Morgunblaðið - 21.09.2013, Page 41
MINNINGAR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2013
✝ Svavar Sig-urðsson fæddist
í Brekkukoti í
Þingi, Austur-
Húnavatnssýslu 31.
október 1930. Hann
lést á Landspít-
alanum, Hringbraut
10. september 2013.
Foreldrar hans
voru Sigurður
Bjarnason, f. 24.1.
1895, d. 5.7. 1953,
og Anna Sigurðardóttir, f. 6.4.
1899, d. 3.10. 1976. Systkini
Svavars voru Bjarni, f. 1920, d.
1982; Sigþór, f. 1922, d. 2010;
Hulda, f. 1923, d. 1940; Baldur
Reynir, f. 1929, d. 1991; Sig-
urður, f. 1934, d. 1999; Þorbjörn,
f. 1937, d. 2013.
Hinn 31. október 1951 kvænt-
ist Svavar Magdalenu Erlu
Jakobsdóttur frá Síðu í Engihlíð-
arhreppi, f. 29. maí 1930. Börn
þeirra eru: 1) Jakob Óskar, f. 30.
ágúst 1952. Sambýliskona
Hrefna Kristófersdóttir, f. 13.
apríl 1957. 2) Sigurður, f. 24.
febrúar 1954. Eiginkona Ásta
Kristín Andr-
ésdóttir, f. 18. mars
1954. 3) Einar, f. 21.
maí 1956. Eiginkona
Sigríður Her-
mannsdóttir, f. 3.
mars 1955. 4) Bald-
ur, f. 30. mars 1958.
5) Elínborg, f. 10.
júní 1961. Eig-
inmaður Ingimar
Rúnar Ástvaldsson,
f. 20. desember 1959.
6) Björn Magni, f. 8. febrúar 1964.
Eiginkona Þórunn Jónasdóttir, f.
3. febrúar 1963.
Barnabörn Svavars eru ellefu
og barnabarnabörn eru orðin tólf.
Svavar ólst upp í Brekkukoti
og bjó þar til 1950. Þá flutti hann í
Síðu í Engihlíðarhreppi, A-Hún.,
þar sem hann bjó þar til hann lést.
Samhliða búskap vann hann hjá
Kaupfélagi Húnvetninga frá því
um 1960 til 1997, lengst af sem
bifreiðastjóri.
Útför Svavars fer fram frá
Blönduóskirkju í dag, 21. sept-
ember 2013, og hefst athöfnin kl.
14.
Okkar ástkæri afi og langafi,
þín verður sko sárt saknað. Ég
veit nú ekki hvar ég á að byrja.
Þú varst mér mikil fyrimynd í
einu og öllu og allt sem þú tókst
þér fyrir hendur var gert 110%
þó það þyrfti nú ekki alltaf að
vera. Snyrtimennska hjá þér var
alltaf í hámarki og mátti aldrei
sjá skítugan bíl eða vél sem þú
varst með í umsjón, ég veit ekki
hvað plastið á sætinu í dráttarvél-
inni var í mörg ár á sætinu sem
segir nú aðeins um hvernig þetta
var. Þú reyndir alltaf að gera gott
úr hlutunum en hafðir samt alveg
þína skoðun á þeim, margar voru
sögurnar sem þú sagðir mér úr
vinnunni þinni þegar þú keyrðir
flutningabíl hér í gamla daga og
ég held að bílstjórar í dag mundu
ekki tolla lengi í þessu en sem
betur fer eru nú breyttir tímar.
Þú hafðir mikla bíla- og tækja-
dellu og ég held að það séu nú
nokkrir í ættinni sem erfa það frá
þér. Mikill barnakarl varstu og
mörg börn héldu mikið upp á þig,
þú varst mjög góður við öll börn
sem kíktu í sveitina í heimsókn.
Með þessum fáu orðum vil ég
þakka allt sem þú hefur gert fyrir
okkur feðgin, vona innilega að þú
sért á góðum stað og hafir það
gott. Þú átt og munt alltaf eiga
stað í hjarta okkar. Guð geymi
þig, elsku afi og langafi.
Þér kær var þessi bændabyggð,
þú battst við hana ævitryggð.
Til árs og friðar – ekki í stríð –
á undan gekkstu í háa tíð.
(Jóhannes úr Kötlum)
Blessuð sértu sveitin mín!
sumar, vetur, ár og daga.
