Morgunblaðið - 28.08.2013, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 28.08.2013, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ef einhver hefur hæfileika til að heilla aðra upp úr skónum ert það þú. Breyttu út af daglegum venjum, ekki hanga heima í dag. 20. apríl - 20. maí  Naut Vertu bjartsýnn því takmark þitt er ekki eins fjarlægt og þú heldur. Láttu hjartað ráða för og reyndu eitthvað nýtt. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Reyndu að halda aftur af þér í inn- kaupum í dag, þótt ómótstæðilegur mun- aðarvarningur verði á vegi þínum. Haltu þínu striki og láttu neikvæðar raddir ekki hafa áhrif á þig. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Efnisleg gæði skipta krabbann máli. Hugsaðu um einn eða tvo hluti sem þú getur gert til þess að bæta heilsu þína. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú hefur það á tilfinningunni að sam- starfsmenn þínir efist um hæfileika þína. Enginn er fullkominn og það á líka við um þig. Láttu neikvæðnina ekki ná tökum á þér. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Besta leiðin til þess að lækna hjarta sitt er að eyða deginum í félagsskap ein- hvers sem þú elskar, þó að um sé að ræða vin eða gæludýr. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú hefur raunhæfar hugmyndir um það hvernig þú getur gert umhverfi þitt meira að- laðandi. Vanagangur lífsins, sem hentaði þér svo vel, passar ekki eins vel núna. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það getur verið erfitt að útskýra málin fyrir öðrum þegar þeir eru ekki inni í fræðunum. Maki þinn gæti jafnvel fengið launahækkun eða annan bónus. Vertu raun- sær í peningamálunum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú hefur haldið spennunni inni og verður að hleypa henni út með ein- hverjum hætti. Gættu þess að vera raunsær í peningamálunum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Nú væri kjörið að gera framtíð- aráætlun. Ekkert er dýrmætara en heilsan og það hefnir sín grimmilega ef gengið er á hana í lengri tíma. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þar sem þú ert alltaf svo nær- gætinn gæti það valdið vissum aðilum sárs- auka ef þú ætlar að vera hispurslaus. Slak- aðu á. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ættir að setjast niður með fjöl- skyldunni og fara í gegnum málin. Leggðu áherslu á að fara í stutt ferðalag til að dreifa huganum. Einhvern tíma var sagt um Guð-mund skólaskáld að hann væri skáld „lognsins“. Grétar Fells tók með sínum hætti undir þetta, – hann væri ekki „skáld stormsins“ eins og Hannes Hafstein, heldur hinna kyrrlátu afla í tilverunni, hins djúpa og hins dulda, – „skáld friðarins“. Stutt er æfin, stundar bið stendur oss til boða, því skal syngja um sumar frið, sól og morgunroða Guðmundur fæddist í Hrólfs- staðahelli á Landi í Rangár- vallasýslu. Hér verður honum hugs- að til æskustöðvanna: Þegar aftanskinið skín á Skarðsfjalls hlíðar, endurminning sálu svalar, sem er þó um leið til kvalar. Man ég rétt hjá Hellum háa hvamminn græna; áður þar hjá ungum svanna undi ég milli blómknappanna. Víða er hlíðin brotin, breytt af bröttum skriðum, einnig lífs míns ljúfu stundir liggja þungum skriðum undir! Og hann sækir líkingar í um- hverfi sitt: Loksins þig ég þekki, fljóð! þvílíkt hjarta ég aldrei sá: það er heitt sem Heklu-glóð, heljarkalt sem Jökulsá. Dóttir hans, Steingerður skáld- kona, orti: Fjúka orð af málsins myndum meitla ljóð í skáldsins dul. Fjúka lauf í léttum vindum