Morgunblaðið - 21.09.2013, Page 35

Morgunblaðið - 21.09.2013, Page 35
35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2013 Aðgengi fatlaðra verði bætt Edda Heiðrún Backman og Jón Gnarr borgarstjóri fóru á hljólastólum um Laugaveginn í gær til þess að vekja athygli á nauðsyn þess að bæta aðgengi fatlaðs fólks. Ómar Sjúkrahúsið Vogur verður 30 ára í desem- ber 2013. Yfir 24 þús- und einstaklingar hafa komið á sjúkrahúsið frá fyrsta degi til dagsins í dag. Byggingin sjálf er mjög vel heppnuð, gæfuleg, björt og þægi- leg í allri umgengni. Hún er þó barn síns tíma. Sjúklingahópurinn á Vogi hefur breyst mikið á þessum 30 árum. Mun meira er um mjög veika sjúklinga, eldra fólk sem glímir við hreyfihöml- un og almennt getuleysi til að sinna sjálfu sér og þarfnast því meiri umönnunar og aðhlynningar – þjón- ustu sem ekki var gert ráð fyrir þeg- ar spítalinn var byggður. Þá er aðstaða undir lyfjageymslu og öryggi þar að lútandi vanbúin mið- að við kröfur dagsins í dag. SÁÁ hefur byggt og keypt húsnæði undir starfsemina að mestu án að- komu frá hinu opinbera og lengst af skaffað húsnæðið alveg endurgjalds- laust fyrir kaupendur þjónustunnar – ríkið. Þetta hefur tekist með sjálf- boðaliðavinnu og sjálfsaflafé á löngum tíma (36 ár) og í dag eiga samtökin talsverðar eignir sem þjóð- in og fyrirtækin í landinu hafa sjálf fjármagnað og allar þjóna undir sjúkrarekstur, meðferð og tilheyr- andi stoðþjónustu. Til að bæta úr vanköntum á núver- andi húsnæði Vogs miðað við breytt- ar þarfir sjúklinga og starfsfólks hef- ur stjórn SÁÁ ákveðið að byggja við Vog – álmu þar sem veikustu sjúk- lingarnir verða í sérherbergjum auk þess sem aðstaða vaktar og lyfja- vörslu verður endurnýjuð til að upp- fylla nútímakröfur um öryggi starfs- fólks og sjúklinga. Við munum þurfa stuðning almennings og fyrirtækja í fjármögnun á verkefninu, rétt eins og SÁÁ hefur alltaf þurft þegar mikið liggur við. Áætlun gerir ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í september 2013 og ljúki í maí á næsta ári. SÁÁ var stofnað árið 1977 og verð- ur 36 ára í október. Mikil gæfa hefur fylgt þessum grasrótarsamtökum sem njóta víðtæks stuðnings stjórn- valda, einstaklinga og fyrirtækja um allt land. Þjónusta SÁÁ hefur frá upphafi tekið mið af bestu fáanlegu vísindalegu þekkingu á hverjum tíma og hafa samtökin kostað miklu til svo það megi verða. Heilbrigðisstarfsfólk SÁÁ fer á hverju ári í námsferðir og á ráð- stefnur erlendis til að kynna sér allt sem horf- ir til framfara á þessu sviði og flytur þekk- inguna inn svo hún megi gagnast ís- lenskri þjóð. Meðferð SÁÁ er því í stöðugri framþróun enda er árang- urinn eftir því. Þúsundir Íslendinga hafa náð góðum bata fyrir tilstilli SÁÁ og tugþúsundir eignast betra líf. Á þessum langa tíma sem liðinn er frá stofnun SÁÁ hefur orðið til ís- lenskt þekkingarsamfélag um alkó- hólisma og fíknisjúkdóma. Hryggj- arstykkið í þessari innlendu þekkingu er gagnagrunnur SÁÁ – nákvæm tölvutæk skráning úr sjúklingabók- haldi frá upphafi þjónustunnar og staðreyndirnar sem þessar tölur birta okkur. SÁÁ er nú eftirsóttur samstarfsaðili í flóknum alþjóðlegum rannsóknum á lyfjum og fíkn- isjúkdómum og litið er til SÁÁ sem fyrirmyndar um heilbrigðisþjónustu og meðferð sem uppsker ríkulega fyrir allt samfélagið. Þegar litið er yfir farinn veg er þakklæti efst í