Engið, fjöllin, áin þín
– yndislega sveitin mín! –
heilla mig og heim til sín
huga minn úr fjarlægð draga.
Blessuð sértu sveitin mín!
sumar, vetur, ár og daga.
Yndislega ættarjörð,
ástarkveðju heyr þú mína,
þakkarklökkva kveðjugjörð,
kveð ég líf þitt, móðir jörð.
Móðir bæði mild og hörð,
mig þú tak í arma þína.
Yndislega ættarjörð,
ástarkveðju heyr þú mína.
Fagra, dýra móðir mín
minnar vöggu griðastaður
nú er lífsins dagur dvín,
dýra, kæra fóstra mín,
búðu um mig við brjóstin þín.
Bý ég þar um eilífð glaður.
Fagra, dýra móðir mín,
minnar vöggu griðastaður.
Faðir lífsins, faðir minn,
fel ég þér minn anda í hendur.
Foldin geymi fjötur sinn.
Faðir lífsins, Drottinn minn,
hjálpi mér í himin þinn
heilagur máttur, veikum sendur.
Faðir lífsins, faðir minn,
fel ég þér minn anda í hendur.
(Sigurður Jónsson)
Elvar Þór Björnsson,
Hrafnhildur Rán Elvarsdóttir.
Þótt við vitum að allt hafi sinn
tíma í veröld okkar þá var það
okkur systkinunum mikið áfall
þegar við fengum fregnir af and-
láti þínu, elsku afi. Mikið óskap-
lega er erfitt að trúa því að þú
sért farinn frá okkur og að við
eigum ekki eftir að sjá þig aftur.
Það verður skrítið að koma í
sveitina og enginn afi mætir nán-
ast hálfa leiðina út á hlað til að
taka á móti okkur og faðma okk-
ur og kyssa en í staðinn munum
við kyssa og faðma ömmu fyrir
þig. Vonum við samt að þú hafir
það gott þarna uppi og systkini
þín hafi tekið vel á móti þér þó
svo söknuðurinn hérna niðri
verði alltaf jafn mikill.
Við sitjum hér og rifjum upp
allar góðu minningarnar og
stundirnar sem við áttum með
þér, elsku afi. Það sem situr efst í
huga okkar beggja eru þær ferðir
sem þú fékkst að sitja í með okk-
ur (eins og þú orðaðir það) ann-
aðhvort suður eða norður. Þú
náðir að fræða okkur um ýmsa
staði eins og t.d. Brennivínslæk
og Biskupsbeygjuna, fannst okk-
ur systkinunum þetta mjög fróð-
legt og svo við tölum nú ekki um
allar ferðasögurnar sem þú sagð-
ir okkur, ekki varstu spar á þær,
allar ferðirnar sem þú fórst þegar
þú vannst við að keyra vörubíl-
ana.
Mikill barnakarl varstu, afi,
alltaf kom stórt bros frá þér þeg-
ar eitthvert af afabörnunum þín-
um kom í heimsókn, einnig þegar
langafabörnin komu. Þér fannst
ekkert skemmtilegra en að taka
aðeins í okkur og spilla okkur áð-
ur en við þurftum svo að fara aft-
ur heim. Einnig var alltaf stutt í
húmorinn og stríðnisglottið hjá
þér, alltaf varstu með einhver
skot á okkur, eins og í sumar þá
gerðirðu ekki annað en að skjóta
á mig (Svövu) hvort ég ætlaði nú
ekki að fara að hætta í þessum
fótbolta þar sem við gerðum ekk-
ert annað en að tapa, þó svo að þú
vissir að við hefðum unnið.
Elsku afi okkar, margar eru
minningarnar um þig og gleym-
ast þær seint. Söknuðurinn er sár
en við vitum að þú ert á góðum
stað og fylgist ef til vill með okk-
ur hérna niðri.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem)
Hvíldu í friði, elsku afi,
Þín barnabörn,
Ástvaldur og Svava Rún.
Borinn er til grafar í dag 21.
sept. Svavar Sigurðsson bóndi á
Síðu. Með Svavari er genginn
heilsteyptur persónuleiki sem
bar hag sveitasamfélagsins fyrir
brjósti og var tilbúinn að leggja
sitt af mörkum til að hafa áhrif á
þróun þess.
