Morgunblaðið - 21.09.2013, Qupperneq 19
an fyrir makrílinn með Asdic-tæki og
búnaði til veiðanna. Aflaverðmætið í
ár nái ekki þeirri tölu, en næsta ár
standi þeir betur að vígi og séu
reynslunni ríkari. Ekki sé spurning
að makrílveiðar séu fínt verkefni fyr-
ir smábátana, sérstaklega þá kvóta-
litlu. Bátarnir komi með úrvals-
hráefni að landi og þeir á Öðlingi
hafa lagt mikla vinnu í að hafa gæðin
sem allra mest.
Þeir hafi fengið hátt í 150 krón-
ur fyrir kílóið af makríl að meðaltali
og voru í föstum viðskiptum. Nokkur
kíló af allra besta makrílnum fóru á
tæplega 300 krónur. Þeir voru með
50 króka á fimm slóðum og því yfir-
leitt með 220 króka úti í einu.
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2013
Gunnlaugur Árnason
Stykkishólmi
St. Franciskuspítalinn í Stykk-
ishólmi er bæjarbúum og öðrum
íbúum á Snæfellsnesi mikils virði og
mikilvægur öryggisþáttur í þróun
byggðar á svæðinu. Heilbrigð-
isráðherra, Kristján Þór Júlíusson
og Guðjón Brjánsson forstöðumað-
ur Heilbrigðisstofnunar Vest-
urlands heimsóttu Stykkishólm í
vikunni. Þar var þeim kynnt starf-
semi sjúkrahússins og farið yfir
hugmyndir um endurbætur á
sjúkrahúsinu.
Af því tilefni voru þeim afhentar
undirskriftir um 630 heimamanna
um stuðning við starfsemi sjúkra-
hússins og starfsfólks. Um er að
ræða yfir 80% íbúa svæðisins sem
eru yfir 18 ára aldri.
Sesselja Pálsdóttir hafði orð fyrir
þeim sem stóðu að söfnuninni og
sagði að bæjarbúar teldu löngu
tímabært að láta í ljós skoðun sína
og hug til sjúkrahússins. Dregið
hefur úr starfsemi sjúkrahússins á
undanförnum árum og hefur það
verið lokað í allt að 7 vikur að sumri
til mikilla óþæginda fyrir íbúana.
Kristján Þór þakkaði þann áhuga
og velvilja sem undirskriftirnar
sýndu. Samtakamáttur væri afl sem
skilaði árangri. Ekki vildi ráðherra
vekja miklar vonir um auknar fjár-
veitingar og lítið væri hægt að
segja fyrr en fjárlagafrumvarp fyr-
ir næsta ár liti dagsins ljós í byrjun
næsta mánaðar.
Hólmarar
styðja
sjúkrahúsið
Morgunblaðið/Gunnlaugur
Afhending Sesselja Pálsdóttir af-
henti Kristjáni Þór Júlíussyni undir-
skriftalistana í Stykkishólmi.
Lögreglu höfuðborgarsvæðisins hef-
ur ekki verið tilkynnt um fram-
kvæmdirnar við nýja ljósastýrða
gangbraut yfir Hringbraut á móts
við Sæmundargötu. Þetta segir í
svari Ólafs Bjarnasonar, samgöngu-
stjóra Reykjavíkurborgar, við fyrir-
spurn Morgunblaðsins.
Framkvæmdir eru nýhafnar við
nýju gangbrautina en ekki er mjög
langt síðan ljósastýrð gangbraut var
lögð aðeins nokkra tugi metra frá,
við Þjóðminjasafnið.
Ólafur segir að aðeins sé haft sam-
ráð við lögregluna þegar um er að
ræða meiriháttar aðgerðir í gatna-
kerfinu og aðgerðir sem lagaskylda
er að hafa samráð um.
„Hins vegar hefur verið samráð og
samvinna við Vegagerðina um fram-
kvæmdir á og við Hringbraut þar
sem Hringbraut er þjóðvegur sem
Vegagerðin á og rekur. Greiðir hún
hluta kostnaðar við gönguljósin“
segir Ólafur jafnframt.
kij@mbl.is
Morgunblaðið/Júlíus
Ljósastýrð gangbraut Það verður stutt á milli gangbrauta á Hringbraut.
