Morgunblaðið - 21.09.2013, Síða 42

Morgunblaðið - 21.09.2013, Síða 42
42 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2013 ✝ Ólöf Helga-dóttir fæddist í Stafni í Reykjadal 3. mars 1930. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Þing- eyinga 13. sept- ember 2013. Foreldrar henn- ar voru Helgi Sig- urgeirsson frá Stafni og Jófríður Stefánsdóttir frá Galtará í Gufudalssveit. Ólöf var næstelst fimm systra, þær eru María Kristín, f. 14. maí 1928, Ingibjörg, f. 26. júní 1932, Ásgerður, f. 13. apríl 1936, og Guðrún, f. 3. febrúar 1944. Hinn 25. júní 1950 giftist Ólöf Kristjáni Jósefssyni frá Breiðumýri, f. 19. ágúst 1922, d. 10. janúar 1993. Þau eign- uðust fjögur börn. Þau eru: 1) Gerður, f. 4. janúar 1951, maki Halldór Pálmi Erlingsson, f. 15. september 1947, samtals eiga þau sex börn og átta barna- börn. 2) Snorri, f. 8. desember 1955, maki Marsibil P. Benja- mínsdóttir, f. 30. maí 1959, hún á tvo fóstursyni. 3) Jósef Örn, f. 7. janúar 1960, maki Halla Grímsdóttir, f. 25. nóvember 1955, þau eiga þrjá syni og þrjú barnabörn. 4) Fríður Helga, f. 20. mars 1962, maki Jón Friðrik Einarsson, f. 1. desember 1961, þau eiga tvo syni. Ólöf ólst upp í foreldrahúsum í Stafni. Hún sótti farskóla, sem yfirleitt var í Stafni, var einn vetur í Laugaskóla og annan á Húsmæðraskólanum á Laugum. Hún bjó alla tíð í Stafni fyrir ut- an fyrsta búskaparár þeirra Kristjáns á Arndísarstöðum í Bárðardal. Með húsmóður- og bústörfunum starfaði hún með Kvenfélagi Reykdæla og söng í Kirkjukór Einarsstaðakirkju. Útför Ólafar fer fram frá Einarsstaðakirkju í dag, 21. september 2013, kl. 14. Nú þegar Olla systir er horfin á braut er margs að minnast og þakka. Hún varð ættarstólpinn eftir að foreldrar okkar féllu frá og var alltaf til staðar í Stafni ef einhver þurfti ráð eða nærveru. Olla var sú besta, hún var kletturinn í hafinu. Aldrei skipti hún skapi, alltaf þetta jafnaðar- geð. Sama hvað gekk á alltaf var ró þar sem Olla var. Alveg sama hvort í Stafni voru tíu manns eða tuttugu og fimm. Alltaf voru verkin kláruð án þess að nokkur tæki eftir því, einhvern veginn var Olla samt alltaf til staðar. Bæði börn og fullorðnir sóttu í nærveru hennar enda ekki skrít- ið því þar var einstaklega gott að vera. Alltaf var tími fyrir alla og aldrei heyrðist hún kvarta eða stynja yfir verkum eða fólki. Alla tíð bjó Olla í Stafni og án þess að það væri einhvern tíma rætt sá hún um foreldra okkar þegar ald- urinn færðist yfir. Það eitt og sér var sérlega óeigingjarnt og við ólýsanlega þakklátar Ollu. Olla var góð í gegn með hjarta úr gulli. Öll höfum við notið góðs af matnum hennar Ollu. Sama hvaða tíma dags var komið, alltaf var borðið hlaðið góðgæti, ein- hvern veginn svo fyrirhafnar- laust Hún gerði besta mjólkur- grautinn, flatbrauðið, pönnukökurnar, rúgbrauðið og hrossakjötið í brúnni sósu og svo mætti lengi telja. En matarást var ekki það sem stóð upp úr heldur gæskan og mildin sem all- ir hafa notið góðs af. Alltaf voru allir velkomnir til Ollu í Stafni. Við eigum eftir að sakna stund- anna með prjónaglamri og ein- staka skelli á lær yfir fréttum af mönnum og málefnum. Við minn- umst Ollu fyrir hlýju hennar og kærleik og þökkum samfylgdina. Börnum hennar og þeirra fjöl- skyldum sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Guð blessi ykkur öll. Stafnssystur, María, Ingibjörg, Ásgerður og Guðrún. Fallin er frá móðursystir mín, Olla í Stafni, eins og hún var allt- af kölluð. Til að minnast Ollu þyrfti ég allt blaðið en ég ætla að láta mér nægja örfáar setningar. Olla var einhver sú besta og heilasta manneskja sem stigið hefur fæti á þessa jörð með hjarta úr gulli og allir elskuðu og dáðu hana. Við, sem