Morgunblaðið - 02.10.2013, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 2. O K T Ó B E R 2 0 1 3
228. tölublað 101. árgangur
ÁGÆTLEGA
HRESS MIÐAÐ
VIÐ ALDUR
FYRSTA
LÆKNISINS
MINNST
SPENNANDI
UPPTÖKUFERLI
Á SÓLÓPLÖTUNNI
HÖFÐINGINN HRAFN 10 DANÍEL TÓNSKÁLD 38JÓHANNA 100 ÁRA 4
ÁRA
STOFNAÐ
1913
Ómar Friðriksson
Kjartan Kjartansson
Boðaðar eru viðamiklar aðhalds-
aðgerðir og niðurskurður í fjárlaga-
frumvarpi fyrir árið 2014, sem Bjarni
Benediktsson fjármálaráðherra
kynnti í gær. Alls eiga að sparast með
þessum aðgerðum um tólf milljarðar
króna, þar af um 1,1 milljarður í heil-
brigðismálum og 670 milljónir í
menntamálum. Með því að falla frá
nýlegum verkefnum sparast tæpir
sex milljarðar og 2,6 milljarðar með
sérstökum aðhaldsaðgerðum.
Samkvæmt frumvarpinu er stefnt
að hallalausum rekstri á ríkissjóði á
næsta ári. Gangi það eftir yrðu það
fyrstu hallalausu fjárlögin í sex ár.
Heildarútgjöld ríkissjóðs eru áætluð
587,1 milljarður en heildartekjur
587,6 milljarðar, sem gerir afgang
upp á hálfan milljarð króna.
Vinna á að einföldun ríkiskerfisins
og efla stofnanir með sameiningu
þeirra. Gert er ráð fyrir að stofnunum
muni fækka um minnst fimmtíu og að
stofnanir með færri en þrjátíu manns
muni heyra til undantekninga. Stefnt
er m.a. að fækkun sýslumanns- og
lögregluembætta og sameina á heil-
brigðisstofnanir á landsbyggðinni.
Á sama tíma og skera á víða niður í
ríkisrekstri eru framlög hækkuð til
nokkurra málaflokka. Þannig verður
útvarpsgjald hækkað um 3% um ára-
mótin og fer í 19.400 krónur. Framlag
til RÚV mun því hækka um nærri 320
milljónir króna og engin hagræðing-
arkrafa er gerð.
Blendin viðbrögð
Fjármálaráðherra segir það hafa
verið forgangsatriði í fjárlagagerðinni
að stöðva skuldasöfnunina og að jöfn-
uður í ríkisfjármálum skipti miklu
máli til þess að alvöruviðspyrna eigi
sér stað.
Viðbrögð við frumvarpinu eru
blendin. Oddný Harðardóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, segir að í
því sé gengið á heilbrigðis- og
menntakerfið. Telur hún að forgangs-
röðun ríkisstjórnarinnar sé röng.
Guðmundur Magnússon, formaður
ÖBÍ, telur hins vegar jákvætt að út-
gjöld verði aukin til elli- og örorkulíf-
eyrisþega.
MFjárlögin »2, 14-17
12 milljarða niðurskurður boðaður
Stefnt að hallalausum fjárlögum Framlag til RÚV hækkar um 320 milljónir króna á næsta ári
Bensín og áfengi hækka
» Samkvæmt frumvarpinu
munu vörugjöld á bensíni,
áfengi og tóbaki hækka um
áramótin. Er búist við aukinni
áfengisneyslu og auknum
akstri.
» Eiga vörugjöldin að hækka
um 3% og skila ríkissjóði 59
milljörðum króna.
Alþingi kom saman í gær til 143. löggjafarþings. Gengið var fyrst til hefð-
bundinnar athafnar í Dómkirkjunni í fylgd Agnesar Sigurðardóttur, bisk-
ups Íslands, og Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. »2
Þingheimur kominn saman
Morgunblaðið/RAX
143. löggjafarþing Alþingis sett í gær
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Stóru bankarnir þrír, Arion banki,
Íslandsbanki og Landsbankinn,
bjóða nú 158 sparnaðarleiðir. Af
þeim ber 71 neikvæða raunvexti,
enda eru nafnvextir undir verðbólgu.
Þetta leiðir lausleg athugun Morg-
unblaðsins í ljós, en samantektin er
byggð á vaxtatöflum sem fengust af-
hentar í bönkunum sl. mánudag.
