Morgunblaðið - 02.10.2013, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013
Þú færð GO walk skó í
Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar Waage, Kringlunni og
Smáralind | Intersport Lindum, Kópavogi | Skóhöllinni Firði, Hafnarfirði
Versl. Nína, Akranesi | Blómsturvellir, Hellisandi | Hafnarbúðin, Ísafirði
Skóhúsið, Akureyri | Skóbúð Húsavíkur, Húsavík | Sentrum, Egilstöðum
Lónið, Höfn í Hornafirði | Skóbúð Selfoss, Selfossi | Skóbúðin, Keflavík
Axel Ó, Vestmannaeyjum
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
www.skadi.is
Þ. Skorri
Steingrímsson,
Héraðsdóms-
lögmaður
Steingrímur
Þormóðsson,
Hæstaréttar-
lögmaður
Í lok bréfsins bendir Seðlabankinn
einnig á að það sé hlutverk slita-
stjórnar Glitnis, í tengslum við und-
anþágubeiðni hennar, að „skapa að-
stæður til að hægt verði að afgreiða
umsókn um gerð nauðasamnings.
Seðlabanki Íslands er eins og verið
hefur tilbúinn að leggja mat á það
hvort líkur séu á að einstakar leiðir
fullnægi ofangreindum skilyrðum.“
Engar tímasetningar
Hafi slitastjórn Glitnis „útfærðar
hugmyndir“ í þeim efnum þá segist
Seðlabankinn reiðubúinn til að ræða
þær. Ekki komi þó til greina að setja
upp „ferli af því tagi sem lagt er til í
bréfi slitastjórnarinnar, síst af öllu
með skuldbindandi tímasetningum“.
Í máli slitastjórnar Glitnis síðustu
vikur hefur mátt skilja að henni þyki
sérstakt að ekki hafi fengist nein við-
brögð af hálfu yfirvalda, þar á meðal
Seðlabankans, varðandi ósk um við-
ræður um hvernig megi ganga frá
nauðsamningi. Hefur Steinunn Guð-
bjartsdóttir, formaður slitastjórnar,
sagt að búið sé að vinna miklu vinnu
á ýmsum leiðum sem væri hægt að
ræða í þeim efnum.
Seðlabankastjóri undirstrikar aft-
ur á móti að ekki sé hægt að taka til
afgreiðslu undanþágubeiðni meðan
ekki sé búið að ljúka greiningu á
eignum og endurheimtum Glitnis.
Að öðrum kosti sé ekki hægt að meta
hver áhrifin verða á greiðslujöfnuð
við útgreiðslu þeirra til kröfuhafa.
„Vinnu við nauðsynlega upplýsinga-
öflun frá slitastjórn og mat sérfræð-
inga Seðlabankans á greiðslujafnað-
aráhrifum sem nauðasamningur
Glitnis veldur miðar vel áfram en
henni er hins vegar ekki lokið.“
Seðlabankastjóri segir að slita-
stjórn Glitnis sé „kunnugt um“ þetta
og því sé ekki hægt að taka afstöðu
til undanþágubeiðnarinnar. Þegar –
og ef – þeirri greiðslujafnaðargrein-
ingu lýkur þá segir það engu að síður
ekkert til um hvort Glitnir geti
vænst þess að fá undanþágubeiðni
sína samþykkta. Slík beiðni verður
ekki samþykkt nema „fyrir liggi
lausn“ varðandi krónueignir búsins
sem munu eins og áður sagði hafa
verulega neikvæð áhrif á greiðslu-
jöfnuð Íslands verði þær eignir
greiddar út til kröfuhafa, en 93,8%
þeirra eru erlendir aðilar.
Lausn á krónueignum
ekki „samningsefni“
Seðlabankastjóri skýtur föstum skotum á slitastjórn Glitnis
Morgunblaðið/Kristinn
Seðlabankastjóri Már segir að Glitnir þurfi að koma með „útfærða“ lausn.
