Morgunblaðið - 21.09.2013, Side 28
SAUÐÁRKRÓKURDAGA
HRINGFERÐ
28
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2013
eru öll náttúruleg efni fjarlægð úr
roðinu og gærunni og kemísk efni
sett í staðinn sem stoppa rotn-
unarferlið. Þannig verður úr
roðinu leður, svokallað sjáv-
arleður.“
Meirihlutinn
fer úr landi
Nánast öll framleiðslan,
eða 98% hennar, eru seld úr
landi, aðallega til Ítalíu,
Frakklands og Bandaríkj-
anna. Varan er framleidd
eftir pöntun viðskiptavin-
arins, eftir þörfum og
óskum hvers og eins.
„Þetta er hátískuvara og okkur hef-
ur tekist að ná þeirri stöðu á mark-
aðnum að vera þekkt fyrir topp-
klassavöru. Stóru hátískuhúsin
kaupa mestan hlutann; Kenzo,
Fendi, Karl Lagerfeld, Alexander
Wang, Jimmy Choo, svo einhver
nöfn séu nefnd og í flestum tilfellum
fer leðrið í fylgihluti eins og skó og
töskur, stundum í bryddingar á
fatnaði og einstaka sinnum í heila
jakka.“
Framleiðslan er kynnt á alþjóð-
legum sýningum víða um heim, en
þær sækja fulltrúar virtustu tísku-
húsanna. Á einni slíkri sýningu í
Hong Kong í apríl síðastliðnum fékk
sjávarleðrið frá Sauðárkróki við-
urkenningu sem „besta lúxusleðrið“
en Sigríður segir að um 800 fram-
leiðendur hafi komið þar til greina.
Roðið er afurð sem að öllu
jöfnu fellur til af fiskinum. Því hlýt-
ur þessi vinnsla á því, að gera úr því
verðmæti, að vera afar umhverf-
isvæn. „Við erum í rauninni að
breyta rusli í lúxusvöru. Ef við
hirðum þetta ekki er þessu yfirleitt
hent.“
Ísland er gæðastimpill
Íslenskt hráefni og staðsetn-
ingin hér á landi gefur framleiðsl-
unni líka gæðastimpil, að sögn Sig-
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Eina sútunarverksmiðja landsins er
á Sauðárkróki og þar er unnið leður
úr fiskroði sem m.a. er notað í há-
tískufatnað og -fylgihluti heims-
frægra tískuhönnuða á borð við
Karl Lagerfeld. Einnig er þar unnið
mokkaskinn úr lambagærum sem
notað er í ýmsa hátískuvöru, hrein-
dýra- og kálfaleður. Þetta eru fyr-
irtækin Loðskinn og Sjávarleður
sem eru í eigu sömu aðila og deila
húsnæði við Borgarmýri.
Undanfarin þrjú ár hefur fram-
leiðsla fyrirtækjanna aukist mikið
og starfsmönnum verið fjölgað, en
nú starfa þar 38 manns.
„Við erum að súta roð af laxi,
hlýra, karfa og þorski og einnig
lambaskinn,“ segir Sigríður Kára-
dóttir hjá Sjávarleðri og Loðskinni.
Roðið kemur víðs vegar að; lax-
aroðið frá Færeyjum, Svíþjóð og
Noregi, karfaroðið kemur af nílar-
karfa sem veiddur er í Viktoríuvatni
í Úganda og hlýra- og þorskroðið er
af fiski sem veiddur var við Íslands-
strendur. Einnig er um þessar
mundir verið að gera tilraunir með
vinnslu ufsaroðs.
Sigríður segir vinnsluferlið
nokkuð flókið. „Í stuttu máli sagt
Vinna leður fyrir Lagerfeld
Reuters
Karl Lagerfeld Hann er
einn þeirra sem kaupa
vöruna frá Sauðárkróki.
Sútun Verksmiðja Loðskinns og Sjávarleðurs á Sauðárkróki er eina sútunarverksmiðja landsins.
Fiskroð verður að lúxusvöru í meðförum Sjávarleðurs á Sauðárkróki Notað í hátískuvöru
heimsþekktra hönnuða Traust, áreiðanleiki og gæði eru lykillinn að velgengninni
ríðar. „Við erum sérstaklega græn
verksmiðja og fengum t.d. að sýna á
sérstakri sýningu fyrir slíka fram-
leiðslu í Þýskalandi í fyrra. Hérna
er talsvert strangari reglugerð en
víða annars staðar. Til dæmis má
ekki losa hér út efni í umhverfið
sem er heimilt í öðrum löndum og
sífellt fleiri kaupendur láta sig þetta
varða. Hráefnið er líka einstakt, ís-
lensku lambaskinnin eru léttari og
liprari en af kindum annars staðar í
heiminum.“
Áreiðanleiki og gæði
Söguna má rekja aftur til árs-
ins 1969, en þá hóf fyrirtækið að
vinnaa úr loðgærum og síðar
mokkaskinnum. Farið var að gera
tilraunir með vinnslu fiskroðs upp
úr 1990 og náðust góð tök á vinnsl-
unni um 1995, að sögn Sigríðar.
Hvernig kemst sútunarverk-
smiðja á Sauðárkróki í viðskipti við
Karl Lagerfeld? „Það gerðist ekki á
einum degi. Þetta hefur tekið lang-
an tíma, að baki býr mikil markaðs-
setning. Þetta er fyrst og fremst
vegna þess að gæðin eru ofboðslega
mikil og við stöndum alltaf við það
sem við lofum,“ segir Sigríður.
Traust, áreiðanleiki og flott gæða-
vara hefur komið okkur þangað sem
við erum í dag.“
Taska frá Fendi úr
roði frá Sjávarleðri.
Skór úr roði frá
Sjávarleðri.
Skór frá Alexander Wang úr fiskiroði
frá Sjávarleðri á Sauðárkróki.
Gestastofa sútarans er á vegum Sjávarleðurs og
Loðskinns og var sett á laggirnar árið 2010. Þar
gefst kostur á að kynnast verklagi við sútun bæði
skinna og fiskroðs. Á milli 8.000 og 10.000 sækja
gestastofuna heim á ári hverju og eru útlendingar
í meirihluta gesta. Auk atvinnulífssýningar og sýn-
ingar um sögu sútunar á Íslandi er vinnustofa í
gestastofunni þar sem öll tæki og tól eru til
vinnslu úr skinnum og sjávarleðri. Þar geta bæði
hönnuðir og áhugafólk komið og spreytt sig á því að hanna og sauma úr
skinnum. „Fólk tekur á sig krók til að líta inn hjá okkur,“ segir Sigríður.
Gestastofa sútarans er vinsæl
8.000-10.000 MANNS Í HEIMSÓKN Á ÁRI
Fjölsótt Gestastofa
Sútarans á Sauðárkróki
Alhliða veitingahús
Velkomin í Skagafjörð
Aðalgötu 15 Sauðárkróki 453 6454