Morgunblaðið - 21.09.2013, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 21.09.2013, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Í aðalskipulagier sett framsýn um þró- un borgarinnar til langrar fram- tíðar,“ segir í upphafi tillögu um aðalskipulag Reykjavíkur frá því í júlí. Í undirfyrirsögn á kápu er talað um bindandi stefnu. Nýtt aðalskipulag tekur til áranna 2010 til 2030. Það er endurskoðun á fyrra skipulagi og hefur „staðið yfir undanfarin ár og hefur falist í margvíslegri greiningarvinnu, mati val- kosta og samráði við íbúa og hagsmunaaðila“. Þessi orð benda til þess að endurskoðunin hafi verið umfangsmikil og unnin af metnaði. Það vekur því furðu hvað tillögurnar eru glopp- óttar. Undanfarna viku hafa komið fram tvö dæmi, sem bera vinnubrögðunum ófag- urt vitni. Á fimmtudag var greint frá því í Morgun- blaðinu að tilraunastöð Landbúnaðarháskóla Íslands á Korpu væri einfaldlega hvergi að finna í tillögunni að nýju aðalskipulagi Reykjavíkur. Á korti, sem sýnir tillöguna, hefur starf- semi tilraunastöðvarinnar verið þurrkuð út. Jón Hall- steinn Jónsson, erfðafræð- ingur og dósent við auðlinda- deild LBHÍ, sagði í viðtali við Morgunblaðið að þarna væru einstakar aðstæður til rannsókna vegna fjölbreyti- leika í jarðvegsgerð, veð- urfarsgögn næðu langt aftur í tímann, auk þess sem starfsstöð LBHÍ í borginni væri nálægt. Í skipulaginu væri gert ráð fyrir stækkun golfvallar Golfklúbbs Reykjavíkur við Korpu og áframhaldi Korputorgs. Það magnaða við þetta var að ekkert samráð var haft við forráðamenn skólans við gerð skipulagstillögunnar og sagði Jón í viðtalinu að hending hefði verið að starfsmenn ráku augun í að tilraunastöðin hefði verið þurrkuð út. Það fór því lítið fyrir „samráðinu“, sem nefnt var í formálanum. Fyrir viku kom fram að ekki væri heldur gert ráð fyrir rannsóknarstarfsemi á Tilraunastöð Háskóla Ís- lands í meinafræði á Keldum í nýja skipulaginu. Til- raunastöðin hefur verið á Keldum frá árinu 1948 og þar hefur verið unnið braut- ryðjendastarf á heimsmælikvarða. Í einn og hálfan áratug hefur reglulega verið talað um flutning á Keldum í Vatnsmýrina. Eins og Sigurður Ingvarsson, prófessor og for- stöðumaður Keldna, sagði í viðtali við Morgunblaðið um málið eru þetta „allt mjög lausar hugmyndir“, „ekki til fjármagn til uppbyggingar og engin tímaáætlun til varð- andi þessa flutninga“. Í tillögunni að nýju skipu- lagi er líkt og í því, sem nú gildir, talað um íbúðir og at- vinnuhúsnæði, en hvergi tal- að um að á Keldum eigi að vera þekkingarfyrirtæki, rannsóknar- og háskóla- starfsemi eins og gert er í því gamla. „Ef þessu orða- lagi er kippt út úr að- alskipulaginu er verið að halda okkur í gíslingu með alla uppbyggingu,“ segir Sig- urður. Stjórn Keldna hefur mót- mælt þessu og sömuleiðis starfsmenn. Í athugasemdum starfsmanna segir að gera þurfi „ráð fyrir rannsókna- starfsemi eins og fram fer á Tilraunastöð Háskóla Ís- lands í meinafræði á Keldum í nýju aðalskipulagi, þar sem ekki er líklegt að hún flytji á umræddu tímabili. Stofnunin þarfnast ákveðins landrýmis og húsakosts og samkvæmt nýlegri skýrslu nefndar um framtíð stofnunarinnar er núverandi staðsetning mun raunhæfari og heppilegri kostur en Vatnsmýrin“. Í gær var einnig afhentur undirskriftalisti íbúa í Húsa- hverfi í Reykjavík þar sem gerðar eru athugasemdir við að í nýja aðalskipulaginu eigi að rísa 400 íbúðir og 50 þús- und fermetrar atvinnu- húsnæðis á Keldnalandinu. Þar er talað um náttúrulíf og fornminjar á svæðinu líkt og í athugasemdum starfs- manna Keldna. Ekki fór mikið fyrir „sam- ráði við íbúa og hags- munaaðila“ um Keldnasvæð- ið frekar en Korpu, hvað sem líður fögrum fyr- irheitum í formála endur- skoðunarinnar. Það er afrek að í tillögu að nýju að- alskipulagi skuli starfsemi rótgróinna stofnana einfald- lega þurrkuð út. Það hefur greinilega ekki gerst í sam- ráði, en kannski í óráði. Það er afrek að í til- lögu að nýju að- alskipulagi skuli starfsemi rótgró- inna stofnana ein- faldlega þurrkuð út.