Morgunblaðið - 28.08.2013, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 28.08.2013, Qupperneq 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013 ✝ Rut Magnús-dóttir fæddist í München 14. apríl 1928. Hún lést á hjúkrunarheimil- inu Kumbaravogi 18. ágúst 2013. Foreldrar Rutar voru Maximilliam Barbara Gröschl, bóndi og ráðunaut- ur, f. 27. október 1897, d. 24. desem- ber 1978, og Irma Maria Gröschl barnahjúkrunarkona, f. 20. mars 1900, d. 1. júní 1985. Rut átti tvær systur, Juttu Gröschl, f. 3.1. 1930, d. 31.7. 1937, og Ulrike von Maltsahn, f. 13.3. 1945. Rut giftist Níls Ólafssyni, f. 26.2. 1932, frá Austur-Ögðum, Noregi. Börn þeirra eru: 1) Lísbet, f. 14.1. 1957, gift Ragnari Gísla- syni, f. 17.3. 1956, börn þeirra eru a) Linda Rut, f. 12.8. 1975, gift Eyþóri Björnssyni, f. 25. 11. 1972, börn þeirra eru Karítas Birna, f. 1.8. 1999, Ævar Kári, f. 5.12. 2005, og Aníta Ýrr, f. 13.3. 2009. b) Gísli Einar, f. 22.1. 1985. auk þess að safna íslenskum jurtum sem hún pressaði fyrir jurtasafn háskólans í Göttingen. Söfnunin byggðist á samfélags- fræði jurtanna (Pflanzen- soziologie). Haustið 1955 kynntist Rut til- vonandi eiginmanni sínum Níls, þar sem hann kom til starfa sem fjósameistari að Þórustöðum í Ölfusi. Þau bjuggu og unnu á Þórustöðum þar til þau keyptu jörðina Sólvang við Eyrarbakka árið 1963. Á Sólvangi bjuggu þau með blandaðan búskap í 38 ár eða til 1. júní 2001. Rut hóf að syngja með kirkju- kór Eyrarbakkakirkju árið 1963 og tók svo við organistastarfinu ári síðar. Hún var organisti og kórstjóri frá 1964-1993. Rut kom á fót stúlknakór við kirkj- una auk þess að taka þátt í öllu barnastarfi hennar. Rut kenndi við Tónlistarskóla Árnessýslu á Eyrarbakka og Stokkseyri, einnig kenndi hún tónlist og hljóðfæraleik á barnaheimilinu Kumbaravogi í nokkur ár. Síðustu tólf árin bjuggu Rut og Níls í Fosstúni 23 á Selfossi, þar sem Rut ræktaði garðinn sinn. Útför Rutar fer fram frá Sel- fosskirkju í dag, 28. ágúst 2013, og hefst athöfnin kl. 13.30. c) Jóna Þórunn, f. 16.10. 1986. 2) Ólaf- ur, f. 16.6. 1958. Rut ólst upp hjá foreldrum sínum, systrum og föður- ömmu við bústörf í sveitinni Oberhof Hubertus í Würm- dal í Bæjaralandi, þar sem faðir henn- ar ræktaði Hafl- inger-hesta. Tónlist var Rut í blóð borin og fékk hún snemma að æfa sig á orgel. Rut gekk í barnaskóla sem nunn- urnar í dalnum ráku og frá 12 ára aldri gekk hún í mennta- skóla í München. Eftir mennta- skólanám vann Rut á garð- yrkjustöð í Nörlingen, þá var hún einnig við nám í orgelleik hjá Georg Kemp. Hafði hún þar með höndum starf forfallaorg- anista í víðáttumikilli sveit með um þrjátíu kirkjum. Árið 1952 las Rut við háskólann í Gött- ingen, jafnframt stundaði hún nám í orgelleik í Hannover. Vorið 1955 kom Rut til Ís- lands til vinnu í garðyrkjustöð- inni Fagrahvammi í Hveragerði Amma var okkur alltaf svo góð. Hún fylgdist vel með því sem við vorum að gera, hvort sem það var í tónlistinni, íþrótt- unum eða í því daglega. Amma kenndi okkur svo margt. Hún kenndi okkur að þekkja blóm og það sem vex