urðum þeirr- ar gæfu aðnjótandi að vera sam- ferða Ollu, eigum stútfullt hjarta af góðum minningum um þessa sómakonu sem alltaf var boðin og búin og kvartaði aldrei, aldrei, sama þótt Stafnsbærinn væri fullur af fólki, bæði heimafólki og gestum. Alltaf hugsaði Olla fyrst um aðra áður en röðin kom að henni sjálfri. Svona var bara Olla. Fleiri orð eru óþörf um þessa sómakonu. Ástvinum votta ég mína dýpstu samúð, hvíl í friði, Olla. Þröstur Kolbeins og fjölskylda. Ég held að innst inni hafi ég haldið að Olla væri eilíf, hún myndi einhvern veginn alltaf vera til staðar. Mér fannst Olla ekkert eldast og ekki svo langt síðan mig langaði að skríða í fangið á henni og fá hana til að klóra mér á bakinu. Ég á svo margar og góðar minningar úr Stafni og er svo endalaust þakk- lát fyrir að hafa fengið að vera þar í mínum uppvexti. Það er svo skrítið í minningunni að Olla virt- ist alltaf hafa tíma fyrir allt og alla. Úr öllum áttum var kallað á Ollu ef eitthvað var að eða vant- aði og allt leysti Olla. Ég skil ekki enn þann dag í dag hvernig hún fór að því að vinna öll þau verk sem tilheyra stóru heimili. Alltaf var nóg að borða hjá Ollu og allt var best hjá henni, soðið brauð, kleinur, rúgbrauð og bara allt. En hvenær bakaði hún? Hún sem alltaf hafði tíma fyrir okkur hin. Hún var bara best. Rúgbrauðs- sneið með smjöri varð miklu betri þegar Olla var búin að skera hana í litla ferninga. Það að fá að hræra sér glassúr í rauða kaffiglasinu var hátíð út af fyrir sig og einhvern veginn gat Olla alltaf reddað málunum þegar ég var ekki æskileg með stóru krökkunum. Ég fór á vélsleða með Ollu yfir í Laugasel þegar ég hef verið átta eða tíu ára og það var ævintýri sem ég minnist oft. Bara við tvær, svo dýrmæt minn- ing. Í minningunni var allt svo leikandi létt í Stafni. Auðvitað var fleira fólk í Stafni sem gaf af sér mjög mikið eins og afi og amma og svo auðvitað hann Ganni. Olla var nú alveg ágæt- lega gift honum Ganna sem sönglaði þegar ég kom inn í eld- hús Stína mitt ljúfa ljós. Ekkert nema góðar minningar sem gott er að orna sér við. Ég kveð Ollu með söknuði, hennar skarð verð- ur vandfyllt. Hennar yndislegu börnum og þeirra fjölskyldum sendi ég samúðarkveðjur. Megi Guð vera með ykkur. Kristín Gunnarsdóttir. Lítill drengur staddur á Völl- um í heimsókn hjá móðursystur sinni ásamt afa sínum. Hann er að uppgötva heiminn í kringum sig og er búinn að fatta helling á þeim tæpu fjórum árum sem hann hefur lifað og óravíddir al- heimsins verða sífellt meira framandi og forvitnilegri. Hon- um verður starsýnt út um gluggann í eldhúsinu og hann bendir út yfir grenitrén á hvít- málað hús með háum skorsteini. „Ég vil fara í þetta hús.“ Jú, jú, það var svo sem alveg sjálfsagt og krakkarnir á Völlum lögðu af stað með drenginn í ferðalag, yfir bæjarlækinn og í næsta hús sem heitir Stafn. Það fannst stráksa skrýtið bæjarnafn. Ég man, enn þann dag í dag, hvernig ilmurinn af nýsteiktum kleinum fyllti vitin þegar við gengum inn í bæ. Þá var auðvitað ekki úr vegi að sníkja sér kleinu hjá Ollu úr því að ég vissi af þeim þarna nýsteiktum. Þar hitti ég fyrir Ganna, sem síðar átti eftir að taka mig í ófáar klippingarn- ar, Helga og Fríðu sem þá voru ennþá nokkuð hress. Þá hitti ég einnig Snorra og hana Fíu. Þetta var daginn sem ég kynntist fólk- inu í Stafni og það stendur ljóslif- andi fyrir mér enn þann dag í dag. Ferðirnar yfir lækinn heim í Stafn áttu svo eftir að verða óteljandi með tímanum og þá var alltaf rölt strax inn í eldhús til að spjalla við Ollu um daginn og veginn. Það var ekki til sú ferð sem farin var í Velli að ég þyrfti ekki líka að skreppa heim í Stafn til að heilsa upp á fólkið þar og færa því fréttir. Síðar, þegar ég fór að dvelja á Völlum vikum eða mánuðum saman, var ég nánast daglegur gestur í Stafni og var viss afslöppun í því að sitja og spjalla við Ollu á meðan hún vann sín verk. Ýmist var hún að baka, prjóna eða eitthvað að bisa fyrir kvenfélagið eða bara að gera það sem til féll á heimilinu. Eitt sinni stóð Olla við eldhúsbekkinn og hnoðaði deig í flatbrauð og ég spurði hvort ég mætti ekki bara hjálpa henni að hnoða deigið. „Nei, góði minn, hvernig held- urðu að hendurnar á þér yrðu?