Morgunblaðið - 21.09.2013, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 21.09.2013, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2013 LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383 SPÖNGIN GRAFARVOGI - SÍMI 577 1660 Hjarta úr hvítagulli 25 punkta demantur 99.000,- Demantssnúra 9 punkta demantur, 14K 57.000,- Demantssnúra 30 punkta demantur, 14K 157.000,- Undirþrýstingur í miðeyra með vökva. Eftir þrýstingsjöfnun með Otoventblöðru, miðeyrað opið og engin vökvi. Otovent meðferðin er til að létta á undirþrýsting í miðeyra. Getur fyrirbyggt og unnið á eyrnabólgu og vanlíðan með því að tryggja að loftflæði og vökvi eigi greiða leið frá miðeyra. Meðferð getur dregið úr eyrnabólgum, sýklalyfjanotkun, ástungum og rörísetningum. Læknar mæla með Otovent. Klínískar rannsóknir sýna gagnsemi við lokun í miðeyra, skertri heyrn eftir eyrnabólgur, óþægindum í eyrum við flug, sundferðir eða köfun. Otovent er einfalt og þægilegt fyrir börn og fullorðna. Rannsóknir sýna góðan árangur. CE merkt. Fæst í apótekum Fyrsta hjálp til að laga og fyrirbyggja eyrnabólgur Viðurkennd meðferð Umboð Celsus ehf Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Stóru viðskiptabankarnir þrír myndu skoða kaup á lánasafni Íbúða- lánasjóðs, yrði það boðið til sölu við endurskipulagningu sjóðsins en hann glímir við mikinn vanda. Íslands- banki hefur t.d. haft það til skoðunar. Íbúðalán eru almennt talin trygg- ari en lán til fyrirtækja og því getur verið skynsamlegt fyrir banka að eiga þar töluvert undir. Í svari Landsbankans vegna fyrirspurnar Morgunblaðsins segir að almennt sé æskilegt að auka hlutfall íbúða- og einstaklingslána í útlánasafni ís- lenskra banka, þar með talið Lands- bankans, því það myndi draga úr áhættu í fjármálakerfinu. Útlánasafn Landsbankans er með þeim hætti að einungis 30% lánanna eru til einstaklinga en 70% til fyr- irtækja við lok síðasta árs. Til sam- anburðar er t.d. helmingur lána Danske Bank til einstaklinga og hjá Swedbank nema þau meira en 60% af safninu. Minna en 60% af útlánasafni Arion banka er til einstaklinga og yf- ir 40% útlánasafns Íslandsbanka er til einstaklinga, samkvæmt saman- tekt hagfræðideildar Landsbankans. Þessi umræða sprettur fram vegna þess að Bloomberg hafði eftir Höskuldi Ólafssyni, bankastjóra Ar- ion banka, í gær að bankinn myndi íhuga alvarlega að kaupa lánasafn Íbúðalánasjóðs, færi það í sölu vegna endurskipulagningar á sjóðnum. Í fréttinni segir að ríkisstjórnin hafi átt í töluverðu basli við að finna lausn á vandamálum sjóðsins og að hann hafi misst mikla markaðshlut- deild yfir til bankanna. Þá sé útlit fyrir að ríkissjóður þurfi að leggja sjóðnum til meira en 100 milljarða króna. Bloomberg hefur eftir Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráð- herra að verið sé að fara yfir mis- munandi leiðir til að endurskipu- leggja sjóðinn, en hann neitaði að tjá sig um hvort því yrði lokið fyrir árs- lok. Hann tók fram að þörf væri á lánasjóði sem myndi þjónusta allt landið með húsnæðislánum, en ekki væri víst hvort bankarnir myndu gera það. Jón Guðni Ómarsson, fjármála- stjóri Íslandsbanka, segir við Morg- unblaðið að þetta sé meðal þess sem bankinn hefur haft til skoðunar. „Hinsvegar er málið stórt og þarf að skoðast í víðara samhengi, m.a. í tengslum við framtíðarstefnu stjórn- valda í málefnum Íbúðalánasjóðs,“ segir hann. Þetta hefur hins vegar ekki verið rætt sérstaklega hjá Landsbankan- um. Í svari frá bankanum segir að ótímabært sé að svara spurningum um kaup á lánum sem enginn hefur auglýst til sölu. „Við myndum þó vafalítið skoða slíkt mál ef til þess kæmi,“ segir í svari Landsbankans. Morgunblaðið/Ómar Áhætta Sagt er að draga megi úr áhættu í íslenska bankakerfinu með því að auka einstaklingslán. Bankarnir horfa til útlánasafns ÍLS  Ráðherra segir þörf á lánasjóði sem þjónustar allt landið Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Jón Trausti Reynisson, fram- kvæmdastjóri DV, segir að útgáfu- félagið hafi greitt í síðasta mánuði þær tæplega ellefu milljónir króna sem það skuldaði í opinber gjöld. Þorsteinn Guðnason, stjórnarfor- maður DV, sagði við Morgunblaðið í ágúst að skuldin yrði greidd upp í kjölfar tíu milljóna króna hlutafjár- aukningar hjá félaginu. Á fyrsta fjórðungi ársins var hlutafé útgáfu- félagsins aukið um 55 milljónir króna og nemur því hlutafjáraukningin í ár 65 milljónum króna. „Skuld gagnvart tollstjóra var borguð upp í síðasta mánuði. Hún var mest yfir 80 milljónir króna í fyrra en er núna engin,“ segir Jón Trausti. „Það er að takast að stoppa upp í orsök vanskilanna, sem var hallarekstur síðustu ára, og horfur eru á vægum afgangi af rekstri (EBITDA) á þessu ári. Enn er þó verið að klára síðasta áfangann í fjár- mögnun til að breyta skammtíma- skuldum í langtímaskuldir. Fyrir- tækið skuldar ekki of mikið miðað við önnur fyrirtæki, en skuldirnar eru að of miklu leyti samsettar af vanskilum fyrri ára, til dæm- is gagnvart lífeyr- issjóðum. Í fram- haldi af uppgjörinu við tollstjóra getum við einbeitt okkur að þeim, og fyrir- byggt að fyrir- tækið lendi aftur í slíkri aðstöðu, bæði með viðvar- andi aðhaldssemi og ábyrgð,“ segir hann. Tapaði 148 milljónum á tveimur árum Á síðasta ári nam tap á rekstri DV um 65 milljónum króna borið saman við 83 milljóna króna tap árið áður, samanlagt 148 milljónum króna. Samkvæmt ársreikningi félagsins var eigið fé félagsins því neikvætt um ríflega 15 milljónir króna í árslok 2012. Í skýrslu stjórnar kemur fram að hlutafé félagsins hafi því verið aukið um 55 milljónir á fyrsta fjórðungi 2013. Sú hlutafjáraukning var nýtt til uppgreiðslu skammtímaskulda sem lækkuðu úr 159 milljónum króna í 105 milljónir króna á tímabilinu. DV skuldlaust við tollstjóra Jón Trausti Reynisson  Skuldin fór í meira en 80 milljónir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.