Við þessa samlagningu eru ólík
vaxtaþrep innan tiltekinna sparnað-
arleiða tekin með og fara nafnvextir
á þeim stighækkandi eftir upphæð
og þeim tíma sem sparifjáreigendur
eru reiðubúnir að binda fé sitt.
Nafnvextir þurfa að vera háir
Í þessu efni ber að hafa í huga að
fjármagnstekjuskattur hefur verið
tvöfaldaður úr 10% í 20% á síðustu
árum. Þurfa nafnvextir því að vera
háir til að skila góðum vaxtatekjum.
Skal tekið fram að tékkareikning-
ar eru með í þessari upptalningu.
Fram kemur í gögnum á vef Seðla-
bankans að óverðtryggð innlán
heimila í ágúst sl. voru tæplega 368
milljarðar króna en verðtryggð inn-
lán tæplega 219 milljarðar.
Heimilin hafa því verulega hags-
muni af því að óverðtryggðu innlánin
beri ekki neikvæða raunvexti.
Seðlabankinn greinir stöðuna
Ítarlegri gögn um innlánin og þar
með rýrnun sparifjár vegna verð-
bólgu eru ekki aðgengileg.
Hjá Seðlabankanum fengust hins
vegar þær upplýsingar að bankinn
hygðist á næstunni afla gagna frá
innlánsstofnunum um vaxtakjör í
inn- og útlánum, bæði nýjum inn- og
útlánum á mánaðarfresti sem og
þeirra sem fyrir eru.
Stendur til að vinna úr þessum
gögnum upplýsingar um meðal-
vaxtakjör. Verða þær síðan birtar en
þó einungis sem samanteknar tölur
fyrir allar innlánsstofnanir.
MFjöldi reikninga »24
Neikvæð
raunávöxtun
á 71 reikningi
Fjöldi reikninga hjá stóru bönkunum
er með nafnvexti sem ná ekki verðbólgu
Jarðböðin í
Mývatnssveit
hafa laðað til sín
þúsundir gesta. Í
ár stefnir í að
fjöldi baðgesta
fari yfir 100 þús-
und. Stefán
Gunnarsson,
framkvæmda-
stjóri Jarðbað-
anna, segir að í
júlímánuði hafi að jafnaði komið
um þúsund manns á dag. Mývatns-
sveit er í dag viðkomustaður Morg-
unblaðsins í 100 daga hringferð-
inni. „Líklega má svo margfalda
þessa tölu gesta með tveimur ef við
tökum með þá sem sækja veitinga-
húsið hér eða skoða staðinn,“ segir
Stefán. Tíu ár eru síðan starfsemi
Jarðbaðanna hófst og hafa allar
rekstraráætlanir staðist. »18-19
Yfir 100 þúsund
gestir í jarðböðin
Jarðböðin við Mý-
vatn vinsæl.
Hiti í nýliðnum september var
nærri meðallagi áranna 1961 til
1990 en víðast var á landinu rúm-
lega einu stigi undir meðallagi síð-
ustu tíu ár. Þetta kemur fram í yf-
irliti Trausta Jónssonar veður-
fræðings um veðrið í september-
mánuði. Úrkomusamt var á landinu
og þurrkar víða daufir. Meðalhiti í
Reykjavík var 7,1 stig í september,
0,2 stigum neðan meðallags áranna
1961-1990 en 1,6 stigum undir með-
allagi síðustu tíu ára. Er þetta kald-
asti september í Reykjavík í átta ár,
eða frá árinu 2005. Þá hafa úr-
komudagar í Reykjavík aðeins
tvisvar áður frá árinu 1920 verið
fleiri en í sumar. »12
Kaldasti september
frá árinu 2005
Veður September kaldur og blautur.
Morgunblaðið/Eggert
Frá ársbyrjun 2009 og fram á mitt þetta ár högnuðust stóru bankarnir
þrír, Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn, um ríflega 223 milljarða
króna. Hefur Íslandsbanki hagnast mest eða um tæplega 90 milljarða.
Arion banki rekur hins vegar lestina með tæplega 60 milljarða hagnað.
Samanlagður hagnaður bankanna á þessum 54 mánuðum, 223 millj-
arðar króna, jafngildir því að þeir hafi hagnast um 136 milljónir á dag í
1.642 daga, eða um tæpar sex milljónir á klukkustund. Þýðir það að hagn-
aðurinn er tæplega 100.000 krónur á mínútu frá miðnætti aðfaranótt 1.
janúar 2009 og til miðnættis 30. júní 2013, hverja einustu mínútu. »4
100.000 í hagnað á mínútu
HAGNAÐUR STÓRU BANKANNA FRÁ NÝÁRSDEGI 2009