huga. Þakklæti til ís- lensku þjóðarinnar sem hefur staðið þétt við bakið á SÁÁ öll þessi ár og persónulegt þakklæti fyrir þau gæfu- spor sem ég tók sjálfur undir öruggri handleiðslu SÁÁ. Íslenskir einstaklingar, konur og karlar, ungir sem aldnir, fyrirtæki og ríkisstjórnir – fyrir hönd SÁÁ þá þakka ég ykkur kærlega fyrir. Frá ykkur fáum við kraftinn og hvatn- inguna til að halda ótrauð áfram. Enn er verk að vinna. Eftir Arnþór Jónsson »… frá stofnun SÁÁ hefur orðið til ís- lenskt þekkingarsam- félag um alkóhólisma og fíknisjúkdóma. Höfundur er formaður SÁÁ. Takk fyrir SÁÁ, Vog, Vík, Von, Staðarfell – og allt hitt líka Arnþór Jónsson Fyrirtæki í við- skiptum og þjónustu þurfa að hafa góðan orðstír og jákvæða ímynd. Ímyndin mótast af fréttum og almennri umræðu. Auglýsingar skulu minna á, jafnvel fegra myndina. Mörg fyrirtæki styrkja vel menningu, íþróttastarf eða mannúðarmál með- an aðrir rétt nudda sér utan í góð mál. Útgerðarfyrirtæki hefur um ára- bil kostað, ásamt hollvinum og starfsfólki, endurnýjun tækja Fjórð- ungssjúkrahúss Austurlands. Annað útgerðarfyrirtæki gaf sveitarfélagi sínu íþróttahús. Eru þessi framlög stór eða smá? Einkenna þau stefnu og viðskiptahætti fyrirtækisins, miðast þau við stærð þess og arð eða eru þetta auglýsingar? Fyrirsögn þessarar greinar er úr tímaritinu Fréttir 8. tbl. 2012, gefið út af endurskoðunarfyrirtækinu KPMG. Þar er greinin; Samfélags- ábyrgð fyrirtækja. Klisja eða framþróun í rekstri fyrirtækja. Fram kemur sú skilgreining ,,að fyrirtæki sýni samfélagslega ábyrgð þegar það ákveður, að eigin frum- kvæði að leggja sitt af mörkum til uppbyggingar þess samfélags sem það starfar í. Fyrirtækið gerir meira en því er skylt samkvæmt lögum.“ ( Sjá einnig: Festa, miðstöð um samfélagsábyrgð. www.festa- samfelagsabyrgd.is) Einnig segir að erfitt sé fyrir fólk hér á landi að meta hvort og hve mikið fyrirtæki geri í þessu efni enda skili íslensk fyrirtæki ekki skýrslum um samfélagsábyrgð í uppgjöri eins og gerist æ meir er- lendis. Séum við þar eftirá. Samkvæmt könnun KPMG Inter- national frá 2011 taldi helmingur 250 stærstu fyrirtæka heims í 34 löndum að fjárhagslegur ávinningur væri af því skýrsluhaldi. Talið var að vinnan við skýrslugerðina væri hvati til nýsköpunar, vaxtar og aukins virðis en það sem hvatti mest til skýrsluhaldsins voru jákvæð áhrif á orðspor og vörumerki fyrirtækisins. Einstaklingar og samtök hafa oft breytt samfélaginu. Dæmi: Berkla- sjúklingar komu upp Reykjalundi. Sjúkrasamlög, björgunarsveitir, SÁÁ urðu öll til að frumkvæði áhugafólks. Þörfin á frum- kvæði einstaklinga og fyrirtækja er aug- ljós. Ríkisfyrirtæki vantar oft frum- kvæði. Verk- efnaflokkar geta lokast þar inni. Dæmi: Barna- og unglingageðdeildin var góð nýjung um 1970. Nú hefur hún áralanga biðlista og annar ekki mik- ilvægu verkefni sínu svo að tala má um barna- og fjölskylduvanrækslu á landsvísu. Úrbætur vart í sjónmáli. Vegagerð ríkisins er vinsæl stofn- un með langa verkefnalista, tak- markaðar fjárveitingar. Aukaverk- efni vegna veðra og náttúruhamfara heimta forgang. Þá sést hvað Vega- gerðin getur fái hún fé og heimildir. Deilurnar um hver njóti næst verka þeirrar ríkisvinnukonu minna á gamla sögu þar sem svöng börn þráttuðu um hver fengi mjólk úr hálfgeldri kú. Menn kvarta um að skjólbelti vanti meðfram vegum undir Hafn- arfjalli og á