Svavar og Erla eiginkona hans
tóku við búi að Síðu af foreldrum
hennar og byggðu upp á búskap-
artíð sinni bæði íbúðarhús og
fjárhús auk ræktunar á túnum og
er á jörðinni nú fyrirmyndarbú-
jörð þar sem aðstaða og snyrti-
mennska er með þeim hætti að
eftir er tekið. Nú hefur sonurinn
Baldur tekið við búrekstrinum og
haldið uppi merkinu með aðstoð
þeirra hjóna. Svavar var mikill
reglumaður og snyrtimenni eins
og heimilið að Síðu ber gott vitni
um.
Auk vinnu við búreksturinn á
Síðu stundaði Svavar lengi akst-
ur hjá Kaupfélagi Húnvetninga,
með því jók hann tekjur heimilis-
ins og bætti hag fjölskyldunnar.
Þessar aðstæður urðu til þess að
búreksturinn hvíldi meira á herð-
um Erlu sem er mikil búkona.
Svavar gegndi félagsmála-
störfum fyrir sveit sína, var í
hreppsnefnd Engihlíðarhrepps
um árabil og var ég svo heppinn
að fá að vinna með honum í
hreppsnefndinni. Það var mér
mikils virði að njóta reynslu hans
þegar ég varð oddviti hreppsins,
ungur og reynslulítill. Svavar var
glöggur á meðferð mála og
traustur bakhjarl sem alltaf var
hægt að treysta á. Það var mjög
gott að vinna með honum og vil
ég þakka fyrir það farsæla sam-
starf að leiðarlokum.
Svavar var gæfumaður, átti
fyrirmyndarheimili og þau hjónin
áttu sex myndarbörn sem öll hafa
orðið duglegir þjóðfélagsþegnar
og lagt rækt við heimilið að Síðu.
Erlu og fjölskyldunni vottum
við hjónin samúð okkar, en minn-
ingin um góðan dreng lifir.
Valgarður Hilmarsson.
Svavar
Sigurðsson
rekumst ekki framar á Ása brun-
andi um á vespunni sinni.
Ási var bara nýhættur að vinna
en var síður en svo að fara að setj-
ast í helgan stein. Hann var alltaf
að „smíða skútu, skerpi skauta, bý
til þrumu ost og grauta“ eins og
segir í kvæðinu. Hann var mjög
ræktarsamur við systkini sín og
leit nánast daglega inn í heim-
sókn. Hann var áhugasamur um
hvað við vorum að bralla og spurði
frétta af okkur og börnunum okk-
ar, sem þótti mikið til Ása frænda
koma.
Fjölskylda hans, vinir og við
höfum misst mikið. En í minning-
unni um hann lifir alltaf hláturinn
og óborganlegur húmorinn sem
mun halda áfram að kæta okkur
um ókomin ár.
Við sendum Hildi, frændum
okkar og fjölskyldum þeirra inni-
legar samúðarkveðjur.
Sveinbjörg, Þórunn Björg
og Snorri Halldórsbörn.
Klukkan fjögur á nýársdag
mættum við í afmæli Ásmundar.
Heitt súkkulaði og veisluhlaðborð
að hætti Siggu El. móður hans.
Lítið var af afmælisgjöfum, góðar
óskir um farsælt ár látnar duga.
Þetta var fastur liður í tilverunni
þau ár sem ég bjó á Norðfirði. Ási
var ákaflega skemmtilegur sögu-
maður, fljótur að sjá spaugilegar
hliðar mannlífsins, minnugur og
orðheppinn án rætni. Hann hafði
góða nærveru, hæglátur og ljúfur.
Hans verður sárt saknað af þeim
sem til þekktu.
Elsku Hildur, þegar ég stóð í
þessum sporum fékk ég svo fal-
legt bréf frá þér sem ég geymi.
Ég fann hvað það hjálpaði að
finna samhuginn og hlýjuna frá
samferðafólkinu. Með þessum fá-
tæklegu orðum langar mig til þess
að þú finnir það sama.
Vertu alltaf hress í huga
hvað sem kann að mæta þér.
Lát ei sorg né böl þig buga
baggi margra þungur er.
Treystu því að þér á herðar
þyngri byrði ei varpað er
en þú hefur afl að bera
orka blundar næg í þér.
(Erla)
Aðstandendum öllum votta ég
mína dýpstu samúð.
Kristrún Stefánsdóttir.