} Óskipulag á aðalskipulagi R eykjavík á í vanda. Einhverjir myndu kalla hann lúxusvanda, en vanda engu að síður. Eftirtaldir vinnustaðir eru á svæðinu vestan Elliðaáa og norðan Nauthólsvíkur: Háskóli Íslands, Listaháskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Landspítalinn við Hringbraut, Landspítalinn í Fossvogi, höfuðstöðvar allra viðskiptabank- anna, Borgartúnið, Kringlan, öll atvinnu- starfsemi í miðborginni, atvinnustarfsemi við Suðurlandsbraut, Menntaskólinn í Reykja- vík, Verzlunarskóli Íslands, Menntaskólinn við Hamrahlíð, Kvennaskólinn í Reykjavík, Menntaskólinn við Sund, Fjölbrautarskólinn við Ármúla, Iðnskólinn á Skólavörðuholti, gamli Stýrimannaskólinn, Múlahverfið, höf- uðstöðvar 365 og Ríkisútvarpsins – því miður ekki Morgunblaðsins – Reykjavíkurflugvöllur, höf- uðstöðvar Icelandair, höfuðstöðvar CCP, allt hafnarsvæði í Reykjavík, iðnaðarsvæðið við Sæbrautina, Glæsibær, svo til allur ferðamanna- og afþreyingariðnaður í Reykjavík, þar með talið hótel og veitingastaðir, öll ráðuneyti ríkisins, nánast öll önnur stjórnsýsla ríkisins og öll miðstýrð stjórn- sýsla Reykjavíkurborgar. Svona mætti lengi halda áfram. Á hverjum morgni þurfa tugir þúsunda að ferðast, jafn- vel á annan tug kílómetra, frá heimili sínu vestur fyrir El- liðaár og norður fyrir Nauthólsvík til að sækja vinnu sína eða nám. Á sama tíma og Miklabraut, Hringbraut og Bústaða- vegur til vesturs og Hafnarfjarðarvegur, Kringlumýrarbraut, Reykjanesbraut og Sæ- braut til norðurs eru svo gott sem stíflaðar í klukkutíma hvern morgun, með tilheyrandi hættu á umferðaróhöppum og hindrun fyrir sjúkrabíla, slökkvilið og lögreglu, eru þessar sömu götur tómar í gagnstæða átt. Um eft- irmiðdegið snýst þetta svo við, þegar þeir sem tróðu sér út á nesið sem Reykjavík byggðist út frá þurfa að komast aftur heim til sín. Þrátt fyrir þetta eru margir enn þeirrar skoðunar að rétt sé að þenja höfuðborg- arsvæðið enn lengra til austurs með tilheyr- andi umferðarþunga frá svefnhverfum borg- arinnar. Frá hagrænum mælikvörðum virðist glapræði að byggja annars staðar en vestan Elliðaáa og norðan Nauthólsvíkur. Fleiri ak- reinar á stofnbrautir, sem eru ónotaðar mest- allan daginn, getur ekki verið rétt. Samfélagslegur kostn- aður, sem á endanum er auðvitað ekkert annað en kostnaður einstaklinga, af því að byggja austar í borginni er einfaldlega of mikill. Svo að þeir sem sjá allar hugmyndir um að hreyfa við Reykjavíkurflugvelli eins og fyrirætlanir um að selja ömmu þeirra í partasölu geti ekki afskrifað þessi skrif sem aðför að flugvellinum er rétt að nefna að þótt Vatnsmýrin sé augljósasta framtíðarbyggingarland Reykjavíkur, þá er hún ekki það eina. Hugmyndir um að byggja út á eyjarnar við borgina hafa aftur skotið upp kollinum og þær er vert að skoða. Bara ekki austar. gunnardofri@mbl.is Gunnar Dofri Ólafsson Pistill Vestan Elliðaáa og norðan Nauthólsvíkur STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Brögð eru að því að for-eldrar kaupi tölvuleikifyrir börn sín þrátt fyrirað þeir séu ekki taldir við hæfi þeirra samkvæmt samevr- ópskum merkingum. Að sögn Snæ- björns Steingrímssonar, fram- kvæmdastjóra SMÁÍS, samtaka myndrétthafa á Íslandi, er vanda- málið ekki skortur á merkingum á tölvuleikjum heldur það að foreldrar virðist stundum ekki skilja að það sé ástæða fyrir