Morgunblaðið - 09.09.2013, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2013
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
• Mylur alla ávexti, grænmeti
klaka og nánast hvað sem er
• Hnoðar deig
• Býr til heita súpu og ís
• Uppskriftarbók og
DVD diskur
fylgja með
Lífstíðareign!
Tilboðsverð kr. 106.900
Með fylgir Vitamix sleif
drykkjarmál og svunta
Fullt verð kr. 125.765
Meira en bara
blandari!
Keppni um fegurstu konu heims hófst í gær-
kvöldi en að þessu sinni fer keppnin fram í
Indónesíu. Opnunarsýning keppninnar var hald-
in í borginni Nusa Dua sem er á indversku eyj-
unni Balí. Stúlkurnar mættu litskrúðugar á svið-
ið og veifuðu til áhorfenda.
Mikil öryggisgæsla er í kringum keppnina í ár
en strangtrúaðir múslimar í Indónesíu hafa mót-
mælt keppninni harðlega.
AFP
Litadýrð réð ríkjum í fegurðarsamkeppni
Keppni um fegurstu konu heims hófst í gærkvöldi í Indónesíu
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Ástralskir hægrimenn fögnuðu sigri
í þingkosningum um helgina undir
forustu hægriflokks Tony Abbots,
leiðtoga Frjálslynda flokksins í
Ástralíu. Bandalag hægrimanna
fékk alls 91 af 150 sætum í ástralska
þinginu en Verkamannaflokkurinn,
sem nú fer frá völdum, einungis 55
þingsæti.
Kosningarnar eru þær verstu í
hundrað ár fyrir Verkamannaflokk-
inn og hefur Kevin Rudd, formaður
flokksins og fráfarandi forsætisráð-
herra, sagt af sér formennsku í kjöl-
farið.
Innflytjendur og efnahagsmál
Ástralskur efnahagur hefur stað-
ið fjármálakreppuna af sér með
góðu móti og er efnahagur landsins
sterkur í samanburði við efnahag
annarra vestrænna ríkja. Skuldir
ríkisins eru einungis 33% af lands-
framleiðslu og fjárlagahallinn hefur
verið lítill. Rudd lagði í kosninga-
baráttunni áherslu á þetta, en meiri-
hluti kjósenda taldi hins vegar að
það hefði mátt standa betur að mál-
um. Þá var Rudd sakaður um henti-
stefnu í ýmsum málum, sem dregið
hefur úr vinsældum hans. Eins er
talið að margir Ástralar horfi til
þess að yfirvofandi samdráttur í
Kína dragi úr viðskiptum landanna
en Ástralar selja töluvert magn hrá-
efna til Kína m.a. járnmálma. Það er
talið hafa ráðið því að Ástralar kusu
að skipta um mann í brúnni.
Eins hafa málefni innflytjenda
verið ofarlega á baugi hjá kjósend-
um þar sem nokkuð er um að ólög-
legir innflytjendur komi frá átaka-
svæðum í Asíu. Aðspurðir sögðu þó
flestir kjósendur efnahagsmálin
vega þyngst.
Fæddur í Bretlandi
Tony Abbott er 55 ára og fæddur
í Englandi. Faðir hans er enskur, en
móðir áströlsk. Abbott er með
menntun í hagfræði og lögfræði.
Hann hóf starfsferilinn sem blaða-
maður, var kosinn á þing 1994 og
gegndi ýmsum ráðherraembættum
frá 1998-2007. Hann varð leiðtogi
Frjálslynda flokksins árið 2009.
AFP
Fögnuður Tony Abbott, leiðtogi hægrimanna, fagnaði kosningasigrinum
ásamt fjölskyldu sinni, vinum og flokksfélögum um helgina.
Hægrimenn sigra í Ástralíu
Versta kosning
vinstrimanna í
landinu í 100 ár
Þingkosningar fara fram í Noregi í
dag og bendir flest til þess að mið- og
hægriflokkarnir fari með sigur af
hólmi í kosningunum ef marka má
spár norskra fjölmiðla.
Í skoðanakönnun sem Aftenpost-
en birti um helgina fær mið- og
hægrabandalag undir forustu Ernu
Solberg 54,3 prósent stuðning frá
kjósendum sem þýðir að flokkarnir
fjórir á bak við Ernu fá sterkan
stjórnarmeirihluta eða 95 af 169
þingsætum. Jens Stoltenberg, leið-
togi Verkamannaflokksins, verður
því væntanlega að afhenda Ernu Sol-
berg lyklana að forsætisráðuneytinu
fari kosningarnar eins og kannanir
gera ráð fyrir. Samkvæmt könnun
Aftenposten er kosningabandalag
vinstriflokkanna einungis með 39%
fylgi sem þýðir 68 sæti á Stór-
þinginu.
Efnahagsmálin hafa verið mikið í
umræðunni í Noregi og hefur Stol-
tenberg lagt mikla áherslu á áfram-
haldandi stöðugleika meðan hægri-
menn benda á sóknarfæri. Þá hefur
Kristilegi þjóðarflokkurinn lofað
90 prósenta lánum. ESB hefur ekki
verið kosningamál en flestir kjós-
endur Høgre, helsta ESB-flokksins,
vilja ekki inngöngu í bandalagið.
Bandalagi mið- og hægriflokka
spáð sigri í kosningunum í Noregi
AFP
Noregur Erna Solberg leiðtogi mið-
og hægriflokkanna er með forskot.
Flytja þurfti einn á spítala eftir
skotárás í Hisingen-hverfi í Gauta-
borg. Lögreglan segir engan grun-
aðan sem stendur en skotárásin átti
sér stað í gærmorgun um klukkan
sjö að staðartíma. Alda ofbeld-
isverka hefur riðið yfir Gautaborg-
arbúa að undanförnu og hefur
notkun skotvopna færst mjög í
aukana. Einn var fluttur á sjúkra-
hús eftir skotárás í Hammakullen í
austurhluta borgarinnar á föstudag
og tveir létust á miðvikudag eftir
að hafa fallið í byssubardaga í Bis-
kopsgården. Fórnarlömbin voru 17
og 28 ára. Fleiri tilkynningar hafa
borist um skotárásir á und-
anförnum vikum í borginni.
SVÍÞJÓÐ
Alda ofbeldis
Þota á vegum
rússneskra
stjórnvalda lenti
á flugvellinum í
sýrlensku borg-
inni Latakia.
Flytja á rúss-
neska ríkisborg-
ara burtu frá
landinu þar sem átökin stigmagnast.
Auk Rússa er ríkisborgurum ríkja
fyrrverandi Sovétríkjanna einnig
boðið að fara með vélinni. Ekki er
vitað hversu margir yfirgefu landið
en einhver hópur hafi beðið þot-
unnar á flugvellinum um tíma.
SÝRLAND
Rússar fluttir frá
Sýrlandi