hann var lasinn sat hún við vögguna allt kvöldið. Þetta finnst mér lýsandi fyrir hennar vinnubrögð í svo mörgu; hún ætl- aði að standa sig og það skyldi ekki þurfa að vera neitt upp á hana að klaga. Hennar vakt skyldi vera flekklaus. Þú hefur gefið mér svo margt og lagt inn gott til eftirbreytni. Marta og María koma upp í hug- ann þegar ég hugsa um þær sam- an mömmu og Dæju. Mamma með stórt heimili og sinnti frábærlega sínu starfi að fæða og klæða ung- ana og svo kom Dæja og var svona andlega gefandi. Eftir að mamma fór á dvalarheimili fór Dæja að sýna því áhuga að fara í þess kon- ar skjól. Það gekk eftir að hún fékk nýtt aðsetur á sama dvalar- heimili. Það fór vel á því að þær fengju að vera samferða þau ár eins og öll þau fyrri. Það var svo ríkt í henni úr uppeldinu þetta að hjálpast að, þannig hafði það verið í Hergilsey og þannig var það áfram hjá henni að hugsa vel um sitt fólk, hjálpa til og gera það vel. Frágangurinn á útsaumnum hjá mér átti að vera það snyrtilegur að útsaumurinn liti eins út beggja vegna, þetta hafði henni verið kennt. Ég kveð þig elsku frænka með sömu orðum og þú kvaddir mig er við hittumst síðast nú fyrr í mán- uðinum. „Þú hefur alltaf verið perlan mín.“ Björk Svanfríður. Hjartkæra móðursystir mín er horfin úr þessu lífi. Skírð eftir báð- um ömmum sínum og fékk sem barn að vera hjá og kynnast þeim báðum. Fjölskyldan kallaði Dag- björtu varla annað en Dæju. Fyrstu minningar um Dæju eru þegar foreldrar mínir fóru að heimsækja þau Vigfús á Reykja- lund og ég 5-6 ára. Við flutning okkar til Reykjavíkur 1966 varð samgangur milli systra, Auðar og Dæju, reglulegur. Dæja kom við í ferðum þegar hún erindaðist inn í Reykjavík fyrir Reykjalund, eða þau Vigfús voru á ferð, kíkti að- eins til að heilsa upp á Auði og fjöl- skylduna. Þó að Dæja sinnti kröfuhörðu starfi sem tók oftast töluvert meira en dagvinnu þá kvartaði hún aldrei yfir öllu sem lagðist á hana að sinna þess utan. Alltaf var hún glaðleg og hressileg í viðmóti og bar með sér aðdáunarverðan myndugleika og ákveðna rögg- semi. Við Dæja kynntumst betur er ég fór að vinna á Reykjalundi á sumrin og einhverjar helgar yfir vetur. Hún fylgdist vel með starfs- fólkinu sem hún hafði með að gera þó að sumt sæi hana ekki oft. Dæja naut virðingar í starfinu á Reykjalundi eins og ég er viss um að hún hafi líka gert í fyrri og síð- ari störfum. Hún gerði hlutina á þann hátt og vandaði til allra verka. Ég veit að hún var oft þreytt eftir langan vinnudag en það breytti ekki því að hún fór út aftur á kvöldin til að sinna sjúk- lingum sem tóku ekki í mál annað en að fá að tala við Dagbjörtu. Ef Dæja átti frídag á góðviðrisdegi en pappírsvinnan beið, þá tók hún stundum góðan göngutúr frá hús- inu sínu og upp í fjallshlíð eða alla leið upp í Helgafellsland þar sem hún fann sér litla laut. Þá naut hún kyrrðarinnar og vann um leið það sem þurfti að gera. Það náðist ekki í hana og enginn vissi ná- kvæmlega hvar hún væri. Nokkru áður en Dæja hætti á Reykjalundi keypti hún íbúð syðst á Spáni með samstarfskonu, hún sjálf dvaldi einn vetur þar í góðu samneyti við nokkra Dani. Þá seldi hún sinn hlut og fór í vel skipulagðar menningarferðir þangað sem hana langaði að fara. Dæja