lifrauð græn og brún og gul. Hannes Hafstein orti: „Þótt hann rigni, þótt ég digni, þótt hann lygni aldrei meir,“ fram skal stauta blautar brautir buga þraut, uns fjörið deyr. Varhug gjalda, horfi halda, hitta valda braut um leir! Þótt hann rigni, þótt ég digni, þá mun lygna síðar meir. Og um „ónotaðan foss“ orti Hannes: Alla daga Dynjandi drynur ramma slaginn. Gull í hrönnum hrynjandi hverfur, allt í sæinn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af skáldi friðarins og skáldi stormsins Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG ÞARF EKKI AÐ KEYRA … ÉG VIL BARA GAGNRÝNA MANNINN MINN BETUR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að búa til kjúklinga- súpu fyrir hann þegar hann er veikur. HVERNIG SVARAR ÞÚ ÞEIM ÁSÖKUNUM AÐ FYLGJA EKKI „EKKI HRINGJA“ STEFNUNNI? MEÐ SÍMA. LEIFUR ÓHEPPNI, ÞÚ HEFUR ELDAÐ GOTT SULL OG ÞÚ HEFUR ELDAÐ VONT SULL … … EN ÞETTA ER BESTA SULL SEM ÞÚ HEFUR NOKKURNTÍMAN ELDAÐ! VÁ, TAKK HRÓLFUR! ÞETTA SANNAR BARA … … AÐ VINNA OG ÞRAUTSEIGJA SKILAR SÉR! TAKIÐ ÞIÐ DÝRALÆKN- AR EKKI EINHVERS- KONAR EIÐ?!! ÖKU- KENNSLA Víkverji upplifði ekki sömu örtröð-ina í bænum á menningarnótt og endranær og kenndi þar rigningunni um. Hann lét votviðrið þó ekki aftra sér frá rápi. Hann hóf daginn á Bakkastígshátíð þar sem íbúar héldu uppi fjöri fyrir gesti og gang- andi og hélt þaðan út á Granda, sem hefur gengið í endurnýjun lífdaga. Í gömlu verbúðunum er nú marg- vísleg starfsemi. Eins og endranær var biðröð við nýja ísbúð, sem nefn- ist Valdís, en einnig var hægt að líta inn hjá fatahönnuðinum Steinunni Sigurðardóttur, hönnuðinum Sigríði Heimisdóttur og Gallerí Granda svo eitthvað sé talið. x x x Hinum megin götunnar máttiheyra barsmíðar. Þar voru að verki ungir smiðir fyrir utan Sjó- minjasafnið þar sem opið var fyrir gesti og gangandi. Safnið er skemmtilega uppsett. Við haganlega smíðuð skipslíkön á annarri hæðinni hafði maður einn fundið líkan af skipinu, sem hann reri á eitt sinn. Við fiskverkunarborð þar sem gína sat við störf stóð kona og rifjaði upp að þegar hún hefði verið í fiski hefðu ekki verið nein sæti, þá hefðu menn mátt gjöra svo vel og standa. x x x Víkverji fór einnig í miðbæinn þarsem honum líður alltaf eins og hann sé í stórborg á menningarnótt, slíkur er erillinn. Þar fylgdist hann meðal annars með hinni bráð- efnilegu og hæfileikaríku hljómsveit Macaya, sem spilaði grípandi og seiðandi frumsamið fönk í súldinni á mótum Bankastrætis, Laugavegar og Skólavörðustígs. Að vanda hafði Víkverji séð ýmislegt forvitnilegt í dagskrá menningarnætur, en komst yfir færra en hann hefði viljað. Loks fylgdist hann með flugeldasýning- unni, sem naut sín mun betur en hann hafði átt von á undir lágskýj- uðum himni. x x x Reykjavíkurmaraþonið og menn-ingarnótt eru orðnir fastir punktar í sumrinu. Bærinn er fullur af fólki frá morgni til kvölds og allir í ljómandi skapi, jafnvel þótt rigni. víkverji@mbl.is Víkverji Lofa þú Drottin, sála mín, og allt sem í mér er, hans heilaga nafn; lofa þú Drottin, sála mín, og gleym eigi nein- um velgjörðum hans. (Sálmarnir 103:1-2) www.nortek.is Sími 455 2000 ÖRYGGISLAUSNIR FYRIR ÖLL HEIMILI Nortek er með mikið af einföldum notenda- vænum lausnum fyrir heimili og sumarbústaði. Nortek ehf | Eirhöfði 13 og 18 | 110 Reykjavík Hjalteyrargötu 6 | 600 Akureyri | nortek@nortek.is HEIMILISÖRYGGI • Innbrotakerfi • Myndavélakerfi • Brunakerfi • Slökkvikerfi • Slökkvitæki • Reykskynjarar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.