Morgunblaðið - 21.09.2013, Síða 51
(Kölner Kurse für neue Musik) við
Rheinische Musikschule. Meðal
kennara hans þar voru Herny Pous-
seur, Christof Caskel og Frederick
Rzewski.
Árið 1965 flutti Atli til Hollands
og nam raftónlist hjá Gottfried
Michael König í Bilthoven.
Atli var tónlistarkennari við MR
1968-77, tónlistarkennari í tón-
smíðum og tónfræðum við Tónlistar-
skólann í Reykjavík frá 1977 og ann-
aðist vinsæla tónlistarþætti fyrir
Ríkisútvarpið öðru hverju um árabil
frá 1971.
Atli var formaður Tónskálda-
félags Íslands 1972-83, formaður
Norræna tónskáldaráðsins 1974-76,
sat í stjórn Bandalags íslenskra
listamanna um skeið, sat í stjórn
listahátíðar, sat í dómnefnd Int-
ernational Society for Contempor-
ary Music 1973, Norrænna mús-
íkdaga 1974 og International
Gaudeamus Competition 1978.
Atli gekkst fyrir tónlistarhátíð
ISCM (International society for con-
temporary music) í Reykjavík 1973,
hélt Norræna músíkdaga í Reykja-
vík 1976 og stofnaði Myrka mús-
íkdaga 1980, tónlistarhátíð sem
haldin er í svartasta skammdeginu
og er vettvangur fyrir íslensk tón-
skáld, eldri sem yngri. Hann hefur
haldið fyrirlestra við fjölda erlenda
háskóla á Norðurlöndum, Þýska-
landi og í Bandaríkjunum og var
gestaprófessor við CalArt og við
Brown-háskólann í Providence,
Rhode Island 2002-2003.
Af verkum Atla Heimis
Atli er í hópi ástsælustu tónskálda
þjóðarinnar. Hann hefur samið
fjölda tónverka, s.s. einleikskons-
erta; fimm óperur; hljómsveit-
arverk, þ.á m. átta sinfóníur, kamm-
erverk og einleiksverk. Þá hefur
hann samið tónlist fyrir leiksýn-
ingar, s.s. Dimmalimm, Ofvitann, Ég
er gull og gersemi og Sjálfstætt fólk.
Meðal helstu tónverka Atla má
nefna: Hlými, fyrir kammersveit,
1969: Tengsl, fyrir stóra hljómsveit,
1970: Könnun, fyrir lágfiðlu og
hljómsveit, 1972: Flower shower,
fyrir stóra hljómsveit, 1974: Trobar
clus, fyrir fagott og hljómsveit, 1980,
óperuna Silkitrommuna, 1980, sjón-
varpsóperuna Vikivaka eftir sögu
Gunnars Gunnarssonar, en óperan
var pöntuð af ríkissjónvarpsstöðvum
allra Norðurlandanna.
Atla var veitt staða tónskálds við
Sinfóníuhljómsveit Íslands 2004.
Hann hlaut tónskáldaverðlaun
Norðurlanda 1976 og L’ordre du me-
rite culturel frá Póllandi 1978, var
kjörinn í Konunglegu sænsku
tónlistarakademíuna 1993 og nýtur
heiðurslauna Alþingis.
Fjölskylda
Synir Atla og Sigríðar Hönnu,
fyrrv. konu hans, eru Teitur, f. 23.3.
1969, BA í guðfræði, kvæntur Ing-
unni Jónsdóttur lækni; Auðunn, f.
4.2. 1971, stjórnmálafræðingur og
sendiherra í Vínarborg, kvæntur
Sigríði Rögnu Jónsdóttur, landfræð-
ingi og stjórnunarfræðingi.
Kona Atla er Sif Sigurðardóttir, f.
23.11. 1943, kennari.
Systir Atla er Ingibjörg Sveins-
dóttir, f. 23.1. 1944, snyrtisérfræð-
ingur, ekkja eftir Friedel Kötter-
heinrich tæknifræðing og eignuðust
þau tvö börn.
Foreldrar Atla: Sveinn Þórð-
arson, f. 22.8. 1898, d. 21.11. 1982,
aðalféhirðir Búnaðarbankans, og
k.h., Kristín Guðmundsdóttir, f. 14.9.
1909, d. 9.1. 1998, húsfreyja.
Úr frændgarði Atla Heimis Sveinssonar
Atli Heimir
Sveinsson
Sigurborg Ólafsdóttir
frá Bár í Eyrarsveit
Eyjólfur Jóhannsson
kaupm. í Flatey, sonar-
sonur Eyjólfs eyjajarls
Guðmundur Bergsteinsson
kaupm. og útgerðarm. í
Flatey á Breiðafirði
Kristín Guðmundsdóttir
húsfr. í Rvík
Kristín Guðmundsdóttir
húsfr. á Eyrarbakka
Bergsteinn Jónsson
söðlasmiður á Eyrarbakka
Margrét Árnadóttir
húsfr. í Neðrilág
Sveinn Ólafsson
b. á Neðrilág í Eyrarsveit
Ingibjörg Sveinsdóttir
húsfr. í Rvík
Þórður Breiðfjörð
verkam. og sjóm. í Rvík
Sveinn Þórðarson
aðalgjaldkeri Búnaðarbankans
Sigríður Jónsdóttir
húsfr. í Akurholti
Þórður Gíslason
b. í Akurholti og í Ytri-Tungu í Staðarsveit
Kristín Þórðardóttir
húsfr. á Ísafirði
Gísli Þórðarson
oddviti á Ölkeldu
Óskar Ólafur
Gíslason
sjóm. í Rvík.