bað fólk ekki um neitt fyrir sig sjálfa en var alltaf boðin og búin að aðstoða aðra. Sem ung- lingur og ung kona naut ég þess að finna traust sem Dæja bar til mín og hún kunni að hrósa og tala fal- lega til fólks. Eftir að ég flutti heim í seinna skiptið bjuggum við í nágrenni, Dæja, mamma og við Kristín. Þá efldust tengslin enn á ný og ég gerði það sem ég gat til að aðstoða og létta undir en einnig nutum við reglulega saman góðra matarboða og samræðna. Þær systur, Dæja og Auður, voru nánar og ólíkar. Síðustu árin þeirra saman höfðu þær samliggj- andi aðstöðu. Sjónin var ekki til lestrar og þá voru gjarnan lesnar fyrir þær sögur úr eyjunum, þá rifjuðust upp sögur frá æskuárun- um í Hergilsey. Dæja sagði þá frá liðinni tíð úr eyjunum, komu stundum skemmtilegar athuga- semdir frá Auði og greinilegt að þær upplifðu hlutina oft með ólík- um hætti. Þá var hlegið dátt og samveran skemmtileg. Yndislega hjartkæra frænka, hlý og þakklát fyrir allt. Geymdar eru frásagnir úr æsku, árum á Norðurlöndum og allar hinar. Minning þín er mér ljós um ókomna tíð. Valgerður Þorbjörg Elín. Í tæpa tvo áratugi varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að þekkja hana Dagbjörtu, eða Dæju eins og hún var oftast kölluð. Hún var hætt að vinna þegar ég og syst- urdóttir hennar, hún Björk Svan- fríður, fórum að draga okkur sam- an en var þó ávallt á þönum. Hún lifði fyrir það að hjálpa öðrum og vissulega fengum við Björk að njóta þeirrar góðmennsku henn- ar. Sérstaklega var það í tengslum við börnin okkar en Dæja hafði mikið dálæti á börnum og hafði lag á að láta þeim líða vel í návist við sig. Hún hafði gaman af að segja þeim sögur frá uppvaxtarárum sínum og ferðalögum sem hún hafði farið þegar hún varð eldri. Hún átti ótal smáhluti sem hún hafði eignast á þessum ferðalög- um og gat með frásögnum sínum gefið þessum hlutum líf. Ósjaldan kom það fyrir að börnunum var gefið einhver smáhlutur, eitthvað af þessum minjagripum þegar þau kvöddu Dæju frænku og fengu þeir munir góðan stað í herbergj- um barnanna og munu um ókomna tíð hjálpa til við að varð- veita minningar hennar. Síðustu árin dvaldi Dæja á Hrafnistu í Kópavogi, í herbergi við hlið Auðar systur sinnar (tengdamóður minnar). Þegar við komum í heimsókn á Hrafnistu settist ég oftast hjá Dæju og spjallaði. Hún sagði frá árunum í Hergilsey og frá viðburðaríku lífi sínu við hjúkrunarstörf o.fl. Frá- sagnirnar öðluðust líf í flutningi hennar með innlifun og leikræn- um tilburðum. Þá var oft hlegið. Síðustu árin var oft þungt yfir Dæju. Það átti illa við hana að vera upp á aðra komin. Henni var miklu eðlilegra að hjálpa öðrum en þiggja aðstoð sjálf. Ég reyndi oft að slá á létta strengi og minna hana á að þeir á Hrafnistu skuld- uðu henni nú eiginlega að hugsa vel um hana því hún hefði nú oft hlaupið undir bagga með þeim á árum áður. Þá var oftast stutt í brosið. Síðan spurði ég Dæju út í einhverja viðburði úr lífshlaupi hennar og þá gleymdi hún bæði stað og stund og fór að segja sög- ur. Það var alveg sama hversu veik Dæja varð, ávallt skyldi hún gæta þess að segja eitthvað upp- örvandi við þá sem hún umgekkst. Hún varð aldrei uppiskroppa með hrós og falleg orð. Ég kveð Dæju með söknuði en fullur