Ekkert samráð
Lögreglu hefur ekki verið tilkynnt
um framkvæmdir við nýja gangbraut
Sjávarútvegsráðherra hefur
ákveðið að heimilað verði að
stunda færaveiðar á makríl á
grunnslóð til 30. september. Á
heimasíðu Landssambands
smábátaeigenda kemur fram að
sambandið óskaði eftir því við
ráðherra að veiðarnar yrðu ekki
stöðvaðar í gær eins og reglu-
gerð kvað á um.
LS hafi talið afar mikilvægt
að veiðarnar yrðu leyfðar áfram
til að afla upplýsinga um göngu
makrílsins auk stærð-
arsamsetningar og gæða. Heild-
arafli smábáta var í gær kominn
í 4.518 tonn.
Mega veiða
út mánuðinn
SMÁBÁTAR MEÐ 4.518 T. Ragnheiður Garðarsdóttir hefur starfað
sem leikskólakennari í 19 ár. Hún vinnur
mikið á gólfinu og þarf þar af leiðandi
sífellt að vera að setjast og standa upp
aftur. Ragnheiður er greind með slitgigt
og hefur fundið fyrir verkjum í hægri
mjöðminni um árabil.
"Haustið 2012 var ég í berjamó og varð svo
slæm á eftir að ég þurfti að fá sprautur og
sterk verkjalyf fyrir mjöðmina. Ég skánaði við
það en var alltaf með seyðing og verki.
Suma daga var ég þokkaleg en aðrir voru
hreint helvíti á jörð. Næturnar hafa líka í
gegnum árin verið mér erfiðar. Ég var með
eilífan seyðing í mjöðminni og niður í tá
og gat ómögulega legið á hægri hliðinni.
Ég sá best hversu slæmt ástandið var á því
hvað göngulagið mitt var orðið skelfilegt í
myndbandi frá Flórídaferð fjölskyldunnar
haustið 2011."
Öðlaðist nýtt líf
"Ég hef notað NUTRILENK GOLD síðan í
september 2012 með frábærum árangri,
og þá meina ég árangri. Í byrjun tók ég 6
töflur á dag í 2 mánuði en í dag tek ég 3
töflur á dag. Ég hef stundað æfingar í Meta-
bolic af fullum krafti síðan vorið 2013 og
tek þá aðeins meira af NUTRILENK GOLD.
Núna sef ég allar nætur og get beygt mig
án sársauka. Ég átti mjög erfitt með að
klæða mig í sokka og skó á morgnana og
þurfti að fá aðstoð. Það er allt annað í dag,
ég get bókstaflega allt! Ég er meira að
segja farin að fara í kraftgöngur á ný.
Ykkur finnst þetta kannski vera ýkt saga …
en hún er sönn. Ég öðlaðist nýtt líf með
NUTRILENK GOLD."
Nutrilenk er fáanlegt í flestum apótekum,
heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna
Skráðu þig á facebook síðuna
Nutrilenk fyrir liðina
- því getur fylgt heppni!
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
P
R
E
N
T
U
N
.
I
S
NUTRILENK - hollráð við liðkvillum. Náttúruleg bætiefni fyrir liðina
Verkirnir hreint helvíti á jörð
Hvað getur Nutrilenk
gert fyrir þig?
Heilbrigður liður
Við mikið álag og eftir því sem árin færast yfir getur
brjóskvefurinn rýrnað sem veldur því að liðirnir slitna.
Mjög margir finna fyrir óþægindum og verkjum
þegar liðfletirnir núast saman, sérstaklega í liðamó-
tum í mjöðmum , hrygg og hnjám. Þess vegna er til
mikils að vinna að styrkja liðbrjóskið á náttúrulegan
hátt.
Náttúrulegt byggingarefni fyrir
liðbrjóskið og beinin
Nutrilenk Gold er frábært byggingarefni fyrir brjóskvef
og getur minnkað liðverki, brak í liðum og stirðleika.
Inniheldur brjósk úr fiski- og hákarlabeinum sem er
öflugt byggingarefni fyrir bein og brjósk enda ríkt af
kondritíni, kondritín súlfati, kollageni og kalki.
Hentugt fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski
og slitnum liðum.
NutriLenk hefur hjálpað fjölmörgum.
NutriLenk er 100% náttúruleg vara sem er mjög
gagnleg þeim sem þjást af brjóskvefsrýrnun.
Prófið sjálf - upplifið breytinguna!
Liður með slitnum
brjóskvef
Ragnheiður Garðar
sdóttir
leikskólakennari