úti í náttúrunni. Alltaf var gaman að koma í heimsókn í Fosstúnið því þá var drukkið kakó, sungið og spilað á hin ýmsu hljóðfæri. Mjög oft var líka farið út í garð og eitt- hvað ætt fundið eða blóm tínd í vönd. Ef veður leyfði ekki úti- vist voru byggðir turnar, spilað eða farið á bak Gusti. Takk fyrir allt elsku amma. Karítas Birna, Ævar Kári og Aníta Ýrr. Það hljóta að teljast forrétt- indi að hafa þekkt ömmu Rut á Sólvangi. Amma var mikið nátt- úrubarn og stundaði búskap, matjurtarækt, blómarækt, tón- list og myndlist sem sín áhuga- mál og jafnframt ævistarf. Hún þekkti flóru Íslands aftur á bak og áfram. Í garðinum á Sólvangi ræktaði hún kál, kartöflur, gul- rætur, jarðarber og berjarunna svo borðin svignuðu undan upp- skerunni. Í gluggunum báru tómatplöntur ávexti sína og allt- af þótti mér gaman að baka með ömmu. Hún bakaði í hverri viku súrdeigsbrauð og hveitibollur og lét deigið hefast á miðstöðv- arofninum í stofunni. Te og súr- deigsbrauð með miklum osti eða rifsberjasultu minnir óneitan- lega á alla matmáls- og kaffitím- ana hjá ömmu og afa. Einhvern tímann sem oftar var ég í pössun hjá ömmu og afa á Sólvangi, hef sennilega ekki verið mikið eldri en sex til sjö ára gömul. Amma og afi fóru alltaf snemma í fjósið að mjólka og ég fékk að sofa aðeins leng- ur. Þegar var búið að mjólka fyrstu kýrnar kom amma inn og vakti mig, verkin biðu. Amma átti bláan fjósaslopp sem ég notaði, hann var heldur stór á mig svo ermarnar náðu niður í gólf. Þá var bara að bretta upp ermar og böndin á sloppnum hafa sennilega náð tvisvar kringum mittið á mér. Mitt verk var að þvo mjaltatækin eftir mjaltir. Þá var fata fyllt af vatni og ég fékk að soga allt vatnið upp í gegnum mjaltakrossinn. Þetta var mikið sport og ábyrgðarfullt starf. Einnig þurfti að bursta allt hátt og lágt, umgengnin var alltaf alveg tipp topp. Amma var alltaf að kenna manni eitthvað á meðan á störf- unum stóð, hvort sem það voru nöfnin á blómunum eða fjöllun- um í fjarska. Hún var iðin við verkin og var alltaf að. Inn á milli settist hún niður og kláraði að vatnslita myndir sem hún hafði skissað upp á hjólaferð eða göngutúr í nærumhverfinu. Elsku amma, takk fyrir allt sem þú kenndir mér. Jóna Þórunn Ragnarsdóttir. Hvert andartak Guði hún unni frá orgelleik sjaldan hún vék. Það sannaðist syngjandi munni þá sálmasöng undir hún lék. Ávallt hún ungdómsins gætti af alúð og líknandi þrá. Með nývaxið grænmetið mætti ef málbita var ekki að fá. Hverja sál sem í vanda var komin hún umvafði kærleik og ást. Þar mætti hún hljóðlaust að morgni svo manneskjan þyrfti ekki að þjást. Með blíðu hún pensilinn leiddi er blóm voru sköpunarverk. Og barnsleikinn áfram hún seiddi svo áköf var ástin og sterk. Hún unni því öllu sem lifir í umhverfi ástfólgins lands. Þar frjálsir fljúga nú yfir fuglar, til fjörunnar sands. Ég þakka þér vinsemd og hlýju þinn kærleik á lífs okkar braut. Á himnum við hittumst að nýju hvar þekkist ei erfiði og þraut. Þorbjörg Gísladóttir. Rut sagði að eins og strákar vilji verða flugmenn þá tók hún lítil