Morgunblaðið - 09.09.2013, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 09.09.2013, Blaðsíða 30
30 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2013 Ferðamannatíminn stendur enn og því reikna ég með að verðaí vinnu í dag. Alls gerum við út sjö skip og báta. Hildur, einskonnortan okkar, verður á Akureyri. Það er því sennilegt að dagurinn beri í skauti sér að við rennum okkur út Eyjafjörð. Ég hlakka til, það er gaman að sigla á skútu sem líður blítt og létt með byr í seglum,“ segir Hörður Sigurbjarnarson á Húsavík sem er 61 árs í dag. Hörður er Þingeyingur að uppruna. Um tvítugt fór hann suður til Reykjavíkur í vélstjórnarnám. Með þá menntun sneri hann aftur til baka og starfaði í Kísiliðjunni og Kröfluvirkjun frá 1976 og í tuttugu ár eftir það. „Síðan komu ný tækifæri. Okkur Árna bróður mínum rann til rifja að gömlu íslensku eikarbátarnir færu í stórum stíl á bálið. Keyptum því einn slíkan, Knörrinn, árið 1994 og gerðum upp. Og til að hafa fyrir kostnaði fórum við að bjóða fólki í útsýnissigl- ingar eins og hvalaskoðun. Úr því varð fyrirtækið Norðursigling til,“ segir Hörður Húsavík hefur stundum og réttilega verið nefndur hvalaskoð- unarbær Norður-Atlantshafsins. Tugir þúsunda ferðamanna koma norður á ári hverju til þess að sjá hval. „Fyrir helgina sáust í einni ferðinni fjórir hnúfubakar, tvær hrefnur og höfrungar,“ segir Hörð- ur sem er kvæntur Sigríði Einarsdóttur og eiga þau þrjú börn. sbs@mbl.is Hörður Sigurbjarnarson er 61 árs í dag Morgunblaðið/Sigurður Bogi Húsavík Til að hafa fyrir kostnaði fórum við að bjóða fólki í útsýnis- siglingar eins og hvalaskoðun,“ segir Hörður Sigurbjarnarson. Gaman að sigla með byr í seglum Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Jóhanna Þórkatla Eiríks- dóttir hefur haldið nokkrar tombólur og þá hefur hún einnig sungið til styrktar Rauða kross- inum. Hún hefur í allt safnað 23.800 krónum. Söfnun Hvolsvöllur Svala Ingibjörg fæddist 24. ágúst 2012, kl. 15.06. Hún vó 3.825 g og var 53 cm löng. Foreldrar hennar eru Svandís Þórhallsdóttir og Guðmundur Jón Jónsson. Nýir borgarar Egilsgata 18 Helen Una Grétarsdóttir fæddist 22. nóvember kl. 9.36. Hún vó 3.180 g og var 47 cm löng. Foreldrar hennar eru Sara Ósk Þrúðmarsdóttir og Grétar Birgisson. H eiður fæddist í Reykjavík 9.6. 1963 og ólst upp í Hlíð- unum. Hún var í Ísaksskóla, Álfta- mýrarskóla og Hlíðaskóla, stundaði nám við Verzlunarskóla Íslands og lauk þaðan stúdentsprófi 1983. Heiður byrjaði ung að afgreiða hjá föður sínum í matvöruverslun- inni Helgakjöri sem var við Hamra- hlíðina. Hún stundaði síðan versl- unarstörf með skóla til 1979 er hún hóf störf í Útvegsbankanum við Hlemm. Þar starfaði hún með skóla og eftir stúdentspróf til 1985. Allt í öllu á Sjónvarpinu Heiður hóf störf hjá Sjónvarpinu 1985, fyrst sem ritari framkvæmda- stjóra í þrjú ár og sinnti síðan ýms- um áhugaverðum störfum við stofn- unina. Hún lærði förðun í London Heiður Ósk Helgadóttir tæknimaður – 50 ára Heiður og Hjalti Skötuhjú og starfsmenn kvikmyndafyrirtækisins HS Tókatækni á Héraði. Í tæknivinnu og kvik- myndagerð á Héraði Frænkufans Kátt á hjalla hjá uppáhalds frænkunni og systkinadætrunum. Tunguhálsi 7 110 Reykjavík 554 1989 www.gardlist.is Trjáfelling og stubba- tæting FJARLÆGJUM LÍTIL SEM STÓR TRÉ OG TÆTUM TRJÁSTOFNA. Við búum yfir mikilli reynslu og frábærum tækjakosti þegar kemur að því að fella stór sem smá tré. Stubbatætarinn er svo frábær lausn til þess að losna við trjástofna sem standa eftir í garðinum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.