Ásmundur Þorsteinsson, eða
Ási, hóf störf við Verkmennta-
skóla Austurlands við upphaf vor-
annar 1996. Ef frá er talinn vet-
urinn 2006-2007 þá kenndi Ási við
skólann þar til í vor er hann lét af
störfum að eigin ósk vegna aldurs.
Ási kenndi við málmdeild skólans
enda með góða menntun á því
sviði þar sem hann hafði meist-
arapróf í vélvirkjun og rennismíði
auk þess sem hann lauk kennslu-
réttindanámi vorið 2003. Ási hafði
mikil áhrif á þróun náms í málm-
iðngreinum og vélvirkjun við skól-
ann enda fær í sinni iðn og vildi
veg iðnmenntunar sem mestan.
Ási var vinsæll kennari og gaf
mikið af sér til nemenda sinna og
átti einstaklega auðvelt með að
setja sig í þeirra spor og manna-
mun gerði hann alls ekki. Ási var
einnig góður samstarfsmaður og
hafði einstaklega skemmtilega
kímnigáfu og gerði ósjaldan góð-
látlegar athugasemdir við ýmis-
legt varðandi viðfangsefni líðandi
stundar en þó af nærgætni.
Það var mikið áfall fyrir okkur
starsfólk skólans þegar við frétt-
um af þessu fráfalli félaga okkar
þennan fallega föstudagsmorgun.
Mikill er missir okkar því þó Ási
hafi verið hættur að starfa við
skólann þá var hann að sjálfsögðu
ennþá einn af okkur enda kom
hann reglulega í kaffi og spjallaði
um skólamál og landsins gagn og
nauðsynjar. Áfallið og sorgin er
þó að sjálfsögðu mest hjá aðstand-
endum og sendum við þeim okkar
dýpstu samúðarkveðjur.
F.h. starfsfólks Verkmennta-
skóla Austurlands,
Elvar Jónsson skólameistari.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
SIGÞRÚÐUR KRISTÍN GUNNARSDÓTTIR,
Boðaþingi 6,
lést á heimili sínu fimmtudaginn
12. september.
Útförin verður gerð frá Árbæjarkirkju þriðju-
daginn 24. september kl. 13.00.
Jón Óskar Carlsson,
Róbert Örn Jónsson,
Karl Ómar Jónsson, Berglind Tryggvadóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Elsku systir mín og frænka okkar,
GUÐRÚN ÁGÚSTSDÓTTIR,
áður til heimilis á Hringbraut 69,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin í kyrrþey frá Hafnarfjarðar-
kirkju mánudaginn 23. september.
Fyrir hönd aðstandenda,
Magnús Ágústsson
og systkinabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
INGA BJARNEY ÓLADÓTTIR,
Ásvöllum 2,
Grindavík,
sem lést mánudaginn 16. september, verður
jarðsungin frá Grindavíkurkirkju þriðjudaginn
24. september kl. 14.00.
Björgvin Gunnarsson,
Rúnar Þór Björgvinsson, Karen Mjöll Elísdóttir,
Hrafnhildur Björgvinsdóttir,
Gunnhildur Björgvinsdóttir, Símon Alfreðsson,
Óli Björn Björgvinsson, Guðrún Jóna Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
HAUKUR BERGMANN,
Vallarbraut 6,
Njarðvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
mánudaginn 16. september.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 27. september
kl. 13.00.
Þóra Jónsdóttir,
Haukur Þór Bergmann, Aðalheiður Kristjánsdóttir,
Sigurður Bergmann, Sólveig S. Guðmundsdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGUNN GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Grund í Stykkishólmi,
Dalbraut 27,
Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 15. september, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
25. september kl. 13.00.
Jóhanna G. Sigurðardóttir,
Kristbjörg Sigurðardóttir, Sindri Sindrason,
Þórunn Sigurðardóttir,
Sigþór Pétur Sigurðarson, Nelly S. Sigurðarson,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Elskuleg konan mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR,
Seljahlíð,
lést þriðjudaginn 10. september.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Þökkum innilega auðsýnda samúð.
Bjarni Júlíusson,
Þórir Kristmundsson, Guðrún Guðmundsdóttir,
Jón Helgi Kristmundsson,
Guðjón Knútsson, Guðrún Hreinsdóttir,
Ósk Knútsdóttir, Ólafur Á. Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.