stelpa ákvörðun um að fara til Íslands. Þekkti hún þó lítið til landsins. Hún var vaxin upp úr fjöl- þættu mannlífi í Týról og Bæ- heimi og þekkti ólíka tíma. Fólk lærði að bjarga sér af nátt- úrunni þegar lítið var til. Það þurfti nýtni og útsjónarsemi. Hún gekk í skóla hjá kaþólskum nunnum og kynntist kristindómi og garðrækt. Þeir bræður Wil- helm og Georg Kempff kenndu henni á píanó og orgel. Nám- skráin var Bach og aftur Bach. Hún lærði grasafræði í háskóla og þar kom að hún hjólaði til Rotterdam og fékk far með Fjallfossi til Íslands. Því næst hjólaði hún áfram austur fyrir fjall. Í Sólvang við Eyrarbakka kemur fjölskylda hennar 1963. Rut gekk í kirkjukórinn en tók við organistastarfi við kirkjuna 1964 og starfaði þar til upps- tigningardags 1992. Þá hafði hún verið við allar athafnir í kirkjunni í tæp 30 ár og á þeim tíma haft 1.400 æfingar með kirkjukórnum og 800 æfingar með barnakórum. Engan vissi ég hæfari en Rut til að velja tónlist við hæfi hverrar athafn- ar og með tilliti til kirkjuársins. Aldrei tók hún laun fyrir störf sín en leit á þau sem þjón- ustu við kirkjuna. Hún bryddaði upp á nýjungum í barnastarfi. Hún hlutaðist til um að Carl Orff gaf Eyrarbakkakirkju ásláttarhljóðfæri sem við hann eru kennd. 30 árum áður hafði Rut hjálpað honum að leita að fjallafurukubbum og kirsu- berjatrjám sem gætu gefið fal- leg hljóð. Börnin sungu bros- andi um allt sem Guð hafði skapað. Sólin stóra tromman og tunglið litla tromman, fiskarnir trékubbar og stjörnur þríhorn. Börnin lærðu að vera litlir vinnumenn Guðs. Það var henni kennt þegar hún var stelpa. Þau settust saman og klipptu út myndir af fólki, jurtum og dýr- um og settu saman biblíumynd- ir á stór pappaspjöld sem síðan voru notuð þegar sagan var sögð. Kirkjan átti þannig fjölda spjalda sem voru notuð ár eftir ár. Hún gerði fallegar klippi- myndabækur sem hún gaf börn- um. Jólahelgileik samdi hún sjálf, texta og tónlist. Ung byrjaði Rut að teikna en á Íslandi hóf hún að nota vatns- liti og málaði með þeim fíngerð- ar myndir. Einnig samúðarkort sem hún sendi aðstandendum t.d. við slys með fallegum og huggunarríkum myndum og styrkjandi textum. Ritaði á kort ritningarorð sem fermingar- börn höfðu valið sér og gaf þeim á fermingardegi. Hún teiknaði minningarkort sem gefin hafa verið út til styrktar Eyrar- bakkakirkju. Rut tók teikningar fram yfir ljósmyndir og ritun fram yfir ljósrit. Hjá henni var ekkert hismi og allt gegnheilt og náttúruvænt. Einnig var Rut frábær bóndi og ræktunarkona. Allt spratt vel hjá henni í moldinni. Hún var alin upp við brauðbakstur í útiofni og sjálf bakaði hún gott súrdeigsbrauð. Það er undur lífsins að mold- in skuli verða að brauði, lífsins brauði. Þegar ég stend við moldir hennar færi ég fram heita þökk fyrir allt hennar ævi- starf. Ég bið Guð að blessa hana og fjölskyldu hennar og kveð hana með páskakveðjunni sem töm var á tungu í hennar æsku. Kristur er upprisinn. Kristur er sannarlega upprisinn. Úlfar Guðmundsson. Það eru góðar minningar og þakklæti sem fylla hug þegar Rut