“ og svo söng hún upphátt: „Drull- um sull og sullum drull, ojbjakk en það svínarí.“ Svo sagði hún: „Sá söngur ætti nú heldur betur við ef þú færir með hendurnar í þetta hérna.“ Aldrei sá ég Ollu sitja auðum höndum nema þegar stund var milli stríða og þá rétt til að fá sér kaffisopa, eða þá þeg- ar Sigga í Máskoti hringdi. Og þá gat nú Olla stundum þurft að sitja lengi við símann. Þegar ég lít yfir farinn veg og grandskoða allt, þá man ég hreinlega ekki eftir því að hafa séð Ollu skipta skapi. Rétt svo að það heyrðist í henni þegar leikar við þau Ollu yngri og Einar eða Kristján voru komnir á fullháan sveifluhraða, að það þurfti aðeins að stilla okkur og þá jafnvel stungið upp á að við færum nú eitthvað út, til dæmis upp á Kaldó. Jæja Olla mín, nú hefur þú lokið veru þinni hér á þessari stoppistöð alheimsins og haldið yfir í astralheima, til þeirra sem á undan eru gengnir, þar sem þú munt halda áfram að kanna heiminn eins og við gerum öll, hvar sem við erum stödd á hverju tilverustigi fyrir sig. Ég þakka þér fyrir góðu stundirnar yfir mjólk og bakkelsi í eldhúsinu í Stafni. Þakka þér fyrir að vera sú sem þú varst fyrir okkur sem fengum að kynnast þér. Við sjáumst síðar. Ég votta börnum, ömmu- og langömmubörnum og öðrum vandamönnum samúð mína. Ágúst Þór Ámundason. Ólöf Helgadóttir frá Stafni var góð kona. Líklegast þætti Ólöfu, Ollu, þetta nóg um sig sagt. Olla var ekki frekar en foreldrar hennar og systur að biðja um orðin þau mörgu. Það var gæfa mín í skilnaði foreldra minna að vera sendur til afasystur minnar Jófríðar Stefánsdóttur og hennar fólks í Stafni, Reykjadal. Ég var fjögurra ára en amma Jófríður hefur þá verið komin langt á sjö- tugsaldurinn, enda kom það í hlut Ollu meira og minna að sjá um guttann og aðra krakka sem fengu að koma í sveitina. Olla varð mín sumarmóðir og fórst það vel, fyrr en varði urðu sumr- in tólf, vetrarpartar nokkrir og einnig góður skólavetur á Laug- um. Það er gott að geta sagst vera að norðan, þegar það á við. Án þeirrar samveru hefði ég ekki getað notið samvista við Ollu á árum áður eða síðar meir. Mörg daglöng ferðalög, líklegast töðugjöldin, Brennás, Elífsvötn, Gæsadalur; staðir sem annars hefðu ekki verið heimsóttir. Og hvað var í bauknum, með kaffinu, það var öruggt að það fengu allir nóg og fjölbreytni í sortunum var mikil. En tími var jafnan lítill til ferðalaga. Heimilisreksturinn að Stafni var umsvifamikill. Sérlega yfir sumartímann. Nú til dags þætti það ekki tiltökumál að íbúatala þeirra sem dvöldu í Stafnshverfinu, þegar mest var á sumrin, væri jöfn litlu sveitarfé- lagi. Í Stafni var Olla líkt og hljóðlátur hershöfðingi. Hennar maður, Kristján Jósefsson, mest úti við öll sumur, líkt og aðrir, en í raun ótrúlegt til þess að hugsa að þátttaka Ollu í bústörfum var einnig mjög mikil, hvort sem var fjós eða heyskapur. Þetta gerðist bara einhvern veginn, vinnusemi Ollu var umfram allt og þegar maður lítur til baka þá spyr mað- ur sjálfan sig hvenær svaf eig- inlega Olla þegar mest var álag- ið. Í vor ákvað stjórnmálamaður sem staðið hafði í brúnni í nokkra áratugi að hætta. Þá var gott að geta fært henni hina landsfrægu sokkaskó