Morgunblaðið - 21.09.2013, Side 4

Morgunblaðið - 21.09.2013, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2013 flugvelli í Vatnsmýri árið 2030. Í samtali við mbl.is sagði Jón að mál- efnalega yrði tekið á áskoruninni en að hann hefði engu að síður búist við fleiri undirskriftum. Gera alvarlegar athugasemdir Þá hafa Íbúasamtök Miðborgar skilað inn athugasemdum en sam- tökin mótmæla harðlega áformum um að heimila fimm hæða byggingar meðfram norðanverðri strandlengj- unni í miðborginni. „Slíkar byggingar rýra gæði þeirra íbúðarhverfa sem fyrir eru og eru almennt ekki í samræmi við eldri byggð. Nægir hér að benda á skipu- lag við Skúlagötu þar sem háhýsi byrgja sýn og hafa rýrt gæði byggð- arinnar sem stendur nú í hvarfi þeirra bygginga,“ segir í at- hugasemdum samtakanna. Leggja þau til að á svæðinu innan Hring- brautar verði ekki heimiluð meiri hæð bygginga en tveggja hæða hús með risi. Sverrir Þórarinn Sverrisson, for- maður samtakanna, segir að í skipu- lagstillögunni sé gert ráð fyrir að heimila megi rekstur veitingastaða í flokki III með takmarkaðar heim- ildir á svokölluðu svæði M1c. Ný skil- greining á þessu svæði mun því fela í sér að efri hluti Frakkastígs og stórt svæði neðan Hverfisgötu, sem áður voru skilgreind sem íbúðarsvæði, verði opnuð fyrir veitingahúsarekst- ur. „Með þessari tillögu er hagsmuna íbúa ekki gætt en hagsmunir áfeng- issala augljóslega hafðir í huga.“ Sverrir segir að borgin geti sett regl- ur sem takmarki afgreiðslutíma veit- ingastaða, en hann bendir jafnframt á að ef þessi stefnumörkun verði staðfest í aðalskipulagi muni það auka ónæði íbúa miðborgarinnar. Safnað á netinu og gengið í hús  Frestur til að gera athugasemdir við tillögu að nýju aðalskipulagi Reykjavíkur rann út í gær  Íbúar Húsahverfis í Grafarvogi mótmæla  Jón Gnarr tók við rúmlega 69 þúsund undirskriftum Morgunblaðið/Rósa Braga Undirskriftir Jón Gnarr tók í gær við rúmlega 69 þúsund undirskriftum þar sem því er mótmælt að Reykjavíkur- flugvöllur verði fluttur úr Vatnsmýri. Samtökin Hjartað í Vatnsmýri stóðu fyrir undirskriftasöfnuninni. Húsahverfi Elvar Hólm Ríkharðsson afhenti Ólöfu Örvarsdóttur, skipu- lagsstjóra Reykjavíkurborgar, athugasemdir íbúa Húsahverfis í gær. Knattspyrnufélagið Fram segir það mikil vonbrigði að til standi að breyta fyrirhuguðum áform- um um byggð í Úlfarsárdal úr því að vera að lágmarki þrjú þúsund íbúða byggð í að vera aðeins 1.100-1.200 íbúðir. Slíkt muni líklega leiða til þess að í stað níu til tíu þúsunda íbúðar- byggðar verði einungis byggð fyrir þrjú þúsund manns. Í tilkynningu segir að til að íþróttafélög eins og Fram geti þrifist til langrar framtíðar þurfi stærra en átta þúsund manna hverfi. „Reynsla félagsins og annarra íþróttafélaga er að sá fjöldi íbúa er ekki nægjanlegur til að bera uppi blómlegt íþróttastarf kvenna og karla þegar horft er til langs tíma.“ Framarar mótmæla GERA ATHUGASEMDIRBAKSVIÐ Kristinn Ingi Jónsson kij@mbl.is Frestur til að gera athugasemdir við tillögu að aðalskipulagi Reykjavík- urborgar rann út á miðnætti í gær, föstudag. Fjölmargir borgarbúar, hagsmunaaðilar og íbúasamtök gerðu athugasemdir við skipulagið sem á að gilda til ársins 2030. Elvar Hólm Ríkharðsson er einn þeirra en hann afhenti í gær, fyrir hönd íbúa Húsahverfis í Grafarvogi, Ólöfu Örvarsdóttur, skipulagsstjóra Reykjavíkurborgar, undirskriftir íbúanna. Eru þeir ekki ánægðir með tillöguna. „Við gengum í hús eitt kvöldið og söfnuðum 121 undirskrift. Und- irtektirnar voru mjög góðar og nán- ast allir sem skrifuðu undir.“ Hann segir íbúa hverfisins almennt vera á móti því að þetta mikla svæði fari undir byggð og sér í lagi undir versl- unarstarfsemi. Í tillögum að skipu- laginu er gert ráð fyrir gjörbreyt- ingu á Keldum en áformað er að reisa þar 50 þúsund fermetra at- vinnuhúsnæði og 400 íbúðir. „Það eru vissulega vonbrigði að svona grænt svæði, þar sem mikið er af skógrækt og plöntum, skuli vera hugsað sem íbúðarbyggð,“ segir Elv- ar. Starfsmenn Tilraunastöðvar Há- skóla Íslands á Keldum taka undir með íbúunum og segja mikilvægt að vernda grænu svæðin. „Með góðu skipulagi gætu þessi svæði verið ein- stök og ákjósanleg útivistarsvæði.