Morgunblaðið - 21.09.2013, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.09.2013, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2013 Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Að minnsta kosti 81 hefur látið lífið í flóðum og aurskriðum í Mexíkó, eftir að hitabeltisstormarnir Manu- el og Ingrid gengu á land. Fleiri en 35 þúsund heimili hafa skemmst og um 50 þúsund manns neyðst til að yfirgefa híbýli sín. Þá hafa þúsundir ferðamanna verið fluttar loftleiðis frá Acapulco til Mexíkóborgar. Björgunarmenn héldu áfram í gær að leita að fólki í þorpinu La Pintada í Guerrero-ríki en gríð- arstór aurskriða lagði helming þess í rúst á mánudag. Í kringum 70 er saknað en yfirvöld vissu ekki af hamförunum fyrr en á miðvikudag, þegar einn af þeim sem komust lífs af náði talstöðvarsambandi við ná- grannaþorp. Skólinn og kirkjan í þorpinu voru meðal þeirra bygginga sem urðu undir skriðunni en björgunarstörf töfðust nokkuð vegna hættunnar á annarri skriðu. Björgunarmenn komu á staðinn með þyrlu eða á tveimur jafnfljótum, eftir sjö tíma göngu eftir torfærum fjallastígum. Um 330 íbúar þorpsins voru flutt- ir á brott til Acapulco á miðvikudag en um 30 vildu vera eftir, þar til leitin að eftirlifendum væri yfirstað- in. Gagnrýndu stjórnvöld Eftir að hafa heimsótt þorpið sagði innanríkisráðherrann Angel Osorio Chong að björgunarstörfin yrðu erfið og tímafrek. Hann sagði að hermenn hefðu þegar fundið tvö lík en staðaryfirvöld sögðu þorps- búa hafa fundið 15 látna í vikunni. Öll spjót stóðu á stjórnvöldum í gær en mannréttindasamtök gagn- rýndu þau m.a. fyrir að vanrækja þorpssamfélögin í fjöllunum. Emb- ættismenn sögðu hins vegar að hvorki væri hægt að ná til af- skekktra byggða loftleiðis né land- leiðis. Þá stöðvuðu reiðir ferðamenn umferð um breiðstræti í Acapulco til að mótmæla því hversu hægt brottflutningum miðaði. Hálf Acapulco fór undir flóðavatn í óveðrinu, þ.á m. flugstöðin, og veg- ir frá borginni til höfuðborgarinnar voru ófærir vegna aurskriða. Yf- irvöld vonuðust til þess í gær að geta opnað einhverja vegi umhverf- is borgina en þá sátu 5 þúsund ferðamenn enn fastir í ráðstefnu- miðstöð vegna ófærðarinnar. AFP Fárviðri Íbúar yfirgefa La Pintada á tveimur jafnfljótum. Björgunarmanna beið erfitt starf við að grafa hálft þorpið undan þungum aurnum. Tugir fórust og þúsundir heimila skemmdust  Hálft þorp í Mexíkó fór undir skriðu AFP Aur Meðal þeirra bygginga sem skriðan rústaði var skóli og kirkja. Dómstóll í Japan dæmdi í gær 41 árs gamlan mann, Tatsujiro Fukasawa, í sjö ára fangelsi fyrir að hafa laumað sýru í skó samstarfskonu sinnar, með þeim afleiðingum að taka þurfti framan af tám konunnar. Fukasawa reiddist konunni þegar hún hafnaði rómantískum tilburðum hans. Hann komst yfir flússýru á til- raunastofunni þar sem hann og fórn- arlambið unnu og setti í skó konunnar. Dómarinn í málinu sagði glæp Fukusawa sérstaklega grimmilegan þar sem flússýra er banvæn ef hún smýg- ur inn í húðina og berst í blóðstrauminn. JAPAN Sjö ára fangelsi fyrir að setja sýru í skó samstarfskonu Vonir manna um að finna líf á Mars hafa dvínað eftir að athuganir Curio- sity, könnunarróbóta bandarísku geimferðastofnunarinnar, leiddu í ljós að mun minna er af metangasi í andrúmslofti rauðu plánetunnar en áður var talið. Á síðustu áratugum hafa vísinda- menn talið sig greina stóra metan- bólstra á plánetunni en greining upplýsinga frá Curiosity hefur leitt í ljós að hlutföll metans í andrúmsloftinu eru sex sinnum lægri en áður var talið. Samkvæmt þessu eru litlar líkur á að örverur eða lífræn efni sé að finna í jarðvegi Mars. MARS Vonir manna um að líf sé að finna á rauðu plánetunni dvína Þrettán manns, þeirra á meðal þriggja ára gamalt barn, særðust í skotárás í Chicago í Bandaríkj- unum í fyrrinótt. Enginn lést né hafði nokkur verið handtekinn í gær en lögregla telur líklegt að árásin tengist glæpagengjum í borginni. Flestir þeirra sem særðust voru unglingar eða fólk á tvítugs- eða þrítugsaldri og höfðu margir fengið byssuskot í útlimi; hendur, fótleggi og fætur. Barnið, sem fékk skot í eyrað, var sagt alvarlega sært. Ofbeldi meðal gengja í Chicago fer vaxandi og fjölgaði morðum í borginni um 16% í fyrra, í 506. Bar- ack Obama Bandaríkjaforseti, sem flutti til Chicago að loknu námi, heimsótti borgina fyrr á árinu til að hvetja til aðgerða til að draga úr byssuofbeldi. Þrettán særðust í skot- árás í Chicago í fyrrinótt AFP Rannsókn Árásin átti sér stað í suðurhluta Chicago í fyrrinótt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.