aldurstakmörkunum á leikjunum. „Í sumum tölvuleikjum er að finna efni sem er klárlega ekki fyrir börn en þeir eru líka merktir sem slíkir. Þetta er ekki lengur bara Pacman og Super Mario, það er ansi mikið meira sem hægt er að finna í tölvuleikjum í dag,“ segir Snæbjörn. Koma formerktir hingað Tölvuleikir sem seldir eru á Ís- landi eru flokkaðir eftir samevr- ópsku kerfi, svokölluðu PEGI-kerfi. Almenna reglan er því sú að leikirnir koma hingað formerktir. Það eru framleiðendur sem meta leikina sjálfir. Starfsfólk í verslunum á að fara eftir þessum merkingum. Hægt er að fletta upp aldurstakmörkunum á tölvuleikjum á heimasíðu PEGI, www.pegi.info, á íslensku. Í lögum um eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum og tölvu- leikjum frá 2006 segir að bannað sé að sýna, selja eða dreifa ofbeldis- leikjum eða leikjum sem ógna vel- ferð þeirra til barna sem hafa ekki náð lögræðisaldri. Það er fjölmiðla- nefnd sem á að hafa eftirlit með að þeim lögum sé framfylgt. Sam- kvæmt upplýsingum frá henni hefur eftirlitið þó fyrst og fremst falist í framkvæmd á aldursmatinu sjálfu en ekki beinst sérstaklega að sölu og dreifingu. Nefndin sjálf hafi ekki heimild til að beita stjórnvalds- sektum eða öðrum kvöðum. Það varði þó sektum og jafnvel fangels- isvist að selja börnum bannaða leiki. Benda foreldrum á takmörk Að sögn Arnar Barkarsonar, vörustjóra hjá Elko, eiga kassa- starfsmenn hjá fyrirtækinu að óska eftir skilríkjum og vísa krökkum frá sem hyggjast kaupa leiki sem þeir hafa ekki aldur til að spila. Starfsmennirnir geta þó ekki bannað foreldrunum að kaupa bann- aða leiki fyrir börn sín en þeir bendi þeim þó á það að leikur sé ætlaður fyrir þá sem eru eldri. „Það virðist því miður að for- eldrum sé sama. Ég held að þeir kynni sér kannski ekki hvað þeir eru að kaupa fyrir börnin. „Þetta er bara tölvuleikur,“ er svolítið viðhorfið hjá þeim,“ segir Örn. Spili með börnunum Guðberg K. Jónsson, verk- efnastjóri hjá SAFT, tekur undir að foreldrar séu almennt ekki meðvit- aðir um hvers konar tölvuleiki börn- in þeirra spila. „Þetta er auðvitað uppeldislegt mál og það er á ábyrgð foreldra að vita hvaða leiki börnin eru að spila. Margir eru þó meðvitaðir og ég held að það hafi orðið töluverð breyting á því síðustu ár. Við höfum í mörg ár hvatt foreldra til að kynna sér þessi mál, meðal annars með því að setjast niður og spila leikina með börnunum.“ Guðberg segir að þó að framleiðendur leikjanna sjái sjálfir um að aldursmerkja hafi þeir frekar verið líkleg- ir til að vera strangir í mati sínu á eigin leikjum því þeir séu ábyrgir fyrir því að inn- kalla leikina og end- urmerkja ef merkingarnar standast ekki kröfur PEGI-kerfisins. Leikirnir ekki lengur „bara tölvuleikir“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Leikjaspil Töluvert var um ólögráða börn þegar GTA V fór í sölu á mánu- dagskvöld. Foreldrar margra þeirra voru með til að kaupa leikinn. Athygli vakti að nokkur fjöldi ólögráða barna var á meðal þeirra hundraða sem stóðu í röð á mánudagskvöld og biðu eftir leiknum Grand Theft Auto V. Sá leikur er ætlaður 18 ára og eldri skv. PEGI-kerfinu vegna ofbeld- is og fúls orðbragðs. Örn Barkarson, vörustjóri hjá Elko, segir að mörg barnanna hafi aðeins verið komin til að fá fríar pítsur sem voru í boði við afhendingu forpantana en ekki til að kaupa leikinn. Hins vegar hafi margir foreldrar verið með börnum sínum til að kaupa leik- inn fyrir þau. Þeim börnum, sem voru ein, var þó vísað frá. „Það voru ein- hver dæmi um að krakkar, sem fengu ekki að kaupa, færu fúlir heim,“ segir hann. Einhverjir fóru fúlir heim GRAND THEFT AUTO V

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.