Morgunblaðið - 21.09.2013, Side 11
Morgunblaðið/RAX
Flugslys Sérstaða Flugbjörgunarsveitarinnar hefur haldist frá því hún var stofnuð árið 1950. Hér má sjá björg-
unarsveitamenn hlúa að slösuðum þegar tvær vélar fórust með fáeinna klst millibili á Mosfellsheiði árið 1979.
una út árið 2015, á 65 ára afmæli
sveitarinnar.
Hver var Gústi skór?
Flestir, ef ekki allir í Flug-
björgunarsveitinni, hafa einhvern
tíma heyrt minnst á Gústa skó. Það
er stutt síðan Jónas fékk útskýringu
á þessu viðurnefni sem hann heyrði
fyrst nefnt fyrir 27 árum. „Ég
heyrði útskýringuna bara fyrst fyrir
viku þegar ég var að gramsa í
þessu. Þá ákvað þessi Gústi skór á
sínum tíma, fyrir um fimmtíu árum,
að Flugbjörgunarsveitarmenn
þyrftu betri skó. Hann gekk frá
samningi við skóframleiðanda á Ak-
ureyri um að smíða og sauma
gönguskó á Flugbjörgunarsveitina.
Alvöru leðurskó. Þess vegna fékk
hann þetta viðurnefni.“ Það skorti
ekki frumkvæðið og áræðið hjá
mönnunum í árdaga Flugbjörg-
unarsveitarinnar og er Gústi skór
eitt fjölmargra dæma um það.
Með talstöð á bakinu
Einn velunnari sveitarinnar
býr erlendis í dag en fylgist vand-
lega með starfinu. Hann á heiðurinn
af því að hafa fyrir margt löngu tek-
ið sig til og smíðað talstöðvar fyrir
leitarhópa svo þeir gætu átt í sam-
skiptum sín á milli við erfiðar að-
stæður. „Það var búinn til risastór
bakpoki og upp úr honum stóð loft-
net marga metra upp í loftið og
þetta var sett á einn í hverjum hópi
þegar farið var í útköll og sveiflaðist
loftnetið svo mikið til að menn urðu
hálfsjóveikir við að ganga með
þetta. Ef menn voguðu sér að halla
sér fram eða aftur þá duttu þeir og
þurftu aðstoð við að standa upp aft-
ur. Menn voru að tala um að þetta
hafi verið um tuttugu kíló og svo
kemur sveiflan á loftnetinu þarna
inn. Menn gerðu nú ýmislegt til að
bjarga sér,“ segir Jónas.
Eldhugar og
uppfinningamenn
Þessar talstöðvar voru notaðar
um árabil og óhætt að fullyrða að
um íslenskt hugvit hafi verið að
ræða. Engu öðru var til að dreifa og
því bjuggu menn það til sem þurfti.
Þegar farið var í útköll tók oft lang-
an tíma að komast á staðinn og ekki
hægt að hafa tíð vaktaskipti. „Það
var verið að segja mér sögu af
manni sem týndist í Bláfjöllum í
kringum 1970. Leitað var í viku og
þá fóru menn bara upp í Bláfjöll og
leituðu allan daginn og fram á nótt.
Svo var ekið í bæinn, og það tók nú
engan smá tíma, svo fengu menn sér
að borða, fóru í sturtu og fengu sér
kríu í svona tvo tíma og fóru svo aft-
ur að leita.“ Þannig var leitinni hátt-
að og mikið í lagt. Þetta er með
breyttu sniði í dag. Það tekur um
tuttugu mínútur að skjótast úr bæn-
um og upp í Bláfjöll og það eru ekki
eingöngu farartækin sem eru breytt
heldur einnig fatnaðurinn. Jónas
efast um að fullþjálfaðir björgunar-
sveitarmenn í dag gætu hreyft sig
hratt í þeim fötum sem notuð voru í
þá daga. Alla vega ekki án dálítils
undirbúnings.
Sérstaðan er enn til staðar
Á fyrsta starfsári Flugbjörg-
unarsveitarinnar í Reykjavík voru
útköllin sex, þar af þrjú vegna leitar
að flugvélum. Fyrsta leitin var að
Glitfaxa, DC-3 vél Flugfélags Ís-
lands. Hún fórst með tuttugu manns
innanborðs í aðflugi að
Reykjavíkurflugvelli í lok janúar ár-
ið 1951. Þá hafði Flugbjörgunar-
sveitin starfað í tvo mánuði. Í dag
eru útköllin sjaldan tengd flugi en
þó heldur sveitin sérstöðu sinni með
tengingu við flugið. RNF-hópurinn
er sérstaklega þjálfaður fyrir útköll
vegna flugslysa, fallhlífahópurinn er
sá eini sinnar tegundar hér á landi
og að lokum má nefna fis-leitarhóp
sem stofnaður var fyrir tveimur ár-
um. Sveitin er með samning við Fis-
félagið um að koma henni til að-
stoðar við leit. Þá fer leitarmaður
frá sveitinni með sem er sérþjálf-
aður í leit úr lofti. Kostir við leit úr
fisi eru meðal annars þeir að unnt er
að fljúga mjög hægt og lágt yfir
leitarsvæði og þannig má til dæmis
koma auga á fótspor og rekja ferðir
týnds fólks úr lofti. Þeim sem vilja
leggja söguritara þessarar merku
sveitar lið, annaðhvort með sögum,
myndum eða munum, er bent á að
hafa samband við Jónas Guðmunds-
son í gegnum netfangið:
jonas@fbsr.is.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2013
Dagana 23.-25.september n.k eru
stjórnendur og leiðtogar hvarvetna
úr atvinnulífinu hvattir til að setja
upp rautt nef og finna trúðinn í sjálf-
um sér. Um er að ræða leiðtoga- og
samskiptafærninámskeið sem nefn-
ist Ertu að grínast? þar sem tækni
trúðsins er beitt til að auka leiðtoga-
og samskiptafærni einstaklinga.
