Morgunblaðið - 28.08.2013, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013
Þriggja ára börn og 12 til 14 ára börn munu
fá rétt á gjaldfrjálsum tannlækningum frá
og með 1. september næstkomandi. Þá tekur
gildi næsti áfangi samningsins sem Sjúkra-
tryggingar Íslands (SÍ) og Tannlæknafélags
Íslands gerðu um tannlækningar barna en
hann tók gildi 15. maí sl.
Samkvæmt upplýsingum Sjúkratrygginga
er skráning barna hjá heimilistannlækni for-
senda fyrir greiðsluþátttöku SÍ. Nú þegar
hafa um 12.500 börn verið skráð. Samning-
urinn tekur til allra barna í bráðavanda óháð
áfangaskiptingu samningsins.
Tannlækningarnar eru greiddar að fullu af SÍ utan 2.500 kr. árlegs
komugjalds, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá SÍ.
Í byrjun tók samningurinn til 15, 16 og 17 ára barna. Samningurinn, sem
gildir til 30. apríl 2019, er áfangaskiptur og munu að lokum öll börn falla
undir samninginn.
Samkvæmt upplýsingum SÍ fer skráning fram í Réttindagátt – mínar síð-
ur á www.sjukra.is en einnig geta tannlæknar séð um skráninguna.
Gjaldfrjálsar tannlækningar fyrir þriggja
ára og 12-14 ára börn frá 1. september
Fulltrúar Orkuveitu Reykja-
víkur og Neyðarlínunnar 1-
1-2 skrifuðu í gær undir
samning um að
1-1-2 sendi íbúum SMS-
skilaboð verði bilanir í veitu-
kerfum Orkuveitunnar. Skv.
upplýsingum OR hyggst fyr-
irtækið tryggja með þessari
auknu þjónustu sem kostur
er að íbúar fái sem fyrst
glöggar upplýsingarnar þeg-
ar lokað er fyrir vatn eða
rafmagn.
Í fréttatilkynningu frá OR
er á það bent að til að
neyðarþjónusta á borð við
þessa virki sé mikilvægt að viðskiptavinir veitnanna hafi númer sín skráð á
viðskiptamannavef fyrirtækisins orkanmin.is.
SMS-skilaboð þegar bilanir eiga sér stað
Morgunblaðið/Kristinn
Bilun Fari kalda vatnið af kemur sjóðheitt vatn úr
krönum með tilheyrandi hættu.
STUTT
Jarðvegsþjöppur - Vatnsdælur - Malbikunarvélar
Vinnustaðamerkingar - Vélsópar - Hellulagningatæki
A. Wendel ehf - Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - Sími 551 5464 - wendel.is
Tæki til verklegra
framkvæmda
Stofnað 1957