Morgunblaðið - 09.09.2013, Side 12

Morgunblaðið - 09.09.2013, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2013 SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Sveitarfélagið Norðurþing hefur fundið aukinn áhuga fyrirtækja á iðnaðarlóðum á Bakka við Húsavík. Þrjú fyrirtæki eru komin lengra í því ferli en önnur en Bergur Elías Ágústsson bæjarstjóri segir fleiri hafa óskað eftir lóð. Hann vill ekki gefa upp nöfn nýju fyrirtækjanna að svo stöddu en for- vinna fari nú fram með þeim, þau eigi t.d. eftir að ganga frá samn- ingum eða viljayf- irlýsingum með Landsvirkjun um raforkukaup. Bergur segir heimamenn bjartsýna á að framkvæmdir geti hafist á Bakka á næsta ári og að fyrsta verksmiðjan verði komin í gagnið í lok árs 2016. Ef aðeins er miðað við þessi þrjú fyrirtæki gætu þau samanlagt skapað um 350 ný störf og eru afleidd störf þá ótalin. Alls er iðnaðarsvæðið á Bakka á ríflega 200 hekturum. Í aðalskipu- lagi hefur verið gert ráð fyrir allt að 11 lóðum en það fer þó alfarið eftir óskum hvers fyrirtækis fyrir sig, hve stórri lóð er óskað eftir. Er þá deili- skipulagt í samræmi við það og lóð- irnar geta því vel orðið færri en ell- efu þegar upp verður staðið. Risafyrirtæki Fyrirtækin þrjú eru sem kunnugt er PCC Bakki-Silicon, Thorsil og Saint Gobain. Tvö þau fyrsttöldu áforma rekstur kísilmálmverk- smiðju en hið þriðja framleiðslu á kísilkarbíð. Saint Gobain er franskt risafyrir- tæki, með nærri 200 þúsund manns í vinnu víða um heim. Tillaga að mats- áætlun um framleiðslu á kísilkarbíð liggur fyrir hjá Skipulagsstofnun. Fyrirtækið ráðgerir litla verk- smiðju, með framleiðslugetu upp á 25 þúsund tonn á ári. Verkís, fyrir hönd Saint Gobain, hefur óskað eftir viðræðum við Norðurþing um 12 hektara lóð á Bakka. Tók bæjarráð jákvætt í erindið og fól bæjarstjóra að óska eftir nauðsynlegum gögnum svo hefja mætti vinnu við deiliskipu- lag á svæðinu. Verði af áformum um þessa verksmiðju gæti hún skapað nærri 70 störf. Bergur segir Saint Gobain geta tekið endanlega ákvörðun með skömmum fyrirvara, um leið og raf- orkan hefur verið tryggð, en aðeins taki 15-18 mánuði að reisa kísilkar- bíðverksmiðju. „Hin verkefnin eru með lengri framkvæmdatíma,“ segir Bergur og vísar þar til PCC og Thorsil. PCC er komið með fjárfestingarsamning við stjórnvöld og heimamenn og Thorsil hefur óskað eftir samskonar samn- ingum. Norðurþing hefur komið að undirbúningi að gerð fjárfestinga- samninga og þar sem um opinbera ívilnun er að ræða hefur erindi verið sent til Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, sem hefur átta vikur til að svara. Er búist við svörum þaðan í lok nóvember nk. PCC Bakki-Silicon ráðgerir um 33 þúsund tonna kísilverksmiðju á Bakka í fyrsta áfanga, með mögu- leika á stækkun í 66 þúsund tonn. Búið er að samþykkja fyrirliggjandi lóðarsamning við þýska félagið en það hefur til umráða 22 hektara lóð. Bein störf í þeirri verksmiðju yrðu nærri 130 talsins. Fyrr í sumar sam- þykkti bæjarstjórn að veita fulltrú- um Norðurþings fullt umboð til að skrifa undir samninga við PCC. Eru það m.a. samningar um hafnarað- stöðu, fasteignagjöld og fleiri gjöld. Trygg raforka forsendan Umsókn Thorsil er ekki komin jafn langt á leið. Fyrirtækið hafði gert fjárfestingarsamning við ríkið árið 2010 en hefur sem fyrr segir far- ið fram á