Morgunblaðið - 21.09.2013, Qupperneq 60
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 264. DAGUR ÁRSINS 2013
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Bannað að birta „Closed“ á ljósaskilti
2. Eyðilagði Nóbelsræðu föður síns
3. Ætla að mála bæinn rauðan í kvöld
4. Fimm mánaða lést á færibandi
Bandaríska
sjónvarpsstöðin
HBO mun ekki
ráðast í gerð
þáttaraðarinnar
The Missionary,
skv. frétt á vefn-
um Deadline.
Baltasar Kormák-
ur leikstýrði prufuþætti fyrir þátta-
röðina, sk. „pilot“ á ensku. Leikarinn
Mark Wahlberg var einn framleiðenda
þáttarins en honum hefur Baltasar
leikstýrt í tveimur kvikmyndum.
HBO hættir við
The Missionary
JaJaJa Festival nefnist norræn
menningarhátíð sem haldin verður á
tónleikastaðnum Roundhouse í Lund-
únum 8. og 9. nóvember nk. Á henni
munu tónlistarmenn frá Norður-
löndum koma fram og þá m.a. ís-
lensku hljómsveitirnar múm, Mamm-
út og Sin Fang.
Múm, Mammút og Sin
Fang á JaJaJa
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykja-
vík mun í samstarfi við Borg Restaur-
ant bjóða til sjónrænnar matarveislu
3. október nk. Fimm stuttmyndir úr
íslenskum stuttmyndaflokki hátíð-
arinnar verða sýndar í
Gyllta salnum á Hót-
el Borg og munu
kokkar Borg-
arinnar, undir for-
ystu Völla Snæs,
reiða fram rétti sem
ætlað er að fanga
stemningu
hverrar myndar.
Réttir í anda fimm
stuttmynda á RIFF
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestan 5-10 m/s austantil, en hægari norðlæg eða breytileg átt
annars staðar. Skúrir nyrðra, annars skýjað með köflum eða bjartviðri. Hiti 2 til 10 stig.
Á sunnudag Norðaustan 5-10 m/s og úrkomulítið en 8-15 m/s og fer að rigna syðra og
vestra þegar líður á daginn. Hvessir heldur með suður- og suðausturströndinni undir
kvöld. Hiti 3-10 stig. Á mánudag Norðaustan 8-13 vestanlands en 5-10 austantil. Rigning
í flestum landshlutum. Norðvestan 8-15 um kvöldið og styttir upp suðvestantil.
„Næsta fimmtudagskvöld markar ákveð-
in kaflaskil hjá þeirri dýrmætu þjóð-
areign sem íslenska kvennalandsliðið í
knattspyrnu er. Nánast stanslausum
uppgangstíma í hálft sjöunda ár undir
stjórn Skagamannsins Sigurðar Ragnars
Eyjólfssonar er lokið og við þjálfarastarf-
inu er tekinn Breiðhyltingurinn Freyr
Alexandersson,“ skrifar Sindri Sverr-
isson í viðhorfspistli á laugardegi. »2
Kaflaskil hjá kvenna-
landsliði í fótbolta
KR-ingar geta orðið Íslands-
meistarar í fótbolta á morg-
un þegar þeir sækja Vals-
menn heim. Lykilleikur í
fallbaráttunni fer fram í Ár-
bænum þar sem Fylkir mæt-
ir Víkingi frá Ólafsvík og þar
geta úrslit líka ráðist end-
anlega. Staðan á toppi 1.
deildar er ótrúleg fyrir loka-
umferðina. Og nú liggja loks
fyrir úrvalslið Morgunblaðs-
ins úr 16. og 20. umferð. »4
KR getur unnið og
Ólsarar geta fallið
Keppnin í úrvalsdeild kvenna í hand-
bolta, sem nú heitir Olís-deildin,
hófst í gærkvöld og fyrstu umferð
lýkur í dag. Stjarnan er talin vera
með sigurstranglegt lið í upphafi
móts en Valur og Fram, sem hafa ein-
okað titilinn und-
anfarin ár, eru
spurningarmerki.
Tólf lið leika í
deildinni, sem
gæti skipst í
þrjá hluta.
