Morgunblaðið - 28.08.2013, Page 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum
(Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum.
Er á Facebook
Þurrar hendur? Handáburðurinn frá Önnu Rósu grasalækni er mjög mjúkur og góður. Égþarf mikið að nota handáburð því hendur mínar verða oft þurrar og hrjúfarvið mikla vatnsnotkun. Áhrif af handáburði endast því miður oft stutt, enþað á ekki við um handáburðinn frá Önnu Rósu, hann er miklu betri. Hann
smitar ekki, er sérlega endingargóður, gefur mjúka áferð, smýgur hratt inn
í húðina og er líka svo einstaklega heilnæmur! – Margrét Ólöf Ívarsdóttir
www.annarosa.is
Handáburðurinn er mýkjandi og græðandi og sérstaklega góður fyrir þurrar og sprungnar
hendur. Inniheldur lífrænar lækningajurtir og sótthreinsandi ilmkjarnaolíur. Inniheldur
ekki paraben-rotvarnarefni, lanólín, kemísk ilmefni eða litarefni.
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Strigar, ótal stærðir
frá kr.295 Olíu/Acrýl/
Vatnslitasett
12/18/24x12 ml
frá kr.570
Acryllitir 75 ml
555
Vatnslitasett
695
Skissubækur
kr.790
Þekjulitir/
Föndurlitir
frá kr.845
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
kr.
Myndlistavörurí miklu úrvali
kr.
Nýjar sendingar!
Gólf- og borðtrönur
frá kr.2.100
Nú standa yfir
hvalveiðar við strend-
ur landsins. Það er
ljóst að Hvalur hf.
hefur undanfarin ár
haft umtalsverðan
kostnað af viðhaldi,
bæði hvalbátanna og
verkunarstöðvar-
innar. Eins og Krist-
ján segir sjálfur þá
hefur tapið numið
nokkrum hundruðum
milljóna á næstliðnum árum.
Kostnaður ríkisins vegna hvala-
rannsókna nema nokkrum tugum
milljóna. Kostnaður hins opinbera
vegna þátttöku í rástefnum í
tengslum við villt spendýr sjávar-
ins og styrkir til samtaka sem
styðja „hvalveiðistefnu“ Íslendinga
hefur samtals numið á árunum
2007 til 2010 nokkrum tugum
milljóna króna. Af þessum tölum
má vera nokkuð ljóst að hvalveiðar
eru ekki þjóðhagslega hagkvæmar.
Hvalur hf. á hins vega nokkra
hvalbáta og verkunarstöð. Hvala-
skoðunarfyrirtæki eru rekin í
landinu. Tekjur þeirra koma frá
hvalaskoðunarferðum. Talvert á
annað hundrað þúsund ferða-
manna koma til landsins árlega til
að fara í hvalaskoðunarferðir.
Hvalaskoðunarferðir eru því vænt-
anlega þjóðhagslega hagkvæmar.
Það liggur því við að ætla að skyn-
samlegt væri að ríkið hlutaðist til
um að hætta alfarið hvalveiðum.
Gera 200 mílna efnahagslögsögu
Íslands að friðuðu svæði villtra
spendýra sjávarins. Slík ákvörðun
myndi auka ferðalög útlendinga til
landsins og þar með auka tekjur af
ferðamönnum sem kæmu til þessa
fyrirheitna lands þar sem öll spen-
dýr væru friðuð á umtalsvert stóru
hafsvæði á jörðinni. Innan fimm
ára frá yfirlýsingu um friðun
svæðisins væri fjöldi ferðamanna
sem kæmi í hvalaskoðunarferðir
mögulega orðinn meiri en 500 þús-
und. Aukin atvinna og umtals-
verður hagvöxtur.
Sanngjarnt væri því að ríkið
keypti eignir Hvals hf.
og gæfi skipin til
sveitarfélaga á landinu
sem hefðu áhuga á að
hafa þau til sýnis á
landi, í höfnum eða úti
á legum, þar sem ætla
mætti að áhugi væri á
að kynnast aflögðum
atvinnuháttum Íslend-
inga. Veiðiskipin þarf
að varðveita í góðu
ásigkomulagi. Um
borð væri hægt að
hafa kvikmyndasýningar á skjá
sem sýndu veiðiaðferðir við hval-
veiðar, skutla og sprengiskutla,
skutla frá gamalli tíð og sprengi-
skutla nútímans. Þá væri hægt að
hafa veitingar um borð. Einnig
mætti nota skipin til rannsókna á
lífríki sjávarins. Verkunarstöðinni
í Hvalfirði mætti breyta í safn.