samskonar ívilnanir og til hefur staðið að veita PCC. Í umsögn sinni um beiðni Thorsil hefur Norð- urþing bent á að forsenda fyrir sam- starfi við heimamenn sé að viðkom- andi fyrirtæki hafi tryggt næga raforku fyrir verkefnið og sýnt fram á fjárhagslegan styrk og reynslu. Thorsil er með í sigtinu jafnstóra lóð og PCC fær en verksmiðjan er stærri, með allt að 100 þúsund tonna framleiðslugetu á ári. Þar er verið að tala um 150 bein störf. „Við höfum unnið í þessum málum lengi. Okkar nálgun er sú að hér séu verkefni sem þarf að skila, eins og skipulagsmál, fjárfestingasamning- ar og samningar um hafnarfram- kvæmdir, vegagerð og fleira. Við er- um nokkuð örugg á því að hlutirnir fara af stað, hvenær nákvæmlega getur enginn sagt, en við munum hafa úthald til að klára þessi mál,“ segir Bergur, sem gerir sér þó vonir um að framkvæmdir geti hafist á Bakka strax á næsta ári og starfsemi verði komin í gang í lok árs 2016. Fleiri fyrirtæki vilja lóð á Bakka  Bæjarstjóri Norðurþings segir forvinnu í gangi Löng forsaga » Áform um stóriðju við Húsa- vík hafa verið uppi í mörg ár. » Alcoa og fleiri aðilar sýndu áhuga á að reisa þar álver en ekkert varð af því. » Deilt hefur verið um orku- vinnslu á háhitasvæðum í Þeistareykjum og víðar í S- Þingeyjarsýslu. Ennfremur er óvíst hve mikla orku er hægt að fá frá gufuaflsvirkjunum á svæðinu. Bergur Elías Ágústsson Iðnaðarlóðir á Bakka PCC - kísilver 22 ha lóð 130 störf Thorsil - kísilver 22 ha lóð 150 störf Saint Gobain - kísilkarbíðverksm. 12 ha lóð 69 störf Fleiri fyrirtæki hafa óskað eftir lóð Svæðið er alls um 200 ha Til Húsavíkur N or ðu rv eg ur Grunnkort/Loftmyndir ehf. H a u ku r 5 .1 3 Finnur Árnason rekstrarhagfræðingur finnur@kontakt.is Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, lögg. verðbr.- og fasteignasali, brynhildur@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Jens Ingólfsson rekstrarhagfræðingur, jens@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hrl. sigurdur@kontakt.is Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is Spennandi hótelverkefni að Arnarholti á Kjalarnesi. Möguleiki á allt• að 100 herbergjum í nýju hóteli. Hagstæður leigusamningur. Adventure Car Rental. Vinsæl bílaleiga í fullum rekstri með 25• velbúna jeppa í útleigu. Fullbúið verkstæði, tvö lén, tvær heimasíður og fullkomið bókunarkerfi. Stórt þvottahús og efnalaug með móttökustaði víðsvegar um• höfuðborgarsvæðið. Pisa Guesthouse & Restaurant í Lækjargötu með 14 herbergjum og• ítölskum veitingastað í eigin húsnæði. Hagstæð áhvílandi lán. Stórt og rótgróið iðnfyrirtæki sem byggir mest á útflutningi. Ársvelta• 700 mkr. EBITDA 70 mkr. Litlar sem engar skuldir. Stærsta heildverslun landsins á sínu sviði. Áhugasamir verða að• sýna fram á fjárfestingagetu upp á a.m.k. 500 mkr. til að fá nánari upplýsingar. Stórt innflutningsfyrirtæki með góð umboð í tæknivörum fyrir• sjávarútveg. Ársvelta 800 mkr. EBITDA 70 mkr. Eitt þekktasta glerfyrirtæki landsins. Ársvelta 400 mkr.• Þekkt heildverslun með sérvörur. Ársvelta 300 mkr. EBITDA 50 mkr.• Miðbæjarradíó. Spennandi heildverslun og verslun með innflutning• á íhlutum, aukahlutum, köplum, verkfærum og mörgu fleira á rafeindasviði. Stöðug velta um 70 mkr. og góð afkoma. Sjá nánar á www.mbr.is Rótgróin, sérhæfð heildverslun með vélar og tæki. Ársvelta 200 mkr.