Kristinn Ólafsson
fyrrv. tollgæslu-
stjóri í Rvík
Guðrún Jónína
Eyjólfsdóttir
húsfr. í Flatey
Jón Sveinsson
„Nonni“
rithöfundur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tónskáldið Atli Heimir Sveinsson.
ÍSLENDINGAR 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2013
Axel Kristjánsson, vélfræð-ingur og forstjóri Rafha,fæddist í Reykjavík 21.9.
1908. Hann var sonur Kristjáns
Hálfdans Jörgens Kristjánssonar,
múrara í Reykjavík, og k.h., Guð-
rúnar Ólafsdóttur húsmóður.
Axel lauk prófum frá Iðnskól-
anum í Reykjavík og iðnnámi í Vél-
smiðjunni Hamri hf. 1928, vélstjóra-
prófi frá Vélskólanum í Reykjavík
1930 og prófi frá Köbenhavns Mask-
in-Teknikum 1934. Hann stundaði
verkfræðistörf hjá Marinens Flyve-
væsen, A.S. Atlas og Orlogsværftet í
Kaupmannahöfn 1934-37, var eft-
irlitsmaður flugvéla 1937-49 og var
alla tíð mikill áhugamaður um flug,
ráðunautur Fiskimálanefndar 1937-
50 og framkvæmdastjóri Raftækja-
verksmiðjunnar hf. í Hafnarfirði frá
1939 og til dauðadags. Þá var hann
tvívegis framkvæmdastjóri BÚH
skamma hríð, aðaleigandi og stjórn-
arformaður útgáfufyrirtækisins
Hilmis hf., sat í Raforkumálastjórn, í
stjórn Hafskips, í stjórn Iðnlána-
sjóðs, Félags íslenskra iðnrekenda
og í bankaráði Iðnaðarbankans, var
formaður Tæknifræðingafélags Ís-
lands og sat í undirbúningsnefnd
vegna stofnunar Tækniskóla Ís-
lands.
Axel var fjölhæfur athafnamaður
og án efa í hópi merkustu brautryðj-
enda í tækni- og iðnsögu þjóðarinnar
á tuttugustu öld. Rafa-eldavélarnar,
sem fyrirtæki hans framleiddi, voru
nánast á hverju íslensku heimili um
áratuga skeið og þóttu bera af er-
lendum vélum.
Axel var hár maður vexti og
myndarlegur, glaðsinna og hressi-
legur í viðmóti en nokkuð seintek-
inn. Hann var í raun stórbrotin per-
sóna, vandur að virðingu sinni, mikill
vinur vina sinna en harður í horn að
taka ef honum fannst á sig hallað.
Axel var alla tíð jafnaðarmaður og
mikils metinn ráðgjafi í þeirra her-
búðum en sóttist ekki eftir pólitísk-
um metorðum. Þá var hann framá-
maður í íþróttamálum Hafnfirðinga
og hlaut heiðursmerki KSÍ.
Axel lést 4.6. 1979.
Merkir Íslendingar
Axel Krist-
jánsson
Laugardagur
104 ára
Klara Vemundsdóttir
103 ára
Guðríður Jónsdóttir
95 ára
Þórarinn Sveinsson
90 ára
Gunnar Ólafsson
Helena Sigtryggsdóttir
85 ára
Arnheiður Helgadóttir
Hannes Ágústsson
Sigurgeir Friðjónsson
80 ára
Bragi Guðbrandsson
Kristinn Guðmundsson
Sigurður Ólafsson
75 ára
Dýrfinna Ósk Högnadóttir
Guðfinna Friðriksdóttir
Guðný Erna Þórarinsdóttir
Gunnar Sigurjónsson
Jón Birgir Pétursson
70 ára
Anna Soffía Sverrisdóttir
Halldóra Björt Óskarsdóttir
Margrét B. Árnadóttir
Matthías Sveinsson
Ólafur Guðmundsson
Þór Már Valtýsson
60 ára
Árni Árnason
Bjarni Magnús
Jóhannesson
Erna Agnarsdóttir
Guðmundur Ingólfsson
Guðríður G.
Guðmundsdóttir
Ólafur Guðjónsson
Rúnar Þór Pétursson
Þorgerður Sigurðardóttir
50 ára
Anna Kristborg
Svanlaugsdóttir
Árni Finnsson
Birgir Heiðmann Arason
Gísli Björn Heimisson
Hallfríður I Friðriksdóttir
Heiða Dís Einarsdóttir
Ingibjörg M.