Magnúsdóttir er kvödd. Þar er gengin einstök kona, frá- bær samstarfsmanneskja, vík- ingur í hugsun og verkum, tryggur vinur. Ein af þeim sem voru forréttindi að starfa með og eiga að vini. Það var nánast allt ævintýra- legt nálægt Rut og hreint ekki á allra færi að skilja það eða fylgja eftir. Reynsla hennar í lífinu var ótrúlega fjölþætt, margt af því hefði ekki verið hægt að takast á við nema með styrk lifandi trúar, sem var lífsakkeri hennar. Það var æv- intýralegt að heyra um uppvöxt í stríðshrjáðri Evrópu, þar sem jafnvel börnin lærðu að vera hetjur. Hún lærði það og þurfti oft að beita þeirri þekkingu. Hún hafði líka að baki ótrúlega víðtæka menntun. Ég minnist margra atvika, þar sem hún kom mér rækilega á óvart með djúpri þekkingu á málum og bókum sem alls ekki var von á. Ævintýrið varð stórt þegar hún kom til Íslands með flutn- ingaskipi og lagði beint frá bryggjunni af stað á hjólinu sínu austur fyrir fjall til þess að afla gagna fyrir merka ritgerð. Henni óx aldrei neitt í augum. Hér á Suðurlandinu hittust þau Níls, sem líka var kominn langt að. Þeirra beið ævintýrið stóra. Þau urðu bæði miklir Íslend- ingar, ómetanlegur fengur fyrir íslenska þjóð. Rut varð ótrúlega vel heima í öllu sem var ís- lenskt. Mörg bréf á ég frá henni með aldeilis óaðfinnanlegri flókinni stafsetningu. Hún varð svo mikill Íslend- ingur að þegar hún eitt sinn fór stutta ferð til æskustöðva kom hún miklu fyrr heim en til stóð, því hún eirði ekki nema á Fróni. Rut og Níls byggðu upp, dugn- aður og vinnusemi beggja áttu fáar hliðstæður. Það sást langt að. Rut á Sólvangi hét hún í munni okkar samstarfsfólks og vina á Eyrarbakka. Þar gegndi hún um árabil starfi organista og söngstjóra við sóknarkirkj- una. Frá þeim tíma eru minn- ingar mínar dýrmætastar. Rut var fljót til starfa, mjög áræðin og um fram allt ósérhlífin. Áhuginn og kærleikur til verk- efnisins voru einstæð. Hún var vel menntuð sem tónlistarmað- ur, bjó þar að traustum grunni, þekkti allt. Hún var ómetanleg í barnastarfi Eyrarbakkakirkju og átti stóran þátt í því hversu blómlegt það starf var. Hennar stóru afrek voru barnakórar kirkjunnar. Með þeim vann Rut sigra sem ég síðan hef ekki séð líkindi við. Í barnastarfinu nýtt- ist líka vel hin einstaka snilld hennar sem myndlistarmaður, sem hún hélt ekki alltaf mikið á lofti. Hafði samt mikið tilefni til þess því þar lék henni allt í höndum. Það voru margar stundirnar í kirkjustarfinu, þar sem standa þurfti frammi fyrir dauðanum. Þá verða augnablikin þar sem reynir á allt og ljósast verður að hinn upprisni frelsari kemur til að þerra tár og gefa sýn til eilífa lífsins. Það heyrði ég hana Rut oft tala um. Um það vil ég hugsa þegar ég kveð ógleym- anlega manneskju og trausta. Ég bið Níls og fjölskyldu hans blessunar með þakklátum huga. Valgeir Ástráðsson. Rut Magnúsdóttir HINSTA KVEÐJA Takk fyrir allt sem þú kenndir okkur, mamma. Ó, faðir, gjör mig lítið ljós um lífs míns stutta skeið, til hjálpar hverjum hal og drós, sem hefur villst af leið. Ó faðir gjör mig blómstur blítt, sem