Morgunblaðið - 02.10.2013, Page 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013
Útvarpsgjald hækkar um 3% um
áramótin eins og aðrir krónu-
töluskattar í samræmi við verðlag.
Það verður 19.400 krónur á næsta
ári. Framlög til Ríkisútvarpsins
munu því hækka um nærri því 320
milljónir króna á milli ára og engin
hagræðingarkrafa gerð til stofn-
unarinnar.
Hins vegar er fyrirhugað að
lækka útvarpsgjaldið um 8% þann
1. janúar 2015 í 17.800 krónur og
um önnur 8% 1. janúar 2016. Þá
verði gjaldið 16.400 krónur á hvern
gjaldanda. Það verði gert í
tengslum við áform um breytingar
á fjármögnun RÚV.
Útvarpsgjaldið hækkar
Ekki skorið
niður til RÚV
Þeir málaflokkar þar sem útgjöld
hækka mest í fjárlagafrumvarpi
næsta árs eru stuðningur við elli-
og örorkulífeyrisþega auk fé-
lagslegrar aðstoðar.
Frumvarpið felur í sér aukin
útgjöld upp á 5 milljarða kr.
vegna breytinga á kjörum og
réttindum þessara hópa.
Þá hækka útgjöldin vegna
fjölgunar bótaþega og verðbóta á
lífeyri um 3,4 milljarða á næsta
ári.
Almannatryggingar
Hækkun bóta
„Ríkisstjórnin er stað-
ráðin í að bregðast
við breyttu umhverfi í
ríkisrekstri og nýta
öll tækifæri til að
bæta þjónustu og
auka hagkvæmni og
árangur,“ segir í um-
fjöllun um skilvirkari
þjónustu og hug-
myndir að umbótaað-
gerðum í ríkisrekstri í grein-
argerð fjárlagafrumvarpsins.
Minnt er á störf hagræðing-
arhóps ríkisstjórnarinnar og talin
eru upp ýmis verkefni sem stefnt
er að, s.s. einföldun stjórnsýslu-
stofnana.
„Unnið verði að einföldun rík-
iskerfisins og eflingu stofnana
með sameiningu, t.d. þannig að
þeim fækki um a.m.k. 50 og að
stofnanir með færri en 30 starfs-
menn heyri til undantekninga,“
segir þar.
Þá segir að embættum sýslu-
manna verði fækkað og samhliða
verði unnið að samhæfingu verk-
lags og styrkingu upplýsinga-
kerfa. Þá verði lögregluemb-
ættum fækkað og áhersla lögð á
sveigjanleika þannig að lögreglan
geti í auknum mæli
starfað sem eitt lög-
reglulið. Eftirlitsstofn-
anir verði sameinaðar
og unnið að aukinni
samhæfingu og ein-
földun eftirlits.
Sameiginleg inn-
kaup lyfja með ná-
grannalöndunum?
Lagt er til að kannaðir verði
kostir þess að samhæfa innkaup
ríkis og sveitarfélaga. Tekin
verði upp rafræn innkaup og út-
boð. Aukin áhersla verði lögð á
að samhæfa innkaup t.d. á sviði
heilbrigðisþjónustu. Kannaðir
verði möguleikar á sameigin-
legum innkaupum með nágranna-
löndunum og þá sérstaklega á
lyfjum o.fl.
Lögð er áhersla á að kostnaður
við nýtingu fasteigna í eigu rík-
isins verði gagnsærri og stefnt að
því að fækka fasteignum í eigu
ríkisins sem sýnt sé að nýtist ekki
í ríkisrekstri eða eru óhagkæmar
í rekstri. Öllum ríkisstofnunum
verði gert að greiða leigu fyrir
afnot af húsnæði sem taki mið af
markaðsvirði.
Ríkisstofnunum
fækki um minnst 50
Stefnt verði að fækkun sýslumanns-
og lögregluembætta á landinu
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Lagt er til að tekið verði sérstakt
1.200 króna gjald fyrir hvern legu-
dag af sjúklingum á sjúkrahúsum í
fjárlagafrumvarpinu. Þá verður
tímabundið framlag til tækjakaupa
bæði á Landspítalanum og Sjúkra-
húsinu á Akureyri sem fyrri rík-
isstjórn hafði gefið vilyrði fyrir fellt
niður.