“ Ekki liggur fyrir hve margar at- hugasemdir bárust en tillagan var fyrst auglýst í byrjun júnímánaðar. Bjóst við fleiri undirskriftum Jón Gnarr, borgarstjóri Reykja- víkur, tók í gær við rúmlega 69 þús- und undirskrifum þar sem því er mótmælt að Reykjavíkurflugvöllur verði fluttur úr Vatnsmýri. Rúmlega 20 þúsund Reykvíkingar skrifuðu undir áskorunina en tillagan að að- alskipulaginu gerir ekki ráð fyrir Morgunblaðið/Eggert Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Fulltrúar 16 verkalýðsfélaga sem veitt hafa Starfsgreinasambandinu (SGS) samningsumboð í komandi kjaraviðræðum, gera kröfu um það í sameiginlegri kröfugerð að samið verði til skamms tíma eða til sex til tólf mánaða vegna óvissunnar í efna- hagsmálum. Samninganefnd SGS lauk í gær tveggja daga fundi þar sem mótuð var sameiginleg kröfugerð sem verð- ur í framhaldinu lögð fyrir Samtök atvinnulífsins. ,,Við viljum að sótt verði fram í út- flutningsgreinunum, s.s. fiskvinnsl- unni og ferðaþjónustunni. Við viljum líka að í skammtímasamningi verði farin blönduð leið krónutöluhækk- ana og prósentuhækkunar,“ segir Björn Snæbjörnsson, formaður SGS, og bætir við að sérstök áhersla verði lögð á hækkun lægstu launa. Félögin vilja einnig að skattleys- ismörk verði hækkuð og að gripið verði til aðgerða varðandi félagslegt húsnæði o.fl. ,,Það var mjög góð samstaða á þessum fundi og menn mjög samstiga. En menn eru sam- mála um að ekki sé hægt að fara í lengri samninga m.a. vegna óviss- unnar í efnahagsmálunum,“ segir hann. Hafa gert viðræðuáætlanir Starfsgreinasambandið hefur ekki gengið frá viðræðuáætlun við við- semjendur þess en það hafa bæði VR og Samiðn nú gert. Samkvæmt viðræðuáætlun VR eiga viðræður um kaupliði að hefjast eigi síðar en í lok október og er markmiðið að ljúka samningsgerð fyrir lok nóvember. Undirritun viðræðuáætlunarinnar markar formlegt upphaf samninga- viðræðna. Umræður verða byggðar á greiningum samstarfsnefndar heildarsamtakanna á vinnumark- aðnum um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga. Forysta Samiðnar og SA undirrit- uðu í fyrradag viðræðuáætlun, sem hefur að markmiði að samningsgerð skuli lokið fyrir lok nóvember. Fyrir miðjan október eiga viðræður að vera hafnar um ákvæði er lúta að öðru en kaupliðum og ekki síðar en í lok október um launaliði. Á kjara- málaráðstefnu Samiðnar í gær var samþykkt að fela samninganefnd fé- lagsins að vinna að sátt um stuttan samningstíma í komandi viðræðum. Hilmar Harðarson, formaður Sam- iðnar, segir það vænlegast í ljósi þess að efnahagsstefna stjórnvalda sé ekki komin fram að fullu. Beina sjónum að útflutnings- greinunum í kjaraviðræðum  SGS vill semja til 6-12 mánaða og blöndu krónutölu- og prósentuhækkana Morgunblaðið/Eggert Kjör Samningar á almennum vinnumarkaði renna út í lok nóvember. SGS ætlar að sækja fram í útflutningsgreinunum, s.s. ferðaþjónustu. Undirbúa viðræður » 16 stéttarfélög hafa veitt Starfsgreinasambandinu samningsumboð og gengið hefur verið frá sameiginlegri kröfugerð. » Flóafélögin svonefndu, Efl- ing – stéttarfélag, Hlíf í Hafn- arfirði og Verkalýðs- og sjó- mannafélag Keflavíkur og nágrennis semja sér. » Samiðn og VR hafa þegar undirritað viðræðuáætlanir við Samtök atvinnulífsins. Aðalmeðferð fór fram í gær í máli ákæruvaldsins gegn Páli Heimis- syni, sem gegndi stöðu ritara íhaldshóps Norðurlandaráðs. Hann er ákærður fyrir umboðssvik í tengslum við notkun á greiðslu- korti Sjálfstæðisflokksins. Páll er ákærður fyrir að misnota aðstöðu sína og skuldbinda Sjálf- stæðisflokkinn þegar hann í 321 skipti notaði kreditkort flokksins til úttekta á reiðufé, kaupa á vörum og þjónustu fyrir 19,4 milljónir króna. Úttektirnar voru á árunum 2009- 2011. Við aðalmeðferð málsins í gær sagðist hann hafa haft fulla heimild til kortanotkunarinnar sem starfs- maður Sjálfstæðisflokksins en hann var með starfsaðstöðu í Valhöll. Jónmundur Guðmarsson, fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, og Andri Óttarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri, sögðu báðir fyrir dómi að hann hefði ekki verið starfsmaður flokksins. Ítarlega er fjallað um málið á mbl.is. Morgunblaðið/RAX Valhöll Þar hafði ákærði starfsstöð. Kveðst hafa haft heimild til að nota greiðslukortið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.