brosir öllum mót og kvíðalaust við kalt og hlýtt er kyrrt á sinni rót. (Matthías Jochumsson) Lísbet og Ólafur. Ingimundur Ingimundarson var glæsilegur maður, maðurinn hennar Hrefnu frænku og hann átti drossíur. Hann er órjúfanlegur hluti af uppvexti okkar og fjölskyldu, glaðlegur og alltaf stutt í hlát- urinn. Hann var alltaf þarna ásamt nokkrum öðrum af hans kynslóð sem mörg eru horfin. Við krakkarnir tókum notalegri nær- veru hans sem sjálfsögðum hlut. Þau voru mjög náin, systkinin frá Naustakoti, og hjálpuðust að í blíðu og stríðu. Þrjú þeirra bjuggu í Kópavogi með fjölskyld- um sínum og var mikill samgang- ur á milli fjölskyldnanna og margs að minnast eins og, jóla- boðanna hjá Gauju og Hrefnu og áramótanna á Kársnesbrautinni. Allir mættir, Jónas og Þorgerð- ur, Ingimundur og Hrefna, Gauja og Haukur og þeirra fólk. Spjall- að, borðað, spilað, dansað og svo hélt Ingimundur ræðu og sagði okkur hversu heppinn hann væri að hafa kynnst henni Hrefnu og fjölskyldunni hennar. Hann sagði okkur að við skiptum hann máli, við værum líka hans fjölskylda. Við okkur var hann alltaf til í að spjalla, það var gaman að rök- ræða við hann um pólitík og þjóð- mál en Ingimundur var virkur fé- lagi í Sjálfstæðisflokknum og hélt fram sínum skoðunum af festu. Hann gegndi einnig trúnaðar- störfum fyrir Hreyfil og sat þar lengi í stjórn. Ingimundi fannst nú ekki verra ef menn nenntu að rífast aðeins við hann og vera honum svolítið ósammála. Ingi- mundur ólst upp í skaftfellskri sveit en eins og svo margir af hans kynslóð varð hann að fara úr sveitinni sinni í atvinnuleit. Hann gerðist bifreiðastjóri, fyrst með vörubíl en síðar og lengst af ók hann leigubíl. Bílnúmerið hans var Y64 og varð það eig- inlega hluti af honum sem at- vinnubílstjóra. Með mikilli vinnu kom hann sér vel fyrir með fjöl- skyldu sinni. Sennilega saknaði hann þó alltaf sveitarinnar sinnar og viðfangsefnanna þar. Þetta kom vel í ljós þegar dóttir hans, Björk, fór að búa í hans gömlu sýslu, hve vel hann fylgdist með búskapnum, reisti sér þar sum- arbústað og mátti til dæmis ekki missa af sauðburðinum. Systkinin frá Naustakoti hafa reynt að halda kotinu við og gera það að samkomustað stórfjöl- skyldunnar. Þar eru til dæmis bæði haldin Litlujól og Jónsmes- suhátíð. Ingimundur studdi konu sína og þau systkinin dyggilega í þessu og ófáar voru ferðir hans suður á strönd með Hrefnu og mágkonur hans. Jónsmessuhá- tíðin er oft fjölsótt og þá sat Ingi- mundur oft úti undir vegg og sól- aði sig ásamt fleirum, þar voru bæði ungir og gamlir. Við erum viss um að þegar við lítum heim að Naustakoti um Jónsmessu- leytið munum við minnast Ingi- mundar eins og hann sat þar. Síðustu árin bjó Ingimundur í Sunnuhlíð, þar býr mamma okk- ar líka. Það hefur því oft verið fjölskylduhittingur í Sunnuhlíð undanfarið. Rætt um daginn og veginn og rifjaðir upp atburðir frá fyrri tíð. Það hefur verið nota- legt. Gísli, Björg, Þorleifur, Ívar, Flosi og Elín. Ingimundur Ingimundarson ✝ IngimundurIngimundarson fæddist 2. júlí 1925 á Efri-Ey í