Morgunblaðið - 21.09.2013, Page 37

Morgunblaðið - 21.09.2013, Page 37
UMRÆÐAN 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2013 Sennilega hafa allir einhvern tímann á æv- inni talað illa um náungann af ein- hverjum ástæðum, við erum jú mannleg og göngum í gegnum ým- is þroskaþrep. Við sjáum að þetta er al- geng hegðun meðal unglinganna okkar enda eru þau að þrosk- ast og læra, og koma „vonandi“ til með að vita betur eftir því sem þau eldast. Því miður er hægt að sjá þessa hegðun í ríkum mæli hjá fullorðnu fólki og oft er fullorðið fólk miklu verra þegar kemur að því að tala illa um náungann og unglingarnir virð- ast oft læra þessa hegðun af foreldr- unum og halda henni áfram á full- orðinsárum. Þetta sjáum við öll. Það er eins og sumir hafi tamið sér „listina“ að tala illa um annað fólk. Eflaust þekkja allir að minnsta kosti eina manneskju sem virðist ekki gera annað en niðurlægja annað fólk bæði á almennum vettvangi og/eða á meðal vina sinna eða fjölskyldu. Þar sem ég hef orðið svo oft vitni að þessu, og reyndar sjálfur orðið fyrir svona aðkasti eða beinlínis ein- elti, þá hef ég reynt að sálgreina þessa hegðun. Það sem er algengast hjá þeim, sem sýnir þessa neikvæðu hegðun, er þrennt: Það er ann- aðhvort með öfund í garð ein- staklingsins sem verður fyrir að- kastinu/ofbeldinu, með lélega sjálfsmynd eða einfaldlega illa inn- rætt. Ástæðurnar fyrir því að fólk er einfaldlega bara illa innrætt er kannski í sumum tilvikum hægt að rekja til erfiðrar æsku, sem jafnvel einkenndist af líkamlegu eða and- legu ofbeldi af einhverju tagi. Hinn möguleikinn er að fólk sé bara fætt svona, að heilastöðvarnar virki ekki eins og eðlilegt er talið, svipað eins og hjá siðblindu fólki sem virðist upplifa mun minni kvíða, eða oftast engan, sem gerir þeim kleift að ljúga, svíkja, pretta og gera mun verri hluti án þess að fá nokkurt samviskubit. Hvað varðar öfund og lélega sjálfsmynd þá vil ég oft tengja þessa tvo hluti saman. Sumir ein- faldlega þola ekki velgengni ann- arra, sama á hvaða sviði það er. Þessir einstaklingar fyllast svo mik- illi öfund í garð annarra og virðast ekki hafa í sér þann eiginleika að geta samglaðst öðru fólki (einungis sjálfu sér) að það eina sem þeir finna í sér að gera er að niðurlægja náung- ann með öllum ráðum sem er, jafnvel með lyg- um. Hvort sem um er að ræða hamingjusamt fjölskyldulíf hjá ein- hverjum, farsæla vinnu með góðum launum eða þá að fólk eignast óvænt peninga, kaupir sér nýtt hús eða bíl eða jafn- vel verður vinsælt félagslega, þá er til fólk sem bara þolir það ekki. Það vill alla athyglina sjálft, það vill að sér gangi vel og hefur bara ekki þann eiginleika að geta samglaðst öðru fólki. Bróðir minn sagði mér einu sinni frá athyglisverðri rann- sókn sem ég hef reyndar ekki lesið sjálfur. Að hans sögn sneri þessi rannsókn að mannlegri hegðun. Í stuttu máli voru niðurstöður hennar þær að mjög margir einstaklingar fyndu sælutilfinningu við að sjá öðru fólk mistakast. Að sumir yrðu glaðir við að sjá hrakfarir annarra, ætli þetta geti verið rétt? Ætli það geti verið ein ástæða þess að fólk reyni að skemma fyrir öðrum með illu um- tali og jafnvel lygum? Auðvitað er eðlilegt að finna einhvern tíma til öf- undar, langa í meira af einhverju fyrir sig og sína eða njóta velgengni á einhverju sviði. Mér finnst það þó vera orðið mjög sjúklegt ef þær langanir brjótast út í formi andlegs ofbeldis þar sem einstaklingurinn reynir að fá athygli og aðdáun með því að niðurlægja annað fólk og jafn- vel með því að ljúga um annað fólk. Þá held ég að fólk þurfi aðeins að kíkja í eigin barm og fara í góða sjálfsskoðun og reyna að komast að því af hverju það hegðar sér á þann hátt. Er ekki bara jákvætt að samgleðj- ast vegna velgengni annarra? Er ekki heilbrigðast að venja sig af „listinni“ að tala illa um annað fólk? „Listin“ að tala illa um annað fólk Eftir Gísla Hvanndal Jakobsson Gísli Hvanndal Jakobsson » Sumir einfaldlega þola ekki velgengni annarra, sama á hvaða sviði það er. Höfundur er nemi. Þóroddur S. Skaptason lögg. fasteignasali GARÐATORGI 7 210 GARÐABÆ Sími 545 0800 gardatorg@gardatorg.is www.gardatorg.is ATVINNUTÆKIFÆRI Í FERÐAMANNAIÐNAÐINUM Ásmúli – Um 100km frá Reykjavík. Góður húsakostur: 139,3 fm íbúðarhús, 32 hesta