Bæði langreyður og hrefna eru
gullfalleg sjávarspendýr. Kýrnar
eignast kálfa sem eiga þá ekki von
á því að mæður þeirra séu aflíf-
aðar á meðan þeir eru á unga aldri
og þær ennþá mjólkandi. Það væri
eftirsóknarvert að Íslendingar
kæmu sér saman um að vernda
þessi villtu spendýr sjávarins. Þá
færi saman ábyrg fiskveiðistefna
og dýravernd sem mundi vekja at-
hygli á heimsmælikvarða. Spurn-
ingin er hvort okkur muni auðnast
að gefa út slíka yfirlýsingu við sól-
arupprás á þessu ári eða því
næsta. Friðun villtra spendýra
sjávarins innan 200 mílna efna-
hagslögsögunnar. Við þurfum þá
ekki í framtíðinni að horfa upp á
unga kálfa synda í blóði mæðra
sinna og feðra sem heyja sitt
hinsta helstríð í hafinu við strend-
ur landsins.
Við sólarupprás
Eftir Ólaf Jónsson
Ólafur Jónsson
» Sanngjarnt væri því
að ríkið keypti eign-
ir Hvals hf. og gæfi
skipin til sveitarfélaga á
landinu.
Höfundur er uppfinningamaður.
Bænin er hluti af
frumþörf mannsins.
Dýrmætur menningar-
arfur, boð um að lifa í
tengingu við höfund og
fullkomnara lífsins.
Bænin er æfing í trú
og trausti, von og kær-
leika. Við nemum stað-
ar, kyrrð kemst áhug-
ann, hjartað opnast,
við gerumst einlæg og
heiðarleg um stund.
Bænin eykur orku og léttir lund.
Hún veldur vellíðan og unaði svo
maður fyllist öryggistilfinningu,
þakklæti og gleði, jafnvel í gegnum
tárin.
Bænin treystir og eflir vin-
áttubönd. Eykur skilning og minnk-
ar fordóma. Hún fær okkur til að
standa saman þótt ólík séum og með
misjafnar skoðanir á svo mörgu en
líklega svipaðar þrár og þarfir,
svona þegar allt kemur til alls.
Tökum að sjá lífið í nýju ljósi
Bænin er kvíðastillandi og streitu-
losandi, hún skerpir einbeitingu og
veitir huganum ró. Við köfum inn í
okkar innsta kjarna og leggjum
hugsanir okkar á borð
fyrir skapara okkar og
lausnara. Áhyggjur,
draumar og þrár, vænt-
ingar og vonbrigði,
framtíð og líf er falið al-
máttugum Guði í því
trausti að hann muni
vel fyrir sjá.
Með bæninni sting-
um við á kýlum og
áhyggjurnar taka að
líða á braut og frið-
urinn að flæða inn.
Bænin mýkir hjartað
og auðveldar okkur ævigönguna,
það er ekki spurning. Og hún stillir
okkur af svo markmið okkar verða
skýrari.
Við tökum að sjá Guð, sam-
ferðamenn okkar, umhverfið allt og
okkur sjálf í nýju ljósi.
Bænin styrkir fjölskyldubönd,
samkennd vex umburðarlyndið
eykst og umhyggjan dýpkar. Bænin
er góð forvörn og besta áfallahjálpin.
Bænin er einnig sem græðandi
smyrsl sem líknar og læknar, laðar
og leiðir, uppörvar og hvetur. Bænin
er ekki spurning um orðalag heldur
hjartalag. Hún er sem andardráttur
lífsins, allt það súrefni sem þarf til að
komast af.
Í bæninni drögum við að okkur
fyrirgefninguna og þann frið sem
enginn getur gefið annar en frels-
arinn Jesús Kristur. Frið sem er
æðri mannlegum skilningi og enginn
og ekkert megnar frá okkur að taka.
Frið sem sprottinn er af ást Guðs.
Með bæninni hef ég fengið að upp-
lifa hina raunverulegu fegurð lífsins.
Faðmur sem gott er að hvíla í
Jesús er Guð þinn, því aldrei skalt
gleyma. Hann gengur við hlið þér og
leiða þig vill. Þú eilífa lífið átt honum
að þakka, hann sigraði dauðann og
lífið gaf þér. Guðs son á himni nú
vakir þér yfir. Hann gleymir ei bæn
þinni hver sem hún er.
Líf mitt sé falið þér, eilífi faðir.
Faðminum þínum ég hvíla vil í.
Áhrif bænarinnar
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
» Bænin treystir vin-
áttubönd. Hún eyk-
ur skilning og minnkar
fordóma. Hún eykur
orku og léttir lund, veld-
ur vellíðan, unaði og ör-
yggistilfinningu.
Höfundur er ljóðskáld
og rithöfundur.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn
grein" er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið nóg að slá inn kennitölu not-
anda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.