Morgunblaðið - 01.10.2013, Side 11
Morgunblaðið/Malín Brand
Angan Garretson hnusar af hverjum svepp sem hann finnur. Hér er hann við Rauðavatn, ánægður með íslenska flóru.
og hann braut niður eiturefnin í jarð-
veginum og í lok verkefnisins var öll
olía í jarðveginum horfin,“ segir Gar-
retson sem talar af mikilli sann-
færingu um sveppafræðin. Paul Sta-
mets hefur með rannsóknum sýnt
hvernig sveppir framleiða oxalsýru
(H2C2O4) og að sveppir hafi myndast
á jörðinni milljörðum ára áður en
plöntur tóku að vaxa og hafi í raun
undirbúið jarðveginn með því að
mynda þykkan vef sem nær langt
undir yfirborð jarðar um leið og ox-
alsýran hafi mulið steinhnullunga
niður.
Lesa í sveppina og umhverfið
Þeir félagar, Garretson og
Stamets, hafa mikinn áhuga á að nýta
sveppi enn frekar til uppbyggingar
jarðarinnar. „Það má nota sveppi til
að koma í veg fyrir rof á jarðvegi, til
að byggja upp jarðveginn, ná þung-
málmum úr honum og jafnvel hreinsa
hann af geislavirkum efnum,“ segir
Garretson.
Hann hefur dvalið töluvert í
Kína þar sem hluti náms hans fór
fram. Þar lærði hann eitt og annað
sem olli straumhvörfum í huga hans.
„Það sem ekki er á allra vitorði
er lækningamáttur sveppa. Með þeim
má sigrast á ýmsum kvillum og sjúk-
dómum. Þeir hafa reynst vel í með-
ferðum gegn ýmsum krankleikum.
Það sem við, Vesturlandabúar, þurf-
um að gera er að gera sveppi enn
stærri hluta af daglegu mataræði og
þá mun margt breytast til hins
betra.“
Aðspurður hvort sveppir séu
eins konar lífselexír segir Garretson
svo vera.
„Með því að nýta náttúruna til
fullnustu til að laga það sem amar að
bæði jörðinni og mannfólkinu erum
við á sama tíma að uppfylla þrár
mannsins um betri heim. Sveppirnir
eru lykill okkar til að lifa af. Það væri
stórkostlegt ef hægt væri að breiða
þekkinguna út um þennan orkugjafa.
Sveppir eru uppspretta orku og lykill
að betra lífi,“ segir Garretson sem er
knúinn áfram af orku sveppanna og
vill miðla boðskapnum til sem flestra.
Áhugasamir geta fræðst enn
frekar um málefnið á vefsíðunni:
www.patrickgarretson.com.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2013
Næstu helgi, 5.-6. október, fer fram
tveggja daga alþjóðlegur viðburður
þar sem sjálfboðaliðar í náttúruvernd
koma saman og láta gott af sér leiða
undir yfirskriftinni The Big Green
Weekend.
Það er CVA (Conservation Volun-
teers Alliance) sem stendur fyrir
þessum atburði sem er nú haldinn í
þriðja sinn. Umhverfisstofnun er einn
af stofnendum og meðlimum CVA.
Markmiðið með Grænu helginni
(The Big Green Weekend) er m.a. að
vinna saman í þágu náttúruverndar,
efla samstarf milli hópa, að kynnast
sjálfboðaliðastarfi annarra og síðast
en ekki síst ræða saman um náttúru-
vernd á Íslandi.
Stofnunin hefur áhuga á að efla ís-
lenskt sjálfboðaliðastarf og hefur
óskað eftir samvinnu og þátttöku ís-
lenskra náttúruverndarsamtaka sem
og nemenda við Fjölbrautaskólann
við Ármúla og Menntaskólann við
Hamrahlíð. Sjálfboðaliðum verður
skipt í teymi sem munu vinna sjálf-
boðaliðastörf við Esjuna og í Reykja-
nesfólkvangi (og hugsanlega á öðr-
um friðlýstum svæðum innan
höfuðborgarsvæðisins).
Hvert teymi verður með liðsstjóra
sem eru annaðhvort landverðir eða
verkstjórar í náttúruvernd (sjálf-
boðaliðar).
Helstu verkefni: Göngustígagerð,
hreinsa gróður, afmörkun göngu-
stíga, endurheimt mosagróðurs og
hreinsun svæða.
Umhverfisstofnun útvegar vinnu-
hanska, regngalla og nesti. Þátttak-
endur eru vinsamlega beðnir að
koma með eigin vatnsbrúsa og klæða
sig eftir veðri.
Allir geta verið með og hægt er að
skrá sig með því að senda póst á
ust@ust.is eða í gegnum vefinn ust.is
og er frestur til miðnættis hinn 3.
október.
Göngustígagerð, hreinsun gróðurs og fleira
Græna helgin er um næstu helgi