Kjalarnesi. Stundum ófært, bílar fjúka útaf eða fyrir aðra bíla og slys verða. Vegagerðin hefur bent á að íbúasamtök eða Skóg- ræktin gætu sinnt málinu. Úrlausn- in er varla dýr miðað við vegi og göng en ekki beint vegagerðarverk- efni. En Vegagerðin þarf að ákveða að þarna verði skjól. Einkafyrirtæki gætu síðan tekið við fjármögnun og framkvæmd verksins gegn því að fá að hafa auglýsingaskilti við veginn í 10-20 ár þar sem á stæði: Skjólbelti vex næstu 2 km í boði BYKO, BAU- HAUS, AO, SJÓVÁ, eða TM. Til- breyting fyrir vegfarendur að sjá að til eru fyrirtæki sem sinna verk- efnum í almannaþágu. Auglýs- ingakostnaður lækkar skattstofn fyrirtækja og verkefnið greiðist. Stærri verk bíða. Jarðgöng eru dýr. Vinna við Norðfjarðargöng á Mið-Austurlandi hefst síðsumars, lýkur í sept. 2017. Dýrafjarðargöng munu gera vetrarfært milli norður- og suðurhluta Vestfjarða, lýkur 2018. Þessi tvenn göng á jarð- gangaáætlun greiðast af ríkisfé. En að þeim loknum yrði enn eftir að gera þrenn göng á Mið-Austurlandi til að tryggja vetrarfærð milli at- vinnusvæða og til Fjórðungssjúkra- hússins. Göng milli Seyðisfjarðar, Mjóafjarðar og Neskaupstaðar með tengingu við Hérað myndu mjög efla Mið-Austurland sem atvinnu-, menningar- og þjónustusvæði. Ekki síst ferðaþjónustu. Með venjulegum ríkisframlögum tækju verk þessi 15-25 ár. Samtals 16 til 25 km af göngum eftir því hvar leiðir veljast. Kæmu einkaaðilar og samtök að fjármögnun og fram- kvæmd mætti byrja fyrr, vinna á fleiri stöðum og ljúka fyrr. Um- hverfismat, ákvarðanir og hönnun ganga taka tíma og hann má nota til að finna fjármögnunarleiðir. Öflug fyrirtæki eru á Mið- Austurlandi. Þar er hefð fyrir sam- félagsábyrgð fyrirtækja. Síldar- vinnslan og SÚN (Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað) eru þekkt. Alli ríki á Eskifirði, Aðal- steinn heitinn Jónsson, var þekktur fyrir ábyrgð gagnvart byggðinni á fyrri árum kvótakerfisins er hug- takið samfélagsábyrgð virtist varla til í útgerð. Alcoa-Fjarðaál hefur komið að fjölda samfélagstengdra verkefna. Verðugt væri að jarðgöng bættust á þann lista. Öruggar samgöngur eru fyrirtækinu mikilvægar. Á Seyðis- firði er Norræna, stórfyrirtæki í ferðaþjónustu og flutningum allt ár- ið mjög í þörf fyrir jarðgöng. Spáð var að kostnaður við Hval- fjarðargöng lenti á ríkinu en vegfar- endur munu greiða þau upp árið 2018. Hafa þau þá skapað verðmæti í 20 ár. Eystra verða líklega ekki innheimt veggjöld og göngin greið- ast því upp á lengri tíma, spara og skapa verðmæti. Íslenskt fé leitar nú farvega. Einnig fé sem lenti í felum erlendis og hefur fengið heimþrá til átthag- anna. Fyrir fáeinum árum buðu stjórnvöld fólki að lækka skattstofn með kaupum á hlutabréfum í at- vinnufyrirtækjum. Aðferðina mætti útfæra nú í þágu jarðganga. Aust- firðingar og fleiri kynnu að fjárfesta upp á þau kjör. Fjáraflamenn góð- ærisins ollu vanda á skömmum tíma. Með góðum aðferðum gætu nú fyr- irtæki og fólk yfirleitt komið fé í vinnu við langtímaverkefni og styrkt mjög innviði eigin samfélags. Mestu varðar að verkefnin komist af stað og að gjaldkerinn sé góður svo að allir græði, einnig ríkið sem eign- ast göngin. Eftir Ingólf S. Sveinsson » Geta einkaaðilar fjármagnað jarðgöng? Ingólfur S. Sveinsson Höfundur er læknir. Samfélagsábyrgð fyrirtækja

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.