þakklætis fyrir þær stundir sem ég fékk að eiga með henni. Takk fyrir samveruna, elsku Dæja. Marteinn Sverrisson. Elskuleg vinkona mín, Dag- björt Þórðardóttir, er látin. Það var árið 1977 sem við Dagbjört, eða Dæja eins og hún var alltaf kölluð í fjölskyldunni, hittumst fyrst. Ég var þá stödd á heimili tengdamóður minnar. Þar var hún mætt, þessi glæsilega kona, fær- andi hendi eins og ávallt. Lúlli, maðurinn minn, kynnti okkur og sagði: Þetta er Dæja frænka, syst- ir hennar mömmu. Ég vissi þá ekki hversu stóran sess hún átti eftir að skipa í lífi mínu og minnar fjölskyldu. Minningarnar eru margar frá þeim 36 árum sem lið- in eru frá því við Dæja hittumst fyrst, en allar eru þær góðar, enda um einstaka manneskju að ræða. Hún var mér og börnum mínum einstaklega góð, sérstaklega tví- burunum Hildi og Bjarna sem hún kallaði oft englana sína. Alveg frá því við Lúlli fórum að búa var Dæja tíður gestur á heimili okkar. Hún fylgdist með okkur öll árin, var viðstödd skírnir, afmæli og fermingar allra okkar barna og hlúði að okkur eins og henni einni var lagið. Ég tel mig einstaklega heppna að hafa kynnst svo já- kvæðri, góðri og gefandi mann- eskju. Hennar fas og framkoma einkenndist af fágun, velvilja og rausnarskap. Þegar tvíburarnir fæddust kom Dæja næstum daglega til að að- stoða mig. Hún tengdist börnun- um sterkum böndum og voru þau í miklu uppáhaldi hjá henni. Þetta voru skemmtilegir tímar og Dæja sagði mér frá mörgu sem hún hafði upplifað á sinni ævi, t.d. frá lífinu í Hergilsey og Flatey. Í einni af mörgum ferðum fjölskyldunnar út í Flatey var Dæja þar stödd, og við ákváðum að fara með henni út í Hergilsey. Sú ferð er mér mjög minnisstæð þar sem Dæja gekk með okkur um eyjuna og lýsti staðháttum og fólkinu sem þar bjó þegar hún var að alast upp. Seinna meir bauð ég henni að koma með í heimsókn til mömmu vestur á Bíldudal. Í þeirri ferð fórum við út í Ketildali og heim að bænum Granda þar sem Dæja fæddist og síðan lá leiðin út í Selárdal. Á sumrin fórum við oft í styttri ferð- ir eins og í Hveragerði eða til Þingvalla. Í einni ferðinni stopp- uðum við á Reykjalundi og hún sýndi mér staðinn þar sem hún hafði verið forstöðukona í mörg ár. Það var gaman að ferðast með Dæju, hún var bæði fróð og skemmtileg. Eftir að heilsu Dæju tók að hraka og hún hætti að keyra kom hún sjaldnar til okkar. Við fórum oft til hennar í Boða- þing þar sem hún dvaldi síðustu árin. Hún kom síðast til okkur núna um páskana með Auði systur sinni. Mér datt þá ekki í hug að það yrði síðasta heimsókn hennar til okkar, þar sem hún var það hress. Við hittum hana fyrir hálf- um mánuði, þá var hún orðin mik- ið veik en við náðum samt aðeins að tala saman. Ég og fjölskylda mín vottum systkinum og ættingj- um Dæju innilega samúð. Minningin um frábæra vinkonu og góða frænku lifir með okkur. Með þökk fyrir allt. Jóhanna Bjarnadóttir. Mig langar með nokkrum orð- um að kveðja vinkonu mína, Dag- björtu Þórðardóttur, sem nú hefur sofnað svefninum langa. Þegar ég kynntist Dæju, eins og hún var kölluð, var hún hætt að vinna en hugurinn var vakandi og ör og ávallt tilbúinn að takast á við ný verkefni. Hún vildi læra á tölvu og bað okkur Valgerði um aðstoð. Við áttum saman