Morgunblaðið - 28.08.2013, Page 11

Morgunblaðið - 28.08.2013, Page 11
Þó að við séum orðin mjög tækni- vædd miðar allt umhverfið okkar við að við getum lesið og skil- ið texta. og lestrarörðugleika og því sé mikil- vægt að byrja snemma að vinna með börnin og gera það á réttan hátt. „Barn missir svo mikið ef það er langt á eftir jafnöldrunum í lestr- inum. Vel læst barn les sér til skiln- ings og orðaforðinn verður miklu ríkulegri. Þó að við séum orðin mjög tæknivædd miðar allt umhverfið okkar við að við getum lesið og skilið texta.“ Útrás á íslensku hugverki Bryndís er enginn nýgræð- ingur í greininni en hún hefur unnið sem talmeinafræðingur um áratuga skeið. Efnið hennar er bæði lifandi og skemmtilegt og hefur hún fengið mikið af fagfólki með sér í verkið. Enska útgáfan byggist á íslenskri aðferðarfræði en hana vann Bryn- dís í samstarfi við gamla prófess- orinn sinn úr háskóla í Bandaríkj- unum, Bernie Silverstein heitinn. Ráðgjafar varðandi enska forritið eru leiðandi á heimsvísu á sviði hljóðkerfisþátta og raddarinnar, dr. Barbara Hodson og Katherine Verdoline sem mun kenna tal- meinafræði við Háskóla Íslands nú í vetur. „Ég fékk mikla hvatningu bæði hér heima og erlendis að gefa þetta út á ensku líka. Það er hæg- ara sagt en gert þar sem það eru önnur hljóð í öðrum tungumálum og annað ferli. Í enskunni hugsa ég þetta sem útrás á íslensku hugverki og er farin að undirbúa að setja þetta yfir á fleiri tungumál. Í ís- lenska smáforritinu er líka verk- færabox þar sem hægt er að setja leiðbeiningarnar yfir á ensku þann- ig að það forrit getur líka nýst er- lendum aðilum sem vilja læra ís- lensku.“ Einfalt og í erfiðleikaröð Einfaldleiki, litir, gleði og gam- an eru orð sem lýsa Lærum og leik- um með hljóðin vel. Foreldrar og kennarar geta tekið upp hljóð- myndun barnanna og haldið utan um árangur nemenda, jafnvel sent á aðstandendur sem fylgjast spenntir með framvindu mála og einnig er umbunarkerfi í stjörnuformi fyrir krakkana. „Þetta er mjög einfalt í notkun. Það er hægt að byrja á byrjun og taka erfiðleikaröð hljóð- anna eða velja það hljóð sem barnið vill eða þarf að æfa betur.“ Bryndís blæs á það að efnið geri störf talmeinafræðinga óþörf. „Ég hef nefnilega sérstaklega tekið eftir að tilvísanir til tal- meinafræðinga eru ekki færri í þeim skólum sem efnið mitt er not- að. Ég held einmitt að foreldrar og kennarar sem nota efnið geri sér kannski oft betur grein fyrir vand- anum. Efnið er miðað við börn á aldrinum 2-8 ára og eldri eftir atvik- um og nýtist vel í öllu skólastarfi, ekki síst í stafainnlögn, sérkennslu og í nýbúakennslu. Mín reynsla er sú að þetta er mjög gott á meðan beðið er eftir talkennslu og þegar kemur að barninu er það búið að ná ákveðnum hlutum og svo tekur tal- meinafræðingurinn við verkefninu og stýrir barninu áfram.“ Nýtist vel í íslensku- og enskukennslu Að sögn Bryndísar hefur tæknin breytt miklu í störfum tal- meinafræðinga og þá nýtist iPad- inn mjög vel og þá kannski sér- staklega í tilfellum einstaklinga með skerta hreyfigetu og barna. „Möguleikarnir með börnin eru mjög miklir. Krakkar hafa svo mik- inn áhuga á þessum tækjum. Varð- andi enska smáforritið þá hef ég verið að sýna nokkrum enskukenn- urum það og þeir geta ekki beðið eftir að það komi út. Það eru ákveð- in hljóð í enskunni sem við höfum ekki í íslenskunni og þarna fá nem- endurnir það beint í æð. Efnið hef- ur líka reynst vel í stafainnlögn í nýbúakennslu.“ Í Þjóðmenningarhúsinu klukk- an 15 í dag verða smáforritin form- lega opnuð. Frú Vigdís Finnboga- dóttir opnar íslenska forritið og Illugi Gunnarsson menntamála- ráðherra það enska. Bryndís mun kynna verkefnið og verður tákn- málstúlkur á staðnum. Boðið verður upp á kaffi, meðlæti og lifandi tón- list. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013 Leiðsögn talmeinafræðings liggur að baki smáforritanna og í þeim má meðal annars finna: ◆ 20 samhljóð í íslenska forritinu kynnt með táknmynd fyrir hljóðið. ◆ 24 samhljóð í enska forritinu kynnt með táknmynd fyrir hljóðið. ◆ Sérhljóð kynnt sérstaklega. ◆ Röð samhljóða sem fylgir sömu röð og börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni. ◆ Lýsingu á talfærastöðu fyrir hvert hljóð. ◆ Æfingu með hljóðaleik. ◆ Tvenns konar gagnvirka leiki í framhaldi af orðaæfingum. ◆ Möguleika á að taka upp og hlusta á hljóðmyndun og orð hverju sinni. ◆ Möguleika á að senda upplýsingar um stöðu barna í netpósti og prenta út gögn. ◆ Reglubundið hrós. ◆ Lifandi tónlist og þemalagið Lærum og leikum með hljóðin. Að efninu standa: ◆ Höfundur og útgefandi: Bryn- dís Guðmundsdóttir, Raddlist ehf. ◆ Forritun: 27 ehf. ◆ Teiknarar: Halla Sólveig Þor- geirsdóttir og Búi Kristjánsson. ◆ Leikur og söngur: Felix Bergs- son, Védís Hervör Árnadóttir, Darren Foreman og Tina Lou- renco Lang. ◆ Að auki koma allt að 30 manns, listamenn og hugmyndasmiðir, að verkefninu. Hjálpartæki í hljóðaleik og lestri LÆRUM OG LEIKUM MEÐ HLJÓÐIN OG KIDS SOUND LAB Morgunblaðið/Styrmir Kári Höfundurinn Bryndís Guðmundsdóttir hannaði smáforrit sem veitir börnum forskot á hljóðmyndun. Ú r ljó ði nu Fj al lg an ga eft ir Tó m as G uð m un ds so n ÞARNA FÓR ÉG SJÁIÐ TINDINN!       

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.