Meðal- landi. Hann lést á Hjúkrunarheimil- inu Sunnuhlíð í Kópavogi 18. ágúst 2013. Útför Ingimund- ar fór fram frá Digraneskirkju 27. ágúst 2013. Ingimundur er dáinn og þá eru þeir allir fjórir farnir. Jónas tengdafaðir minn og mágar hans Haukur, Geir og nú Ingimundur. Þess- um mönnum öllum kynntist ég vel og voru það góð og ánægjuleg kynni. Þegar ég tengdist tengdafjölskyldu minni fyrir meira en fjörutíu ár- um fann ég fljótt að Ingimundur var einn af henni. Alltaf þegar eitthvað var um að vera hjá fjölskyldunni voru þau þar Ingimundur og Hrefna, einnig Gauja og Haukur, enda er hún einstök samheldni og vinátta þeirra Naustakotssystkina. Lóa og Geir voru á Akranesi og því stundum fjarri; þetta var fyrir „göng“. Ég minnist Ingimundar frá mörgum góðum stundum í Naustakoti, hvort það voru hinar árvissu Jónsmessuhátíðir, sem þær systur hafa staðið fyrir af miklum myndarskap, eða við ým- is önnur tækifæri. Þá sátu þeir fjórir, og þrír eftir að Jónas dó, í innra herberginu og við yngri strákarnir á dívaninum, fylgd- umst með og lögðum stundum orð í belg. Umræðuefnin voru af mörgum toga, stundum alvarleg og stund- um spaug og oft eitthvað frá löngu liðnum tíma. Við þessi tækifæri gekk herbergið undir nafninu „hrútakofinn“ og þar var nú ekki töluð vitleysan! Stundum var rætt um pólitík og Haukur hafði gaman af að skjóta að at- hugasemdum, svona vinstra megin við Ingimund. Þá fengum við Ingimundur alltaf nokkur korn í nefið hjá Hauki eða Geir. Ég minnist þess þegar Jónas lá á spítalanum vorið 1997 og ég hafði komið við hjá honum um eftirmiðdaginn. Á heimleiðinni suður í Fjörð sótti ég Björgu í Kársnesskólann og þá vildi svo til nokkrum sinnum þegar ég kom upp á Háls að Ingimundur var „á staur“. Ég settist inn hjá honum og við ræddum saman góða stund, stundum þar til stöðin kallaði á bíl. Þessu man ég vel eftir og þykir vænt um minningarnar, en nú er Y64 farinn í sinn síðasta túr og það vantar bíl á staur. Ég minnist Ingimundar nú upp á síðkastið í Sunnuhlíð. Það var gott að hitta hann þar, rifja upp liðna tíð og spyrja frétta af fólkinu hans, og alltaf var stutt í bros eða hlátur. Hann fylgdist vel með og oft var hugurinn við búskapinn austur á Hunkubökk- um. Nú er skarð fyrir skildi, Ingi- mundur fallinn. Blessuð sé minn- ing hans. Magnús Ólafsson. Nú er Ingimundur farinn, hann keyrir okkur systurnar ekki oftar suður á strönd. Ég vil þakka Ingimundi hjálp og vinsemd sem hann sýndi mér og minni fjölskyldu í gegnum ár- in. Ég minnist þess þegar Ingi- mundur og Haukur heitinn ræddu málin, að ekki voru þeir alltaf sammála, en það kom ekki að sök, því þeir virtu skoðanir hvor annars og voru miklir mát- ar. Á jóladag í gegnum árin var spiluð vist fram eftir nóttu í Austurgerði. Ingimundur, Jónas, Haukur og Inga spiluðu af mikilli gleði og þá var Ingimundur í ess- inu sínu, oft heyrði maður: Hver gaf? og Hver er þá í forhönd? Spilamennskan á jóladag vekur upp skemmtilegar minningar. Ég kveð Ingimund með bros á vör. Guðríður Gísladóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.