Morgunblaðið - 09.09.2013, Side 10

Morgunblaðið - 09.09.2013, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2013 Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is Það kom óvænt upp að éggæfi bókina út. Það varkunningi minn sem fór íprentsmiðju og fékk öll smáatriði uppgefin, hvað þetta myndi kosta og svo framvegis. Það varð ekkert aftur snúið eftir það. Elsta ljóðið í bókinni er um það bil þrjátíu ára gamalt þrátt fyrir að þau sé flest tiltölulega ný,“ segir Viðar Jónsson sem gaf nýlega út ljóðabókina Silkileiðin. Vinnur mikið með tungumál „Það eru engir, stuðlar, höf- uðstafir eða rím í þessum ljóðum og því mega þau teljast til óhefð- bundins ljóðaforms. Það er ekki einu sinni að finna punkta né kommur í ljóðabókinni. Maður er Morgunblaðið/Ómar Ljóðskáld Í ljóðabók Viðars má finna fimmtíu og tvö óhefðbundin ljóð. Ljóðin spanna þrjátíu ár Sérkennslu- og þýðingarfræðingurinn Viðar Jónsson gaf nýverið út ljóðabókina Silkileiðina, en um er að ræða hans fyrstu bók. Skáldið segist engu að síður hafa ort ljóð í áranna rás og að mörg kjarnyrt íslensk skáld séu honum góð fyrirmynd. Það er sjaldnast við hæfi að leika sér að matnum en hins vegar má útbúa matinn þannig að hann gleðji sem flesta. Á síðunni www.cutefoodforkids.com eru ótal hugmyndir að nesti og snarli og er útkoman mjög skemmtileg og spaugileg. Eplamargfætla er til dæmis gerð úr grænum eplum og ostbita, hreindýrasamloka úr dökku og ljósu brauði og kirsuberjatómati og síðast en ekki síst er lítið mál að búa til ljón úr spældu eggi og pyls- um. Ekki er á allra vitorði að hægt er að útbúa þrívíddarpúsl úr einu epli né heldur að hægt sé að skera út hin furðulegustu fyrirbæri úr eplum. Hér eru ýmsar hugmyndir sem geta vakið töluverða lukku í nestisboxinu, garðveislunni eða bara heima á sunnudagsmorgni í rólegheitum. Vefsíðan www.cutefoodforkids.com Litskrúðugt Nesti getur verið bæði listrænt og skemmtilegt. Enn skemmtilegra snarl Nú er tími til að búa til dásamlegar sultur, saft eða hlaup til að gefa vin- um og vandamönnum. Það er tiltölu- lega einfalt að búa til sultu og að sama skapi er það ekki sérlega dýrt. Gott er að nýta þær krukkur sem falla til á heimilinu. Glerkrukkur undan fetaosti, salsasósu eða tómatmauki eru prýðilegar í sultugerðina. Krukk- urnar má mála þegar sultan er komin í og börnum þykir mörgum gaman að skreyta miðana sem límdir eru á krukkuna. Gamlir efnisbútar sóma sér vel á krukkulokinu og fallegur borði fullkomnar gjöfina. Einfalt, gott, skemmtilegt og persónulegt. Endilega … … sultaðu ber og gefðu Morgunblaðið/Kristinn Góð gjöf Sultukrukkurnar má skreyta með ýmsu móti. Það getur verið hvimleitt að hafa ofnæmi fyrir hinum ýmsu fæðutegundum, eins og td. eggjum, mjólkurvörum, glúteini og hnetum. Þeir hinir sömu taka væntanlega fagnandi útkomu bókar sem heitir Kræsingar án ofnæm- isvalda. Bókin kom nýlega út í íslenskri þýðingu Fríðu Rúnar Þórðardóttur næringarfræðings og næringar- ráðgjafa á Landspítalanum. Útgtáfa bókarinnar er í sam- starfi við Astma og ofnæmisfélagið hér á landi. Höfundur bókarinnar, Alice Sherwood, tók málin í sínar eigin hend- ur þegar sonur hennar greindist tveggja ára með fæðuof- næmi. Hún kynnti sér málið vel og bjó til fjölbreyttar og girnilegar uppskriftir sem hentuðum öllum, líka þeim sem hafa ofnæmi eða óþol. Í bókinni eru meira en hundrað uppskriftir, brauð, kökur og eftirréttir, hollir millibitar sem og veisluréttir og margt fleira. Íslensk útgáfa bókarinnar er tileinkuð minningu sigmars B. Haukssonar sem var einlægur hvatamaður útgáfunnar. Ný bók um kræsingar án ofnæmisvalda Bragðgóð brauð, kökur og eftir- réttir fyrir þá sem hafa ofnæmi Sjö laga ídýfa Uppskrift að henni er að finna í bókinni. Hún er bragðmikil og litrík. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is Opnir tímar: 4 flottir skvass salir Körfuboltasalur Einn besti golfhermir landsins Velbúinn tækjasalur Gufubað 7 Cross bells tímar á viku 6 Spinning tímar á viku Einkaþjálfarar Skvass kennsla Persónuleg þjónusta Spinning mán., mið. og fös., kl 12.00 og 17.15 Mikill hraði og brennsla. Ko m du m eð íg ot t fo rm ! Árskort á tilboði til 10. september 10% afsláttur af öllum kortum til 10. sept. Cross bells þri. og fim., kl 12.00 og 17.15 lau., kl. 10.00 Styrkir alla vöðva líkamans.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.