góðar stundir í Ljósheimunum þar sem hún reyndi sig við hina nýju tækni og þá sá ég hvað hún var opin fyrir nýjungum og fordómalaus gagn- vart tækjum og tólum nýrrar ald- ar. Dæja var frændrækin mjög og var einkar annt um velferð systk- inabarna sinna og þeirra fólks. Alltaf boðin og búin að aðstoða og væntumþykjan var mikil. Sérstak- lega áttu börnin hug hennar og al- úð. Undanfarin ár leitaði hugur hennar æ meir til fortíðar og hún sagði á ljósan og lifandi hátt frá fyrri tíð í Breiðafirðinum. Hún ljómaði þegar talið barst að æsku- slóðunum og ljóst var að hún var mjög þakklát fyrir að hafa alist upp í Hergilsey hjá ástríkum og góðum foreldrum. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast Dæju og eiga með henni samleið um sinn. Minningin lifir. Kristín Sævarsdóttir. Í mars árið 1948, eða fyrir 65 árum, hittust 12 ungar stúlkur í hinni einu þáverandi kennslustofu Landspítalans. Engar okkar þekktust enda vorum við víða að af landinu. Markmið okkar allra var þó eitt og hið sama; að hefja nám við Hjúkrunarkvennaskóla Íslands. Námstíminn var við- burðaríkur og dagarnir fljótir að líða við nám og störf. Við bjuggum á heimavist skólans, ýmist tvær eða þrjár saman í herbergi. Okkur leið vel, komnar á þá braut sem hugur okkar stóð til. Þetta var yndislegur tími í okkar lífi. Við brautskráðumst sem hjúkrunar- konur í maí 1951. Við bundumst snemma sterkum vináttuböndum og höfum hist reglulega í öll þessi ár. Eftir lát okkar kæru Dagbjart- ar eru þær af skólasystrunum sem hafa kvatt þennan heim orðnar sex. Okkur langar til að minnast vinkonu okkar Dagbjartar Þórð- ardóttur með þakklæti og virð- ingu. Oft er gildi hins lifaða lífs hug- leitt, þegar aflvakinn sem knúði huga og hönd er hættur að starfa. Því vekja hugleiðingar okkar nú við lát hennar margar minningar enda spannar vinátta okkar yfir sex áratugi. Dagbjört var ein af þessum tryggu, dagfarsprúðu, greindu og hugljúfu manneskjum sem vildu öllum vel og gott að vera í návist við. Hún vann öll sín starfsár við hjúkrun. Fyrstu árin vann hún á Landspítalanum, síðan á Sentral- sykehuset Akershus í Osló og Centralsygehuset í Hilleröd í Danmörku. Einnig vann hún á Kleppsspítalanum og við heilsu- vernd í Vestmannaeyjum. Í jan- úar 1960 réði Dagbört sig að Reykjalundi og frá 10. ágúst 1961 var hún ráðin þar sem yfirhjúkr- unarkona eða hjúkrunarforstjóri eins og staðan heitir í dag. Hún gegndi þeirri stöðu af alúð um 30 ára skeið. Hún vakti yfir staðnum og bað Guð að blessa hann í bráð og lengd. Slíkur starfsmaður var Dagbjört, traust í orði og verki. Dagbjört var uppalin í Hergil- sey á Breiðafirði en var á ung- lingsárunum mikið í Flatey. Hún var ein af 14 systkinum. Foreldrar hennar voru Þórður Benjamíns- son, bóndi í Hergilsey, og Þor- björg Sigurðardóttir. Systkinin ól- ust öll upp við kærleika, heiðarleika og vinnusemi. Þau voru og eru öll miklum kostum búin og mikil samheldni þeirra á milli. Öll leggja þau og fjölskyldur þeirra sitt fram við að viðhalda þeirra einstöku ættarein- kennum. Kæra Dagbjört. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt. Fyrir hönd skólasystra, Sigurlín Gunnarsdóttir. Dagbjört G. Þórðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.