Námskeiðið byggist á áralangri hefð
úr leikhúsinu. Leiðbeinandi í tækn-
inni er trúðameistarinn Rafael Bian-
ciotto sem er Íslendingum kunnur en
hann hefur áður haldið námskeið fyr-
ir leikara hér á landi ásamt því að
kenna í Listaháskólanum. Hann leik-
stýrði ennfremur tveimur sýningum,
Dauðasyndunum og Þrettándakvöldi,
í stóru leikhúsunum hér.
Sterkir leiðtogar hafa
sterka nærveru
Tinna Lind Gunnarsdóttir útskrif-
aðist með MPM gráðu frá Háskól-
anum í Reykjavík síðastliðið vor.
Lokaverkefni hennar kallaðist „The
Project Manager as a Clown“ en þar
skoðaði hún hvernig hægt væri að
nýta tækni trúðsins til að auka leið-
toga- og samskiptafærni verkefna-
stjóra. Tinna mun á námskeiðinu
miðla rannsókn sinni á efninu og leið-
beina þátttakendum í að tengja við
sinn starfsvettvang. Tinna hélt erindi
um efnið á norrænni verkefnastjórn-
unarráðstefnu í Hörpu í byrjun sept-
ember og henni hefur ennfremur ver-
ið boðið að halda erindi þessa efnis á
ráðstefnu alþjóðlega verkefnastjórn-
unarfélagsins (IPMA) í Króatíu í byrj-
un október. Hún segir mikinn fjársjóð
vera falinn innan veggja leikhússins
sem vert sé fyrir leiðtoga úr atvinnu-
lífinu að leita í. Oft er talað um að
sterkir leiðtogar hafi sterka nærveru
en það er nokkuð sem leikarar eru
einmitt mjög meðvitaðir um að þjálfa
með sér. Nánari upplýsingar má fá
með því að senda tölvupóst á net-
fangið: tinnalind@mac.com
Trúðatækni eflir leiðtoga- og samskiptafærni stjórnenda
Trúðar Leiðtogar úr atvinnulífinu leita í fjársjóð innan veggja leikhússins.
Að finna trúðinn í sjálfum sér
Kínverska er töluð af tæplega fimmt-
ungi veraldarbúa og þykir sífellt eftir-
sóknarverðara að kunna hana með
auknu vægi Kína í heiminum. Þótt
vissulega megi finna fjölmargar kín-
verskar mállýskur er stöðluð kín-
verska (mandarín eða putonghua)
alls staðar gjaldgeng í Kína og raunar
víða annars staðar.
Námskeið í kínversku sem nú fer af
stað hjá Endurmenntun veitir inn-
gang að þessu heillandi tungumáli.
Kennslan fer fram á ensku og nem-
endur öðlast grundvallarþekkingu á
málinu, færni í framburði og læra að
tjá sig með einföldum hætti um hag-
nýt efni. Einnig verða kínversk tákn
kynnt til sögunnar.
Skráningarfrestur rennur út á
morgun, sunnudag.
Kennari verður Liu Kailiang, sendi-
kennari frá Ningbo-háskóla í Kína.
Námskeiðið verður í tíu skipti mánu-
daga og fimmtudaga 30. sept. til 31.
okt. klukkan 20.15 - 22.15. Kennslan
fer fram hjá Endurmenntun HÍ, Dun-
haga 7. Nánari lýsing og skráning á
vefsíðunni www.endurmenntun.is.
Námskeið í kínversku fyrir byrjendur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bardagalist frá Kína Kynning sem
fram fór á Háskólatorgi á þessu ári.
Nú er lag að læra kínversku
og horfa til framtíðarinnar
Staða mála
og væntanlegir
kjarasamningar
RAFIÐNAÐARSAMBAND ÍSLANDS
Stórhöfða 31, sími: 580 5200, rafis.is
Fundir í september 2013
Mánudagur 23. september
Sauðaárkrókur kl. 12.00 Kaffi Krókur
Mánudagur 23. september
Akranes kl. 17.00 Gamla kaupfélagið
Þriðjudagur 24. september
Reykjavík kl. 12.00 Grand hótel
Fimmtudagur 26. september
Ísafjörður kl. 12.00 Hótel Ísafjörður
Föstudagur 27. september
Selfoss kl. 12.00 Hótel Selfoss
Fundaferð Rafiðnaðarsambands Íslands 2013