Morgunblaðið - 01.10.2013, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 274. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Nafn mannsins sem lést í bílslysi
2. Ferðamaðurinn talinn af
3. Vildi ekki vera 60 kílóum of þung
4. Páll forstjóri Landspítalans
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Ákveðið hefur verið að bæta við
aukatónleikum með Sálinni hans
Jóns míns í Hörpu 9. nóvember kl. 23.
Fyrri tónleikar kvöldsins seldust upp
á einum sólarhring. Miðasala á seinni
tónleikana hefst á morgun kl. 12. Ekki
verður bætt við fleiri tónleikum.
Aukaafmælistón-
leikar sama kvöld
Kvartett gít-
arleikarans Andr-
ésar Þórs Gunn-
laugssonar kemur
fram á Kex hosteli
í kvöld. Kvart-
ettinn skipa auk
Andrésar Þórs þeir
Agnar Már Magn-
ússon á píanó,
Richard G. Andersson á kontrabassa
og Matthías Hemstock á trommur. Á
efnisskránni eru djassstandardar sem
og lög eftir Andrés Þór.
Kvartett Andrésar
Þórs á djasskvöldi
Í tilefni þess að tíu ár eru síðan Ten-
órinn eftir Guðmund Ólafsson var
frumsýndur verður efnt til fjögurra
sýninga nú í október.
Fyrsta sýning verður nk.
föstudag kl. 20 í Iðnó.
Verkið gerist í búnings-
herbergi tónlistar-
húss örstuttu fyr-
ir tónleika
tenórsöngvara
sem verið hef-
ur langdvölum
í útlöndum.
Guðmundur Ólafsson
snýr aftur sem tenór
VEÐUR
Hinn 21 árs gamli Magnús
Óli Magnússon átti aldeilis
fínan leik með FH-ingum
þegar þeir báru sigurorð af
Valsmönnum í 2. umferð Ol-
ís-deildarinnar í handknatt-
leik og að mati íþrótta-
fréttamanna Morgun-
blaðsins er hann leikmaður
umferðarinnar. „Ég virki-
lega ánægður með þessa
útnefningu. Þetta er bara
snilld,“ sagði Magnús Óli
við Morgunblaðið. »4
Magnús Óli best-
ur í 2. umferð
Viðar Örn Kjartansson, sóknarmaður
úr Fylki, var besti leikmaður Pepsi-
deildar karla í fótbolta árið 2013,
samkvæmt einkunnagjöf Morgun-
blaðsins. Viðar fékk samtals 20 M
fyrir frammistöðu sína í leikjum sum-
arsins, þremur meira en næsti maður
sem var Gary Martin úr KR. Farið er
rækilega yfir niðurstöður einkunna-
gjafarinnar í íþrótta-
blaðinu í dag. »2-3
Viðar Örn besti leik-
maður deildarinnar
Ögmundur Kristinsson, markvörður
og fyrirliði Fram í knattspyrnu,
meiddist á fyrstu æfingu sinni með
norska úrvalsdeildarliðinu Sandnes
Ulf í gær. Hann átti að vera við æfing-
ar hjá norska liðinu út vikuna en hann
kemur heim í dag eða í síðasta lagi á
morgun. Óvíst er hvort hann heldur
út á nýjan leik eftir að hafa jafnað
sig. »1
Stutt gaman hjá Ög-
mundi hjá Sandnes
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Efnalaugin Björg hefur alla tíð verið
í eigu sömu fjölskyldunnar og í dag
eru ákveðin tímamót, 60 ára afmæli.
„Af því tilefni verða viðskiptavinum
gefnar gjafir í vikunni og Krabba-
meinsfélagið styrkt,“ segir Kristinn
Guðjónsson, framkvæmdastjóri
Bjargar á Háaleitisbraut. „Við tök-
um auk þess veglega á móti við-
skiptavinum á „Haustdögum í
Mjóddinni“ á fimmtudag,“ segir Sig-
urður Jónsson, eigandi Bjargar í
Mjódd.
