Morgunblaðið - 09.09.2013, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 09.09.2013, Blaðsíða 9
ÚTSALA -20% -50% allar vörur Opið: má-fö. 12:30-18 | Dalvegi 16a Rauðu múrsteinshúsunum | Kóp. 201 S. 517 7727 | nora.is | facebook.com/noraisland Púðar dúnfylltir, verð nú frá kr. 6.800 Matardiskur, verð nú kr. 1.672 Stólsessur, verð nú frá kr. 2.632 Skrifborð með hillu, verð nú kr. 103.400 -20% -20% -20% -20% MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2013 Árlegur fundur umboðsmanna Ice- landair á fjarlægari mörkuðum fór fram í Reykjavík fyrir helgi. Á fund- inn kom fólk frá Taílandi, Hong Kong, Taívan, Japan, Kína, Ísrael, Grikklandi, Ítalíu, Spáni, Portúgal, Póllandi, Tékklandi, Ungverjalandi, Úkraínu, Rúmeníu og Eystrasalts- löndunum. „Frá þeim mörkuðum þar sem umboðsmennirnir starfa koma tugir þúsunda ferðamanna til landsins á hverju ári og starf þeirra er mjög mikilvægt,“ segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, sem er hér með umboðs- mönnunum, ásamt fleiri stjórn- endum Icelandair. Mestur hefur vöxtur verið frá Asíu og A-Evrópu. Umboðsmenn stilltu saman strengi BRIDS SKÓLINN BYRJENDUR (stig 1) 23. september 8 mánudagar frá 20-23 KERFIÐ (stig 2) 25. september 8 miðvikudagar frá 20-23 • STIG 1 Á byrjendanámskeiði er farið vel yfir leikreglur spilsins og undirstöður hins vinsæla Standard-sagnkerfis. Ekkert mál að mæta ein/einn. • STIG 2 Höfðuáhersla á framhald sagna í Standard, en úrspil og vörn eru ekki langt undan. Mikið spilað. Ekki nauðsynlegt að koma með makker. • Staður: Síðumúli 37 í Reykjavík. • Sjá nánar á bridge.is undir „fræðsla“. • Uppl. og innritun í síma 898-5427 frá 13-18 daglega. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ VATNAJÖKULSÞJÓÐGARÐUR Þjóðgarðsvörður á suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs hefur í samráði við eigendur aðliggjandi lands við Svínafellsjökul ákveðið að verða við beiðni Sagafilm ehf. um að loka gönguleiðum við Svínafellsjökul sem eru í jaðri og að hluta til innan Vatnajökulsþjóðgarðs á tímabilinu 11. – 19. september 2013, báðir dagar meðtaldir. Lokunin nær til gönguleiðar meðfram jöklinum undir Hafrafelli frá bílastæði við Hafrafell og gönguleiðar að Svínafellsjökli frá vegslóða vestan við Freysnes. Lokunin er álitin nauðsynleg á þessu tímabili vegna kvikmyndagerðar sem fram fer á Svínafellsjökli, en það er mat þjóðgarðsvarðar að hún gangi ekki lengra en nauðsyn krefur að teknu tilliti til annarrar atvinnustarfsemi og umferðar almennings. Lokunin byggist á 17. gr. a í reglugerð nr. 608/2008 um Vatnajökulsþjóðgarð, sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 749/2013. Athygli er vakin á að á sama tímabili verða einnig lokaðir vegslóðar og gönguleiðir sem liggja að jöklinum en eru ekki innan þjóðgarðsins. Auglýsing þessi er birt í B-deild Stjórnartíðinda með vísan til 4. mgr. 15. gr. laga nr. 60/2007 um Vatnajökulsþjóðgarð og 17. gr. a reglugerðar nr. 608/2008 um Vatnajökulsþjóðgarð, sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 749/2013. PO RT hö nn un Á vefnum www.vjp.is má finna allar helstu upplýsingar um Vatnajökulsþjóðgarð Auglýsing um tímabundna lokun gönguleiða við Svínafellsjökul í Vatnajökulsþjóðgarði Magnús Júlíus- son, meistara- nemi í verk- fræði, var kjörinn formað- ur Sambands ungra sjálfstæð- ismanna til tveggja ára á 42. sambandsþingi SUS sem lauk í Borgarnesi í gær. Magnús hlaut 58 atkvæði af 62 greiddum atkvæðum eða 94%. Davíð Þorláksson, fráfar- andi formaður, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Magnús er hátækniverkfræð- ingur að mennt og er að ljúka meistaranámi í sjálfbærum orkuvís- indum innan vélaverkfræðideildar Konunglega Tækniháskólans í Stokkhólmi (KTH). Hann hefur m.a. setið í stjórn SUS og verið framkvæmdastjóri sambandsins frá árinu 2012, auk fjölda annarra starfa að félagsmálum. Magnús kjörinn nýr formaður SUS Magnús Júlíusson Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) og Landssamband eldri borgara (LEB) hvetja stjórnvöld til að halda áfram að efna loforð sem gefin voru fyrir síðustu kosningar um að afnema kjara- og réttindaskerðingar sem urðu á greiðslum til eldri borgara og öryrkja árið 2009. Til að hvetja ríkisstjórnina og þingheim til dáða boða ÖBÍ og LEB til hvatningar- fundar á Austurvelli á morgun, þriðjudag, kl. 15. Þar munu Guð- mundur Magnússon, formaður ÖBÍ, og Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, formaður LEB, flytja hvatningar- ávörp og lúðrasveit leika ættjarðar- lög „enda hillir nú undir að þær al- varlegu skerðingar sem eldri borgarar og öryrkjar hafa búið við síðustu fjögur ár verði leiðréttar“, eins og segir í fréttatilkynningu. Hvatningarfundur á Austurvelli á morgun Tíu ára afmælis- hátíð Vinaskák- félagsins verður haldin í Vin, Hverfisgötu 47, í dag, mánudag, milli kl. 13 og 16. Góðir gestir koma í heim- sókn, boðið verð- ur upp á gómsæt- ar veitingar frá Bakarameistaranum og slegið upp hraðskákmóti með glæsilegum verðlaunum frá Bónus. Allir eru hjartanlega velkomnir en Vina- skákfélagið var stofnað sumarið 2003 af liðsmönnum Hróksins og hefur skákstarfið í Vin blómstrað. Tíu ára afmæli Vina- skákfélagsins í dag Skák Allir vel- komnir í Vin í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.