FRÉTTASKÝRING
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Eigi Seðlabanka Íslands að vera
fært að veita Glitni undanþágu frá
lögum um gjaldeyrismál vegna
mögulegs nauðasamnings þá þarf að
liggja fyrir „útfærð“ lausn af hálfu
Glitnis á um 275 milljarða krónueign
búsins þannig að útgreiðslur þeirra
til erlendra kröfuhafa „rúmist vel
innan svigrúms“ greiðslujafnaðar Ís-
lands og áforma um losun hafta.
Þetta kemur fram í bréfi Seðla-
bankan, sem undirritað er af Má
Guðmyndssyni seðlabankastjóra, til
slitastjórnar Glitnis hinn 23. septem-
ber sl., en slitastjórnin hafði óskað
eftir svörum frá bankanum varðandi
tillögur hennar um að ljúka slitameð-
ferð bankans með nauðasamningi.
Bæði slitastjórn Glitnis og Kaup-
þings sendu nauðasamninga sína til
Seðlabankans í árslok 2012.
„Mikilvægt er að undirstrika,“
segir ennfremur í bréfi Seðlabank-
ans sem var gert opinbert í fyrradag,
„að hér er ekki um samningsefni að
ræða. Annaðhvort er skilyrðið upp-
fyllt eða ekki. Undanþágubeiðni
Glitnis uppfyllir ekki þetta skilyrði
að svo stöddu.“
Engin leið er að skilja orð seðla-
bankastjóra með öðrum hætti en að
útilokað sé að Seðlabankinn hafi
uppi einhver áform um að fara í bein-
ar viðræður við slitastjórn Glitnis
eða fulltrúa kröfuhafa hvernig megi
tryggja að útgreiðslur vegna krónu-
eigna búsins hafi ekki neikvæð áhrif
á greiðslujöfnuð Íslands.
Þess er skemmst að minnast að í
nýjasta fjármálastöðugleikariti
Seðlabankans, sem var birt í lok apr-
íl, segir að íslenska þjóðarbúið muni
„ekki skapa nægan gjaldeyri að
óbreyttu gengi krónunnar til að losa
út krónueignir búa gömlu bankanna
til erlendra kröfuhafa og það jafnvel
þótt þær yrðu verðlagðar mjög lágt í
erlendum gjaldmiðlum.“
Alþjóðlega lyfjafyrirtækið Actavis
plc, móðurfélag Actavis á Íslandi,
tilkynnti í gær að kaupum á írska
lyfjafyrirtækinu Warner Chilcott sé
lokið. Viðskiptin eru metin á um 8,5
milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði
um 1.050 milljarða íslenskra króna.
Fram kemur í tilkynningu að
sameining fyrirtækjanna geri Ac-
tavis að leiðandi alhliða lyfjafyr-
irtæki á alþjóðavísu og er gert ráð
fyrir um 11 milljarða dala sameig-
inlegri veltu á þessu ári. Kaupin
styrkja stöðu félagsins fyrst og
fremst á sviði sérlyfja og gera Ac-
tavis að þriðja stærsta sérlyfjafyr-
irtæki í Bandaríkjunum með um 3
milljarða dala ársveltu á því sviði.
Með kaupunum mun Actavis tvö-
falda vöruúrval sitt þegar kemur að
sérlyfjum, með áherslu á heilsu
kvenna, þvagfæralækningar, melt-
ingar- og húðsjúkdóma.
Segir í tilkynningunni að Actavis
og Warner Chilcott hafi nú verið
sameinuð í nýju fyrirtæki sem hef-
ur verið stofnsett á Írlandi og tekið
upp nafnið Actavis plc og verður fé-
lagið áfram skráð í kauphöllina í
New York.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Rannsóknarstofa Actavis á Íslandi er leiðandi innan samstæðunnar í rann-
sóknum og þróun nýrra samheitalyfja fyrir markaði utan Bandaríkjanna.
Actavis kaupir írskt
lyfjafyrirtæki
Veltan verður 11 milljarðar dala