Eyjamaðurinn Magnús Krist-
insson flutti upp á land um miðja síð-
ustu öld og eftir að hafa unnið í fata-
hreinsun og þvottahúsi, fyrst í
Eyjum og svo í höfuðborginni, stofn-
aði hann Efnalaugina Björg 1. októ-
ber 1953. Hún var fyrst til húsa á
Sólvallagötu 74, en hefur verið á
Háaleitisbraut 58-60 í yfir 45 ár. Ár-
ið 1987 opnaði fjölskyldan aðra efna-
laug við Álfabakka í Mjódd og upp
úr aldamótunum var rekstur efna-
lauganna aðskilinn. Tengdasynir
Magnúsar sjá um reksturinn. Krist-
inn tók við 1984, en Sigurður,
Ágústa K. Magnúsdóttir og Guðrún
Erla Sigurðardóttir, dóttir þeirra,
sem komu inn í reksturinn 1985, sjá
alfarið um reksturinn í Mjódd.
Miklar framfarir
Kristinn bendir á að tækin hafi
breyst verulega og hreinsi og þurrki
betur en áður. Efnin hafi líka breyst
talsvert mikið. Umhverfismál skipti
sífellt meira máli. Vinnuaðstaðan sé
líka mun betri.
Sigurður tekur í sama streng.
„Það þarf sérstaka kunnáttu til þess
að hreinsa viðkvæman fatnað því
bregðast þarf við breytingum á efna-
samsetningu hans. Þess vegna för-
um við á námskeið hjá fataframleið-
endum erlendis og síðast vorum við
á námskeiði hjá Boss-verksmiðj-
unum í Þýskalandi,“ áréttar hann,
en bæði á Háleitisbraut og í Mjódd
er lögð áhersla á mjög vönduð vinnu-
brögð.
Allur venjulegur fatnaður er
hreinsaður í fyrirtækjunum. Efna-
laugin í Mjódd sérhæfir sig meðal
annars í hreinsun á leðri, rúskinni,
loðfeldum og öðrum viðkvæmum
efnum en þvotturinn hefur verið
helsti vaxtarbroddurinn á Háaleit-
isbraut. „Við erum með skyrtuvél
sem blæs og þurrkar skyrtuna í
einni svipan og skilar henni full-
straujaðri,“ segir Kristinn og nefnir
að áður hafi menn óttast að blanda
saman efnalaug og þvottahúsi.
Mikil samkeppni er í þessari at-
vinnugrein. „Ég líki efnalaugum við
veitingastaði og hótel hvað verð og
gæði varðar,“ segir Kristinn. „Við
förum reglulega á sýningar og nám-
skeið erlendis og fylgjumst með öll-
um nýjungum. Við vinnum af ástríðu
fyrir verkefninu og gerum okkur
fulla grein fyrir og höfum haft að
leiðarljósi að rekstur fyrirtækis er
ekki spretthlaup heldur langhlaup.“
Ástríða fyrir verkefninu
Efnalaugin
Björg stofnuð
fyrir 60 árum
Morgunblaðið/Golli
Háaleitisbraut Teitur Du, Eydís Bjarnadóttir og hjónin Soffía Magnúsdóttir og Kristinn Guðjónsson.
Mjódd Sigurður Jónsson, Ágústa Magnúsdóttir og Guðrún Erla Sigurðardóttir.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg breytileg átt og rigning eða súld sunn-
an- og austanlands, yfirleitt þurrt norðvestantil, en annars úr-
komulítið. Hiti 2 til 10 stig.
Á miðvikudag Austlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og rigning með
köflum, en úrkomulítið norðvestantil. Norðaustan 5-10 á Vest-
fjörðum um kvöldið. Hiti 4 til 10 stig, svalast um landið NV-vert.