Morgunblaðið - 21.09.2013, Qupperneq 29
29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2013
Ljósmynd/Sjávarleður og Loðskinn
Roð verður að leðri Frá vinnslunni í Sjávarleðri, verið er að súta hlýraroð.
Heimildarmyndin úr mannlífinu á Sauðárkróki, Búð-
in – þar sem tíminn stendur í stað, verður frumsýnd
á RIFF, Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík,
sem hefst undir lok mánaðarins. Myndin fjallar um
Bjarna Haraldsson, 83 ára kaupmann á Sauðárkróki,
sem í áratugi hefur staðið við búðarborðið í verslun
sinni að Aðalgötu 22 og þjónustað um leið við-
skiptavini Olís með eldsneyti og olíuvörur. Yfirleitt
tala heimamenn um að versla hjá Bjarna Har. en
formlega nefnist verslunin eftir föður Bjarna, Verzl-
un Haraldar Júlíussonar, sem hóf rekstur árið 1919.
Í meginatriðum er allt innandyra í versluninni
með sama svip og í kringum 1930. Það skýrir und-
irtitil myndarinnar – þar sem tíminn stendur í stað.
Hefur verslunin verið friðuð og viðurkennd af
Byggðasafni Skagfirðinga sem minnisvarði um
hverfandi viðskiptahætti.
Laufskálarétt og Sjómannalíf
„Vinnslan á þessari mynd hefur tekið rúm fjögur
ár. Raunar er það alveg í samræmi við sögumanninn
sem er aldrei að flýta sér en kemst þó alltaf í mark,“
segir framleiðandi myndarinnar, Árni Gunnarsson á
Sauðárkróki. Hann starfrækir kvikmyndagerðina
Skottu og hefur á síðustu árum framleitt nokkrar
myndir sem hafa fengið góðar viðtökur. Má þar
nefna mynd um Austurdal í Skagafirði, heimild-
armyndina Óbærilegur léttleiki Laufskálaréttar,
sem sýnd verður á RÚV í vetur. Þar verður einnig
sýnd þáttaröðin Sjómannslíf þar sem fylgst er með
lífi og störfum sjómanna. Ónefnd er myndin Kraftur
– síðasti spretturinn. Hún var frumsýnd árið 2009 og
fjallar um góðhestinn Kraft – og samfylgd hans og
knapans Þórarins Eymundssonar.
Féll fyrir frásagnarforminu
„Ég var lengi í blaðamennsku. Svo kynntist ég
kvikmyndagerð og féll fyrir því frásagnaformi,“
segir Árni. „Bjarni Har. er með verslunina við hlið-
ina á kvikmyndagerðarfyrirtækinu mínu. Hann er
sjálfur góður sögumaður og ófáar sögur geta aðrir
sagt um manninn; greiðvikni hans, útsjónarsemi og
skemmtileg tilsvör. Bjarni er sprottinn úr jarðvegi
tíðarandans þegar fólk gaf sér tíma hvað fyrir ann-
að. Þótti sjálfsagt að hjálpa ef hægt var að hjálpa og
hlusta ef einhverjum lá eitthvað á hjarta. Breyta því
til hins betra sem hægt var að breyta en sætta sig við
hitt.“ sbs@mbl.is
Árni Gunnarsson með heimildarmynd um Bjarna Haraldsson á Sauðárkróki
Ljósmynd/Kristín Sigurrós
Félagar Árni Gunnarsson, til vinstri, og Bjarni Haraldsson, kaupmaður og væntanleg kvikmyndastjarna.
Kaupmaðurinn sem
aldrei er að flýta sér
Skagfirðingar eiga ýmsar matarhefðir, enda héraðið
eitt blómlegasta landbúnaðarhérað landsins, auk þess
sem þar er öflugur sjávarútvegur. Matarkistan Skaga-
fjörður er verkefni sem miðar að því að efla þær og
kynna og dregur það nafn sitt af Drangey sem áður fyrr
var nefnd matarkista Skagfirðinga. „Þegar búrin voru
tóm á vorin, þá var hægt að ná í fugl og fisk í kringum
Drangey,“ segir Laufey Haraldsdóttir, lektor við Háskól-
ann á Hólum, sem kemur að verkefninu.
Meðal matartengdra viðburða í Skagafirði eru árlegir
Bændadagar Kaupfélags Skagfirðinga og Hrossablót,
sem er árlegur viðburður í Hótel Varmahlíð þar sem
hrossakjöti er hampað á ýmsan hátt, m.a. með því að
reiða fram hrossa-carpaccio og ís úr kaplamjólk. „Svo
er það Lónkot, sem er slow food-veitingastaður í Sléttu-
hlíðinni og er sérstaklega rómaður fyrir fjóluís sinn og
Áskaffi í Glaumbæ sem heldur tryggð við hefðirnar,“
segir Laufey.
„Það mikilvægasta sem kemur út úr svona mat-
artengdum þróunar- og samvinnuverkefnum eins og
Matarkistuverkefninu er að mínu mati að fólk verður al-
mennt meira meðvitað um það sem framleitt er í sínu
nærumhverfi.
Hrossakjöt matreitt á ýmsa vegu má e.t.v. nefna sem
sérrétti Skagfirðinga. Til dæmis saltað hrossakjöt með
skyri, sem bragðast miklu betur en það hljómar,“ segir
Laufey, beðin um að nefna einn af fjölmörgum sér-
réttum Skagfirðinga. Áhugasömum matgæðingum er
bent á matreiðslubókina Eldað undir bláhimni sem inni-
heldur uppskriftir að svæðisbundnum mat úr Skagafirði.
Ljósmynd/Laufey Haraldsdóttir
Hrossakjöt með skyri betra en margur heldur
Skagfirskar krásir Margar matarhefðir hafa orðið til í Skagafirðinum, enda eitt mesta matarbúr landsins.
Bakhjarl í héraði
www.skagafjordur.is
Velkomin í Skagafjörð!
Sauðárkrókur er einn fjölmennasti
þéttbýlisstaðurinn á landsbyggðinni með
um 2600 íbúa. Þar er fjölbreytt verslun og
þjónusta, öflug matvælaframleiðsla og
margskonar iðnaður.
Sauðárkrókur er góður búsetukostur,
ekki síst fyrir fjölskyldufólk. Skólar eru á
öllum stigum, allt frá leikskólum upp í
framhaldsskóla og háskóla.
Á Sauðárkróki er góð aðstaða til
fjölbreyttra íþróttaiðkana og tómstunda
og stutt í margvíslega útiveru.
Á Sauðárkróki er ódýrasta hitaveita
á landinu, kröftugt menningarlíf,
mikil veðursæld og lausar byggingarlóðir
fyrir fyrirtæki jafnt sem einstaklinga.