frá Ollu að gjöf, því engin önnur gjöf kom mér í hug, til að geta túlkað með jafn ríkum hætti hlýju og þakklæti. Ég fann að Olla var stolt af því að hand- verk hennar rataði í húsið við Lækjargötu, en tók því af hóg- værð eins og öllu öðru. Náði að hitta Ollu í Reykja- dalnum um miðjan ágúst. Það voru einhver ónot sem þurfti að kíkja á, áttum öll von á að dag- arnir yrðu fleiri. Vinarþel og kærleikur er gjöf og hún verður ekki tekin aftur, þó við kveðjum ástvini. Kona mín, Hrönn, þakk- ar fyrir góða nærveru og minnist einnig gönguferðar sem hún og Olla fóru í fyrir um 20 árum, stukku yfir í Arndísarstaði í Bárðardal. Það þótti Ollu ekki til- tökumál og gott að hafa með sér poka til að tína fjallagrös á leið- inni, alltaf að alla daga. Börnin mín, Tinna, Ásgeir Jó- hannes og Ólöf Rún, hafa haft tækifæri að kynnast Ollu og Stafnsfólkinu á ferðalögum okk- ar. Með þakklæti, hlýju og gleði minnast þau Ólafar frá Stafni. Hugheilar samúðarkveðjur sendum við úr Hafnarfirði, börn- unum Gerði, Snorra, Jósef og Fríði, tengdabörnum Ólafar, systrum og öllum þeim ættingj- um og vinum sem Ólöf svo sann- arlega auðgaði líf til lengdar. Hvíl í friði, Ólöf Helgadóttir, líf þitt var kærleikur. Gunnar Svavarsson. Ólöf Helgadóttir ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elsku- legrar eiginkonu, móður og tengdamóður, SELMU JÓNSDÓTTUR, Goðalandi 14. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki á deild 11E á Landspítalanum við Hringbraut og Karitas hjúkrunar- og ráðgjafaþjónustu fyrir frábæra umönnun og viðmót. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Baldur Friðriksson, Jón Gunnar Baldursson, Ingibjörg Sigurðardóttir, Fanney Dagmar Baldursdóttir, Þráinn Vigfússon, Baldur Gautur Baldursson. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, SIGRÚNAR GUÐJÓNSDÓTTUR, Klettási 5, Njarðvík. Sérstakar þakkir færum við hjúkrunar- fræðingum heimahjúkrunar og starfsfólki D-deildar Heilbrigðis- stofnunar Suðurnesja. Jón Heiðar Sveinsson, Hólmfríður Jónsdóttir, Bjarki Sigurðsson, Sveinn Gunnar Jónsson, Harpa Þorbjörnsdóttir, Berglind Jónsdóttir, Kristján Adolf Marinosson og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, LÁRU FJELDSTED HÁKONARDÓTTUR. Sérstakar þakkir og kveðjur til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ. Svanhildur J. Thors, Örn Oddgeirsson, Þórdís Jónsdóttir, Leifur Gíslason, Sigrún G. Jónsdóttir, William S. Gunnarsson, Sigurður Jónsson, Finnbjörg Konný Hákonardóttir, Guðlaug Jónsdóttir, Guðmundur Ólafsson, Katrín Fjeldsted Jónsdóttir, Magnús Ásmundsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og stjúpmóðir, GUÐRÚN ÞORGEIRSDÓTTIR, Asparfelli 4, Reykjavík, sem lést á heimili sínu fimmtudaginn 12. september, verður jarðsungin frá Lang- holtskirkju fimmtudaginn 26. september kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hennar láti Ljósið á Langholtsvegi njóta þess. Þorgeir Ingvason, Þorgeir Pétursson, Stella Skúladóttir, Sturla Pétursson, Anna K. Björnsdóttir, Áki Pétursson, Kristín Bjarney Sigurðardóttir, Sigrún Linda Þorgeirsdóttir, Þórir Viðar Þorgeirsson og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN ÓLÖF SNORRADÓTTIR frá Stóru-Gröf, sem lést miðvikudaginn 11. september, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju mánudaginn 23. september kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Félag heyrnarlausra. Jens Evertsson, Ingibjörg Stefánsdóttir, Snorri J. Evertsson, Stefanía Jónsdóttir, Jóhanna Evertsdóttir, Gylfi B. Geiraldsson, Stefán Evertsson, Oddný S. Matthíasdóttir, Karlotta Evertsdóttir, Sverrir Elefsen, Tómas Evertsson, Sunna Davíðsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.