Valmundsdóttir
Jón Ágúst Knútsson
Kristinn Hafliði Sigfússon
Ragnar Ómarsson
Sif Eldon Jónsdóttir
Þorsteinn Guðlaugur
Gunnarsson
Þorsteinn Helgi
Steinarsson
40 ára
Baldur Guðmundur
Ingimarsson
Bragi Hinrik Magnússon
Ellert Heiðar Jóhannsson
Hafdís Inga Rafnsdóttir
Heiða Hazel Grétarsson
Ingibjörg Ásdís Björnsdóttir
Ingi Páll Sæbjörnsson
Sigurveig Káradóttir
Tinna Hrafnsdóttir
Völundur Snær
Völundarson
30 ára
Davíð Þór Óskarsson
Gunnar Vilhelmsson
Kolbrún Mist Pálsdóttir
Oddur Þór Rúnarsson
Reynir Svavar Eiríksson
Signý Scheving
Þórarinsdóttir
Sunnudagur
90 ára
Guðrún R. Valdimarsdóttir
Halldóra Lárusdóttir
85 ára
Bryndís Pétursdóttir
Ægir Þorvaldsson
80 ára
Guðfinna Anna
Sigurbjörnsdóttir
Guðmar Ragnarsson
Óskar Þorleifsson
Unnur Svandís
Magnúsdóttir
75 ára
Edna Sólbrún Falkvard
Sigurður Jónsson
Vigdís Ingibjörg
Ásgeirsdóttir
Þorsteinn Guðbergsson
70 ára
Björn Ingi Björnsson
Hulda Sveinbjörnsdóttir
Ingirós Filippusdóttir
Jón Kristjánsson
Kristín Guðmundsdóttir
60 ára
Anna Rósa Sigurgeirsdóttir
Brynleifur G. Siglaugsson
Erna Sigurðardóttir
Hrafnhildur B.
Gunnarsdóttir
Inga Björg Sigurðardóttir
Jóhanna Ólöf Gestsdóttir
Kristín Norland
María Gunnarsdóttir
Þorlákur Marteinsson
Þóra Guðrún
Ingimarsdóttir
50 ára
Brynja Sigurðardóttir
Egill Aðalgeir Bjarnason
Ellen Sigfúsdóttir
Hafdís Friðriksdóttir
Hera Sveinsdóttir
Herborg Valgeirsdóttir
Ólafur Ólafsson
Sigurður Tómasson
Sigurlínus Gunnarsson
Svitlana Adzhybyekova
Þóra Guðrún Grímsdóttir
Þórkatla Jónasdóttir
Þórleif Hoffmann
Gunnarsdóttir
40 ára
Anna Sigurðardóttir
Eydís Jóhannsdóttir
Guðfinna Erlín
Stefánsdóttir
Gunnar Geir Halldórsson
Hannes Jarl Skaftason
McClure
Hjördís Áróra Ásgeirsdóttir
Hjördís Ýrr Skúladóttir
Hulda Þórey Garðarsdóttir
Högni Stefán Þorgeirsson
Ingibjörg Þ.. Sigfúsdóttir
Ólafur Þór Kristjánsson
Pétur Gísli Finnbjörnsson
Ragnar Ágúst Eðvaldsson
Unnar Friðrik Pálsson
Valdís Elísdóttir
30 ára
Aldís Ýr Ólafsdóttir
Anna Steinunn
Gunnarsdóttir
Dagný Rut Kjartansdóttir
Daníel Snorri Karlsson
Einar Orri Karlsson
Eirik Gjerløv
Friðfinnur Sigurðsson
Hafþór Atli Rúnarsson
Heimir Jónsson
María Lovísa
Guðbrandsdóttir
Marta Karlsdóttir
Megan Whittaker
Ólöf Helga Jónsdóttir
Sigríður Bríet Smáradóttir
Stefán Einar Stefánsson
Steinunn Lilja Smáradóttir
Stella Rósenkranz
Hilmarsdóttir
Til hamingju með daginn
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík
Sími 567 4840
www.bilo.is | bilo@bilo.is
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík
Sími 580 8900 | bilalind.is
Vantar alltaf
fleiri bíla á skrá!
Fylgstu með okkur á facebook
Fylgstu með okkur á facebook
MIKIL SALA
NISSAN QASHQAI SE 06/2013
06/2013, ekinn 13 Þ.km, bensín,
sjálfskiptur. Verð 5.180.000.
Raðnr.310825 á www.BILO.is
TOYOTA Land Cruiser120 VX
Árgerð 2006, ekinn 208 Þ.KM,
dísel, sjálfskiptur.
Verð 4.190.000. Rnr. 400100
VOLVO XC90 V8
02/2006, ekinn 85 Þ.km, bensín,
sjálfskiptur, flott eintak!
Verð 3.990.000. Raðnr.104727 á
www.BILO.is
TOYOTA Land Cruiser 120
Árgerð 2003, ekinn 174 Þ.KM,
dísel, sjálfskiptur. Verð 2.690.000.
Rnr. 410512