Heildarfjárveiting ríkisins til
sjúkrahúsa og sjúkrahúsþjónustu er
áætluð 45,6 milljarðar króna á
næsta ári samkvæmt frumvarpinu
og er það hækkun um rúmar tvö
hundruð milljónir króna frá núgild-
andi fjárlögum þegar frá eru taldar
almennar verðlagsbreytingar.
Þar af nema útgjöld vegna rekstr-
ar Landspítalans tæpum 38,5 millj-
örðum króna. Fjárheimildir hans
aukast um 75 milljónir króna frá
þessu ári. Tækjakaupaframlag sem
nam 600 milljónum króna verður
hins vegar fellt niður og á að end-
urmeta þörf spítalans fyrir tækja-
kaup nú í haust að því er segir í
frumvarpinu.
Hagræðingarkröfu á spítalann
verður mætt með gjaldinu fyrir
legudaga. Það á að skila spítalanum
tæpum 200 milljónum í sértekjur á
næsta ári.
Minna fé til heilbrigðisstofnana
Útgjöld ríkissjóðs til heilbrigðis-
stofnana á landsbyggðinni lækka
um rúmar 49 milljónir króna á
næsta ári samkvæmt frumvarpinu
þegar tekið er tillit til almennra
verðlagsbreytinga.
Heilbrigðisráðherra hefur jafn-
framt ákveðið að sameina heilbrigð-
isstofnanir þannig að ein verði í
hverju heilbrigðisumdæmi, þ.e. á
Norðurlandi, Suðurlandi og á Vest-
fjörðum. Þannig fækki ríkisforstjór-
um úr níu í þrjá.
Ekki gafst tími til að sameina
fjárlagaliði stofnananna við vinnslu
fjárlagafrumvarpsins en þar stend-
ur að breytingatillaga verði lögð
fram við 2. umræðu um það á Al-
þingi.
Dýrara á heilsugæsluna
Komugjöld á heilsugæslustöðvar
verða hækkuð úr 1.000 krónum í
1.200 á næsta ári en þau hafa verið
óbreytt frá árinu 2008. Vísitala
neysluverðs hafi á sama tíma hækk-
að um 40%. Ekki stendur til að taka
gjald af börnum og ungmennum
undir 18 ára aldri.
Morgunblaðið/Golli
Spítalar Á meðal þess sem lagt er til í fjárlagafrumvarpinu er að heimta
1.200 króna dvalargjald af sjúklingum sem leggjast inn á sjúkrahús.
Sameina stofn-
anir úti á landi
Taka upp dvalargjöld á sjúkrahús
Framlög til lista verða skorin niður
um 346,6 milljónir króna á næsta
ári að frátöldum launa- og verð-
lagshækkunum samkvæmt því sem
kveðið er á um í fjárlagafrumvarp-
inu. Einnig er fallið frá áformum
um 470 milljóna króna hækkun á
framlagi til Kvikmyndasjóðs sem
áformuð var í fjárfestingaráætlun
fyrri ríkisstjórnar. Hús íslenskra
fræða sem átti að fá 800 milljónir
skv. fjárfestingaráætluninni er
einnig eitt fórnarlamba niður-
skurðar í fjárlagafrumvarpinu.
Listir og menning
Fallið frá
framlögum
FERSKLEIKI • GÆÐI • ÞJÓNUSTA
HUMARSALAT „á la Café Paris“
með klettasalati, papriku, fetaosti, sultuðum rauðlauk,
cous-cous og hvítlaukssósu
RISARÆKJUR MARINERAÐAR
í chili, engifer og lime, bornar fram með spínati,
klettasalati, rauðlauk, tómötum,
mangó og snjóbaunum
BARBERRY ANDAR „CONFIT“ SALAT
með geitaosti, brenndum fíkjum, fersku salati,
rauðrófum, melónu, ristuðum graskersfræjum,
rauðlauk og appelsínufíkjugljáa
Austurstræti 14, 101 Reykjavík, sími 551 1020