»1-3
Stjörnukonur þykja
mjög líklegar í vetur
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Tilgangurinn með Hreyfitorgi er að
stuðla að aukinni hreyfingu almenn-
ings,“ segir Gígja Gunnarsdóttir,
verkefnisstjóri hreyfingar hjá emb-
ætti landlæknis.
Vefurinn hreyfitorg.is var opn-
aður á dögunum með það að leið-
arljósi að auðvelda þeim, sem leita
eftir þjónustu á sviði líkamsræktar,
að finna hreyfingu sem samrýmist
áhuga viðkomandi einstaklings og
stuðla þannig að heilbrigði og vellíð-
an.
Gígja segir þekkt að hreyfing með
öðrum getur stutt fólk til þess að
byrja að hreyfa sig og viðhalda
hreyfingu. Framboðinu megi líkja
við frumskóg og viti fólk ekki hvar
það eigi að leita að því sem sé í boði
sé aukin hætta á að það láti kyrrt
liggja. Með hreyfitorginu sé hug-
myndin að safna sem mestum upp-
lýsingum saman á einn stað og auð-
velda þannig notendum að finna
hreyfingu við hæfi. „Með hreyfitorg-
inu fær fólk yfirsýn yfir það sem er í
boði á einum stað,“ segir hún.
Mikil fjölbreytni
Vefurinn var opnaður í liðinni viku
og Gígja segir að þegar hafi við-
brögð verið mjög góð. Hún segir
miklu máli skipta hvað öflug samtök
standa að vefnum. „Við bindum
miklar vonir við að þetta geti orðið
helsta miðstöðin fyrir þessar upplýs-
ingar.“
Þeir sem bjóða þjónustu sína
sækja um að kynna hana á vefn-
um sér að kostnaðarlausu.
Gígja segir að þar sem
áhersla sé lögð á það að
styðja fólk við að taka
upplýsta ákvörðun
þurfi kynningar að
vera vel úr garði gerð-
ar með öllum upplýs-
ingum um uppbyggingu,
erfiðleikastig, menntun og reynslu
leiðbeinenda, verð og fleira. „Það er
mikilvægt að fólk geti gengið að
vissum grunnupplýsingum til þess
að geta tekið upplýsta ákvörðun.“
Þegar farið er inn á vefinn og
smellt á hnappinn „Leita að hreyf-
ingu“ má sjá hvað er í boði. Þar má
nefna íþróttaskóla fjölskyldunnar,
bogfimi, vatnsleikfimi fyrir ein-
staklinga sem greinst hafa með
krabbamein, skokkhóp, leikfimi fyr-
ir karla, líkamsrækt fyrir fólk sem
hefur fengið heilablóðfall, skíða-
æfingar fyrir fimm ára og eldri, bak-
leikfimi og vatnsleikfimi. „Við leggj-
um áherslu á að upplýsingarnar séu
alltaf ferskar og ekki er hægt að
skrá hreyfingu lengur en sex mán-
uði fram í tímann,“ segir Gígja.
Hreyfitorg fyrir hreyfingu
Vefur til að
auðvelda fólki val-
ið og auka vellíðan
Morgunblaðið/Rósa Braga
Á fullu Gígja Gunnarsdóttir er m.a. í meðgöngujóga og gengur reglulega á göngustígnum við Ægisíðu.
Embætti landlæknis hafði umsjón
með uppbyggingu Hreyfitorgs en
Íþrótta- og ólympíusamband Íslands
hefur nú tekið við umsjóninni. Aðrir
aðstandendur vefjarins eru Fé-
lag sjúkraþjálfara, Íþrótta-
kennarafélag Íslands,
Læknafélag Íslands,
Reykjalundur, Ungmenna-
félag Íslands og VIRK
starfsendurhæfing-
arsjóður.
Gígja Gunnarsdóttir áréttar
að vefurinn sé ætlaður öllum,
óháð aldri, kyni og búsetu.
„Þarfirnar eru svo ólíkar og því
skiptir miklu máli að hafa fjöl-
breytt úrval og ekki síst viljum
við stuðla að auknu framboði á
einfaldri og ódýrri hreyfingu
sem höfðar til sem flestra. Þar
má til dæmis nefna gönguhópa
sem eru í nánasta umhverfi
fólks.“
Fjölbreytt úrval hreyfingar
SAMSTARFSVERKEFNI KUNNÁTTUFÓLKS
Hreyfitorg