hesthús, hlaða og f.l. Landið hentar vel til ferðamannaþjónustu, hrossaræktar og hvers kyns útivistar. Hægt er að skipuleggja frábærar sumarhúsalóðir við Hrútsvatn. Jörðin er um 46ha vel gróin, tún, trjárækt og beitiland. Hallar á móti suðri með afar fallegu útsýni. m.a. til Heklu og Eyjafjallajökuls. Uppl. veitir Þóroddur í síma 868-4508 Vísindakaffi - allir velkomnir! KAFFIDAGSKRÁIN: Reykjavík: Súfistanum, Máli og menningu, Laugavegi Mánudagur 23. september kl. 20:00 - 21:30 Ég elska þig stormur! Guðrún Nína Petersen veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Hvers vegna er vindur? Hvert er hlutverk hans í hnattrænu samhengi? Fjallað verður um tilurð vinds, mikilvægi hans og ýmis tilbrigði vinds í heiminum, auk þess sem rætt verður um vindrannsóknir á Íslandi. Þriðjudagur 24. september kl. 20:00 - 21:30 Krabbamein í blöðruhálskirtli – mein eða meinleysi? Eiríkur Jónsson þvagfæraskurðlæknir og Gunnar Bjarni Ragnarsson krabbameinslæknir. Krabbamein í blöðruhálskirtli er algengasta krabbamein íslenskra karla, en um 220 greinast og 50 látast úr sjúkdómnum árlega. Sjúkdómurinn er algengur á efri árum og oft hægfara þannig að mjög skiptar skoðanir eru um hversu vasklega skuli ganga fram við að greina hann snemma og meðhöndla. Krabbamein í blöðruhálskirtli er í huga leikmannsins eitt fyrirbæri á meðan læknirinn lítur á það sem róf margra sjúkdóma. Miðvikudagur 25. september kl. 20:00 - 21:30 Atgervi íslenskra ungmenna – er allt á niðurleið? Erlingur Jóhannsson prófessor og Sunna Gestsdóttir doktorsnemi við rannsóknarstofu í íþrótta og heilsufræði, menntavísindasviði HÍ. Heilsufar og lífsstíll ungs fólks er áhyggjuefni vegna þeirra heilbrigðisvandamála sem fylgja neikvæðum lífsháttum. Forsenda þess að geta sagt til um til hvaða fyrirbyggjandi aðgerða yfirvöld heilbrigðis og menntamála þurfa að grípa til á komandi árum er vitneskja um heilsfar ungs fólks. Sú vitneskja kemur úr niðurstöðum fjölbreyttra rannsókna enda nauðsynlegt að nálgast málefnið á breiðum grundvelli og skoða líkamlega, félagslega jafnt sem andlega þætti ungs fólks og miða aðgerðir til úrlausna við alla þessa þætti ef árangur á að nást. Fimmtudagur 26. september kl. 20:00 - 21:30 Nýja norðrið: hvernig mótar fólkið sjálft samfélög norðurslóða? Katla Kjartansdóttir þjóðfræðingur hjá EDDU - Öndvegissetri og Kristinn Schram forstöðumaður Rannsóknaseturs um norðurslóðir. Myndun og mótun samfélaga norðurslóða fer fram með margvíslegum hætti, en rétt eins og náttúran og umhverfið, eru samfélög breytingum háð. Stöðug endursköpun samfélaga fer ekki síður fram í hversdagslegum samskiptum fólks og í fjölmiðlum en á hinu opinbera sviði. Frá hversdagslegu sjónarhorni má varpa ljósi á leiðarstef í menningarpólitík norðurslóða, á hugmyndir sem liggja þar að baki og á þær væntingar sem gerðar eru til hins „nýja norðurs“. Sandgerði: Þekkingarsetri Suðurnesja Fimmtudagur 26. september kl. 20:00 - 21:30 Grjótkrabbi og kræklingur - rannsóknarefni sem bragð er að! Vísindakaffi verður haldið í Þekkingarsetri Suðurnesja að Garðvegi 1 í Sandgerði og hefst það með stuttri og lifandi kynningu á rannsóknum Rannsóknaseturs HÍ á Suðurnesjum á grjótkrabba og kræklingi. Grjótkrabbinn er nýr landnemi hér við land en allt frá 2007 hefur hann verið rannsakaður og fylgst með framvindu hans við Ísland. Kræklingurinn hefur hins vegar verið notaður undanfarin ár til rannsókna á mengun sjávar en hann hentar einstaklega vel sem mælitæki við slíkar rannsóknir. Eftir kynningu á líffræði og eiginleikum þessara ólíku tegunda fá gestir að bragða á þeim ásamt heimabökuðu brauði en Veitingahúsið Vitinn mun sjá um matreiðsluna Húsavík: Rannsóknasetrinu Föstudagur 27. september kl. 14:00 - 16:00 Ferðaþjónusta og náhvalir Opið hús verður í Rannsóknasetrinu á Húsavík í tilefni af Vísindavöku. Tvö verkefni verða kynnt: Hagræn áhrif ferðaþjónustu í Þingeyjarsýslum og Imagining the Arctic – recordings of Narwhals. Allir velkomnir að kynna sér starfsemi setursins og þær rannsóknir sem eru í gangi á svæðinu og þiggja kaffiveitingar. Á Vísindakaffi Rannís gefst almenningi kostur á að hitta vísindafólk úr ýmsum fræðigreinum, kynnast áhugaverðum viðfangsefnum og spyrja það spjörunum úr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.