• EBITDA 20 mkr. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Íslenska ríkið getur einhliða tekið sér skipulagsvald á Reykjavíkurflugvelli í Vatnsmýrinni að mati Trausta Fann- ars Valssonar, lektors við lagadeild Háskóla Íslands. „Skipulagsvald sveitarfélaga byggir á lögum og þeim getur Alþingi breytt. Við höfum dæmi af friðlýstum svæðum þar sem um- hverfisráðherra hefur verið falið vald til að setja takmarkanir eða taka ákvarðanir sem hafa áhrif á skipu- lag,“ segir Trausti en hann bendir á að í 78. gr. stjórnarskrárinnar komi það skýrt fram að sveitarfélög skuli ráða sér sjálf eftir því sem lög ákveða. „Það eina sem þarf að fullnægja er að breytingin sé gerð með lögum.“ Möguleg bótaskylda „Þegar hið opinbera tekur land með skipulagsvaldi, og það tekið und- ir ákveðin not, getur reynt á bóta- skyldu gagnvart þeim sem á landið. Það er eitthvað sem kæmi til skoð- unar ef þingið takmarkar not Reykja- víkurborgar, sem á hluta af flugvall- arsvæðinu, til að nýta svæðið í eitthvað annað,“ segir Trausti. Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður umhverfis- og samgöngunefndar, hyggst leggja fram frumvarp um að skipulagsvald yfir Reykjavíkurflug- velli færist frá borginni til ríkisins. Mikil óánægja er með áform Reykja- víkurborgar um að rífa flugvöllinn og hafa hátt í 66 þúsund einstaklingar skrifað undir mótmælalista gegn áformum borgarinnar. Telur ríkið geta tekið valdið af borginni  Eina skilyrðið fyrir færslu skipulagsvalds er lagabreyting „Skipulagsvald sveitarfélaga bygg- ir á lögum og þeim getur Alþingi breytt.“ Trausti Fannar Valsson Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í skóla- og frístundaráði segja að til- lögur starfshóps ráðsins um samráð við foreldra þegar kemur að ráðn- ingu á skólastjórum gangi of skammt og feli ekki í sér raunveru- legt samráð. Meirihlutinn sam- þykkti hins vegar tillögur starfs- hópsins og kvaðst undrandi á að minnihlutinn samþykkti ekki „þetta jákvæða skref“ eftir því sem fram kemur í fundargerð skóla- og frí- stundaráðs. „Fyrir rúmu ári lagði ég fram til- lögu sem fól í sér að haldinn yrði fundur með foreldrum þar sem um- sækjendur kæmu og kynntu sín stefnumál. Í framhaldinu gætu for- eldrar komið sínum skoðunum á framfæri við þá sem tækju ákvörð- unina en víða erlendis er haft sam- ráð við foreldra um ráðningu skóla- stjóra. Þessi hugmynd hlaut engar sérstakar viðtökur og málinu var vísað inn í starfshóp sem skilaði síð- an af sér tillögu sem gengur svo skammt að varla er hægt að kalla hana hænufet,“ segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokks. „Tillagan felur í sér að þegar auglýst er eftir skólastjóra fái skólaráðið, þar sem for- eldrar hafa tvo fulltrúa af níu, að hitta embættis- mann og koma með ábendingar um starfsauglýsinguna en embætt- ismaðurinn ræður hvort hann taki tillit til ábendinganna. Eftir það fá foreldrar enga frekari aðkomu að ráðningarferlinu.“ Kjartan kveðst finna mikinn meðbyr með sínum hugmyndum. „Það er mikilvægt að þessi umræða fari fram en það er ekki ólíklegt að þetta geti orðið eitt af okkar kosn- ingaloforðum fyrir næsta vor,“ seg- ir Kjartan. mariamargret@mbl.is Foreldrar komi að ráðningu skólastjóra Kjartan Magnússon  Tillaga starfshóps varla hænuskref

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.