Morgunblaðið - 09.09.2013, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 09.09.2013, Blaðsíða 40
MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 252. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Sló fjórtán ára dreng 2. Gangnamaður lést í Skíðadal 3. Í lífshættu í Reynisfjöru 4. 15-20 hvalir við Bug »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Páll Óskar og Monika hörpuleikari halda tónleika í Café Flóru, í Grasa- garðinum í Laugardal, á miðvikudag og fimmtudag. Á efnisskránni eru lög sem þau hafa spilað saman, auk laga Palla í útsetningum fyrir hörpu. Morgunblaðið/Golli Páll Óskar og Monika með tónleika í vikunni  Á laugardag var opnuð í sal Ís- lenskrar grafíkur í Tryggvagötu 17 sýning á verkum 12 danskra grafík- listamanna. Sýn- ingin er liður í samvinnuverkefni félagsmanna í Ís- lenskri grafík og grafíklistamanna í Næstved. Sýningin stendur til 22. september og opið verður fimmtu- daga til sunnudaga frá kl. 14-18. Danskir grafíklista- menn sýna hérlendis  Hljómsveitin Snorri Helgason gefur út sína þriðju plötu, Autumn Skies, 13. september nk. Af því til- efni mun sveitin blása til útgáfutónleika í Fríkirkj- unni í Reykjavík mið- vikudagskvöld 18. sept. kl. 20. Tónlistarmenn- irnir Skúli Sverrisson og Óskar Guðjónsson hita upp. Miðasla á midi.is Hljómsveitin Snorri Helgason fagnar plötu Á þriðjudag Vaxandi suðaustanátt, 10-18 m/s og rigning sunnan- og vestantil seinnipartinn. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast á Norðurlandi. Á miðvikudag Suðvestan 10-15 m/s vestanlands og rigning eða súld, en 5-10,léttskýjað á austurhelmingi landsins. Hiti 8-15 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 5-13 m/s. Víða dálítil væta, en úrkomulítið norðaustantil. Hiti 8-18 stig, hlýjast norðaustanlands. VEÐUR Spennandi lokaumferð er framundan í riðlakeppni Evrópumótsins í körfu- knattleik í Slóveníu í dag. Sterk lið eru þegar úr leik en baráttan er í algleymingi hjá öðrum þar sem leik- menn liðanna munu selja sig dýrt til þess að tryggja sér og sínum sæti í milli- riðlakeppninni sem hefst á miðvikudag. Tólf þjóðir halda áfram en jafnmargar fara heim á morgun. »8 Spenna í loka- umferðinni „Fyrsta stigið er í húsi. Það skiptir miklu máli fyrir nýliða í deildinni að brjóta ísinn og krækja í fyrsta stigið,“ sagði Bjarki Már Elís- son, handknattleiks- maður hjá Eisenach, eftir jafntefli við Lemgo í þýsku 1. deildinni í hand- knattleik um helgina. Bjarki Már fór á kost- um í leiknum og skoraði m.a. átta mörk úr jafnmörgum skotum. »7 Fyrsta stigið skiptir ný- liða deildarinnar máli „Það gerist ósjálfrátt að menn fara aðeins að reikna og skoða þessi „ef“ og „gæti“ þegar staðan er svona. En ef við vinnum ekki þessa leiki sem framundan eru þurfum við ekkert að vera að reikna mikið,“ segir Eiður Smári Guðjohnsen spurður hvort leikmenn íslenska landsliðsins velti mikið fyrir sér möguleikanum á að komast í lokakeppni HM. »1 Þarf ekki að reikna mik- ið ef við vinnum ekki ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Ef fjármagn fæst munum við að sjálfsögðu halda rannsókninni áfram, það er mikil vinna eftir og efniviður- inn nægur,“ segir Margrét Hrönn Hallmundsdóttir, fornleifafræðingur og stjórnandi rannsóknarinnar Arn- arfjörður á miðöldum, en rann- sóknum sumarsins lauk um helgina á Hrafnseyri hjá fornleifadeild Nátt- úrustofu Vestfjarða. Margrét og fé- lagar voru einnig að störfum í sumar á bænum Auðkúlu þar sem grafinn var könnunarskurður. Komu þar í ljós skáli og minjar um mikla járn- vinnslu sem gæti verið frá landnáms- öld. „Við fundum einnig mikið af gjalli aðeins ofan við skálann, sem hefur verið tappað af við bræðslu.“ Kirkjugarður frá frumkristni Rannsóknin í Arnarfirði hófst sum- arið 2011. Þá og í fyrra var farið að grafa í gamla kirkjugarðinum á Hrafnseyri, við hlið núverandi kirkju, en í garðinum er greinileg rúst af kirkju. Sýni fundust úr einstaklingi sem hafði verið jarðaður við kirkju- garðsvegg og aldursgreining leiddi í ljós að maðurinn hefði látist á fyrri hluta 11. aldar. Margrét segir því allt benda til þess að kirkja og kirkju- garður hafi verið á Hrafnseyri frá frumkristni, eða skömmu eftir kristnitökuna árið 1000. Fleiri heilleg sýni hafa ekki fundist en grafirnar eru grunnar og beinin hafa varðveist mjög illa. Að sögn Margrétar er gamli kirkjugarðurinn sérstakur fyrir þá sök að hann er ferkantaður en á þess- um tímum voru kirkjugarðar yfirleitt hringlaga. Einnig fundust í fyrra jarðhýsi og tvær eldunarholur, svonefndir seyð- ar. Reyndist önnur þeirra vera kola- gröf. Var hún vel djúp og í greftrinum í sumar komu í ljós frekar heilleg við- arkol. Margrét segir jarðhýsið vera nokkuð stórt, eða sex metra að lengd og niðurgrafið um einn metra. Benda þessar minjar einnig til þess að búseta hefur verið á Hrafnseyri fyrr en talið var, eða allt frá 10. eða 11. öld. „Hér hefur greinilega verið búseta, við höfum fundið jarðhýsin en eigum bara eftir að finna skálann,“ segir Margrét en næsta vor stendur til að gera svonefnda fjarkönnun með jarðsjármælingatækjum þannig að staðsetja megi mögulegan skála. Búið er að skrá fleiri jarðir í Arnar- firði sem hafa að geyma fornminjar neðanjarðar. Marmið rannsóknar- innar er einmitt að kanna búsetu- þróun í firðinum frá landnámi fram á miðaldir. Auk Margrétar hafa Rúna Þráinsdóttir fornleifafræðingur og Scott Riddell fornleifafræðinemi unn- ið við rannsóknina. Þeim til aðstoðar undir lok sumars voru átta breskir nemendur í fornleifafræðum. Byggðin eldri en talið var  Fornminjar frá landnámsöld í Arnarfirði Ljósmyndir/Margrét Hrönn Hrafnseyri Fornleifafræðingar að störfum á Hrafnseyri við Arnarfjörð í sumar. Rannsóknin heldur áfram. Uppgröftur Þrír fornleifafræðingar á vegum fornleifadeildar Náttúrustofu Vestfjarða hafa unnið að rannsókninni, auk breskra fornleifafræðinema.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.